Tíminn - 16.01.1976, Qupperneq 1
FLUGSTÖÐIN HF
Simar 27122-11422
Leiguf lug—Neyöarf luq
HVERT SEAA ER
HVENÆR SEAA ER
Aætlunarsfaðir:
Blönduós — Sigluf jörður
j Búðardalur — Reykhólar
l Flateyri — Bíldudalur
1 Gjögur — Hólmavík
i Hvammstangi — Stykkis-
hólmur—Rif Súgandafj.
j Sjúkra- og leiguflug um
jallt land
Simar:
'2-60-60 &
2-60-66
/
NEÐANSJÁVARELDGOS
í ÖXARFIRÐINUM?
Gsal Kópaskcri. Á miðvikudag
sáu hjónin á Núpi i öxarfirði reyk
stiga upp ár sjónum i firðinum og
einnig er vitað um fleiri sem sáu
reykstrókinn. Þessum reyk er
þannig lýst af sjónarvottum, að
hann hafi fyrst verið grár en orðið
gulleitur og horfið eftir stuttan
tima. Menn hafa látið sér detta i
hug að þarna hafi verið um stutt
neðansjávareldgos að ræða.
I gærdag kom i ljós við dýptar-
mælingar;sem varðskipið Baldur
gerði i öxarfirði, alllöng sprunga
sem liggur i norður frá ósum
Jökulsár og er i beina stefnu vest-
ur af Kópaskeri. Varðskipsmenn
urðu einnig varir við tvær gjár á
þessari sprungu og telja þvi
margir að áðurnefnt gos hafi orð-
ið i annarri hvorri gjánni.
Timinn innti Ragnar Stefáns-
son, jarðskjálftafræðing, eftir þvi
i gærkvöldi hvort hann væri
trúaður á að neðansjávargos
hefði orðið i öxarfirði i fyrradag.
— Vitanlega geta komið upp
skammvinn gos á þessu svæði, en
þetta þarf þó ekki að hafa verið
eldgos, sem sást. Þvi miður er
ekki hægt að staðhæfa neitt um
þetta, en hins vegar benda þessar
sprungur ekkert sérstaklega til
þess að i þeim hafi orðið eða muni
verða eldgos.
Ragnar sagði að dýptar-
mælingum yrði haldið áfram og
nefndi að sprungunum i öxarfirði
svipaði mjög til sprungnanna i
Gjástykki.
JOSEP LUNS:
„Brátt dregur úr hinni hættu-
legu spennu í þorskastríðinu"
Rikisstjórnin á fundinum i gærmorgun með Luns.
Timamynd: G.E.
Oó-Reykjavík.Rikisstjórnm hélt i gær 4 klukkustunda fund með Luns
framkvæmdastjóra Nato og er nú lokið viðræðum þessara aðila um
landhelgisdeilu tslendinga og Breta. Luns ræddi einnig við fulltrúa
stjórnarandstöðunnar og nokkra af forvigisfnönnum sjávarútvegs.
Framkvæmdastjórinn sagði i gær, að hann vonaöi aö koma hans hingaö
til lands leiddi til þess að draga muni úr spennunni milli þessara
aðildarrikja Nato, sem komin væri á hættulegt stig. Eftir helgina flytur
hann brezku rikisstjórninni skilaboð frá islenzku stjórninni en hann tók
það fram að hann væri ekki neinn samningainaöur i deilunni.en mundi
gera allt sem i hans valdi stæði til að sættir mættu takast.
A blaðamannafundi, sem Luns hélt eftir viðræður sinar með islenzku
ráðherrunum, minnti hann á hlutdeild sina og hlutdeild Atlantshafs-
bandalagsins við lausn landhelgisdeilunnar við Breta 1973. Kvaðst
hann vona að enn mætti koma á samkomulagi og hann væri þess full-
viss. að einn aðalstyrkur Islendinga væri aðild þeirra að Nato, sem
gerði þeim kleift að þrýsta á lausn sér i vil.
Luns sagðist ekki leyna þvi, að hann væri mjög hlynntur málstað Is-
lendinga og skildi vel þýðingu fiskveiða fyrir efnahag landsmanna og
sama væri að segja um flest aðildarriki Nato.
Ekki kvaðst framkvæmdastjórinn geta sagt, hvaða tillögur hann
myndi leggja fyrlr brezku stjórnina til lausnar deilunni og þótt hann
bæri skilaboð frá islenzku rikisstjórninni,bæri hann ábyrgð á tillögum
sinum, sem hann leggur fyrir Callaghan utanrikisráðherra Breta i
Briissel á mánudag. En Callaghan og Wilson forsætisráðherra eru nú i
Kaupmannahöfn og verða þar yfir helgina, svo að ekki er hægt aö ræöa
við brezka ráðamenn fyrr.
Framkvæmdastjórinn sagðist vera vongóður um að tillögur sinar
geti orðið til að draga úr spennunni milli deiluaðila og að hann gæti að
minnsta kosti fengið Breta til að kalla herskipin heim. Hins vegar tæki
hann enga afstöðu til samninga um aflamagn eða önnur slik atriði.
Hann kvað tslendinga ekki hafa sett Bretum neina úrslitakosti enn sem
komið er og kvaðst vona að sambandi milli landanna verði ekki slitið og
að samningaviðræður verði teknar upp að nýju hið fyrsta. Luns sagðist
vera þess vel meðvitandi,hver hugur islenzku þjóðarinnar væri til land-
helgismálsins og að hann hafi sannfærzt um á fundunum i Reykjavik að
afstaða ráðamanna væri ekki siður einörð.
LOÐNAN MIKLU VESTAR OG NORÐAR EN ÁÐUR:
Uppbyggingarstarfiö er
hafið af fullum krafti á
Kópaskeri. t gær var gerð
bráðabirgðaviðgerð á
bryggjunni og flokkur
manna fór um þorpið og
fyllti upp i sprungur á út-
veggjum húsa. Timamynd:
Gsal.
BH-Reykjavik. — Viö erum
búnir að finna liana, sagði
Iljálmar Vilhjálmsson, fiski-
fræðingur og leiðangursstjóri
um borð i Arna Friðrikssyni,
þcgar við ræddum við hann i
gær, og átti Hj'álmar þar við
loönuna, sem hann hefur verið
aðsvipast um eftir fyrir norðan
og austan undanfarið. Kvað
Hjálmar hér vera um mikið
magn af loðnu að ræða, og þótt
hún væri seinna á ferðinni en
vanalega, væru engar likur til
annars en að magnið væri sizt
minna en undanfarin ár.
Framhald á bls. 19
Loðnuskipin halda
ó veiðar.
Hér er Asgeir RE á
siglingu fyrir
Langanes í gær.
Tímamynd Gunnar
Kópasker — bls. 3
Skógar — bls. 8
„LÍKLEGT, AÐ VEIÐARNAR
STANDI LENGUR FRAM
EFTIR VORI EN VANT ER"