Tíminn - 04.05.1976, Page 20
20
TÍMINN
Þriöjudagur 4. maí 1976.
f n *
Bílasalan Höfðatúni 10
SELUR ALLA BÍLA:
Fólksbíla — Stationbíla
Jeppa — Sendibila
Vörubíla — Vöruflutningabíla
14 ára reynsla i bflaviðskiptum. Opið alla .
virka daga kl. í)—7, laugardaga kl. 1—4. 1
■ 1
Bílasalan Höfðatúni 10 *
i
L
Árbók Barðastrandasýslu
hefur nú aftur hafið göngu sina, en útgáfa
bókarinnar hefur legið niðri undanfarin
ár. Komnir eru út X árgangar af bókinni
(1948—1967).
Siðar á þessu ári kemur út XI. árg. bók-
arinnar, er verður fyrir árin 1%8—1974 og
á næsta ári XII. árg. fyrir árin 1975—1976.
Siðan er áformað að bókin komi út reglu-
lega.
Ég undirritaður/ rituð óska eftir að gerast
áskrifandi að Árbók Barðastrandarsýslu.
Nafn: ............................
Heimilisfang: ....................
Ég óska eftir að fá sent gegn póstkröfu.
(krossið við það sem við á)
□ X. árg. (1959—1967) verð 1.200 kr.
I—IX. árg. (1948—1958) verð sam-
tals 2.500 kr.
annars 300 kr. hvert hefti.
Utanáskrift:
Árbók Barðastrandarsýslu,
Sýsluskrifstofunni
Patreksfirði.
S
S, i
t ’f
$
v'y-:
v
r*>.
Einkaritari óskast
Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir
20. mai nk.
Hafnarstjórinn i Reykjavik.
P,
kr
X-
X
V;>>
I
Lífeyrissjóður
Verkalýðsfélaganna
á Suðurlandi
auglýsir eftir umsóknum um lán úr sjóðn-
um.
Umsóknarfrestur er til 15. mai nk.
Nánari upplýsingar veita formenn félag-
anna og skrifstofa sjóðsins, Eyrarvegi 15,
Selfossi.
Stjórnin.
Lesendur
segja:
Hvaða erindi ótti
nú sígarettan?
Sjónvarpsþáttur á annan dag
páska nefndist: t kjallaranum.
Ég ætla ekki aö ræöa efniö i
þeim þætti, en sviösmyndina og
stjórnina.
Reynt er að llkja eftir
drykkjukrá. I því skyni er veit-
ingaborð stundum haft fremst á
sviðinu, en söngvarar oghljóö-
færaleikarar i baksýn — ef sýn
skyldi kalla, þvl aö rökkur er
haft í húsinu. Meiri áherzla er
lögö á að láta okkur sjá flöskur
en fallegar stúlkur. — Nú,
smekkurinn er misjafn og svo
langt getur þorstinn leitt menn
afveg, að þeir segi:
..aldrei sá ég svásara sprund
en svartan flöskuháls.
Það er misjafnt hvaö mönn-
um verður augnayndi.
Sérstök áherzla virtist lögð á
það, að láta fólk reykja, eða
a.m.k. látast reykja. Söngkona
var látin stinga upp I sig siga-
rettu áður en hún fór að syngja.
Þó vitum viö, að söngfólk hefur
sérstaka ástæðu til að varast
reykingar, vegna þess að þær
skemma hálsinn og þar með
röddina.
Hvaða erindi átti þessi siga-
retta i sjónvarpið?
Þvi var likast sem sumt af
þessu söngfólki væri með siga-
retturnar af beinni skipun. Um
það er þó vitanlega erfitt að full-
yrða.
Okkur hefur verið sagt, að
sjónvarpið hfði sett sér þá reglu,
að fólk, sem kæmi fram I þátt-
um þess, væri ekki reykjandi.
Var það ekki satt? Eða er nú
horfið frá þvi?
Þjóðin á I striöi viö sigarett-
una. Það striö er ekki neitt
barnagaman, heldur alvarleg
og mannskæð barátta. Sjón-
varpið okkar ætti þar að taka
afstöðu á móti sigarettunni en
ekki með henni.
H.Kr.
Hvers eiga börnin
að gjalda?
Lengi hefur verið talið, að
ekki skipti máli, þó að þröngvað
værikostibarna ogunglinga. Þó
er svo, að I nýrri borgarhverf-
um er gert ráö fyrir leikvöllum
og öðrum stöðum, þar sem börn
geta leikið sér I friði. Ekki á
þetta þó við um gamla Austur-
bæinn. Þar er sifellt vegið að
yngstu borgurunum.
Síöasta árásin er, að stærsta
stofnun borgarinnar ræðst að
einni þeirri minnstu, og ætlar i
krafti stærðar sinnar að taka
hluta af löð Austurbæjarskólans
undir byggingu á aöveitustöð.
Nú má segja, að þetta geri ekk-
ert til, þviaðallstórtsvæöi verði
eftir. En lóöin er ekki stór, þvi
að Rafmagnsveitan hefur áður
fengið hér byggingarlóð og
hyggst .því vega tvisvar i sama
hnérunn, en á fyrri tlmum töldu
menn slikt óhyggilegt.
Fræðsluráö Reykjavikur-
borgar mun hafa þvælzt nokkuð
lengi fyrir, en siðan gefizt upp
fyrir rökum reiknimeistara
Rafmagnsveitunnar. Þá má
spyrja, hví ekki að gefast upp
eins og fræðsluráð og láta án
mötmæla af hálfu skólans
byggja húsið. Þessu má svara
með spurningu. Hvað hafa
borgaryfirvöld gert fyrir yngstu
borgarana í gamla bænum? Þau
hafa veitt fjöldann allan af
sjoppuleyfum, enda eru sjoppur
einu samkomustaöir ungling-
anna i gamla bænum, ef undan-
skildir eru bekkir við sumar
biðstöðvar S.V.R. Austurbæjar-
skdlinn hefir þó veitt skátum i
hverfinu starfsaöstöðu, frá þvi
að skátaheimilið var rifiö, mjög
ófullkomna að visu, en þó þann-
ig, að skátastarf hefir getað
haldizt hér við.
Nú fyrir skömmu létu barna-
vinirnir góðu, sem ráða leikvöll-
um' borgarinnar taka hluta
Grettisgötuleikvallar undir
bilastæði handa verzlun við
Laugaveginn, sjálfsagt með það
i huga, að verzlun, sem á að
uppfylla meira og minna tilbún-
ar þarfir, er nauðsynlegri en
leiksvæði. Nú er farið að tala
um, að ekki megi gera allan
gamla bæinn að bönkum og
■verzlunum og að þar verði fólk
að búa áfram. En til þess að svo
megi verða, má ekki á nokkurn
hátt, skerða þau litlu óbyggðu
svæði, sem eftir eru. Það er
erfitt að standa gegn rökum
reikni- og reglustrikumanna, og
með tölum má sanna, að mjög
hagkvæmt er að reisa aðveitu-
stöð við Austurbæjarskólann.
En svo mörg axarsköft hafa
veriö hönnuö I orkumálum, að
jafnvel þó að aðveitustöð væri
ekki reist á hagkvæmari staö,
myndu orkunotendur áreiöan-
lega geta borgað fyrir það, en
ekki skal nefna snöru i hengds
manns húsi og þvi skulu orku-
mál ekki nefnd meira hér.
Hvað er maðurinn að hugsa
aö láta sér ekki segjast, þegar
fræðsluráð hefur samþykkt töku
lóðarinnar. Það er nú svo, að
stundum verða menn að vera
rökheldir. En eru ekki eftirtalin
atriöi rök. Af byggingarvinnu á
skólasvæði hlýtur að stafa
slysahætta. Hávaði, sem óhjá-
kvæmilega fylgir byggingar-
vinnu, hefur truflandi áhrif á
starf skólans. Fyrirhugað hús
Rafmagnsveitunnar fer mjög
illa á lóðinni og mundi verða að
þvi stór lýti og spjöll á um-
hverfi. Fleira mætti tina til, þó
að það verði ekki gert að sinni.
Ég tek fram, að ég ber viröingu
fyrir miklum lærdómi verk-
fræðinga og ætla ekki að sty ggja
þá á nokkurn hátt. En ég tel, að
mér hafi veriö trúað fyrir aö
gæta þessarar lóðar fyrir
yngstu borgarana og frekar en
að bregðastþeim trúnaði, tekég
áhættuna að verða fyrir reiði
forsvarsmanna Rafmagnsveit-
unnar. Ég heiti á borgarráö aö
bregðast ekki yngstu umbjóð-
endum sinum, að byrja brunn-
inn áður en barnið er dottið ofan
i, með þvi að stöðva byggingar-
málið á þessu stigi.
Hjalti Jónasson.