Tíminn - 16.01.1976, Síða 1

Tíminn - 16.01.1976, Síða 1
FLUGSTÖÐIN HF Simar 27122-11422 Leiguf lug—Neyöarf luq HVERT SEAA ER HVENÆR SEAA ER Aætlunarsfaðir: Blönduós — Sigluf jörður j Búðardalur — Reykhólar l Flateyri — Bíldudalur 1 Gjögur — Hólmavík i Hvammstangi — Stykkis- hólmur—Rif Súgandafj. j Sjúkra- og leiguflug um jallt land Simar: '2-60-60 & 2-60-66 / NEÐANSJÁVARELDGOS í ÖXARFIRÐINUM? Gsal Kópaskcri. Á miðvikudag sáu hjónin á Núpi i öxarfirði reyk stiga upp ár sjónum i firðinum og einnig er vitað um fleiri sem sáu reykstrókinn. Þessum reyk er þannig lýst af sjónarvottum, að hann hafi fyrst verið grár en orðið gulleitur og horfið eftir stuttan tima. Menn hafa látið sér detta i hug að þarna hafi verið um stutt neðansjávareldgos að ræða. I gærdag kom i ljós við dýptar- mælingar;sem varðskipið Baldur gerði i öxarfirði, alllöng sprunga sem liggur i norður frá ósum Jökulsár og er i beina stefnu vest- ur af Kópaskeri. Varðskipsmenn urðu einnig varir við tvær gjár á þessari sprungu og telja þvi margir að áðurnefnt gos hafi orð- ið i annarri hvorri gjánni. Timinn innti Ragnar Stefáns- son, jarðskjálftafræðing, eftir þvi i gærkvöldi hvort hann væri trúaður á að neðansjávargos hefði orðið i öxarfirði i fyrradag. — Vitanlega geta komið upp skammvinn gos á þessu svæði, en þetta þarf þó ekki að hafa verið eldgos, sem sást. Þvi miður er ekki hægt að staðhæfa neitt um þetta, en hins vegar benda þessar sprungur ekkert sérstaklega til þess að i þeim hafi orðið eða muni verða eldgos. Ragnar sagði að dýptar- mælingum yrði haldið áfram og nefndi að sprungunum i öxarfirði svipaði mjög til sprungnanna i Gjástykki. JOSEP LUNS: „Brátt dregur úr hinni hættu- legu spennu í þorskastríðinu" Rikisstjórnin á fundinum i gærmorgun með Luns. Timamynd: G.E. Oó-Reykjavík.Rikisstjórnm hélt i gær 4 klukkustunda fund með Luns framkvæmdastjóra Nato og er nú lokið viðræðum þessara aðila um landhelgisdeilu tslendinga og Breta. Luns ræddi einnig við fulltrúa stjórnarandstöðunnar og nokkra af forvigisfnönnum sjávarútvegs. Framkvæmdastjórinn sagði i gær, að hann vonaöi aö koma hans hingaö til lands leiddi til þess að draga muni úr spennunni milli þessara aðildarrikja Nato, sem komin væri á hættulegt stig. Eftir helgina flytur hann brezku rikisstjórninni skilaboð frá islenzku stjórninni en hann tók það fram að hann væri ekki neinn samningainaöur i deilunni.en mundi gera allt sem i hans valdi stæði til að sættir mættu takast. A blaðamannafundi, sem Luns hélt eftir viðræður sinar með islenzku ráðherrunum, minnti hann á hlutdeild sina og hlutdeild Atlantshafs- bandalagsins við lausn landhelgisdeilunnar við Breta 1973. Kvaðst hann vona að enn mætti koma á samkomulagi og hann væri þess full- viss. að einn aðalstyrkur Islendinga væri aðild þeirra að Nato, sem gerði þeim kleift að þrýsta á lausn sér i vil. Luns sagðist ekki leyna þvi, að hann væri mjög hlynntur málstað Is- lendinga og skildi vel þýðingu fiskveiða fyrir efnahag landsmanna og sama væri að segja um flest aðildarriki Nato. Ekki kvaðst framkvæmdastjórinn geta sagt, hvaða tillögur hann myndi leggja fyrlr brezku stjórnina til lausnar deilunni og þótt hann bæri skilaboð frá islenzku rikisstjórninni,bæri hann ábyrgð á tillögum sinum, sem hann leggur fyrir Callaghan utanrikisráðherra Breta i Briissel á mánudag. En Callaghan og Wilson forsætisráðherra eru nú i Kaupmannahöfn og verða þar yfir helgina, svo að ekki er hægt aö ræöa við brezka ráðamenn fyrr. Framkvæmdastjórinn sagðist vera vongóður um að tillögur sinar geti orðið til að draga úr spennunni milli deiluaðila og að hann gæti að minnsta kosti fengið Breta til að kalla herskipin heim. Hins vegar tæki hann enga afstöðu til samninga um aflamagn eða önnur slik atriði. Hann kvað tslendinga ekki hafa sett Bretum neina úrslitakosti enn sem komið er og kvaðst vona að sambandi milli landanna verði ekki slitið og að samningaviðræður verði teknar upp að nýju hið fyrsta. Luns sagðist vera þess vel meðvitandi,hver hugur islenzku þjóðarinnar væri til land- helgismálsins og að hann hafi sannfærzt um á fundunum i Reykjavik að afstaða ráðamanna væri ekki siður einörð. LOÐNAN MIKLU VESTAR OG NORÐAR EN ÁÐUR: Uppbyggingarstarfiö er hafið af fullum krafti á Kópaskeri. t gær var gerð bráðabirgðaviðgerð á bryggjunni og flokkur manna fór um þorpið og fyllti upp i sprungur á út- veggjum húsa. Timamynd: Gsal. BH-Reykjavik. — Viö erum búnir að finna liana, sagði Iljálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur og leiðangursstjóri um borð i Arna Friðrikssyni, þcgar við ræddum við hann i gær, og átti Hj'álmar þar við loönuna, sem hann hefur verið aðsvipast um eftir fyrir norðan og austan undanfarið. Kvað Hjálmar hér vera um mikið magn af loðnu að ræða, og þótt hún væri seinna á ferðinni en vanalega, væru engar likur til annars en að magnið væri sizt minna en undanfarin ár. Framhald á bls. 19 Loðnuskipin halda ó veiðar. Hér er Asgeir RE á siglingu fyrir Langanes í gær. Tímamynd Gunnar Kópasker — bls. 3 Skógar — bls. 8 „LÍKLEGT, AÐ VEIÐARNAR STANDI LENGUR FRAM EFTIR VORI EN VANT ER"

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.