Tíminn - 04.05.1976, Blaðsíða 3

Tíminn - 04.05.1976, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 4. mal 1976. TÍMINN 3 Setja brezku stjórninni úrslitakosti Gsal-Reykjavik — Mjög mikil óá- nægja er nú rikjandi meöal brezkra togaraskipstjóra á ts- landsmiöum, og á hún bæöi rætur sinar aö rekja til aflaleysis siö- ustu vikur, og lltillar verndar, sem togararnir fá hjá flotanum um þessar mundir. Brezku tog- araskipstjórarnir samþykktu slö- degis s.l. sunnudag, aö senda skeyti til rikisstjórnarinnar I Bretlandi, og var þaö sent þann sama dag. t skeytinu krefjast tog- araskipstjórarnir aukinnar verndar þeim til handa, og bóta frá rlkinu vegna veiðitruflana. Togaraskipstjórarnir gáfu rikis- stjórninni frest fram á hádegi i dag til aö svara þessum kröfum, en i skeytinu segja þeir, að liafi svar ekki borizt fyrir þann tima, ihugi þeir mjög alvarlega hvort ekki beri aö leggja niöur veiðar á islandsmiöum. 1 skeyti sinu til rikisstjórnar- innar kefjast togaraskipstjórarn- ir þess ennfremur, aö þær bætur, sem þeim verði veittar, eigi aö vera skattfrjálsar — og þeir taka fram iskeytinu, að varðskipunum leyfist meiri aðgeröir núna en nokkru sinni fyrr. Nokkru áður en togaraskip- stjórarnir hófu að ræða um þess- ar kröfur, eða snemma á sunnu- dag, sendi eitt varðskipanna til- kynningu til stjórnstöðvar Land- helgisgæzlunnar, sem er efnis- lega eitthvað á þessa leið: — Togaraskipstjórarnir eru mjög órólegir og sjá f jandann a lls staðar uppmálaðan, enda eru varðskipin tilkynnt á fimm min- útna fresti, (af verndarskipun- um) og stefna, hraði, staður, dagur og timi gefinn upp. Þetta verkar þannig á togaraskipstjór ana, að varðskipin séu alls stað- ar, og helmingi fleiri en þau eru i raun og veru. Togaramenn hafa enga möguleika á þvi, að vinna úr öllum þessum upplýsingum — og hafa orð á þvi, að eitthvað þurfi að gera, annað hvort með styrkj- um eða aukinni vernd. 1 gærdag kl. 14.17 klippti varð- skipið Óðinn á báða togvira brezka togarans Boston Kestrel um 25 sjómilur frá Hvalbak, en Baldur klippti sem kunnugt er á togvira sama togara s.l. föstudag. Eftir klippinguna tilkynnti skip- stjóri togarans um það, að hann væri orðinn uppiskroppa með veiðarfæri og yrði að sigla heim til Bretlands. Freigátan Fal- mouth reyndi árangurslaust að hindra klippingu varðskipsins. Samkvæmt upplýsingum varð- skipanna hafa brezku togararnir vart getað komiö veiðarfærum sinum i sjó sið.ustu daga. Árangurslaus leit að líki Guðmundar Gsal-Reykjavik — Leitað var aö liki Guömundar Einarssonar i Hafnarfjaröarhrauni á laugar- dag, og hófst leitin snemma morguns og stóð fram eftir degi. Um fimmtiu manns tóku þátt i Ieitinni, nemar úr Lögregluskól- anum og menn úr hjálparsveit skáta i Hafnarfiröi. Aö sögn Arn- ar Höskuldssonar, sakadómara bar leitin engan árangur. örn sagði i samtali viö Tlmann I gær, að búast mætti við frekari leit að liki Guðmundar Einars- sonar, en ekkerthefði þó enn ver- ið ákveðið i því sambandi. Að sögn Arnar var leitað á þremur svæðum i. hrauninu, og sagði hann, að leit á tveimur svæðanna hefði verið tilkomin vgna ábendinga bilstjórans, sem fenginn var til þess að flytja llk Guðmundar frá húsi einu I Hafn- arfiröi út I hrauniö, en örn sagöi að einnig hefði verið stuðzt við framburð þriggja banamanna Guðmundar „eftir föngum” eins og hann orðaði það. örn Höskúldsson sagði aö dómsrannsókn i Geirfinnsmálinu væri ekki lokið, en ekki kvaðst hann geta sagttil um það, hvenær rannsókninni lyki. Gæzluvarðhaldsvist þriggja þeirra manna, sem nú sitja i Guðlaugur endurkjörinn háskóla- rektor Oó—Rvlk. Guðlaugur Þorvalds- son var I gær endurkjörinn rektor Háskóla íslands til næstu þriggja ára. A kjörskrá voru allir kennar- ar háskólans sem gegna þar fullu starfi, 124 talsins, svo og 21 fulltrúi stúdenta. Alls neyttu 100 atkvæðisréttar sins og hlaut Guð- laugur 96 atkvæði. Guðlaugur Þorvaldsson hefur gengt embætti rektors eitt kjör- timabil, eða þrjú ár. gæziuvarðhaldi vegna Geirfinns- málsins, lýkur 10. mai n.k. Tim- inn innti örn Höskuldsson eftir þvi i gær, hvort búast mætti viö þvi aö gæzluvarðhald þeirra yrði framlengt þá — en örn kvaðst ekki geta svarað þeirri spurn- ingu. _____________________ ASI: Euroman slglir ó Ægi Þessar myndir sýna ásigl- ingu dráttarbátsins Euro- man á varöskipiö Ægi mánu- daginn 26. aprll siöastliöinn og skemmdir á varöskipinu, en tildrög ásiglingarinnar voru þau, aö Ægir var aö reyna aö kiippa á togvir brezka togarans Irvana á Hvalbakssvæöinu. Euroman var togaranum til verndar og þegar varöskipiö sigldi yfir togvira togarans beygöi dráttarbáturinn skyndilega hart á stjórnboröa — og kom stefni hans aftarlega á bak- borðshliö Ægis. Ásiglingin var mjög hörö, — og eins og sjá má á tveimur neöri myndanna, lagöist þyrluþil- fariö niöur undir lunningu á tiu metra kafla, og lunningin niöur á móts viö spilið á jafn- löngum kafla. Efsta myndin sýnir er Euroman siglir á varöskipiö. (Timamyndir: örn Rúnarsson). Viðurkennir fjáröflun til gæzlunnar en mótmælir fyr- komulagi vörugjaldsins Miðstjórn ASl hélt fund i gær og tók til athugunar frumvarpið um fjáröflun til landhelgisgæzlu og fiskverndar o.s.frv. I ályktun sem miðstjórnin sendi frá sér segir m.a.: Miöstjórn Alþýðusambands Islands hefur á fundi sínum 3. mai' tekið tii athugunar frum- varp til laga um fjáröflun til landhelgisgæslu og fiskverndar, rikisfjármál og fjármögnun orkuframkvæmda sveitar- félaga, og vill af þvi tilefni taka fram eftirfarandi: Miðstjórnin viðurkennir þörf á auknum fjárráöum land- helgisgæslunnarogþarsem hún hefur ekki aðstöðu til neins ná- kvæms mats á þvl hve sú fjár- þörf er mikil, gerir hún ekki ágreining um þá áætlun, sem frv. byggir á, en vill mega treysta því að hugsanlegu auknu fé til eflingar landhelgis- og fiskverndar verði varið með skynsamlegum hætti. Bent skal þó á, að i greinarg. frv. er ekki að finna neinar skýringar á þvi, hverning fénu skuli varið. Að þvi leyti, sem unnt er að einangra athugasemdir við frumvarpiö við allt að 1000 milj. kr. tekjuöflun i framangreind- um tilgangi, getur miðstjórnin eftir a tvikum fallist á a ð farin sé sú leið, sem frv. gerir ráð fyrir, þ.e.a.s. að fjárins sé aflað með timabundinni hækkun vöru- gjalds. En miðstjórnin leggur þá jafnframtþungaáherslu á að hækkun vörugjaldsinns verði al- gerlega takmörkuð við fjárþörf landhelgisgæslunnar og þó enn frekar að sh'k takmörkuð hækk- uri vörugjaldsins við 1000 millj. kr eða um 13% til næstu ára- móta, verði ekki á neinn hátt tengd riftun gildandi kjara- samningsákvæða um „rauöu” strikin. Telur miðstjórnináliþau ákvæði frv. sem að þessu lúta sbr. 8. gr. frv. sé ósvifin aðför að gerðum og gildum samningum aöila vinnumarkaðarins frá 27. febr. sl. og mótmælir þessum ákvæðum sem hreinni ósvinnu, sem i raun afmái forsendur kjarasamninganna. 1 þessu sambandi minnir miðstjórnin á brigð rikisstjórnarinnar á yfir- lýsingum sinum, þegar vöru- gjaldið var fyrst lagt á á sl. ári, svo og á slæma reynslu af með- ferö stjórnvalda á viðlagagjald- inu vegna náttúruhamfaranna I Heimaey, en það gjald var aldrei afnumið, þrátt fyrir ský- laus loforð, heldur fellt inn i al- mennt skattheimtukerfi rikis- ins. Að öðru leyti vill miöstjórnin taka þetta fram varðandi önnur tekjuöflunarákvæði frumvarps- ins: 1. Að hún telur algerlega óeðli- legt aö nýgerð vegaáætlun sé nú rifin upp og eyðslufé hennar aukið um hvorki meira né minna en 620 millj. kr. Telur miðstjórnin að þess- ari upphæð beri að mæta með sparnaði. 2. Miðstjórnin mótmælir harð- lega hækkun bensins um 170 millj. kr. sbr. lið 1 hér aö framan og telur hana ekki nauðsynlega. 3. Miðstjórnin getur fallist á takmörkun persónuafsláttar til greiðslu útsvara, enda verði þá fulitryggt með laga- ákvæði að takmörkun þessi verði ekki notuð til að iþyngja i útsvörum þeim sem það lág- ar tekjur hafa að þeir beri h't- inn eða engan tekjuskatt. Sömuleiðis telur miðstjórn eðlilegt að hækkun leyfis- gjalds af jeppabifreiðum verði samræmd þvi gjaldi sem gildir um aðrar bif- reiöar. 4. Miðstjórningetur fallist á að ákvæði skattalaga frá sl. ári um skyldusparnað verði framlengd til loka þessa árs. Framhald á bls. 15 Skoðað og baðað hjá Birni SJ—Reykjavik. A sunnudag var nokkuð af fé Björns bónda á Ytri- Löngumýri i Skagafirði baöað, þar sem heitir I Litladal. Sverrir Markússon dýralæknir I Borgar- nesi var viðstaddur og skoðaði hann fé Björns, en hélt siðan heimleiðis á mánudag. Engin óþrif fundust i fénu. — Hér að Löngumýri verður ekkert baðað, sagði Björn Páls- son i viðtali við Timann i gær. Hluti af tvævetlunum vestur i Litladal var baðaður i gær. Dýra- læknirinn leit yfir féð hjá mér og sagðist varla hafa séð jafnfallegt útlit á fé annars staðar. Vængir: Samninga- viðræður í gangi SJ—Reykjavik. — Það hafa farið fram viðræður, og linurnar hljóta að fara að skýrast, sagði Hafþór Helgason i gær um ágreining flugmanna Vængja og forráða- manna félagsins. Ég get engar fréttir sagt af viðræðunum ennþá og get ekki gefið upp hvenær næsti viðræðufundur verður hald- Brezku skipstjórarnir:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.