Tíminn - 31.12.1975, Qupperneq 9
Miðvikudagur 31. desember 1975.
TÍMINN
9
INNLENDUR FRÉTTAANNÁLL 1975
23. þing Norðurlandaráðs var
haldið i Reykjavik f febrúar.
Ragnhildur Ilelgadóttir
alþingismaður varkjörin forseti
ráðsins. Tfmamynd: G.E.
sagði að launin væru góð, en
sanngjörn.
Mikið var um skipsströnd i
mánuðinum. Hvassafell strand-
ar við Flatey á Skjálfanda i
■hriðarveðri og norðaustan
hvassviðri. Engan mann sakaði.
Unnið að því að bjarga bæði olíu
og áburði úr skipinu. tsleifur VE
63 strandar skammt vestur af
Ingólfshöfða. Aftakaveður.
Björgunarsveitin i Vik brýzt á
strandstað. Mannbjörg. Rúður
brotnuðu i jeppum björgunar-
sveitarinnar og urðu bifreiðarn-
ar allar sandblásnar, svo var
veðurhæðin mikil. Brezkur tog-
ari strandar við Mýrdalssand.
Taldi sig vera við Surtsey.
Mannbjörg.
Týr nýtt skip landhelgisgæzl-
unnar kemur til landsins. Full-
komnasta skip islenzka flotans
segir Guðmundur Kjærnested.
Stærstibor Islendinga kemur til
landsins. Er 566 lestir á þyngd
og getur borað niður á 3.600 m
dýpi. Kostar um 500 millj. kr.
Nemendur Vélskólans gera
Hvað er þér
minnisstæðast á
árinu 1975?
Svan Friðgeirsson, stöðvar-
stjórihjá Oliuverzlun íslands:
betta hlýtur að vera nokkuð
einstaklingsbundið, en fyrir
mér er það snjóflóðið i Nes-
kaupstað, ég var þar i janúar
við vinnu við oliuhreinsunina.
— Þá finnst mér hörmulegt
hvernig erlendir hermdar-
verkamenn fá að vaða uppi út
um allan heim óáreittir, það
er erfitt að horfa upp á þennan
lýð vaða svona uppi.
könnun á nýtingu oliukyndi-
tækja. Telja að auka megi nýt-
ingu katla um 10% og spara allt
að 400 millj. kr. Orkumál mikið
rædd bæði á Alþingi og i blöðum.
BUnaðarþing, hið 57. i röðinni,
haldið i Reykjavik. Stóð i 16
daga. Afgreiddi 29 mál. Forseti
Búnaðarþings var Ásgeir
Nýtt varðskip bættist f flota
tslendinga á árinu. Myndin er
tekin þegar Týr var á reynslu-
siglingu 4. niarz. Tímamynd:
Helgi P.
Bjarnason Asgarði, form.
Búnaðarfélags tslands.
Rækjustriðinu við Húnaflóa
lokið með dómsátt. Skipstjóri
Nökkva dæmdur i 200 þús. kr.
sekt.en fékk að veiða 30 lestir af
rækju á þessari vertið. Fóstur-
eyöingarfrumvarpið mikið hita-
mál, bæði innán þings og utan.
Samtök stofnuð á báða bóga til
að hafa áhrif 'á málið. Undir-
skriftum safnað. Frá áramótum
til 19. marz fæddust 45 meybörn,
en 35 sveinar á Akureyri. Meyj-
ar höfðu ei áður haft þar slika
yfirburði, og velta menn þvi fyr-
ir sér, hvort þar séu áhrif
kvennaársins að koma fram.
Sjómaður frá Patreksfirði
drukknar, og við slysi lá i Ós-
hliö, þegar steinn féll á bil. Eng-
an sakaði.
Jóhannes Eliasson banka-
stjóri lézt.
Niu félagar úr flugbjörgunar-
sveitinni gengu yfir hálendið og
voru 8 daga á leiðinni. Nýtt út-
varpsráð kosið. Könnun gerð á
lyfjanotkun, sem reyndist mest
hjá fráskildu fólki, ekkjum og
ekklum. Ær fannst á öræfunum
inn af Héraði. Hafði gengið úti i
fjögur ár.
Grófleg misbeiting ihalds-
meirihlutans i borgarstjórn
Reykjavikur við lóðaúthlutun.
Ungt fólk þarf að ganga i Heim
dall, félag ungra sjálfstæðis-
manna til að fá lóðir! Stjórn
Fjórðungssambands Norður-
lands unir ekki skiptingu leigu-
ibúðanna 1000, sem byggja á út
um land til jafnvægis við Breið-
holtsibúðirnar svonefndu.
Akveðið að hafa sumar-
dvalarheimili fyrir samvinnu-
starfsmenn að Bifröst i Borgar-
firði næsta sumar. Verður þar
þvi ekki sumarhótel eins og
undanfarin sumur. Nokkrir
áhugamenn fara af stað með
almenna fjársöfnun til að koma
i veg fyrir „vindlingasöfnun
FRÍ.” FRl hættir við söfnunina.
Apríl
VERKFALL vélstjóra á stóru
togurunum hefst. Talið er að um
1000 manns, aðallega starfsfólk
hraöfrystihúsanna i Reykjavik,
Hafnarfirði og á Akureyri muni
missa atvinnu sina vegna verk-
fallanna. Sjómenn og útvegs-
menn komast að samkomulagi
um bátakjarasamningana, en i
fyrstu tilraun felldu sjómenn
samningsuppkastið. Eftir að
nýtt hafði verið samið var það
samþykkt, og ekki kom til verk-
falla. Verkfall hófst hjá flug-
mönnum, og i þrjár vikur stóð
verkfall hjá starfsmönnum
járniðnaðarverkstæða KA á Sel-
fossi, vegna þess að starfs-
manni hafði verið sagt upp
störfum. Lauk þvi ekki fyrr en
starfsmaðurinn var endurráð-
inn.
Sjávarútvegsráðuneytið setur
reglur um að fiskur sé gæða-og
stærðarmetinn við löndun. Deil-
ur um þá ákvörðun.
Brezkur togari tekinn að ólög-
legum veiðum út af Hornbjargi
og færður til hafnar.
Söluskattur af ýmsum mat-
vörum felldur niður og tollar
lækkaðir á nokkrum nauðsynj-
um. Matvara lækkar af þessum
aðgerðum um 620 millj. kr.
Ennfremur samþykkir rikis-
stjórnin að greiða niður helm-
inginn af áburðarverðshækkun-
um þeim, sem hafa orðið að
undanförnu. Varið verður um
752 millj. kr. til þessarar
greiðslu. Búvörur hækka þvi
mun minna en annars hefði orð-
ið.
Verzlunarálagning er hækk-
uð. Hefur ekki hækkað siðan i
marz i fýrra.
Stofnfundur tslenzka járn-
blendifélagsins haldinn i iðnað-
arráðuneytinu. Eignarhluti rik-
isins er 55% en hlutafé er 3.614,4
millj. kr.
21 hreindýr finnst dautt á
Fagradal. Talið er að þau hafi
runnið á harðfenni og hrapað.
Snjóbill endastingst i m jótt gil á
Fjarðarheiði og fellur 5-6 metra.
Okumann og fimm farþega
sakaði ekki. Billinn mikið
skemmdur. Fólkið sótt á öðrum
snjóbil.
Þjóðleikhúsið heldur upp á 25
ára afmæli sitt. M.a. taka 80
listamenn þátt i að sýna um 20
atriði úr leikritum, söngleikjum
o.fl. úr sögu leikhússins.
Sæluvika Skagfirðinga haldin
á Sauðárkróki. Húnavaka á
Blönduósi og fjölbreytt menn-
ingarvaka i Borgarfirði. Allar
eru hátiðirnar meö menningar-
blæ og lyftistöng fyrir menning-
ar- og félagslif sins héraðs.
Hvað er þér
minnisstæðast á
árinu 1975?
'Sigurþór Jakobsson myndlist-
hrmaður: Ég eignaðist dóttur
þann 12. október, sem er
fallegasta barn i heimi og
bráðskörp, enda lik pabba sin-
um. Svo hélt ég sýningu um
mánaðarmótin september —
október, sem tókst ágætlega.
fin aðsókn. Ég seldi þó fá verk
og fékk sæmilega dóma.
Þarna munaði mjóu. Steinn féll
úr óshlið á leigubil, sem var á
leið milli tsafjarðar og
Bolungarvikur. Engan sakaði.
Timamynd: G.S.