Tíminn - 04.05.1976, Síða 18

Tíminn - 04.05.1976, Síða 18
18 TÍMINN Þriðjudagur 4. mai 1976. McMenemy.... var búinn að segja fyrir um markiö. Bobby Stokes skoraði sigurmarkið, sem færði Dýrlingunum frá Southampton bikarinn — Það var Peter Osgood, sem átti stærstan þátt i markinu — hann spyrnti knettinum yfir varnarvegg United-liðsins. Martin Buchan, fyrirliði Manchester United, sem er þekktur fyrir að lesa hugsanir andstæðinganna, gat ekki komið i veg fyrir það i tæka tið, að Stokes næði knettinum. Stokes hamraöi knöttinn i netið, með þrumuskoti, sem Alex Stepney réð ekki við — knötturinn hafnaði uppi undir samskeytunum. Fær bifreið í verðlaun Fyrir leikinn haföi auðugur verzlunarmaður i Southampton lofað þeim Ieikmanni, sem skoraði „Hat-trick” — þrjú mörk — gegn Manchester United, bif- reið. — Þú verður nú að fá tima hjá ökukennara, sögðu féiagar Bobby Stokes eftir leikinn og það var greinilegt, að þeir útilokuðu ekki, að Stokes fengi þann á fjör- um hjólunum, þótt hann skoraði ekki þrjú mörk. — Stokes er alltaf kominn upp á tærnar og tilbúinn, þegar „Ossie” (Peter Osgood) hefur knöttinn. „Ossie” er heili liðsins og sá leikmaður, sem byggir upp tækifærin, sögðu hinir glöðu leikmenn Southampton. Já, Peter Osgood var hetja Dýrlinganna — þessi snjalli leik- maður, sem hefur oft verið nefnd- ur „Maður glötuðu tækifæranna” vann bikarinn fyrirChelsea 1970, og nú lék hann aðalhlutverkið hjá Dýrlingunum. Osgood, sem getur gert það með knöttinn, sem fæstir geta látiö sig dreyma um, er alltaf beztur, þegar mikið liggur við — og á Wembley, þar sem stemmningin er meiri en nokkurs staðar i heiminum, kann hann svo sannarlega við sig. Osgood var óstöðvandi — og ógnaði „Rauðu djöflunum” eins og leikmenn United-liðsins eru nefndir i dag- legu tali, alls staðar á vellinum. Enda sáu áhangendur United- liðsins rautt, þegar knötturinn nálgaðist hann. „Betra liöiö mun sigra" — „Betra liðið mun sigra”, sagði Toinmy Docherty, fram- kvæmdastjóri Manchester United, fyrir leikinn. Já, og betra liöið fór meö sigur af hólmi. Það höfðu fæstir reiknað með þvi, að Southampton sigraði. Það voru heldur ekki margir, sem reiknuöu með þvi 1939, að Portsmouth myndi vinna stórsigur (4:1) gegn „The Buckley Babes” — eða Olf- unum. Sjálfir trúöu leikmenn Portsmouth ekki á sigurinn, fyrr en þeir skrifuðu nöfn sin I Wembley-bókina. // Ég get einnig stöðvað Hill" Dýrlingarnir frá Southampton Spádómur McMene- my rættist á Wembley LAWRIE McMenemy, framkvæmdastjóri Dýrlinganna f rá Southampton, er maður á undan sinni samtíð — hann er framsýnn og staðfesti það á Wembley. McMenemy sagði fyrir orrustu strákanna hans gegn Manchester United: —„Ég hef það á tilfinningunni, að Bobby Stokes skori sigurmarkið, og að Peter Osgood komi mikið við sögu í sambandi við markið." Þegar aðeins 7 mínútur voru til leiksloka, skoraði Bobby Stokes þetta mark, og tryggði þar með Southampton bikarinn, í fyrsta skipti i sögu félagsins. voru vel að sigrinum komnir — reynsla þeirra var þyngri á met- unum en hraðinn og krafturinn hjá hinum ungu leikmönnum United-liðsins. „Rauðu djöflarn- ir”, sem notuðu breidd vallarins, BOBBY STOKES... skoraöi með þrumuskoti. þegar þeir sækja að marki and- stæðinganna, gátu ekki látið dæmið ganga upp gegn hinum reyndu og klóku leikmönnum Southampton, sem fóru ekki fram til að stöðva Gordon Hill og Steve Coppell — heldur biðu eftir að þeir kæmu. Og þegar þeir sóttu, voru þeir lokaðir af. Það var greinilegt, að „Rauðu djöflarnir” voru undrandi, þrátt fyrir að fyrirliði Southampton Peter Rod- rigues, fyrrum landsliðsmaður Wales, hefði aðvarað þá fyrir leikinn. — „Or þvi að ég gat stöðvað Garrincha — hinn eld- fljóta Brasiliumann — þá get ég einnig stöðvað Hill”, sagði Rodrigues, sem var leystur und- an atvinnumennsku hjá Sheffield Wednesday fyrir 15 mánuðum, þar sem forráðamenn „Miðviku- dagsliðsins” vildu losna við að borga honum laun. Aður hafði hann leikið með Cardiff og Leicester. Osgood maður leiksins Southampton liðið með Peter Osgood sem bezta mann, náði yfirhöndinni á leiknum — Osgood og Mike Channon, ásamt Jim McCalliog, veittu Brian Green- : . • •:•:< • . x MEL BLYTH.......sést hér stökkva hærra en Stuart Pearson og stöðva sóknarlotu United, með þvl að skalla knöttinn frá. Peter Rodriguez horfir á. hoff og Martin Buchan engan frið. Greenhogg og Buchan áttu fullt i fangi með að gæta þeirra, og Buchan sleppti hinum eldfljóta Channon aldrei úr augsýn. Vörnin hjá Dýrlingunum var geysilega sterk —• Rodrigues tók Hill algjör- lega i bakariið, og þeir Mel Blyth og Gim Steele voru öflugir á miðj- unni — þeir gáfu „Rauöu djöflun- um” aldrei tima til að athafna sig og reka smiðshöggið á sóknarlot- ur sinar. Brian Greenhoff átti stórleik hjá United-liðinu. Hann, ásamt Peter Osgood, voru menn leiksins. Martin Buchan var einnig góður, og þeir Stuart Pearson, Lou Macari og Steve Coppell áttu einnig ágætan leik, en það dugði ekki — Dýrlingarnir frá Southampton fóru með sigur af hólmi. — SOS. Macari stóð einn eftir og veifaði ,,Mjög leiðinlegt að strákarnir skyldu ekki hafa stjórn á skapi sinu," sagði Tommy Docherty Druumur hiuna ungu leikmannu Munchester United sprakk eins og sápukúla á Wembiey-leikvanginum — og þaö var greinilegt, aö þeir voru búnir aö búa sig undir allt, ncma aö biöa ósigur. Brian Grcen- hoff, hinn stúrefnilcgi leikmaður United-liösins, féll algjörlega sam- an — hann brast I grát á vellinum, og þaö var ekki fyrr en hann var kominn inn i búningsklcfa, aö hann náöi sér — vonbrigöi hans voru gifurleg. Lou „litli” Macari var eini leiktnaöur United-liösins, sem kunni aö taka tapinu — hann stóöeiun eftir á vellinum, þegar aðr- ir leikmenn United-iiösins voru á bak og burt, og veifaöi hinum tryggu áhangcndum United, sem komu tíl aö styöja viö bakiö á strakunum sinum. — Ég er að sjáifsögöu mjög ieiður — sérstaklega vegna þess, að strákarnir gátu ekki haft stjórn á sér eflir ósigurinn, sagöi Tommy Docherty, hinn vinsæli framkvæmdastjóri Manchester United, eftir leik- inn. — Það var mjög erfitt fyrir strákana að tapa, þar sem þeir höfðu alls staöar fengiö hrós fyrir leikinn og það var búiö að hamra á þvi, hvað þeir væru góðir. — Það er ekki annað hægt en að hrósa leikmönnum Southampton. Þeir léku mjög vel, upp til hópa, og uppskera þeirra var sanngjarn sigur. Þrátt fyrir allt get ég ekki verið annaö en ánægður — þótt við misstum bæði af meistaratitil- inum og bikarnum. Trúið mér — við verðum aftur með i barátt- unni næsta ár. — Þvi miður uppfylltum við ekki ósk hinna tryggu áhang- LOU MACARL... kunni að taka tapinu. enda okkar að þessu sinni — ég ætia aö vona aö þeir séu ekki eins vonsviknir og leikmennirn- ir, sagði „The Doc”. — Við spiluðum — en okkur tókst ekki aö skora. Ef við hefð- um haft heppnina meö okknr I byrjun og skorað — t.d. þegar Sammy Mcllroy átti skalla i stöng, hefðum við farið með bik- arinn heim, sagði Martin Buchan, fyrirliði United-liðsins, eftir leikinn. „The Doc”... var sár út I strákana sina. Þrátt fyrir þetta tap, þurfa á- hangendur Manchester United ekki að örvænta —■ þaö er enginn vafi á þvi, aö með meiri reynslu getur Únited-liöið undir stjórn „The Doc”, náð sama gæða- flokki og „The Busby’s Babes”- liöið var komið i, þegar hið hörmulega flugslys átti sér stað i Munchen 1958, og eins og Uni- ted-liðið var, þegar þaö tryggði sér Evrópumeistaratitilinn 4068. —SOS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.