Tíminn - 17.01.1976, Side 9
8
TÍMINN
Laugardagur 17. janúar 1976.
Laugardagur 17. janúar 1976.
TÍMINN
9
Örn O. Johnson
forstjóri:
Greinagerð um
starfsemi
Flugleiða h.f.
STOFNUN FLUGLEIÐA KOM í VEG FYRIR
TAPREKSTUR 1975 OG SPARAÐI DRJÚGAR
FJÁRHÆÐIR í ERLENDUM GJALDEYRI
Flugmálin, og hinir ýmsu þætt-
ir flugrekstrar og flugsam-
gangna, hafa mjög veriö i sviös-
ljösi á nýliðnu ári, ekki aöeins er-
lendis heldur einnig hér á iandi. 1
umræðum um þessi mál viröist
sem -eriendis hafi hæst boriö hina
erfiöu fjárhagsafkomu mikils
fjölda flugfélaga vföa um heim,
enda haft á orbi, aö sum þekkt
flugfélög hafi jafnvel riöaö til
falls.
Orsakir þeirra erfiöleika, sem
steðjað hafa að flugrekstrinum
erusjálfsagtmargþættar, en ekki
fer þó milli mála að meginvanda-
málinhafa verið oliuhækkanirnar
og almennar hækkanir rekstrar-
kostnaöar á flestum sviðum
vegna verðbólgu.
Flugleiðir hafa auðvitað átt við
þessi sömu vandamál að stríða
eins og erlendu flugfélögin, og
raunar I enn rikara mæli, þar sem
verðbólga hefur verið meiri hér á
landi en vlðast annars staðar.
Auk þess jók það á erfiðleika
okkar að ýms verstu áföllin á
þessu sviði, svo sem olíukreppan,
skullu yfir skömmu eftir stofnun
Flugleiða, og áður en timi hafði
unnizt til að koma við þeirri
margvlslegu hagræðingu, sem
sameining flugfélaganna gerir
mögulega.
Arið 1975 var annað heila árið,
sem Flugleiðir störfuðu. Arið var
nokkur prófsteinn á árangurinn
af sameiningu flugfélaganna þvi
það var fyrsta árið, sem við varð
komið ýmsum þýðingarmiklum
breytingum, sem leiddu til auk-
innar hagræðingar I rekstrinum.
Strax eftir stofnun félagsins,
sumarið 1973, var að vísu hafizt
handa um stöövun þeirrar sóunar
fjármuna, sem leitt hafði af sam-
keppni flugfélaganna tveggja á
Evrópuleiðum, aðallega þó flug-
leiðunum til Norðurlanda. Hins
vegar tók það fram eftir ári 1974
að ákvarða ýms meginatriði i
skipulagi Flugleiða og árið 1975
var þvl fyrsta árið, sem ýmsir
jákvæðir þættir sameiningarinn-
ar tóku að segja til sin.
Rekstraráætlun
fyrir 1975
Arið 1975 var lika hið fyrsta,
sem gerö var heildarrekstrar-
áætlun fyrir félögin, bæöi um
flutninga og þá einnig um tekjur,
gjöld og fjárstreymi. Við gerð
þessarar rekstraráætlunar, sem
byrjað var að vinna að um haust-
ið 1974, varð auðvitað að taka tillit
til þess efnahagssamdráttar, sem
fariðvar að gæta bæði hérlendis
og erlendis á árinu 1974, og gera
mátti ráð fyrir að farið gæti vax-
andi. t öllum markaðslöndum
fyrirtækisins hafði verðbólgan
vaxið frá árinu áður. Mest varð
hún á íslandi, 43% að meðaltali,
en minnst I Þýzkalandi, 7%. Þá
mátti einnig gera ráð lyrir
neikvæðum áhrifum af þeim far-
gjaldahækkunum, sem reynzt
höfðu óhjákvæmilegar vegna
hinna miklu oliuhækkana, sem
byrjuðu haustið 1973, og dundu
yfir með miklum þunga, sérstak-
lega fram eftir ári 1974, en sem
dæmi um þær hækkanir má
nefna, að eldsneytiskostnaður
beggja félaganna varð 130 millj.
krónum hærri I júlimánuði 1974 en
hann hafði verið I sama mánuði
árið áður, og var þó flugáætlun
svipuð báða þessa mánuði.
Þá blöstu þær staðreyndir við
haustið 1974, að farþegum i á-
ætlunarflugi yfir Norður-
Atlantshaf fækkaði allveru-
lega frá árinu áður og fag-
mönnum kom yfirleitt saman um,
að ekki væri bata að vænta á
þeirri flugleið, nema síður væri, á
árinu 1975. (Við lok ársins 1974
kom i ljós að heildar farþega-
flutningar yfir Norður-Atlantshaf
höfðu minnkað um 10.5% en
flutningar Loftleiða á sömu leið
þó mun minna, eða um 4.2%)
Af þessari ástæðu var strax um
haustið 1974 tekin sú veigamikla
ákvörðun að starfrækja aðeins
þrjár DC-8 flugvélar á Norð-
ur-Atlantshafsleiðinni sumarið
1975,1 stað fjögurra sumarið 1974.
Þessi ákvörðun var öllum ráða-
mönnum Flugleiða þungbær, sér-
staklega þar sem hún hafði I för
með sér uppsögn 16 flugliða, en
hún var nauðsynlega eins og á
stóö.ogviðteljum nú, þegarhorft
er til baka, að réttmæti þessarar
ákvörðunar hafi sannazt á liðnu
ári, enda héldu flutningar á Norð-
ur-Atlantshafi áfram að dragast
saman á árinu.
Loks blasti það við I lok ársins
1974, að komum erlendra ferða-
manna til tslands hafði fækkað
um 5% frá árinu áður og fjölgun
farþega með Fí og LL á Evrópu-
leiðum hafði verið með minnsta
móti, eða aðeins 1.9% frá árinu
áður. Einnig hafði dregið úr
aukningu farþegaflutninga
innanlands 110.0% en þeir höfðu
aukizt um 20.4% árið áður.
í ljósi alls þessa og með tilliti til
rekstrarafkomu fyrirtækisins
undanfarandi ár, og erfiðrar fjár-
hagsstööu, var talin brýn nauðsyn
að gæta fyllstu varúðar við gerð
rekstraráætlunar fyrir árið 1975,
Skipting sölu 1975
m.a. með fækkun ferða yfir Norð-
ur-Atlantshaf, svo sem áður er
getið, og með þvi að halda uppi
svipuðum ferðafjölda á Evrópu-
leiðum og árið áður, en að fjölga
þó nokkuð ferðum á innanlands-
leiðum. Jafnframt var i
flutningaspám og tekjuáætlunum
gert ráð fyrir 10% fækkun
farþega á öllum millilandaleið-
um, en 10% fjölgun farþega á
innanlandsleiðum.
Rekstur Flugleiða
árið 1975
Nú er árið 1975 gengið hjá og
þvl nokkur ástæða til að skyggn-
ast eftir hvernig okkur hefur
farnazt, bæði hvað afköst og af-
FLUGLEIÐIR HF
Sætanýting B-727
Evrópuleiöir:
A flugleiðunum milli Evrópu-
landa voru fluttir 119.860 farþeg-
ar, sem er 0.3% fleiri farþegar en
árið áður (119.509). Gert hafði
verið ráð fyrir samdrætti I þess-
um flutningum, en þó hafði ferð-
um verið fjölgað frá fyrra ári
vegna mjög hárrar sætanýtingar
á Norðurlandaleiðum á timabili
sumarið 1974. Sætanýting lækkaði
þvi I 62.9% úr 66.9% árið áður.
Innanlandsflug:
Fluttir voru rúml. 206.700 i
innanlandsflugi og nemur
aukningin um 2.7% en gert hafði
verið ráð fyrir allt að 10% aukn-
ingu. Sætanýting var svo til
óbreytt frá árinu áður,eða 62.7%
(var 62.6%).
Farþegum I leiguflugi milli landa
fjölgaði verulega eða um 23.8% i
32.811 og hleðslunýting I slikum
flugum var 85.3%.
komu snertir. Endanlegar tölur
liggja auðvitað ekki fyrir ennþá,
og þá sizt að þvi er varðar
fjárhagsafkomuna, en farþega-
flutningar fyrstu 11 mánuðina
hafa verið gerðir upp og sé
áætluðum flutningum siðasta
mánaðar ársins bætt viðþær tölur
hefúr árangur orðið sem hér
greinir hvaö farþegaflutninga
snertir i áætlunarflugi:
Noröur-Atlantshaf:
Arið 1974 fluttu Loftleiðir
282.146 farþega milli Bandarikj-
anna og Evrópu, um Island. Gert
hafði verið ráð fyrir 10% hækkun
þeirra á árinu 1975, en fækkunin
nam hins vegar 7% og farþega-
fjöldinn var 262.200. Vegna
fækkunar ferða batnaði sætanýt-
ing og var 75.4%, en hafði veriö
72.7% árið 1974.
Farþegum I Bahamaflugi með
félaginu International Air
Bahama fækkaði um u.þ.b. 10%
og urðu þeir um 72.500.
Alls fluttu flugvélar Flugfélags
Islands, Loftleiða og Internation-
al Air Bahama þvi um 694.000
farþega á árinu, sem er um 2.5%
fækkun frá árinu 1974.
Vöru- og póstflutningar félag-
anna hafa ekki enn verið gerðir
upp, en sýnt er að vöruflutningar
hafa minnkað nokkuð á milli-
landaleiðum.
Varðandi f járhagsafkomu
Flugleiða á liðnu ári er þvi miður
ekki mikið hægt að segja enn sem
komið er. Þó má gera ráð fyrir að
hagnaður verði af rekstrinum,
þótt ekki verði hann mikill. Reyn-
ist það svo, hygg ég að við getum
sæmilega við unað miðað við all-
Farþegafjöldi innanlands 1975 (þús.) fluglbðirhf
ar aðstæður, þ.e.a.s. samdrátt i
flutningum og mikla hækkun
rekstrarkostnaðar vegna verð-
bólgu. Hefur þá ráðið úrslitum
annars vegar takmörkun á sæta-
framboði, semleiddi til betri
nýtingar flugvélanna og, hins
vegar, margháttuð hagræðing og
spamaður i rekstri. Um þetta
hvort tveggja hefur svo örugg-
lega betur til tekizt en ella hefði
vegna þess, að félögin höfðu verið
sameinuð. Vegna sameiningar
þeirra var komið i veg fyrir tap-
rekstur þrátt fyrir erfitt árferði,
og vegna hennar hafa sparazt
drjúgar fjárhæðir i erlendum
gjaldeyri, sem miklu máli skiptir
fyrir þjóarbúið.
FLUGLEIÐIR HF
Sætanýting DC-8
Áætlanir fyrir
nýbyrjað ár
Nú er verið að ljúka við gerð
rekstraráætlunar fyrir árið 1976.
Nokkur óvissa rikir þó enn um
vissa þætti sumaráætlunar, en
helztu breytingar i millilanda-
flugi frá liðnu sumri verða
væntanlega þær, að f jölgað verði
um eina ferð milli Luxembourg
og Chicago, þ.e. úr 3 i 4 ferðir
vikulega og I stað 2ja ferða til
Osló og Stokkhólms, sem farnar
voru með DC-8 flugvélum i fyrra,
verða nú 3 ferðir með Boer.ing
727. Þá mun beinum ferðum til
Kaupmannahafnar fjölga úr 8 i 9
og veröa tvær þeirra með DC-8.
Tvær ferðir verða til Þýzkalands
vikulega, hliðstætt þvi sem var
sumarið 1973. Fleiri minniháttar
breytingar kunna einnig að verða
gerðar á sumaráætluninni frá þvi
sem var I fyrra, en ekki er gert
ráð fyrir neinum stökkbreyting-
um, enda margt sem bendir til að
hófleg bjartsýni varðandi
væntanlega flutninga henti bezt á
þessu nýbyrjaða ári.
Rikisábyrgðir
Haustið 1974 sóttu Flugleiir um
rikisábyrgð fyrir tveimur erlend-
um lánum. Hið fy rra, að upphæð $
13.500.000, var til kaupa á tveimur
þotum af gerðinni DC-8-63, sem
Loftleiðir höfðu starfrækt um
nokkurt árabil á leigukaupsamn-
ingi við Seaboard World Airlines,
en upphaflegt kaupverð þessara
flugvéla, og núverandi markaðs-
verð, er um 22 millj. dollara. Um
$ 8.500.000 af leiguverði höfðu áð-
ur gengið upp i kaupverð flugvél-
anna. Siðara lánið, að upphæð $
5.000.000 var ætlað til að bæta
rekstrarfjárstöðu félagsins.
Rikisstjórnin fól sérstakri nefnd
að kanna fjárhagsstöðu félagsins
ásamt rekstrar- og fjárhags-
áætlunum. Að fengnu jákvæðu
áliti hennar, lagði rikisstjórnin
frumvarp fyrir Alþingi til að afla
heimildar fyrir veitingu ábyrgð-
anna og var frumvarpið, svo sem
kunnugt er, samþykkt eftir
nokkrar umræður.
Að rikisábygð fenginni voru
tekin tvö lán i Bandarikjunum,
alls að upphæð 13,5 millj. dollara,
og gengið frá kaupum DC-8 flug-
vélanna. Hefur rúm 1 millj. doll-
ara af þessum lánum nú þegar
verið endurgreidd, i samræmi við
gerða lánasamninga. Fyrirhugað
rekstrarlán, að upphæð 5 millj.
dollara hefur hins vegar ekki enn
verið tekið og gæti svo farið að
ekki yrði þörf á að taka það fyrst
um sinn. Við teljum hins vegar
mikið öryggi i þvi fólgið fyrir
Flugleiðir, að eiga kost á rikis-
ábyrgð fyrir sliku láni, ef nauð-
synlegt reynist að bæta fjárhags-
stöðu fyrirtækisins, enda er
rekstrarfé þess vissulega i lág-
marki.
Allmiklar umræður hafa orðið
um þessa rikisábyrgð og aðrar,
sem Flugfélag Islands og Loft-
leiðir höfðu áður fengið. Virðist
svo sem sumir vilji likja þeim við
beinan rikisstyrk, sem er auðvit-
að hin mesta fjarstæða. Skemmst
er frá að segja, að hvorugt flug-
félaganna hefir nokkru sinni notið
rikisstyrkja, og er liklegt að
einsdæmi sé að tekizt hafi að
byggja upp flugsamgöngur þjóð-
ar, innanlands og við umheiminn,
algjörlega án rikisstyrkja, svo
sem hér hefur verið gert.
I þessu sambandi skal þess og
getið, að lán þau til kaupa á
Fokker-flugvélum og þotunni
„GULLFAXA” sem Flugfélagi
íslands var veitt rikisábyrgð
fyrir á sínum tima, eru nú að
fullu endurgreidd og staðið hefir
verið að fullu við alla lánasamn-
inga Loftleiða og Flugleiða.
Flugskýlisbruninn
Svo sem mönnum er i fersku
minni, kom upp eldur i aðalflug-
skýli Flugfélags Islands á liðnum
vetri og brann það ásamt
verkstæðum félagsins, varahlut-
um og ýmsum verðmætum tækj-
um, til kaldra kola. Atburður
þessiátti sérstað þann 13. janúar
1975 og er þvi I dag liðið rétt ár
síðan.
Svo sem að likum lætur hefir
flugskýlisbruninn valdið miklum
erfiðleikum fyrir flugreksturinn i
heild og þá sérstaklega hjá flug-
virkjum og öðrum, sem vinna að
viðhaldi flugvélanna og á ýmsum
verkstæðum félagsins. Aðstaða
þeirra til að sinna vandasömum
störfum sinum hefur verið mjög
bágborin siðan flugskýlið og
verkstæðin brunnu, og hafa þeir
sýnt mikinn þegnskap og þolin-
mæði við hinar erfiðu aðstæður.
Unnið er nú að lögn hitaveitu og
nýrrar raflýsingar i það flugskýli
Flugfélagsins, sem áður var að-
eins notað til geymslu flugvél-
anna, en það hefur verið notað til
viðhalds Eokker-flugvélanna
siðan hitt skýlið brann og munu
aðstæður batna nokkuð að þvi
loknu.Viðunandiverður ástandið
i þessum málum þó ekki fyrr en
byggt hefur verið nýtt skýli,
ásamt verkstæðum, og er unnið
að þvi að það mál komist i höfn á
þessu ári.
Áróður gegn
Flugleiðum
A nýliðnu ári, þá sérstaklega I
siðasta mánuði þess, hefur marg-
vislegum áróðri verið uppi haldið
gegn Flugleiðum. Kennir þar
margra grasa, en að ýmsum
dylgjum slepptum, sem ekki geta
talizt svaraverðar, má greina
eftirfarandi tvö meginatriði áróð-
ursins:
I fyrsta lagi:
Að fargjöld á áætlunarleiðum
innanlands og milli lands séu ó-
eðlilega há og hið sama gildi um
verð Kanarieyjaferða.
1 öðru lagi:
Að með sameiningu flugfélag-
anna hafi þau náð einokunarað-
stöðu, sem hættuleg sé og leiða
muni til hærri fargjalda til tjóns
fyrirallan almenning. Þvi beri að
heimila samkeppni á áætlunar-
leiðum af hálfu innlendra aðila.
- O -
Ég tel ekki rétt að ljúka svo
máli minu að ekki sé fullyrðing-
um þessum gerð nokkur skil, með
lýsingu staðreynda eða með
rökfærslum, eftir þvi sem við á.
Fargjöld
Vikjum fyrst að fargjöldum á
áætlunarleiðum. Gerður hefur
verið samanburður á innanlands-
fargjöldum okkar og flugfar-
gjöldum innan hvers hinna
þriggja skandanavisku landa,
Danmerkur, Noregs og Sviþjóð-
ar, á hliðstæðum vegalengdum.
Miðað er við þrjár flugleiðir okk-
ar, þ.e stytztu flugleiðina, sem er
milli Reykjavikur og Vestmanna-
eyja, millivegalengd sbr. Reykja-
vlk—Akureyri og hlutfallslega
langa flugleið eins og Reykja-
vik— Hornafjörður. Þessi saman-
burður sýnir, að i þessum
nágrannalöndum okkar eru
innanlandsfargjöld mun hærri en
hér, eða, sé tekið meðaltal far-
gjaldanna á Norðurlöndum, eru
þau 95% hærri á stytztu vega-
lengdinni, 83% hærri á millivega-
lengd og 86% hærri á lengstu leið-
inni, eða m.ö.o. næstum helm-
gingi hærri á öllum leiðum, en
fargjöld eru hér á landi.
Sé fargjaldið frá Reykjavik til
Kaupmannahafnar borið saman
við fargjöld frá öllum fjórum
höfuðborgum hinna Norðurland-
anna til staða i fjarlægð, kemur i
ljós, að þau eru öll hærri, þetta
frá 18 upp I 42% eða að meðaltali
34% hærri.
Við þetta má svo bæta þvi, að
Flugfélag Islands hefur um langt
árabil verið aðili að sambandi
þeirra Evrópuflugfélaga, sem eru
meðlimir IATA, en samband
þetta safnar árlega upplýsingum
um tekjur og gjöld þeirra félaga,
sem eru innan vébanda þess.
Meðal þeirra upplýsinga, sem þar
koma fram eru rauntekjur félag-
anna, eða nyt eins og það hefur
verið kallað, miðað við hvern far-
þega-kilómetra. Tekjur Flug-
félags Islands hafa ætið verið
langlægstar allra félaganna fyrir
hverja slika einingu og voru t.d.
fyrir árið 1974 rúmlega 40% lægri
en meðalnyt meðlima sambands-
ins.
Kanaríey ja ferðir:
Þá hefur þvi verið haldið fram,
að tilkoma samkeppnisaðila i
Kanarieyjaflugi hafi leitt til lækk-
unar á verði þeirra ferða. Stað-
reyndir erhins vegarsú, að þegar
Flugfélag Islands hf. hóf braut-
ryðjendastarf sitt i vetrarorlofs-
ferðum með flugi til Kanarieyja
fyrir 5 árum, siðan var verði á
þeim ferðum haldið i algjöru lág-
marki og tekið fullt tillit til hinnar
auknu nýtingar flugvéla og
áhafna, sem gerði kleift að bjóða
hið lága verð. Hefur verið stefnt
að þvi, aðhalda verði sem lægstu
i þessum ferðum æ siðan og hafa
hækkanir á þeim ekki fylgt verð-
lags- og kauphækkunum. Þegar
hinn nýji aðili kom til skjalanna
fyrir ári siðan var þvi ekki um
lægra verð að ræða af hans hálfu,
a.m.k. ekki' svo þýðingu hefði.
Rétt er að það komi fram hér,
Frh. á bls. 15
Flugflotí AFKASTAGETA
DC-8 sæti burðargeta
A^ 249 46
* ~ |
B-727 126 20
F-27
48 5,5 TONN
Farþegaflutningur í millilandaflugi 1975 (þú&i
Skipting kostnadar 19Z5
VEXTIR
FLUGREKSTUR ~l ÁLMENNUR REKSTUR
------------ OG STJÓRNUN
AFGREIÐSLU-OG SALA OG AUGLYSINGAR
STÖÐVAKOSTN.
HAGDEILD 5/1 1976
Skipting tekna í flugrekstri 1975
PÓSTUR LEIGUFLUG
FARPEGAR
FRAGT
Starfsmannafjöldi
Flugleida - þróun