Tíminn - 31.12.1975, Side 11

Tíminn - 31.12.1975, Side 11
Miðvikudagur 31. desember 1975. TÍMINN n Samkomuiagið í kjaradeilu ASt ogVSÍ innsiglað. Björn Jónsson forseti ASl og Jón H. Bergs formaður VSt takast i hendur. Timamynd: G.E. 15,9% beina kauphækkun. Til að greiða fyrir samningunum gaf rikisstjórnin yfirlýsingu um, að sú hækkun á helztu neyzluvör- um heimilanna, sem fram átti að koma 1. júni sl. komi ekki til framkvæmda á gildistima kjarasamningsins. Ekki tókust samningar i kjaradeilu nokkurra stéttarfé- laga i þessari samningalotu, en samningar tókust nokkrum dög- um siðar að undanskildu samn- ingum milli útgerðarmanna og sjómannasambandsins vegna togaradeilunnar. Þaðvar hins vegar ekki fyrr en ilok mánaðarins, sem samn- ingar tókust i togaradeilunni. Þá var samið um 50-60% kaup- hækkun og ýmis fleiri atriði. Hafði verkfallið þá staðið I meir en ellefu vikur, og talið var að tap þjóðfélagsins á þvi næmi um 1300 millj. kr. Vélstjórar á kaupskipaflotan- um fóru i samúðarverkfall með togaramönnum. Rétt áður er allsherjarverkfallið átti að skella á var samúðarverkfallinu aflýst. Komust þvi flest kaup- skipin á sjó. Ýmsir reyndu að búast sem bezt undir hugsanlegt allsherjar verkfall. T.d. voru Morgun- blaðsmenn teknir með 16 tunnur af bensini, sem þeir höfðu sýni- lega ætlað að geyma og nota ef verkfall skylli á. Þegar samningar höfðu tekizt milli samninganefndar ASl og vinnuveitenda þurfti að senda út skeyti til 200 verkalýðsfélaga viða um land. Skeytið var mjög langt, og vestur á fjörðum var brugðið á það ráð að senda það með bil frá Isafirði til Súðavik- ur. Kostnaður við allar skeyta- sendingamar reyndust vera 3,6 millj. kr. Carl 16 Gústaf sviakonungur kemur i opinbera heimsókn til Islands. Fer hann m.a. til Þing- valla og Hveragerðis og situr margar veizlur. Einnig bauð hann til veizlu i Naustinu i Reykjavik. Mikill kuldi var i mánuöinum og er hann einn sá kaldasti á þessari öld. Grasspretta er litil. Sláttur byrjar almennt þremur vikum seinna en i meðalári. Mikill munur á veðri nú i júni eða síðari hluta mai, þegar algengt var að hitinn komst upp i 20 stig. Stangveiði hefst i flestum lax- veiðiánum. Litur út fyrir góða veiði. Hvitabjörn skotinn á sundi við Grimsey. Farið með hann til Ólafsfjarðar. Nýr skuttogari kemur til Hornafjarðar. Færeyska bil- ferjan Smyrill hefur ferðir til við tilraunaveiðar á loðnu fyrir noröan. 18,2% af afla togara fyrir norðan undirmálsfiskur. Nokkuð um ólöglegan veiða- færabúnað isl. togara. Rann- sóknarstofnun fiskiðnaðarins opnar útibú á Isafiröi. Gifurlegar skemmdir verða á heiðarlöndum Mývetninga. Lik- legt er talið að svonefnt rótar- fiðrildi valdi skemmdunum. Heyskapur yfirleitt mánuði seinni en I meðal ári. Miklir óþurrkar um allt Suður- og Vesturland og vestari hluta norðurlands. Agæt selveiði, hátt verö á skinnum. Maður fannst látinn við Svarfaðardalsá, annar féll i stiga i Reykjavik og beið bana. Drengur lézt i umferðaslysi, maður fannst látinn i ölfusá. Vélbáturinn Gummi ÍS 111 sökk vestur af Hælavikurbjargi og Sölvi 1S 125 varð alelda suðaust ur af Reykjanesi og sökk. Mannbjörg. 38 farþega bifreið eyðileggst i bruna á Þorska- fjarðarheiði. Allir farþegarnir 30 að tölu sluppu ómeiddir. Beinagrind af karlmanni finnst við Faxaskjól. Óupplýst morð? 42sýkjastaf matareitrun á veit- ingastað i Reykjavik. Þorsteinn Pálsson ráðinn ritstjóri Visis. Jónas Kristjánsson citur i ruggustól og ihugar hvort hann taki áskorun um að iialda áfram að vera ritstjóri. Skattskrárnar koma út. Allar simalinur rauðglóðandi, þvi fæstir botuðu nokkuð i skatt- Sfcðluivum. Deilt um fyrirhugaða virkjun Blöndu. Sementsskortur á Akureyri um hábyggingartim- ann. Einingahús frá Siglufirði risa viða um land. Hafis lokar siglingaleiðinni fyrir Hom. 15 þúsund manns sóttu Lands- mót UMFl á Akranesi. Mótið fór glæsilega fram og var ung- mennafélagshreyfingunni til mikils sóma. UMSK sigraði. Fjórðungsmót hestamanna á Vesturlandi haldið i Faxaborg. A fimmta þúsund manns og 3000 hestar sóttu mótið. Norrænir búvisindamenn þinga i Reykja- vik og vináttuvika Norrænna samvinnustarfsmanna haldin á Islandi. 350 manns frá öllum Norðurlöndunum taka þátt i þjóödansamóti i Reykjavik og varaforsetafrú Bandarikjanna kom i eins dags heimsókn til Is- lands. Rjómabúið að Baugsstöðum Einar Guðjónsson múrari: Út- færsla landhelginnar. En þvi var útfærslan ekki ákveðin miklu fyrr, en ekki sama dag- inn og samningarnir runnu út viðBreta?Og kveiinaárið, mér finnst konur hafa yfirhöndina, svo að nú þurfum við karl- mennirnir að fara að berjast iyrir jafnrétti, konur hafa i mörgu meiri réttindi en karl- menn. T.d. þegar konan vinn- ur úti, þá eru það hennar pen- ingar, en min laun eru aftur á móti okkar peningarog skatt- inn borga ég fyrir okkur bæði! Sviakonungur kom til Islands i opinbera heimsókn. Ferðaðist hann viða og fór m.a. um Aust- ur-Skaftafellssýslu. Þar varð honum að ósk sinni að fá að klifa fjöll og sést hér ganga á Svina- fellsjökul 13. júni. Tímamynd: Gunnar. Hvað er þér minnisstæðast á árinu 1975? Hvað er þér minnisstæðast á árinu 1975? landsins. Margir bilar með og fullbókað i flestar ferðir sum- arsins. Smiði á Borgarfjarðar- brúnni hefst. Hvitárbrú lokað i nokkra daga, meðan gert er við bilun á henni. Steypustöðin á Neskaupstað tekur aftur til starfa, en hún eyðilagðist i snjó- flóðinu i des. sl. Nýtt hótel, Hótel Hof, tekur til starfa i Reykjavik. Aðalfundur Sambands Is- lenzkra samvinnufélaga hald- inn að Bifröst I Borgarfirði. Ey- steinn Jónsson, fyrrverandi al- þingismaður, kjörinn form. sambandsins. Ungur piltur beið bana i Sand- gerði. Sjómaður ferst i bilslysi skammt frá Sandgerði. Tveggja ára barn drukknar i Djúpadalsá ISkagafirði. Maður ferst, þegar bifreið ekur á Þjóðminjasafnið Litil stúlka lendir i bilslysi á Akureyri og lézt nokkrum dög- um siðar. Kjartan Jóhannsson læknir: Nýjasta eldgosið er það fyrsta sem mér dettur i hug. Svo fór ég til Asiu I sumar á ráðstefnu i áfengis- og fikniefnamálum. Það var stórkostlegt að fara þangaö, þvi þótt maður hafi lesið um þessa staði, þá er allt annað að koma þangað og upplifa þetta sjálfur. Ráö- stefnan var i Bangkok i Thai- landi og þetta var allt miklu stórkostlegra en ég haföi gert ráð fyrir. Júlí 15. JÓLl var ákveðið að færa is- lenzku fiskveiðilögsöguna út i 200 milur 15. okt. nk. Efnahagsmál voru mikið um- töluð i mánuðinum. Staðfest voru bráðabirgðalög um 12% vörugjald á allar vörur aðrar en mikilvægar neyzluvörur og helztu rekstrarvörur. Á vöru- gjaldið að gefa rikissjóði 1850 millj. kr. tekjur og vara til árs- loka 1975. ASl fordæmdi vöru- gjaldið. Þá samþykkti fjárveit- inganefnd Alþingis 2.000 millj. kr. lækkun á fjárlögum 1975. Er I tillögum nefndarinnar lagt til að framlög til skóla lækki um 15% en framlög til hafna um 10%. Eindregið er lagt til að sem minnst verði dregið úr framkvæmdum, sem þegar eru hafnar, en fyrirhuguðum byrj- unarframkvæmdum frestað. Bætur almannatrygginga voru hækkaðarum ll%,ogsamið var um sölu á áli til Kina fyrir 100 milljónir kr. 80bátarsóttu um leyfi til sild- veiöa fyrir Suðurlandi. Söltun- arskylda var sett á. Sjómenn argir. Sjávarútvegsráðherra sagði söltunarskylduna, að öðrum þræði vera til að tak- marka bátafjöldann. Þrír bátar INNLENDUR FRÉTTAANNÁLL 1975

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.