Tíminn - 04.04.1976, Qupperneq 9
Sunnudagur 4. apríl 197G.
TÍMINN
9
Háskólakórinn:
Á þessari rímlausu
skeggöld
— frumflytur verk eftir Jón Ásgeirsson
gébé Rvik — Iláskólakórinn
hélt tónleika i Félagsstofn-
un stúdenta á vegum tónleika-
nefndar Há'skólans, laugar-
daginn 3. aprfl kl. 17, og
i dag I. april vcrða tónieikarn-
ir cndurteknir kl. 20:30.
Kórinn er með þessum
tónleikum að ljúka sinu þriðja
starfsári. Á tónieikunum verð-
ur frumflutt verk eftir Jón Ás-
geirsson við kvæði Jóhannesar
úr Kötlum ,,A þessari rim-
lausu skeggöld”, en auk þess
syngur kórinn stúdentalög,
negrasálma, þjóðlög fjrá ýms-
um löndum, talkór úr ind-
verskri óperu og lög eftir Bent
Lorentzen við danska þýðingu
á 3 ljóðum eftir Mao Tse-Tung.
Stjórnandi kórsins er Ruth L.
Magnússon.
Háskólakórinn lýkur með
þessum tónleikum sinum 3.
starfsári, en fyrr i vetur tók
kórinn þátt i flutningi
Carmina Burana ásamt Söng-
sveitinni Filharmoniu og
Sinfóniuhljómsveitin
Stjórnandi kórsins frá
upphafi hefur verið Ruth L.
Magnússon. Kórinn hefur
komið fram við ýmis tækifæri,
bæði innan og utan Háskólans,
en þetta verða fimmtu sjálf-
stæðu tónleikar hans.
Kórinn hefur stefnt að þvi að
flytja verk eftir núlifandi is-
lenzk tónskáld og mun frum-
flytja verk eftir Jón Ás-
geirsson við kvæði Jóhannesar
úr Kötlum „A þessari rim-
lausu skeggöld”. Jón samdi
þetta verk fyrir nokkrum
árum við danska þýðingu á
Félagsmála-
skóli
alþýðu í
Ölfusborgum
SEÞ-Reykjavík — Nýlokið er II.
námsönn Félagsmálaskóla
alþýðu i Olfusborgum. — Eftir-
talin námsefni voru tekin til
meðferðar: Skráning minnis-
atriða, hópefli, hagnýt hag-
fræði, launakerfi, lifeyrissjóðir,
trúnaðarmannakerfið og þýðing
þess, orlofsmál og orlofsbyggðir
verkalýðshreyfingarinnar, saga
og markmið hennar. Leiðbein-
endur voru: Bolli B. Thorodd-
sen, sem jafnframt var náms-
stjóri, Gunnar Arnason, As-
mundur Stefánsson, Hjalti
Kristaeirsson, Hrafn Magnús-
son, Sigurjón Pétursson, PAtur
Blöndal, Éðvarð Sigurðsson,
Stefán ögmundsson, Aðalheiður
B jarnfreðsdóttir, Guðrún
Emilsdóttir, Tryggvi Bene-
diktsson og Ólafur R. Einars-
son. — Vinnutimi var frá kl. 9-7
og fór námið fram i erindum og
hópstarfi og var niðurstöðum
skilað til frjálsrar umræðu
nemenda og leiðbeinenda. —
Skólann heimsóttu þeir Baldur
Óskarsson og Guðbergur Bergs-
son og fluttu þeir erindi og
sýndu skuggamyndir. Skóla-
fólkið sá um þriggja kvölda
dagskrá og var Sverris
Kristjánssonar minnzt og lesið
úr ritgerðasafni hans. Einnig
var afmæli Alþýðusambands ts-
lands haldið hátiðlegt. Skólann
sóttu 19 manns frá 14 verkalýðs-
félögum, þar af 8 nemendur frá
7 félögum úti á landi og 11 frá 7
verka1ýðsfé1ögum úr
Reykjavik. Undirbúning að
starfi skólans annaðist stjórn
MFA ásamt Bolla B. Thorodd-.
sen og áformað er að skóla-
starfið hefjist að nýju i haust og
voru kjörin til samstarfs við
stjórn skólans, þau Halldóra
Sveinsdóttir og Guðmundur
Hallvarðsson
ljóðinu og var verkið flutt i
þeirri mynd i Danmörku. En
nú hefur Jón breytt verkinu
mikið og færði hann kórnum
það til flutnings snemma á
þessu ári.
I>
Litið inn á æfingu hjá Há-
skólakórnum nýlega.
Rnnir þú til
feróalöngunar
an
is
þá er það vitneski
um voríð eríendi
sem veldur
30% lækkun á fargjöldum til Evrópu á tímabilinu 1. apríl til 15. maí.
%ugfélac LOFTLEIDIfí
/SLAJVDS
við umheiminn