Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 80

Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 80
 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR32 BARÐI JÓHANNSSON Guðrún: Mér finnst hann kúl. Arna: Hann er flott týpa, þetta er klipping sem fer ekki mörgum en hún fer honum. Grjóni: Barði er kúl. Baldur: Hann er skemmtileg týpa. Ég fíla samt ekki svona lufsuklippingar og mér finnst skilyrði að vera með hreint hár á Eddunni. Svandís: Hann má nú alveg fara að hirða aðeins um hárið á sér. ÞÓRUNN HÖGNA- DÓTTIR OG ARNAR GAUTI Arna: Hann er náttúrulega ýkt týpa. Hann hefur þó greinilega lagt mikið í hárið. Guðrún: Þórunn er flott, hún hefur greinilega farið í greiðslu. Grjóni: Þau hljóta að vera flott, þau eiga að vera smartasta fólkið í Reykjavík. Með síma og allt. Baldur: Hann er alltaf klár með lúkkið. Hún er líka glæsileg skvísa en hefði kannski mátt setja hárið upp. Svandís: Það er tilbreyting að sjá hana með meiri liði í hárinu, mér finnst liturinn líka flottur. Arnar er nú búinn að vera eins í mörg ár og mætti alveg fara að breyta til, ég myndi vilja snoða hann. LILJA PÁLMADÓTTIR OG BALTASAR KORMÁKUR Arna: Mér finnst þau bæði svolítið subbuleg, frekar sóðalegt lúkk. Guðrún: Hún mætti leggja aðeins meira í hárið, hún hefur nú alveg efni á því. Grjóni: Þau eru Hollywood- stjörnur hátíðarinnar. Baldur: Lilja mætti vera með meiri liði í hárinu, meira líf. Balti er svona retro týpa og mjög flottur. Það vantar þó meira metró í hann, snyrtilegri útlínur og hreinna lúkk. Svandís: Þau þora að koma fram eins og þau eru. HELGA BRAGA Guðrún: Helga er svo elegant og hefur tekið hátíðina alvar- lega. Grjóni: Helga er æðisleg. Ef einhver myndi púlla Silvíu Nótt af þá væri það hún. Baldur: Helga er stórglæsileg og með fallegt hár. Svandís: Helga er flottur karakter. Hún er samt búin að vera ansi lengi með svona topp, ég væri til í að sjá smá breytingu. RAGNHILDUR STEINUNN Grjóni: Hún er alltaf sæt og það þarf mikið til að eyðileggja það. Baldur: Mér finnst hárið á henni fallegt en látlaust, eins og hún sem er aldrei að reyna of mikið. Svandís: Steinunn notar flétturnar mikið, sem mér finnst mjög flott. Það klæðir hana náttúrlega allt vel. EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR Arna: ÆÐI! Guðrún: Elegant sixtís hár. Eva er til fyrirmyndar. Grjóni: Hún er flott af því hún er svo gamal- dags. Baldur: Hún er með annað þema í gangi en hinar, mjög öðruvísi og flott. Svandís: Heildarlúkkið er mjög gott og spöngin algjör plús. MAGGA STÍNA OG MARGRÉT VILHJÁLMSDÓTTIR Arna: Magga Stína er fyndin, þetta er ekta hún og bara mjög flott greiðsla. Guðrún: Margrét Vilhjálms er með flott gamaldags lúkk og gífurlega fallegt hár, leggur mikið í það. Grjóni: Mér finnst Magga Stína flott en þetta hefur kannski misheppnast eitthvað hjá henni þarna á Eddunni. Margrét er flott með hárið frá andlitinu, hún er alltaf sæt. Baldur: Hárið á Möggu Stínu og fötin eru jafn fjörug og persónan. Alltaf gaman að svona týpum. Hárið hefur greinilega ekki verið aðalatrið- ið hjá Margréti Vilhjálms en konan og útgeisl- unin bæta það upp. Svandís: Magga Stína er manneskja sem þorir að vera öðruvísi og það er gaman að svoleiðis fólki. Hins vegar er hægt að fara yfir strikið og verða hallærislegur. Ég hefði viljað sjá meiri mýkt hjá Mar- gréti Vilhjálms, finnst hárið of sleikt aftur. HALLA GUNNARS- DÓTTIR OG ÞÓR- HALLUR SIGURÐSSON Guðrún: Mjög flott lúkk á honum, hann er töffari. Grjóni: Hún er voðalega krúttleg við hliðina á sjarmörnum. Baldur: Þór- hallur er original töffari. Svandís: Mér finnst hárið á henni of sleikt niður. Ég hefði viljað sjá meiri lyftingu á móti kjólnum. Þór- hallur er svo bara klassískur herra. SILVÍA NÓTT Arna: Hún var svo flott, hún átti kvöldið. Kjóllinn, hárið og fötin algjörlega frábær. Guðrún: Hún er sigurvegari. Hárið var líka geggjað, hún hefur verið þrjá daga að túpera það. Grjóni: Hárgreiðslan passaði full- komlega við karakterinn. Baldur: Hún var sigurveg- ari kvöldsins. Svandís: Hún er frábær. ILMUR KRISTJÁNS- DÓTTIR Arna og Guð- rún: Hún er bara mjög fín. Grjóni: Hún er miklu meiri dama með hárið svona tekið upp. Gaman að sjá hana svona fína eftir að hafa séð hana í Stelpunum. Baldur: Ilmur var flott, hún lífgaði upp á salinn. Hárið virkaði vel með dressinu. Svandís: Ilmur er með svo flott hár og hefði átt að vera með það slegið. Það hefði líka farið betur við fleginn kjólinn. ORRI HAUKSSON OG ANNA ÞOR- STEINSDÓTTIR Arna: Hann hefur greinilega sett smá gel í hárið og greitt það aftur. Guðrún: Þau hafa greinilega lagt mikið í þetta. Grjóni: Þau eru bæði alveg fín en mér finnst hann samt flottari. Baldur: Það er einhver stemning í þeim, það mætti þó fínpússa hárið örlítið. Svandís: Flott hæð í hárinu á henni, það hefði þó mátt greiða þetta aðeins betur. Mér finnst fínt á honum hárið, flott þegar karlmenn eru með örlítinn lubba og smá skeggrót, það fer vel saman. ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR Guðrún: Við erum ekki ánægðar með hana, hún mætti leggja miklu meira í hárið. Arna: Hárið á henni er alltaf eins og hún hafi farið út með það blautt og látið það þorna. Ekki gert neitt fyrir það. Hún er ein hugguleg- asta kona landsins og ætti að geta lagt meira í hárið á sér. Grjóni: Casual, mjög flott bara. Baldur: Ein glæsilegasta kona landsins hvort sem það snýst um fötin eða hárið. Sjarmatröll. Svandís: Mjög elegant kona. Ég hefði þó viljað sjá meiri hæð í hárinu. RAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR OG PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON Arna: Ragga er flott þó hún sé með tagl. Guðrún: Fólk ætti að taka þau sér til fyrir- myndar. Grjóni: Ragga er fín en mætti þó vera meira tilhöfð. Páll Óskar er bara Páll Óskar, það er gaman að honum. Baldur: Hún er flott og alltaf töff en kemur þó ekkert sérstaklega á óvart hér. Palli er lang- flottastur og hárið vel útpælt. Það er mikill skúlptúr í hárinu á honum og það mættu fleiri þora þessu. Svandís: Hvar er tíkóið sem Ragga sportaði alltaf? Mér finnst taglið allt í lagi en mætti vera hærra, hún er svo ýkt að hún þolir það alveg. Mér finnst svo ljósa hárið á Palla fara vel við fötin en ég kann þó betur við hann með dekkri lit í hárinu. ELÍN HIRST Arna: Mér finnst hún alltaf fín um hárið. Guðrún: Hún er með flotta klippingu. Grjóni: Þetta er mjög casual bara, hún hefur greinilega gert greitt sér sjálf. Baldur: Hún er flott með stutta hárið. Svandís: Mér finnst stutta hárið fara henni mjög vel. Eddu-hárið ...eru túberingar aftur komnar í tísku? Fræga fólkið á Íslandi var hvert öðru glæsilegra á Edd- unni og höfðu augljóslega flestir lagt mikið upp úr því að útlitið væri sem óaðfinnanlegast. Þrátt fyrir það er alltaf hægt að finna að einhverju eða að minnsta kosti hafa skoðun á málinu. Hártískan er breytileg ár frá ári og spurning hvort fræga fólkið hafi staðið undir væntingum fagfólks í hártískubransanum en þau ættu jú að vita hvað blívar í dag. Fréttablaðið fékk fimm fagaðila til að skoða hina fjölmörgu hárprúðu kolla sem sóttu Edduhátíðina. SIGURJÓN HELGASON Hárgreiðslumaður. SVANDÍS ÓSK HELGA- DÓTTIR Hárgreiðsludama á Supernova. BALDUR RAFN GYLFA- SON Hárgreiðslumaður. ARNA GUÐRÚN ÞORSTEINS- DÓTTIR Hárgreiðsludama á Soho. ARNA GUÐRÚN ÞOR- STEINSDÓTTIR Hárgreiðsludama á Soho. Álitsgjafar

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.