Tíminn - 15.04.1976, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. april 1976.
TÍMINN
9
Vjí- v>x. x.x<«»:f.- »•!<♦:*<•»{ V.WX -f 4 : r»::v>:.-::'.f5*l. <•>• .'<*»•• l:« *■><*. =>:<'•> »•'' :'•"»• 5 •'< ■<», : ■;■■>•
Síxt«^K:>;;í.x i*«.l.l«l l< . - ! N-X-f.v <>«•'. i'v/* >»">«,» V - '"* • ' »&*** '**'*
»xX{*t:iW<<w ll<<l'M4:i ♦•:•:;.*M*ý*-;< »«■» Fm }v.ít>::<'y, í'*l:*<«:♦•■:*«•>«■.»■.<- •>. i •' ><'> •.. ! »,1 i. * <>•>>»>>»;•>••
......................................></«<5 (''( A1.::Ítí »■ 1»:< «•,:<■»: :.<■>:»:> ♦!••, . «>•♦ <•> •>■» ■</. -y.'-'ýt* <:( >>«:,V.:1 • '::j
■:í«í^:»>;<»sií/x
, i-'f ii»:íí'já §»&>•»
’t *swt»;#**wi::ai*:f««??* • :>:í':::>
Ö0« 1J:S'í:*,
<W >»*, *« *4il. >♦«>**
<Cii SiiÖ»iLi« íftTYJiC
W,F, 5 »» 8 '?»'$*»>' r
t (4. u *t »»«> *< *y*«
t>AT*cC:» C*V.mí.«.
. ' W í. ÖÖð HiM mc».
«*T6Ki*i.»rifí5$
iiiliftT LWC m«T" ’
, #. f, POS <4 4Í. 4‘. *S »#». ••**
' C*«*U.t* C*#itT«t
» r. #»# i
— Siðasta fimmtudag sagði ég
að SLA ætlaði án efa að nota
Patty. Ég er viss um að ýmsir
SLA-félaganna hafa orðið fyrir
miklum vonbrigðum af þvi að
bankavörðurinn slysaðist ekki til
að skjóta hana, sagði ég.
— Ég held við þurfum ekki að
verða undrandi þótt segulbands
spóla berist frá Patty eftir nokkra
daga. Þá fáum við liklega að
heyra um mikilvægi þessara
fyrstu byltingaraðgerða hennar,
bankaránsins. Kannski nægir það
ekki til að sannfæra almenning.
Þá megum við liklega búast við
að SLA gripi til svipaðra aðgerða
og i gær. En þá verða þessir menn
liklega ekki sVo klaufskir að láta
sjást á mynd að þeir beina
byssum sinum að Pattý.
Ég þagnaði og reyndi að ná
valdi á röddinni. Svo hélt ég
áfram: — Ég get ekki skilið þá
ómannúðlegu grimmd, sem hún
er beitt. Þeir sem hafa samúð
með hlutskipti hennar ættu að
sýna það nú... Patty er bæði sjúk,
aðframkomin og ráðvillt. Hún er i
höndum öfgahóps, sem sleppir
henni ekki lifandi úr klóm sinúm.
öll verk SLA eru sjálfsmorðsað-
gerðir. Ég reyni samt enn að
halda i siðustu hálmstrá von-
arinnar.
Þegar ég var búinn að gefa
yfirlýsingu mina, fór ég aftur inn
i forstofuna. Ég starði á gólfið.
Kannski hafði ég sagt of mikið.
Skyndilega kom frú Hearst frá
hópi fólks i stofunni og þrammaði
til min.
— Ég vil ekki hafa að þú gefir
neinar yfirlýsingar fyrir utan
þetta hús, sagði hún reiðilega.
Ég sagðist þegar vera búinn að
gefa yfirlýsinguna. Frúin endur-
tók að ég gæfi engar yfirlýsingar
hér. Það gæti ég gert á öðrum
vettvangi. Ég endúrtók að ég væri
þegar búinn að ræða við frétta-
mennina.
t sama bili kom Lester inn. Frú
Hearst sneri sér snögglega að
honum: — Hvers vegna er mér
aldrei sagt neitt um þessi mál,
spurði hún hvassrirödd.Svo sneri
hún sér aftur að mér:
— Ef Patty deyr, þá er það þin
sök. Þú ert að drepa dóttur okkar.
Ég heyrði varla hvað hún sagði.
Lester virtist mjög vandræðaleg-
ur og leið auðsjáanlega ekki sem
bezt. Frú Hearst hélt áfram að
veita tilfinningum sinum útrás:
— Hún er dóttir okkar. Ef hún
deyr við þátttöku i einhverjum
glæp, þá er það þin sök. Mundu
það.
Blaðamaður Chronicle, Tim
Findley, bauð mér heim i vinnu-
stofu sina. Þar sýndi hann mér
allar upplýsingar sinar um
SLA,— Littu á þetta, sagði hann.
í þrjár klukkustundir sökkti ég
mér niður i þessar heimildir.
Margt af þvi sem ég sá þennan
dag var árangur starfs SLA
„rannsóknardeildainnar”. Þarna
vom snyrtilega vélritaðar at-
hugasemdir um viðskiptabréf,
úrklippur úr viðskiptadálkum
dagbiaðanna og fréttir úr sam-
kvæmislifinu. Alit var þetta limt
á pappaspjöld. Þarna voru laus-
legar rissmyndir af timasprengj-
um, rafmagnssprengjum og öðr-
um vitisvélum. Allt var þetta með
hálfgerðum viðvaningsblæ.
Persónulegar athugasemdir,
lauslegt riss, bréf sem ekki voru
send heim og ýmis ljóð höfðu þó
langmest áhrif á mig. Fólkið varð
raunverulegt. SLA varð að ógn-
vekjandi raunveruleika.
Angela Atwood ritaði með
rauðu bleki í dagbók sina: Það
dynur djöfuls áróður yfir fólk.
Sama hver vandinn er. Alltaf
djöfuls áróður. Burt með djöfuls
reiðina. Þeir eru svo
margir meðal þjóðar minnar,
sem þjást. Það fólk getur ekki
leyft sér að hafa áhyggjur af svo
léttvægum málum. Ég er reið og
bitur af þvi að við höfum svo litið
og verðum að hrifsa það sem við
getum.... ÖSKRA. Þeyta skit i
allar áttir. En ætli hitt fólkið i
húsinu haldi að ég sé vitstola?
Ætli það skilji?.. Ég verð að
virkja þessa reiði til þess að nýta
hana. Ég vil öskra, djöfuls skitur,
pappir og innantóm orð. Djöfull.
SKJÓTA, SKJOTA
SKJÓTA......
Úr dagbók Nancy Ling Perry:
— Hér er ég, alein inni i iikaman-
um. Auðvitað Iæt ég hvergi sjá
mig, Ég er vofa. Ég held það. Ætli
ég sé vofa, eða held ég það, af þvi
ég sé vofur? Hvað gerist ef ég
teikna mynd af sjálfri mér? Rif
hana i tætlur um Ieið? Komdu
einn, þegar þú kemur...
Sköpin eðlileg á lit. Kannski
ófullnægð kynlifslöngun. Reyndu
sjálfsfróun, kona. Þekkir þú
raunveruleika hlutanna eða taug-
anna?
Brot úr bréfi Remiros til móður
sinnar: — Ég hjálpaði við að
brenna heilt þorp til grunna og
drepa allan búpening. Þeir sem
lifðu, voru skildir eftir i sorg og
svelti. Þetta hefði Hitler kunnað
að meta. Þegar ég horfi nú á and-
litlögreglumannanna, þá sé ég að
þeim er eins innanbrjósts og
mönnunum, sem voru með mér i
hemum.......Ég stila bréfið fyrst
og fremst til þin, mamma. Pabbi
hefúr aldrei haft áhuga á að
hlusta á mig...
Eitt kvæða Mizmoon er frá þvi
21. ágúst 1973, en þá hóf SLA
formlega starfsemi sina:
Helgun min verður að vera
alger.
Lyfti ég byssu, skal fylgja
dauði.
Alls ekki snotur stúlka,
alls ekki snotur og
þokkamikil kona.
Reið, grimmlynd og
stórhættuleg
byltingarkona.
Fólk á að óttast mig.
Ég ætla að drepa....
Ég ætla að drepa þá stétt
sem kúgarokkur.
Ég hugsaði um Patty i höndum
þessa fölks. SLA-félagar voru al-
teknir af morðhugsunum. Sjálfs-
könnun þeirra var sjúkleg. Þeir
voru alteknir sjúklegri ástriðu i
skipulagningu og dulmál. Þannig
tengdust þeir sem ein heild. Hóp-
ur öfugugga. Sálfræðileg rotþró.
Þeir áttu siðustu leifar geðheilsu
sinnar hver undir öðrum.
Daginn eftir, 24. april: Ég sat i
kaffistofu i kjallara Hall of
Justice. Ég hlustaði á Popeye
ausa úr skálum reiði sinnar: —
Þessir SLA-náungar eru snarvit-
lausir. Þeir eru djöfuls sjálfs-
morðssveit. Þeir fá örugglega
sina vöru selda. Það er ekki hægt
að eltastviðslikan óvin. Þeir hafa
enga skriðdreka, engar flugvélar
og raunar engan andskotann...
Þeir geta ekki snúið sig út úr
þessu. Alls ekki.
NÆST: ÓRÆÐ FRAMTÍÐ
TÓLFTAGREIN
Kvikmyndavélar bankans tóku myndir af bankaræningjunum, þar með
af Patty Hearst.
Þeir, sem hafa dvalið á
Ibiza eiga varla nokkur
orð til að lýsa ánægju
sinni, enda hefur Ibiza
oft verið nefnd
Paradís Miðjarðarhafsins.
Nú býður
ferðaskrifstofan Úrval
jkmÍÆ Sp j I : |r /
sannkallaða úrvalsferð
til Ibiza. Eyjan er
vinaleg, falleg og
gróðursæl; — þar vaxa
barrtré og möndlutré
hlið við hlið. Ibiza er
sólarstaður
fjölskyldunnar.
Tilvalinn staður til
hvíldar og skemmtunar,
jafnt fyrir einstaklinga
sem fjölskyldur.
Fáið eintak af
Ibiza-bæklingi okkar,
og kynnið ykkur Ibiza
ferðirnar.
t -ff;
_ *is*a
.>«»•
0
Pantið Mallorcaferðina strax!
Mallorcaferðir okkar
eru oft á tíðum
uppseldar langt fram í
tímann. Þess vegna er
ráðlegt að hafa
samband við Úrval hið
fyrsta, þannig að hægt
sé að velja Mallorcaferð
á þeim tíma, sem
hentar best.
Urval veitir fúslega
allar upplýsingar um
Mallorca.
Tryggið ykkur eintak
af nýja Mallorca
bæklingnum okkar.
FERDASKRIFSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900