Tíminn - 04.05.1976, Síða 20

Tíminn - 04.05.1976, Síða 20
20 TÍMINN Þriöjudagur 4. maí 1976. f n * Bílasalan Höfðatúni 10 SELUR ALLA BÍLA: Fólksbíla — Stationbíla Jeppa — Sendibila Vörubíla — Vöruflutningabíla 14 ára reynsla i bflaviðskiptum. Opið alla . virka daga kl. í)—7, laugardaga kl. 1—4. 1 ■ 1 Bílasalan Höfðatúni 10 * i L Árbók Barðastrandasýslu hefur nú aftur hafið göngu sina, en útgáfa bókarinnar hefur legið niðri undanfarin ár. Komnir eru út X árgangar af bókinni (1948—1967). Siðar á þessu ári kemur út XI. árg. bók- arinnar, er verður fyrir árin 1%8—1974 og á næsta ári XII. árg. fyrir árin 1975—1976. Siðan er áformað að bókin komi út reglu- lega. Ég undirritaður/ rituð óska eftir að gerast áskrifandi að Árbók Barðastrandarsýslu. Nafn: ............................ Heimilisfang: .................... Ég óska eftir að fá sent gegn póstkröfu. (krossið við það sem við á) □ X. árg. (1959—1967) verð 1.200 kr. I—IX. árg. (1948—1958) verð sam- tals 2.500 kr. annars 300 kr. hvert hefti. Utanáskrift: Árbók Barðastrandarsýslu, Sýsluskrifstofunni Patreksfirði. S S, i t ’f $ v'y-: v r*>. Einkaritari óskast Umsóknir sendist skrifstofu minni fyrir 20. mai nk. Hafnarstjórinn i Reykjavik. P, kr X- X V;>> I Lífeyrissjóður Verkalýðsfélaganna á Suðurlandi auglýsir eftir umsóknum um lán úr sjóðn- um. Umsóknarfrestur er til 15. mai nk. Nánari upplýsingar veita formenn félag- anna og skrifstofa sjóðsins, Eyrarvegi 15, Selfossi. Stjórnin. Lesendur segja: Hvaða erindi ótti nú sígarettan? Sjónvarpsþáttur á annan dag páska nefndist: t kjallaranum. Ég ætla ekki aö ræöa efniö i þeim þætti, en sviösmyndina og stjórnina. Reynt er að llkja eftir drykkjukrá. I því skyni er veit- ingaborð stundum haft fremst á sviðinu, en söngvarar oghljóö- færaleikarar i baksýn — ef sýn skyldi kalla, þvl aö rökkur er haft í húsinu. Meiri áherzla er lögö á að láta okkur sjá flöskur en fallegar stúlkur. — Nú, smekkurinn er misjafn og svo langt getur þorstinn leitt menn afveg, að þeir segi: ..aldrei sá ég svásara sprund en svartan flöskuháls. Það er misjafnt hvaö mönn- um verður augnayndi. Sérstök áherzla virtist lögð á það, að láta fólk reykja, eða a.m.k. látast reykja. Söngkona var látin stinga upp I sig siga- rettu áður en hún fór að syngja. Þó vitum viö, að söngfólk hefur sérstaka ástæðu til að varast reykingar, vegna þess að þær skemma hálsinn og þar með röddina. Hvaða erindi átti þessi siga- retta i sjónvarpið? Þvi var likast sem sumt af þessu söngfólki væri með siga- retturnar af beinni skipun. Um það er þó vitanlega erfitt að full- yrða. Okkur hefur verið sagt, að sjónvarpið hfði sett sér þá reglu, að fólk, sem kæmi fram I þátt- um þess, væri ekki reykjandi. Var það ekki satt? Eða er nú horfið frá þvi? Þjóðin á I striöi viö sigarett- una. Það striö er ekki neitt barnagaman, heldur alvarleg og mannskæð barátta. Sjón- varpið okkar ætti þar að taka afstöðu á móti sigarettunni en ekki með henni. H.Kr. Hvers eiga börnin að gjalda? Lengi hefur verið talið, að ekki skipti máli, þó að þröngvað værikostibarna ogunglinga. Þó er svo, að I nýrri borgarhverf- um er gert ráö fyrir leikvöllum og öðrum stöðum, þar sem börn geta leikið sér I friði. Ekki á þetta þó við um gamla Austur- bæinn. Þar er sifellt vegið að yngstu borgurunum. Síöasta árásin er, að stærsta stofnun borgarinnar ræðst að einni þeirri minnstu, og ætlar i krafti stærðar sinnar að taka hluta af löð Austurbæjarskólans undir byggingu á aöveitustöð. Nú má segja, að þetta geri ekk- ert til, þviaðallstórtsvæöi verði eftir. En lóöin er ekki stór, þvi að Rafmagnsveitan hefur áður fengið hér byggingarlóð og hyggst .því vega tvisvar i sama hnérunn, en á fyrri tlmum töldu menn slikt óhyggilegt. Fræðsluráö Reykjavikur- borgar mun hafa þvælzt nokkuð lengi fyrir, en siðan gefizt upp fyrir rökum reiknimeistara Rafmagnsveitunnar. Þá má spyrja, hví ekki að gefast upp eins og fræðsluráð og láta án mötmæla af hálfu skólans byggja húsið. Þessu má svara með spurningu. Hvað hafa borgaryfirvöld gert fyrir yngstu borgarana í gamla bænum? Þau hafa veitt fjöldann allan af sjoppuleyfum, enda eru sjoppur einu samkomustaöir ungling- anna i gamla bænum, ef undan- skildir eru bekkir við sumar biðstöðvar S.V.R. Austurbæjar- skdlinn hefir þó veitt skátum i hverfinu starfsaöstöðu, frá þvi að skátaheimilið var rifiö, mjög ófullkomna að visu, en þó þann- ig, að skátastarf hefir getað haldizt hér við. Nú fyrir skömmu létu barna- vinirnir góðu, sem ráða leikvöll- um' borgarinnar taka hluta Grettisgötuleikvallar undir bilastæði handa verzlun við Laugaveginn, sjálfsagt með það i huga, að verzlun, sem á að uppfylla meira og minna tilbún- ar þarfir, er nauðsynlegri en leiksvæði. Nú er farið að tala um, að ekki megi gera allan gamla bæinn að bönkum og ■verzlunum og að þar verði fólk að búa áfram. En til þess að svo megi verða, má ekki á nokkurn hátt, skerða þau litlu óbyggðu svæði, sem eftir eru. Það er erfitt að standa gegn rökum reikni- og reglustrikumanna, og með tölum má sanna, að mjög hagkvæmt er að reisa aðveitu- stöð við Austurbæjarskólann. En svo mörg axarsköft hafa veriö hönnuö I orkumálum, að jafnvel þó að aðveitustöð væri ekki reist á hagkvæmari staö, myndu orkunotendur áreiöan- lega geta borgað fyrir það, en ekki skal nefna snöru i hengds manns húsi og þvi skulu orku- mál ekki nefnd meira hér. Hvað er maðurinn að hugsa aö láta sér ekki segjast, þegar fræðsluráð hefur samþykkt töku lóðarinnar. Það er nú svo, að stundum verða menn að vera rökheldir. En eru ekki eftirtalin atriöi rök. Af byggingarvinnu á skólasvæði hlýtur að stafa slysahætta. Hávaði, sem óhjá- kvæmilega fylgir byggingar- vinnu, hefur truflandi áhrif á starf skólans. Fyrirhugað hús Rafmagnsveitunnar fer mjög illa á lóðinni og mundi verða að þvi stór lýti og spjöll á um- hverfi. Fleira mætti tina til, þó að það verði ekki gert að sinni. Ég tek fram, að ég ber viröingu fyrir miklum lærdómi verk- fræðinga og ætla ekki að sty ggja þá á nokkurn hátt. En ég tel, að mér hafi veriö trúað fyrir aö gæta þessarar lóðar fyrir yngstu borgarana og frekar en að bregðastþeim trúnaði, tekég áhættuna að verða fyrir reiði forsvarsmanna Rafmagnsveit- unnar. Ég heiti á borgarráö aö bregðast ekki yngstu umbjóð- endum sinum, að byrja brunn- inn áður en barnið er dottið ofan i, með þvi að stöðva byggingar- málið á þessu stigi. Hjalti Jónasson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.