Tíminn - 31.12.1975, Síða 12

Tíminn - 31.12.1975, Síða 12
12 TÍMINN Miðvikudagur 31. desember 1975. INNLENDUR FRÉTTAANNÁLL 1975 opnað sem minjasafn. Flug- félagið Ernir á Isafirði flýgur með ferðamenn á Hornstrandir og sex radióamatörar dvelja i Heimaey um eina helgi og hafa samband við um 1000 kollega sina viðs vegar um heim. Leitaö að sprengju i brezkri jumbóþotu á Keflavikurflug- velli, án árangurs. Fyrstu dóm- arnir I VL málinu kveðnir upp. f Agúst t>ósundir Islendinga halda til Vesturheims til að vera viö- staddir hátiðahöld i tilefni 100 ára afmælis íslendingabyggðar iManitoba. Forseti Islands fær- ir Vestur-lslendingum likan af Vallanesi á Völlum S.-Múlas. með kirkju, bæjarhúsum og Uti- húsum, eins og það var um sið- ustu aldamót, sem gjöf frá is- lenzku þjóðinni. Þjóðleikhúsið fer i leikför um Kanada og Bandarikin i tilefni afmælisins og er skinandi vel tekið. Forsætisnefnd Norðurlanda- ráðs þingar á Húsavik. Karl Bretaprins veiðir i Hofsá i Vopnafirði og Kekkonen Finn- landsforseti veiðir 22 laxa i Viði- dalsá. Alþjóðleg vörusýning haldin i Laugardal. Tilgangur sýningar- innarer að gefa neytendum kost á að gera samanburð á veröi flestra vöruteg. Forseti Is- lands leggur hornstein að Sig- ölduvirkjun. Tillögur að nýju Grjótaþorpi lagðar fram, og kostnaöaráætlun að nýju Borg- arleikhúsier upp á 940 millj. kr. Armannsfelli afhent fjölbýlis- húsalóö án umsóknar á sama tima og fyrirtækið er á eftir meö framkvæmdir fyrir Reykjavík- urborg. Vestur-þýzk eftirlitsskip elta islenzku varðskipin og talið er Hvað er þér minnisstæðast á árinu 1975? Sóley Brynjólfsdóttir, varð- stjóri á simanum i Stjórnar- ráðinu: Þessu er vandi að svara, en ætli útfærsla land- helginnar í 200 mílur sé ekki efst á blaði. Svo er það eldgos- ið i Leirhnjúk, hvað svo sem úr þvi verður. Annars finnst mér þetta hafa verið hið mesta slysaár, slysin i um- ferðinni hafa verið mörg og tið á þessu ári og það er átakan- legt hve mikið af ungu fólki hefur látizt i þeim. — Kvennaárið hefur komið mörgu góðu af stað, og sýnir að karlmenn bæði vilja og geta létt undir með konunum heima fyrir og sérstaklega taka yngri menn virkan þátt i sliku. Minn maður tekur t.d. þátt i heimilisstörfum heima. að þau gefi togurunum upp stað- arákvarðanir varðskipanna. Samið um kaup á nýrri flugvél fyrir Landhelgisgæzluna, sem væntanleg er fyrir árslok 1976. Övenju mikiðum landhelgisbrot Islenzkra báta og liður vart sá dagur að ekki sé bátur tekinn. Þrfr sfldveiðibátar i Noröursjó sviptir veiðileyfi vegna brota á hámarksafla. Atta verkalýðsfélög i deilum við verktakana við Grundar- tanga. Hvergerðingar efna til funda um skattamál. Viglundur Jónsson, útgerðarmaður og saltfiskverkandi i ólafsvik, greiðir milljón i skatta á mán- uði. Þrjátiu ára afmælis Stéttar- sambands bænda minnzt á aðal- fundi sambandsins á Laugar- vatni. Stéttarsambandið gefur milljón krónur til rannsókna- stofu í landbúnaði, sem sett verður upp á Selfossi. Geysivið- tækar beitartilraunir standa yf- ir á sex stöðum. Sameinuðu þjóðirnar styrkja tilraunirnar. Minni mjólk berst til mjólkur- búanna vegna kulda og lélegrar sprettu. Visitala framfærslukostnaðar komin upp i 459 stig. Flugfar- gjöld innanlands hækka um 17%. Viðskiptaráðuneytið gengst fyrir námskeiðum i still- ingu oliukynditækja. Sendiherra Kinverja á Islandi ferðast um Vestfirði ásamt föruneyti. Fyrsta heimsókn er- lends sendiherra þangað. Kristilegt mót norrænna stúdenta i Laugardalshöll. Nor- rænt lögfræðingamót haldið i Reykjavik og norrænir rafverk- Maðkur rótarfiðrildis olli gifur- legum skemmdum á heiðalönd- um Mývetninga i júli. Tfma- mynd: Ask. takar þinga á Laugarvatni. Færeyska bílferjan flutti 330 bfla i 11 ferðum, en siðasta ferð sumarsins var farin i mánuðin- um. Maður drukknar i Meðalfells- vatni. 17 ára Akureyringur lézt af völdum umferðaslyss. Bana- slys á Vesturlandsvegi, og piltur úr Keflavfk lézt á Eskifiröi. Eins hreyfils flugvél nauðlenti i Jökulsá á Brú. Engan sakaöi. Komið upp um hóp afbrotaung- linga á Sauöárkróki. Nato flotadeild i kurteisis- heimsókn á tslandi. Rússneskur verksmiðjutogari kemur i Kollafjörð. Tvo hvali rekur á land I Hrútafirði. Kjötið af öðr- um notað. Deilt um hvort greiða megifyrir „guðaveigar” með á- visunum. Afköst þangverksmiðjunnar að Reykhólum komin i 9—10 tonn á sólarhring. Hluti hita- veitu i Hafnarfiröi tekinn i notk- un. Hitaveituframkvæmdir þar og i Kópavogi ári á undan áætl- un. Flotbryggja Akraborgar i Reykjavikurhöfn tekin i notkun og Djúpvegur opnaður smábil- um. Brúin yfir Múlakvisl bilaði. Unnið að gerð sögualdarbæjar- ins að Skeljastað i Þjórsárdal. Guðlaug Þorsteinsdóttir varð Norðurlandameistari kvenna i skák. Jónas Kristjánsson ákvað — i ruggustólnum — að vera áfram ritstjóri, en blaðstjórn Visis segir hann hættan ritstjórn. September Landhelgismálið komst mjög isviðsljósið i mánuðinum þegar Þjóðverjar hófu þá iðju að elta islenzku varðskipin og gefa togurunum upp staðar- ákvarðanir þeirra. Málið var rætt i rikisstjórn, og athugað að setja hafnbann á eftirlitsskipin. ASI samþykkti á stjórnarfundi, aö skora á alla sina félags- menn að leggja ekki hönd að nokkurri þjónustu við þýzku skipin. Hafnarstjórinn i Reykja- vik upplýsir, að þar i höfn hafi þýzk skip ekki fengið neina þjónustu frá árinu 1972, þegar þorskastriðið hófst. Bretar og Islendingar ræddu hugsanlega landhelgis- samninga i Reykjavik. Litið gerðist annað en upprifjun staöreynda. Islendingar ekki bjartsýnir á að samningar takist. Næsti fundur ákveðinn i London. Samningaviðræður fóru einnig fram við Belga. Þeir vilja viðurkenna 200 milna mörkin, fái þeir að veiöa innan 59 milna. ISALtelurað rikissj- skuldi fyrirtækinu 400 millj. kr. Mikil deila hefst milli rikissjóðs og fyrirtækisins. Margir Is- lendingar telja að viðskipta- hættir fyrirtækisins séu óeðli- legir. Það geti t.d. tekið lán hjá fyrirtækjum sinumog ákveðið sjálft vexti og greiðslutimabil. Þrir Islenzkir bátar hafa að undanförnu verið við loðnu- veiðar i Barentshafi. Hafa þeir landað aflanum i Norglobal, Skipstjórarnirhafa fullan hug á að fylgja bræðsluskipinu eftir, en nú heldur það að Afriku- ströndum. Hyggjast þeir veiða þar makril. Endanlega var gengið frá sildveiðileyfum til 46 sildarbáta hér við land. Sjávarútvegsráðuneytið gerir að skyldu, að sjómenn salti sfldina um borð. Námskeið var haldið til að fullgilda eftirlits- menn, sem verða að vera i öllum skipunum. Á hvalveiðiver- tiðinni veiddust alls 420 hvalir. Göngur og réttir standa yfir um land allt. Þús. fjár koma af fjalli. Fé virðist vænt. Slátrun hefst i öllum sláturhúsum Stóru togararnir lágu bundnir viö bryggju um ellcfu vikna skeiö vegna verkfalla. Myndin er tekin i Reykjavíkurhöfn 1. júni. Timamynd Gunnar. landsins. Nokkrar deilur yerða um kaup og kjör sláturhúsa- fólksins, sem leysast. Fleira fé en nokkru sinni fyrr slátrað. Undirritaður i Reykjavík viðskiptasamningur upp á 350-400 milljónir króna milli Sambands íslenzkra samvinnu- félaga og samvinnusam- bandsins sovézka. Gagnkvæm viðskipti landanna hófut 1960 og hafa stöðugt aukizt. Þá sendi SIS mann til Arabalandanna til að kynna isl. vörur. Viðræður hefjast við Svia um að þeir kaupi allt að 17 millj. lestir af heitu vatni héðan. Laxveiðum lýkur i öllum lax- veiðiánum. Allt útlit fyrir metár. I Þverá er laxafjöldinn mestur, eins og oft áður, en sú á, sem mest aukning hefur orðið á veiði i, er Miðfjarðará . Þar veiddust nú um 1500 laxar, en i fyrra veiddust þar 837 laxar. Aþessuári greiða Islendingar rúma fjóra milljarða i tekjuskatt. Margir telja Hvað er þér minnisstæðast á árinu 1975? Egill Friðleifsson kennari: Það er sólarleysið á siðast- liðnu sumri. Ég beið i heilan mánuð eftir sólinni hérna heima, en gafstsvo upp og fór til Italiu þar sem ég dvaldist i dýrðlegan hálfan mánuð.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.