Tíminn - 04.04.1976, Blaðsíða 7
Sunnudagur 4. april 1976.
TÍMINN
7
Nýlega kom til umræðu i
Alþingi þingsályktunartillaga,
er ég flutti ásamt Gunnlaugi
Finnssyni, um hönnun bygginga
á vegum rikisins. Tillagan er
svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórn að láta athuga hvort ekki
væri hagkvæmt að koma á fót
teiknistofu rikisins. Teiknistofu
þessari yrði falin hönnun bygg-
inga á vegum rikisins, svo sem
sjúkrahús, skólamannvirkja,
iþróttamannvirkja og hvers
konar annarra þeirra mann-
virkja er rikið kostar að miklum
hluta.”
Þar sem greinargerð með til-
lögunni hefur áður birzt i
Timanum tel ég ekki ástæðu til
að birta hana aftur, en leyfi mér
þess i stað að vitna til fram-
söguræðu minnar, þegar málið
var rætt i sameinuðu þingi.
Óeðlilega hár
hönnunarkostnaður
,,Ég hy gg að ekki sé ofmælt að
flestir þeir aðilar, sem nú i
haust sóttu til fjárveitinga-
valdsins um fyrirgreiðslu vegna
byggingar skólamannvirkja,
heilsugæzlustöðva og sjúkra-
húsa, hafi talið sig þurfa hærri
upphæð en unnt var að úthluta
þeim af þvi fjármagni sem til
skipta var. Byggingarkostnað-
urinn er orðinn mjög hár. Flest-
ar þessar framkvæmdir eru
mjög aðkallandi. Ég hef athug-
að nokkrar af þeim kostnaðar-
áætlunum sem gerðar hafa ver-
ið um þessar framkvæmdir.
Sumar þeirra eru hóflegar, en
aðrar ekki. Athygli vekur hve
hönnunarkostnaður virðist oft
vera geysilega hár. 6-7 1/2% af
heildarkostnaði verka. Ég fæ
ekki skilið að ekki sé unnt að
lækka þennan lið að einhverju
marki.
Þegar gjaldskrá hönnunar er
ákvörðuð sem hundraðshluti af
heildarkostnaði og stærð verks,
svo sem er um gjaldskrá Arki-
tektafélagsins, vaknar sú
spurning hvort ætið sé gætt
fyllstu hagsýni við gerð mann-
virkja, bæði hvað varðar stærð,
byggingarlag og útlit. Ég hygg
að öllum sé okkur ljóst að svo
hefur ekki ætið verið.
Auðvitað er notagildi
bygginga sá þáttur sem fyrst og
fremst þarf að hafa i huga.
Byggingin er reist til að gegna
ákveðnu notkunarhlutverki. Að
sjálfsögðu ber að kappkosta
fallegt útlit, vistlega skipan og
traust byggingarlag. Þetta þarf
allt að fara saman til að mann-
virkið heppnist og skapi
ánægjulega aðstöðu þeim sem
þar eiga að lifa og starfa. Hins
vegar er það röng stefna, sem
þvi miður hefur i einstökum
tilfellum orðið ráðandi, að þessi
atriði hafa sum þokazt i skugg-
ann og arkitektar farið að
teikna risavaxin og rándýr
minnismerki um sjálfa sig upp á
hundruð milljóna, og þótt þeir
eigi e.t.v. margt gott skilið, þá
reisa þeir sveitarfélögum og
þjóðfélaginu öllu með þessu
hurðarás um öxl. Listaverk
þurfum við að eiga. Okkar
ágætu listrænu og frumlegu
arkitektar eiga að sjálfsögðu að
hafa tækifæri til þess að beita
náðargáfum sinum. En þaðmá
ekki ganga út i öfgar, þeir verða
likaaðhafa þaðhugfastað þjóö-
félagið hefur ekki ótakmörkuð
fjárráð. Það gefur einnig auga
leið að nokkur fjárhagsleg
freisting kann það að vera, ef
arkitekt áað teikna stórt, marg-
brotið og dýrt, þegar gjaldskrá
er þannig háttað sem hér er.
Ég vil leyfa mér að lesa
stuttan kafla úr gjaldskrá Arki-
tektafélagsins, sem ég hef undir
höndum. Á bls. 7 i kafla IV, 3.
gr. segir:
„011 störf að viðbyggingum og
stækkun húsa, þar sem ekki er
hróflað til muna við burðarhlut-
um hússins, skulu greidd
Páll Pétursson alþingismaður:
Teiknistofa ríkisins
samkv. þeim flokki, sem húsið
telst til, að viðbættu 15% álagi.
— 4. gr. Þóknun skiptist eftir
starfsframlagi sem hér segir:
Undirbúningur 5%, frumdrög
5%, forteikningar 10%, aðal-
teikningar 15%, verkteikningar
50%, verklýsing og viðmiðunar-
áætlun 10%, lokaúttekt 5%.”
Svo kemur um gjalddaga
þóknunar að sé ekki gert um það
sérstakt samkomulag, hvenær
greiðslur skuli fara fram, falla
þær i gjalddaga eftir þvi sem
verki miðar. Eftirfarandi skipt-
ing skal höfð til hliðsjónar: Að
lokinni aðalteikningu 35%, að
lokinni byggingarteikningu
25%, að lokinni innréttingar-
teikningu 20%, meðan á verki
stendur 15%, að verki loknu 5%.
Svo kemur rúsinan I pylsu-
endanum: „Þegar veikkaupi
innir af hendi innborganir fyrir
verkefni, sem taka meira en tvö
ár, án afmörkunar fyrir hvað
greitt er, frumdrög, for-
teikningar, athuganir, og hann
óskar ekki uppgjörs milli stiga
skal miða þóknun við verðlag I
lok verkefnis, þannig að allar
innborganir séu færðar til þess
verðlags.” Ég endurtek: „skal
miða þóknun við verðlag i lok
verkefnis, þannig að allar
inborganir séu færðar til þess
verðlags.” Þetta getur nú verið
dálitið athugavert ákvæði i
veröbólguþjóðfélagi eins og við
búum við. Hér lýkur tilvitnun-
inni i þessa gjaldskrá.
Dæmi um Grímsey
og Hrísey
Heilbr. og trmrn. hefur
ráðið sér lækni sem hefur það
starf með höndum að fylgjast
með skipulagningu og undir-
búningi á mannvirkjagerð á
vegum rn. Ég tel að þar hafi
verið farið inn á rétta braut og
hugsanleg sé sú leið að ráðu-
neytið hefði á sinum snærum
menn sem sérhæfðu sig á sviði
sjúkrahúsa og heilsugæzlu-
stöðva. Reykjavikurborg hefur
sérstaka starfsmenn til þess að
teikna borgarspitala.
Hvað varðar skólabyggingar,
þá kemur i ljós að þar eru fyrir-
hugaðar miklar framkvæmdir,
m.a. til þess að unnt sé að fram-
kvæma hina geysilegu stórhuga
lagaetningu um grunnskóla.
Ekki eru þessar áætlanir
fullmótaðar enn þá og ýmislegt
þar i lausu lofti, t.d. um hlutfall
iþróttarýmis i almennu skóla-
rými, og fram hafa verið settar
till. mjög fjarri raunveruleikan-
um. Samkv. núgildandi reglum
er fþróttarými 35% af skóla-
rými. Samkv. till. svokallaörar
normanefndar yrði það 50%,
samkv. till. Iþróttafulltrúa 78%
og samkv. till. ISI 97% af al-
mennu skólarými eða 96958 fer-
metrar. Til fróðleiks vil ég geta
þess, að i till. ÍSl er gert ráö
fyrir iþróttahúsi i Grimsey,
flatarmál salar á þar að vera
14x27 metrar og mundi það að
likindum kosta 75 millj.
Hönnunarkostnaður þess húss
mundi þá að öllum likindum
verða 3.5—4 millj. Ibúar i
Grimsey eru 86.1 Hrisey eru 300
ibúar. 1S1 gerir ráð fyrir salar-
gólffleti þar 18x33 m. Það hús
gæti kostað 120 millj. Ég legg
áherzlu á það, að ég tel að skapa
þurfi viðunandi iþróttaaðstöðu i
dreifbýlinu, ekki siður i Hrisey
og Grimsey en annars staðar.
En svona stórkostlegar hug-
myndir hljóta að leiða til þess að
flestir dreifbýlisstaðirnir fá ekk
ert iþróttahús fyrr en þá seint og
um siðir. Bæði riki og hvað þá
sveitarfélögum er ofraun að
uppfylla svona óskir.
Undanfarnar vikur hafa oröið
mikil blaðaskrif um byggingu
iþróttahúss á Flateyri. Inn i þær
umr. hafa blandast deilur um
hönnunarhætti hússins og undir-
búning að byggingunni og gefa
þær að ýmsu leyti skýra mynd
af þeim vanda sem hin fámenn-
ari sveitarfélög eiga við að etja
vilji þau skapa ibúum sinum
viöunandi aðstöðu.
Þess eru ekki mörg dæmi
að stöðlun teikninga hafi verið
reynd við byggingar á vegum
rikisins. Flestar hafa bygging-
arnar verið módelsmiði. Þó
hefur verið farin þessi leið
tvisvar sinnum með litlar
heilsugæzlustöðvar. Þar hafa
endurtekningarnar fengizt fyrir
60% af upphaflegu gjaldi. Þessi
leið gæti vafalaust hentað i
mjög mörgum tilfellum og
ástæða væri til þess að gefa
henni meiri gaum og ekki
einungis hvað varðar heilsu-
gæzlustöðvar, heldur einnig
skóla, íþróttahús og sundlaugar
sem i eðli sinu eru ekki og eiga
ekki að vera flókin mannvirki.
Ég vil þó taka það fram,að ég
tel 60% af upphaflegu gjaldi til
arkitekta einkennilega 'nátt
fyrir endurnotkun.
Hvað varðar byggingu emb-
ættisbústaða, þá sýnist mér
sjálfsagt að nota þar teikningar
húsnæðismálastjórnar. A örfá-
um stöðum hefur ver-ð efnt til
samkeppni um teikningar. Það
hefur stundum ekk.i gefið nógu
góða raun, þvi miöur. Rétt er að
geta þess, að ég held að
reynslan hafi sýnt að lög um
skipan opinberra framkvæmda
þurfi endi'.rbóta við, og bremsu-
nefndarfyrirkomulagið, sem er
að mcrgu leyti skynsamlegt,
héfur verulega annmarka, t.d.
hvab varðar leyfi til byrjunar-
framkvæmda. En leyfi bremsu-
aefndar til að hefja fram-
kvæmdir fæst ekki fyrr en allar
teikningar liggja fyrir, þannig
að ár eftir ár fer öll fjárveiting i
teikningar.
Teiknistofa ríkisins
Nú kann einhver að óttast
að sú stofnun, sem till. þessi
hnigur að, mundi verða risa-
vaxið og kostnaðarsamt bákn.
Ég hygg þó að svo þyrfti ekki að
fara með góðri verkstjórn og
skipulagningu. Embætti húsa-
meistara rikisins hefur með
höndum hönnun og byggingu
Landspitalans og Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Annars hefur embættið einkum
með höndum viðhald og endur-
bætur á eldri byggingum rikis-
ins. Ég tel að vel geti komið til
greina.eins og getið er um i grg.
að endursk'ipuleggja þá stofnun
þannig að hún gæti unnið af
meiri þrótti og annað fleiri
verkefnum, e.t.v. i tengslum við
þá stofnun sem hér er verið að
leggja til að athugað verði um
að koma á fót.
Ég vænti þess, að Alþ. sjái sér
fært að samþykkja till. þessa og
rikisstj. láti fara fram þá athug-
un er till. gerir ráð fyrir. Hér er
um talsverðar upphæðir að
ræða, svo sem ljóst má vera ef
hafðar eru i huga hugmyndir
arkitekts um stækkun sjúkra-
húss á Sauðárkróki. Kostnað-
aráætlun um það verk var okkur
þm. Norðurl. v. fengin i hendur
i haust, dags. 15. nóv. 1975. Þar
var hönnunarkostnaður áætlað-
ur 29 millj. Ég geri ráð fyrir þvi
að hönnunin á þessari viðbót við
sjúkrahúsið á Sauðárkróki sé
vandasamt ábyrgðarstarf og
þvi eðlilegt að það sé vel launað.
En jafnvel þó að hönnuður hefði
tvöföld þingmannslaun, sem
sjónvarpsmönnum þykja þó há,
þá mætti hann eyða 10 árum i
verkið.”
ODYR OG GOÐUR
Bráðnar vel og því
hentugur til matargerðar.
Byggjum upp borðum
Bragðgóður á
brauði, enda gerður úr
Gouda og Óðalsosti.
Skerið hann helst með
strengskera.
ost.
■Vt
/ (V> 1
/ * ' 1. ' » » *>■. ,
t / 'L
:»-» \ V s \ í
\ ? 1 \ i ' '
i .... , ' < -
tur
urorku
léttir lund