Tíminn - 04.05.1976, Page 1
Stjórnarfrumvarp um nýja fjóröflun ríkissjóðs:
Verja á 1 milljarði til
eflingar landhelgisgæzlu
og friðunarráðstafana
Vörugjald hækkar úr 10% í 18%.
Bensíngjald hækkar um 1,59 kr.
AÞ-Reykjavlk. — 1 gær var lagt
fram á Alþingi stjórnarfrumvarp
um nýja fjáröflun fyrir rikissjóð,
m.a. til að standa straum af
auknum kostnaði við landhelgis-
gæzluna.
Er gert ráð fyrir þvi, að fjáröflun
samkvæmt frumvarpinu, skili
rikissjóði rúmum 2,2 milljörðum
króna, og önnur fjáröflun I tengsi-
um við það skili 320 millj. króna.
í frumvarpinu er gert ráð fyrir
þvl, að vörugjald hækki úr 10% i
18% og haldist þannig til loka árs-
ins. Er tekjuauki rikissjóðs af þvi
áíétlaður 1,6 milljarðar króna,
þar af er áætlað að verja 1
milljarð til eflingar landhelgis-
gæzlu og friðunarráðstafana.
Þá er gert ráð fyrir þvi i frum-
varpinu, að greiðslur rikissjóðs
vegna skattaafsláttar upp i út-
svar verði takmarkaðar. Komið
verði i veg fyrir, að ákvæði
skattalaga um persónuafslátt
verði til þess, að sveitarfélögin
taki almennt að nota lifeyristekj-
ur og lágar tekjur námsmanna
sem álagningarstofn útsvars. Er
tilið, að þessi breyting bæti
greiðsluafkomu rikissjóðs um allt
að 300 milljón kr. I ár.
Þá gerir frumvarpið enn frem-
ur ráð fyrir þvi, að skyldusparn-
aður verði áfram 5%. Aætlað er,
að innheimta skyldusparn-
aðar geti numið 300 milljónum kr.
1 tengslum við frumvarpið
verður birt reglugerð um hækkun
benslngjalds um 1,59 kr. og reglu-
gerð um hækkun innflutnings-
gjalds af bifreiðum I jeppaflokki
og af snjósleðum. Samtals er á-
ætlað, að þessar hækkanir gefi af
sér 320 milljónir kr.
Fé það sem aflað er með skyldu
sparnaði.hækkun bensingjalds og
Frh. á bls. 15
Hin nýja þyrla Landhelgis-
gæzlunnar TF-Gro er nú
komin til iandsins og mun aö
sögn talsmanna Landhelgis-
gæzlunnar verða tekin i
notkun I vikunni. Þyrlan var
flutt hingað til lands með
skipi frá Bandarlkjunum, en
áöur hafði Björn Jónsson,
flugmaður flogiö þyrlunni
þvert yfir Bandarikin.
Myndin er tekin af nýju þyrl-
unni i fiugskýli Landheigis-
gæzlunnar á Reykjavíkur-
flugvelli i gærdag.
Timamynd: G.E.
/ÆtíGffi?
Aætlunarstaðir:
Blönduós '— Sigluf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur— Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
■ hólmur— Rif Súgandar'i;
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66 '
Í3
ídaa
SIGURÐUR Dagsson
landsliðsmarkvörður
þurfti að kasta sér stang-
anna á milli, þegar lands-
liðsmennirnir I knatt-
spyrnu gerðu stórskota-
hrlð að markinu, á fyrstu
landsliösæfingunni, sem
fór fram á Melavellinum
gamla. Sigurður réði ekki
við knöttinn, sem liggur i
markinu, en hann vann
það upp, með þvi að verja
meistaralega stuttu siðar
og tók Gunnar Ijósmynd-
ari þá þessa mynd, þar
sem Sigurður, liðugur
sem köttur, stekkur upp
og slær knöttinn aftur
fyrir mark. Sjá nánar
íþróttir á bls. 17,18 og 19.
Byggingarverktakar og
iðnaðarmenn fyrir norðan:
Leggja niður
vinnu við Kröflu
ÞJ-IIúsavik. A fundi hjá Félagi
byggingarverktaka á Húsavik og
Suður-Þingeyjarsýslu, sem hald-
inn var I gær, var ákveöiö að fé-
lagsmenn legðu niður vinnu við
Kröfluvirkjun þriðjudaginn 4.
mal og jafnframt að senda út eft-
irfarandi fréttatilkynningu:
Félag byggingaverktaka i
Húsavik og Suður-Þingeyjarsýslu
telur sig tilneytt að mótmæla
harðlega þeim órétti, sem þeir
eru beittir i sambandi við val
verktaka við byggingu Kröflu-
virkjunar. Það virðist nú vera
orðin stefna hjá Kröflunefnd og
ráðgjöfum hennar, að velja verk-
taka úr öðrum landshlutum, til
dæmis með þvi að beita bola-
brögðum i sambandi við útboð og
raflagnavinnu, og með þvi að
ganga fram hjá lægsta tilboði i
ákveðið verk á sviði trésmiða.
Félagið telur, að þingeyskir verk-
takar, sem starfað hafa við
Kröflu hafi sýnt að þeir standi
fullkomlega við sitt, og geti þvi
ekki sætt sig við slikt óréttlæti á
Ásigling í
Reykjavíkurhöfn
Oó-Rvik. Þegar veriö var að
leggja einum af Fossunum við
bryggju i Reykjavikurhöfn i
fyrrinótt varð það óhapp, að skip-
ið fór utan i Esju, sem lá við
hafnarbakkann, og urðu nokkrar
skemmdir á siðu siðarnefnda
skipsins. Áreksturinn varð það
harður, að innrétting i hérbergj-
um skemmdist, en ekki verulega.
Gert var við skemmdir til bráða-
birgða, og verðurengin töf á áætl-
un Esju, sem fer i strandferð i
kvöld, fullhlaðin vörum.
sama tima og samdráttur er i öll-
um öðrum framkvæmdum i hér-
aðinu. Munu þvi þingeyskir iðn-
aðarmenn beita öllum tiltækum
ráðum til aðkoma i veg fyrir að
opinberir aðiljar flytji vinnuafl
inn I héraðið, er óhjákvæmilega
leiðir til atvinnuleysis hjá iðnað-
armönnum á félagssvæðinu.
AAatthías Bjarnason, sjávarútvegsrdðherra:
SÍLDVEIÐIKVÓTINN í
NORÐURSJÓ FULLNÝTTUR
LÖGÐ VERÐUR ÁHERZLA Á VEIDAR KARFA,
ÚTHAFSRÆKJU. HUMARS OG LOÐNU
OÖ-Reykjavik. — Við munum
vafalaust nota þann kvóta, sem
okkur var úthlutaður til sild-
veiða i Norðursjó, sagði
Matthias Bjarnason sjávarút-
vegsráðherra i viötali við Tlm-
ann I gær. Verður augiýst eftir
umsóknum um veiðileyfi, og
verður umsóknarfresturinn til
10. mai n.k.
Sagðist ráðherrann gera ráð
fyrir að veiðikvótinn verði nýtt-
ur þegar i vor að hluta, og von-
azt væri til að bátarnir höguðu
veiðinni þannig, að þeir færu
ekki allir i einu á Norðursjóinn.
Ekki er ákveðið hve mörgum
bátum verður úthlutaö veiði-
leyfum, en áreiðanlega munu
margir sækja um þau.eða alltof
margir, eins og Matthias orðaði
það. Alls mun Islenzkum skip-
um verða leyft að veiða um 12
þúsund tonn af sild i Norðursjó i
ár.
Sjávarútvegsráðherra var
spurður, hvort gerðar hafi verið
nokkrar ráðstafanir af hálfu
ráðuneytisins varðandi verkfni
loðnu- og sildveiðiflotans i sum-
ar, auk Norðursjávarveiðanna.
Hann sagði, að auðvitað væri
það opið öllum að reyna aðrar
veiðar, en þau skip, sem eru
eingöngu útbúin sem nótaskip,
hafa mjög takmarkað svigrúm,
en þau skip, sem eru jöfnum
höndum búin til netaveiða og
togveiöa, auk nótaveiða, hafa
möguleika á ýmsu öðru. 1 vor og
sumar verður aukin leit að út-
hafsrækju, og sömuleiðis á að
auka verulega veiðar á loönu
fyrir Norðurlandi i sumar. En
ómögulegt er að segja um enn
sem komið er, hve mörg af
skipunum fara á þessar veiðar
sem eru áhættusamar, og þjóð-
félagið getur ekki haldið uppi
mörgum skipum við slikar til-
raunir. Þá verður aukin leit að
karfa fyrir botnvörpuskipin og
þar með stefnt að auknum
karfaafla. Minni skipin við
Suð-Vesturlandið fara að öllum
likindum meira á humar i sum-
ar en áður var. Veiöikvótinn er
hækkaður i 2.800 tonn.
Við úthlutun sildveiöileyfa i
Norðursjó verður tekiö tillit til
þeirra skipa, sem stundað hafa
þær veiðar áður, en ekkert er
hægt að segja um hvernig afla
milh skipanna verður háttað.
1 haust verða siðan sildveiðar
leyfðar við Island, en of snemmt
er að spá nokkru um hve mikið
magn verður leyft að veiða og
hvernig staðið verður að þeim
sildveiðum yfirleitt.