Tíminn - 08.01.1976, Page 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 8. janúar 1976.
72
■Jft
3>
CF
L\V
Ovelkominn qestur
konar hátið hjá kúrekunum, sem unnu hörðum höndum
alla vikuna. Þeir, sem voru kvæntir, bjuggu út af fyrir
sig og voru ekki mjög ákaf ir að komast burt af búgarðin-
um, en höfðu það rólegt með f jölskyldum sínum. En það
var annað mál með ungu mennina, sem bjuggu i stóra
skálanum. Jane skildi mætavel að þá langaði til að lyfta
sér upp annað slagið. Líf ið átti ekki bara að vera eintóm
vinna.
Sumir þeirra færu að vísu bara í bíó, en f yrr eða seinna
lentu þeir allir á bjórkránni. Þeir voru klæddir þröngum
buxum úr fínasta ullarefni og fallegum, útsaumuðum
skyrtum með perluhnöppum. Stígvélin gljáðu, svo hægt
var að spegla sig í þeim, og allir voru með stórar og
áberandi beltisspennur, alveg eins og kvenfólkið skreytti
sig með skartgripum. Auðvitað voru svo allir með barða-
stóra kúrekahattinn sinn, svartan, brúnan eða hvítan og
þeir voru sérstakl. hreinir og burstaðir á laugardögum.
Jane valdi kjól með þröngu pilsi, í eftirlætislitum sín-
um, grænu og hvítu. Víð blússan var rykkt í bakið og
undirstrikaði grannt mittið. Þessi einfaldi kjóll var blátt
áfram glæsilegur.
Þar sem þau ætluðu akandi til bæjarins, f ór hún í hæla-
háa skó og fannst allt í einu, að hún væri orðin stór-
borgarleg á ný. Eftir að hafa gengið í síðbuxum í heila
viku, leit hún ánægð á sjálfa sig í speglinum. Það var
þrátt fyrir aljt þægileg tilfinning að vera kvenleg aftur.
Dick blistraði í aðdáunartón, þegar hann sá hana og
sagði næstum barnalega: — Það öfunda allir í bænum
mig í kvöld af þér, telpa mín.
— Ég verð að segja, að það er indælt að fara eitthvað
út, sagði Janeglöðog hallaði sér aftur á bak í djúpt sætið
í litla, fallega sportbílnum.
( þetta sinn var Dick ekki í kúrekafötum, aldrei þessu
vant en var klæddur eins konar sportfötum, silkiskyrtu
og litríku hálsbindi. Hann var afskaplega fínn og ung-
lingslegur, hugsaði Jane og virti fyrir sér vangasvip
hans meðan þau óku eftir ósléttum veginum frá hest-
húsunum og áfram að veginum, sem láttil Dunster.
Þetta var aðeins venjulegur f jallvegur, sem hlykkjað-
ist yfir sléttlendið og væri hættulegur öllum, sem ekki
þekktu allar beygjurnar. Ef þær voru ekki teknar á ná-
kvæmlega réttan hátt, færi bíllinn út af og niður í eitt-
hvert gilið. Eftir sléttuna tóku við ásarnir og f jöllin og
öðru hverju brá Klettaf jöllunum fyrir, þar sem sólin
skein ennþá á snævi þakta tindana.
Dick ók dálítið óvarlega, fór án þess að hika yfir
freyðandi smálæki, sem rutt höfðu sér braut yfir veginn
og gaf síðan í botn eftir mjóum, ójöfnum veginum. Oft
sat Jane með hjartað í hálsinum, er þau komu að bygju.
Dick sneri stýrinu hratt og svo þutu þau áf ram yf ir ás-
ana. Hvað gerðist, ef þau mættu allt í einu bíl? Jane
þorði ekki að hugsa um það, því það var tæpast rúm f yrir
einn bíl á veginum, hvað þá tvo.
Þegar þau loks komu á svolítið betri og breiðari veg,
spurði hún: — Hvað er orðið af litla rauða sportbílnum,
sem þú hafðir í Vancouver, Dick?
— Ö, hann. Ég leigði hann bara á meðan ég var þar,
sagði hann kæruleysislega. — Neil neitaði að láta mig
hafa bíl.
Jane fann reiðina ólga innra með sér. — Hvers vegna
þá, ef ég má spyrja?
— Honum finnst gaman að þykjast ráða einhverju.
Þótt margir af giftu kúrekunum hafi bíl, hefur hann
ekkert á móti því. Hann skipti um gír með harðneskju-
legum hreyf ingum. — Hann segir, að ég haf i ekki ef ni á
að eiga bíl með kúrekalaunin mín.
— Kærðu þig kollóttan, Dick. Það líður ekki á löngu,
þar til þú getur farið þínar eigin leiðir, sagði Jane í
huggunartón.
Rétt hjá þér. Hann bætti einhverju við, sem Jane
heyrði ekki, því rödd hans dó út, þegar bíllinn nam
snögglega staðar f raman við röð timburhúsa, sem litrík
plaköt voru framan á.
Það var enn ekki orðið aldimmt, þegar Jane steig út úr
bílnum og niður á gangstéttina. Hún leit upp í loftið og á
nokkur ógnandi ský i f jarska. Fyrsta föla stjarnan gægð-
ist næstum afsakandi upp yfir ásinn, hugsaði Jane, en
hafði nokkrar áhyggjur af dökku skýjunum.
Dick tók um handlegg hennar og leiddi hana að stóru
húsi, sem var rækilega upplýst og út um opnar dyrnar
heyrðust glaðlegar raddir og tónlist. Nokkrir kúrekar
stóðu og hölluðu sér upp að veggnum úti fyrir, heilsuðu
Dick og sendu förunauti hans aðdáunaraugnaráð.
Þau ruddu sér braut gegnum vængjahurðina, sem á
stóð: „dömur í fylgd með herrum" og Jane dró andann
léttar, þegar þau settust við eitt borðið, sem dreift var
Fimmtudagur
8. janúar
7.00 Morgunútvarp Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10,10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.) 9,00 og
10.00 Morgunbæn kl. 7.55
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Kristín Sveinbjöms-
döttir les „Lisu og Lottu”
eftir Erich Kastner i þýð-
ingu Freysteins Gunnars-
sonar (2). Tilkynningar kl.
9.30Léttlögmilli atriða. Við
sjóinn kl. 10.25: Ingólfur
Stefánsson sér um þáttinn.
Morguntónleikar kl. 11.00
Sinfónluhljómsveitin i
Bamberg leikur „Töfra-
tjörnina” op. 62 og ,,Kiki-
mora” op. 63, hljomsveitar-
verk eftir Anatol Liadoff,
Joel Parlea stjórnar /Joan
Sutherland syngur með
Sinfónluhljómsveit
Lundúna Konsert fyrir
sópran og hljómsveit op. 82
eftir Reinhold Gliere,
„Pastorale” eftir Igor
Stravinski, „Ici bas” eftir
César Cui og „Vögguvlsu”
eftir Alexander Gretsjanin-
off: Richard Bonynge
stjórnar /Filharmoniusveit-
in I Vin leikur „Hnotubrjót-
inn”, hljómsveitarsvltu
eftir Tsjaikovski: Herbert
von Karajan stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frivaktinni Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
14.30 Póstur frá útlöndum Sig-
mar B. Hauksson sér um
þáttinn.
15.00 M iðdegistónleik ar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Barnatimi: Kristin Unn-
steinsdóttir' og Ragnhiidur
Helgadóttir stjórna. Að fara
I leikhús: Viðtal við
Guðrúnu Stephensen leik-
konu.Gunnar Stefánsson les
m.a. úr bókunum „Gvendur
Jóns og ég” eftir Hendrik
Ottósson og „Leikfélag
Reykjavikur 50 ára” eftir
Bjarna Guðmundsson.
Fluttur verður kafli úr
„Skugga-Sveini” eftir
Matthías Jochumsson. Árni
Tryggvason leikur Guddu
og Guðrún Stephensen
Gvend.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Einsöngur I útvarpssal
Erlingur Vigfússon syngur
lög eftir Pál ísólfsson, Jón
Þórarinsson og Sigfús
Einarsson. Ragnar Björns-
son leikur á pianó.
20.15 Leikrit: örstuttir fundir
eftir Noel Coward. Leikstj.
Baldvin Halldórsson.
21.05 Tónleikar
21.30 Danska flónið, smásaga
eftir Jóhannes Bucholtz.
Guðrún Guðlaugsdóttir
þýddi og les.
22.00 Fréttir.
22.15. Veðurfregnir Kvöld-
sagan: ,,í verum”, sjálfs-
ævisaga Thcódórs Friðriks-
sonarGils Guðmundsson les
síðara bindi (3).
22.40 Krossgötur Tónlistar-
þáttur I umsjá Jóhönnu
Birgisdóttur og Björns
Birgissonar.
23.25 Fréttir I stuttu máli.
Dagskrárlok.
ÁiKXM
/ EKKI
JUTANVEGA]
LANDVERND