Tíminn - 04.05.1976, Síða 1

Tíminn - 04.05.1976, Síða 1
Stjórnarfrumvarp um nýja fjóröflun ríkissjóðs: Verja á 1 milljarði til eflingar landhelgisgæzlu og friðunarráðstafana Vörugjald hækkar úr 10% í 18%. Bensíngjald hækkar um 1,59 kr. AÞ-Reykjavlk. — 1 gær var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um nýja fjáröflun fyrir rikissjóð, m.a. til að standa straum af auknum kostnaði við landhelgis- gæzluna. Er gert ráð fyrir þvi, að fjáröflun samkvæmt frumvarpinu, skili rikissjóði rúmum 2,2 milljörðum króna, og önnur fjáröflun I tengsi- um við það skili 320 millj. króna. í frumvarpinu er gert ráð fyrir þvl, að vörugjald hækki úr 10% i 18% og haldist þannig til loka árs- ins. Er tekjuauki rikissjóðs af þvi áíétlaður 1,6 milljarðar króna, þar af er áætlað að verja 1 milljarð til eflingar landhelgis- gæzlu og friðunarráðstafana. Þá er gert ráð fyrir þvi i frum- varpinu, að greiðslur rikissjóðs vegna skattaafsláttar upp i út- svar verði takmarkaðar. Komið verði i veg fyrir, að ákvæði skattalaga um persónuafslátt verði til þess, að sveitarfélögin taki almennt að nota lifeyristekj- ur og lágar tekjur námsmanna sem álagningarstofn útsvars. Er tilið, að þessi breyting bæti greiðsluafkomu rikissjóðs um allt að 300 milljón kr. I ár. Þá gerir frumvarpið enn frem- ur ráð fyrir þvi, að skyldusparn- aður verði áfram 5%. Aætlað er, að innheimta skyldusparn- aðar geti numið 300 milljónum kr. 1 tengslum við frumvarpið verður birt reglugerð um hækkun benslngjalds um 1,59 kr. og reglu- gerð um hækkun innflutnings- gjalds af bifreiðum I jeppaflokki og af snjósleðum. Samtals er á- ætlað, að þessar hækkanir gefi af sér 320 milljónir kr. Fé það sem aflað er með skyldu sparnaði.hækkun bensingjalds og Frh. á bls. 15 Hin nýja þyrla Landhelgis- gæzlunnar TF-Gro er nú komin til iandsins og mun aö sögn talsmanna Landhelgis- gæzlunnar verða tekin i notkun I vikunni. Þyrlan var flutt hingað til lands með skipi frá Bandarlkjunum, en áöur hafði Björn Jónsson, flugmaður flogiö þyrlunni þvert yfir Bandarikin. Myndin er tekin af nýju þyrl- unni i fiugskýli Landheigis- gæzlunnar á Reykjavíkur- flugvelli i gærdag. Timamynd: G.E. /ÆtíGffi? Aætlunarstaðir: Blönduós '— Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur— Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- ■ hólmur— Rif Súgandar'i; Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 ' Í3 ídaa SIGURÐUR Dagsson landsliðsmarkvörður þurfti að kasta sér stang- anna á milli, þegar lands- liðsmennirnir I knatt- spyrnu gerðu stórskota- hrlð að markinu, á fyrstu landsliösæfingunni, sem fór fram á Melavellinum gamla. Sigurður réði ekki við knöttinn, sem liggur i markinu, en hann vann það upp, með þvi að verja meistaralega stuttu siðar og tók Gunnar Ijósmynd- ari þá þessa mynd, þar sem Sigurður, liðugur sem köttur, stekkur upp og slær knöttinn aftur fyrir mark. Sjá nánar íþróttir á bls. 17,18 og 19. Byggingarverktakar og iðnaðarmenn fyrir norðan: Leggja niður vinnu við Kröflu ÞJ-IIúsavik. A fundi hjá Félagi byggingarverktaka á Húsavik og Suður-Þingeyjarsýslu, sem hald- inn var I gær, var ákveöiö að fé- lagsmenn legðu niður vinnu við Kröfluvirkjun þriðjudaginn 4. mal og jafnframt að senda út eft- irfarandi fréttatilkynningu: Félag byggingaverktaka i Húsavik og Suður-Þingeyjarsýslu telur sig tilneytt að mótmæla harðlega þeim órétti, sem þeir eru beittir i sambandi við val verktaka við byggingu Kröflu- virkjunar. Það virðist nú vera orðin stefna hjá Kröflunefnd og ráðgjöfum hennar, að velja verk- taka úr öðrum landshlutum, til dæmis með þvi að beita bola- brögðum i sambandi við útboð og raflagnavinnu, og með þvi að ganga fram hjá lægsta tilboði i ákveðið verk á sviði trésmiða. Félagið telur, að þingeyskir verk- takar, sem starfað hafa við Kröflu hafi sýnt að þeir standi fullkomlega við sitt, og geti þvi ekki sætt sig við slikt óréttlæti á Ásigling í Reykjavíkurhöfn Oó-Rvik. Þegar veriö var að leggja einum af Fossunum við bryggju i Reykjavikurhöfn i fyrrinótt varð það óhapp, að skip- ið fór utan i Esju, sem lá við hafnarbakkann, og urðu nokkrar skemmdir á siðu siðarnefnda skipsins. Áreksturinn varð það harður, að innrétting i hérbergj- um skemmdist, en ekki verulega. Gert var við skemmdir til bráða- birgða, og verðurengin töf á áætl- un Esju, sem fer i strandferð i kvöld, fullhlaðin vörum. sama tima og samdráttur er i öll- um öðrum framkvæmdum i hér- aðinu. Munu þvi þingeyskir iðn- aðarmenn beita öllum tiltækum ráðum til aðkoma i veg fyrir að opinberir aðiljar flytji vinnuafl inn I héraðið, er óhjákvæmilega leiðir til atvinnuleysis hjá iðnað- armönnum á félagssvæðinu. AAatthías Bjarnason, sjávarútvegsrdðherra: SÍLDVEIÐIKVÓTINN í NORÐURSJÓ FULLNÝTTUR LÖGÐ VERÐUR ÁHERZLA Á VEIDAR KARFA, ÚTHAFSRÆKJU. HUMARS OG LOÐNU OÖ-Reykjavik. — Við munum vafalaust nota þann kvóta, sem okkur var úthlutaður til sild- veiða i Norðursjó, sagði Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráðherra i viötali við Tlm- ann I gær. Verður augiýst eftir umsóknum um veiðileyfi, og verður umsóknarfresturinn til 10. mai n.k. Sagðist ráðherrann gera ráð fyrir að veiðikvótinn verði nýtt- ur þegar i vor að hluta, og von- azt væri til að bátarnir höguðu veiðinni þannig, að þeir færu ekki allir i einu á Norðursjóinn. Ekki er ákveðið hve mörgum bátum verður úthlutaö veiði- leyfum, en áreiðanlega munu margir sækja um þau.eða alltof margir, eins og Matthias orðaði það. Alls mun Islenzkum skip- um verða leyft að veiða um 12 þúsund tonn af sild i Norðursjó i ár. Sjávarútvegsráðherra var spurður, hvort gerðar hafi verið nokkrar ráðstafanir af hálfu ráðuneytisins varðandi verkfni loðnu- og sildveiðiflotans i sum- ar, auk Norðursjávarveiðanna. Hann sagði, að auðvitað væri það opið öllum að reyna aðrar veiðar, en þau skip, sem eru eingöngu útbúin sem nótaskip, hafa mjög takmarkað svigrúm, en þau skip, sem eru jöfnum höndum búin til netaveiða og togveiöa, auk nótaveiða, hafa möguleika á ýmsu öðru. 1 vor og sumar verður aukin leit að út- hafsrækju, og sömuleiðis á að auka verulega veiðar á loönu fyrir Norðurlandi i sumar. En ómögulegt er að segja um enn sem komið er, hve mörg af skipunum fara á þessar veiðar sem eru áhættusamar, og þjóð- félagið getur ekki haldið uppi mörgum skipum við slikar til- raunir. Þá verður aukin leit að karfa fyrir botnvörpuskipin og þar með stefnt að auknum karfaafla. Minni skipin við Suð-Vesturlandið fara að öllum likindum meira á humar i sum- ar en áður var. Veiöikvótinn er hækkaður i 2.800 tonn. Við úthlutun sildveiöileyfa i Norðursjó verður tekiö tillit til þeirra skipa, sem stundað hafa þær veiðar áður, en ekkert er hægt að segja um hvernig afla milh skipanna verður háttað. 1 haust verða siðan sildveiðar leyfðar við Island, en of snemmt er að spá nokkru um hve mikið magn verður leyft að veiða og hvernig staðið verður að þeim sildveiðum yfirleitt.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.