Tíminn - 22.08.1976, Blaðsíða 7
Sunnudagur 22 ágúst 1976
TÍMINN
7
HELCARSPJALL
Ingi Tryggvason:
Að byggja landið
Engin byggð á Islandi liggur
jafn fjarri alfaraleið og Grims-
ey. Sigling þaðan til Siglufjarð-
ar tekur um 4 tima með flóa-
bátnum Drang og álika langt
mun vera til Húsavikur. Flóa-
báturinn fer tvær ferðir i mán-
uði til Grimseyjar og oftar á
sumrin, þegar ferðamanna-
straumur er þangað. Aætlunar-
flugferðir eru tvisvar i viku frá
Akureyri og tekur flugið 25-30
minútur. Vissulega hefur flugið
að verulegu leyti rofið einangr-
un eyjarinnar. Þó fer þvi viðs
fjarri, að flugið veiti það öryggi,
sem þéttbýlisbúinn býr við i
sambandi við ýmsa þá samfé-
lagslegu þjónustu, sem sjálf-
sögðust þykir.
1 Grimsey búa nú um 90
manns. A árinu 1974 var hafizt
handa um byggingu ibúðarhúsa
eftir 10-15 ára hlé. Alls eru nú 9
ibúðarhús i smiðum, sum nær
fullgerð, önnur skemmra á veg
komin. Erfiðleikum veldur að
alla möl til steinsteypugerðar og
vega- og flugvallagerðar verður
að flytja úr landi. Verið er að
Ijúka við að bera möl á flug-
völlinn, sem oft hefur lokazt
vegna aurbleytu vikum saman,
og vegurinn um eyna er nú mal-
borinn i fyrsta sinn.
Láta mun nærri, að útflutn-
ingsverðmæti sjávarafla frá
Grimsey 1975 hafi numið 50-60
milljónum króna, aðallega
þorskur og grásleppuhrogn.
Bátar Grimseyinga eru smáir,
þeir stærstu um 12 tonn og höfn-
in leyfir enga stækkun skipa-
stólsins. En skammt er á feng-
sæl fiskimið, og unglingar læra
fljótt þau verk, sem vinna þarf á
sjó og i landi. Flestir eða allir
Grimseyingar eiga sauðfé og
hlunnindi eru af eggjatekju.
Byggingar ibúðarhúsanna i
Grimsey á undanförnum tveim-
ur árum, eru talandi tákn um þá
bjartsýni, sem vaknaði viða um
íand á vinstristjórnarárunum og
hefur vakað siðan, þrátt tyrir
efnahagsörðugleika og sam-
drátt á ýmsum sviðum fram-
kvæmda. Fólkið i landinu hefur
öðlazt nýja trú á framtiö hinna
dreifðu byggða og unga fólkið
vill setjast að og búa sér og sin-
um lifsframfærslu á æskustöðv-
um. Þessarar þróunar sér stað
jafnt til sjávar og sveita, bæði i
hinum minni og stærri sveitar-
félögum. Rikisvaldið hefur við-
urkennt réttmæti þessarar þró-
unar t.d. með stofnun Byggða-
sjóðs. En margt skortir þó á, að
unga fólkið, sem nú býr sér
heimili i Grimsey, á Þórshöfn
eða Þingeyri njóti sambæri-
legra kjara við það fólk, sem
býr sér hús og heimili t.d. á
Reykjavikursvæðinu. Þótt flest-
um séu aðalþættir misræmisins
augljósir, skal hér bent á nokk-
ur atriði.
Billinn hefur i dag tekið við
hlutverki þarfasta þjónsins og
öllum er ljóst, að hann er enn
nauðsynlegra tæki i dreifbýli en
þéttbýli. Rekstrarkostnaður bil-
anna á hvern ekinn kilómetra
fer að mestu eftir þeim vegum,
sem bileigandinn hefur til af-
nota. Mikil nauðsyn er, að sem
fyrst megi takast að leggja var-
anlegt slitlag á vegi á Islandi.
Hitt er þó enn nauðsynlegra að
sinna undirstöðuþörfum i vega-
málum og leggja vetrarfæra
vegi um landið. Reynslan hefur
sýnt, að i flestum ef ekki öllum
byggðarlögum er auðvelt að
halda vegum opnum, ef þeir eru
byggðir nokkuð upp fyrir um-
hverfið. Þar sem ég þekki bezt
til eru engin mál jafn almennt
áhugaefni og umbætur á vega-
kerfi. Þar beinist áhuginn fyrst
og fremst að þvi að koma veg-
unum upp úr snjónum. Bætt
vegaþjónusta, fyrst upphækk-
aðir vegir, siðar varanlegt slit-
lag á vegina, er eitt helzta jafn-
réttis- og framfaramál nútim-
ans. Fátt mun nú valda meira
fjárhagslegu og félagslegu mis-
* ræmi i landinu en einmitt hinir
misjöfnu vegir okkar. Þrátt fyr-
ir miklar og myndarlegar fram-
kvæmdir i vegamálum á undan-
förnum árum þarf enn að herða
róðurinn og koma öllum lands-
mönnum i viðunandi vegasam-
band þar sem þess er nokkur
kostur.
Annar þáttur, sem hefur mikil
áhrif á afkomu manna, er hið
misjafna orkuverð i landinu.
Verðmismunur á orku til hús-
hitunar og almennra heimilis-
nota er gifurlegur. Vel kann að
vera að mörgum finnist eðlilegt
að menn njóti og gjaldi aðstöðu
sinnar við orkukaup. Þeir, sem
hafa jarðhita i nágrenni sinu,
búa margir við mjög ódýra upp-
hitun húsa. Að þvi hlýtur að
koma, að upphitunarkostnaður i
landinu verði jafnaður og inn-
lend orka að mestu notuð til
upphitunar. Rafmagn til heim-
ilisþarfa er selt á mjög misjöfnu
verði, og er fyllilega timabært
að gera gangskör að þvi að
jafna rafmagnsverðið. Þeir sem
búa við hærra rafmagnsverð
eru ekki fleiri en svo, að tiltölu-
lega litil almenn hækkun raf-
magnsverðsins gæti staðið und-
ir útjöfnuninni.
Eitt af þvi, serii flestir veita
athygli, er hiö misjafna vöru-
verð i landinu. Nær undantekn-
ingarlaust mun það vera svo,
að þeir sem flytja vörur frá höf-
uðborgarsvæðinu til sölu út á
landi verða að bæta flutnings-
kostnaði við söluverðið, en þeir
sem flytja vörur til höfuð-
borgarinnar selja þær þar á
sama verði og á framleiðslu-
stað. Söluskatturinn, sem leggst
ofan á smásöluverðið, eykur svo
enn verðmismun og þyngir þar
að auki skattbyrði dreifbýlis-
búa. Erfitt er aö ætla sér að
jafna allan flutningskostnað
innanlands, eins og nú er þó gert
með landbúnaðarvörur og
bensin svo dæmi séu nefnd, en
vel mætti hugsa sér, að jafna
aðstöðu manna að nokkru með
tilliti til vöruverðs með misjöfn-
um skattfrádrætti.
Fjölmörg dæmi mætti fleiri
nefna um misjafna aðstöðu
dreifbýlis og þéttbýlis, svo sem
misdýra og góða simaþjónustu,
misjafna aðstöðu til skóla-
göngu, misjöfn skilyrði til að
njóta hljóðvarps og sjónvarps
og annarrar menningarstarf-
semi o.s.frv. Þjóðfélagið þarf
að vera vel á verði til þess að
fólk eins og það, sem nú byggir
nýju húsin sin i Grimsey, finni
að það nýtur réttlætis, er ekki
þar aðeins til að draga fisk i
þjóðarbú, heldur er látið njóta
almennra réttinda i þjóðfélag-
inu eftir þvi sem framast er
auðið. Fyrr eða siðar hljóta
augu allra að opnast fyrir þvi,
aö úr núverandi misrétti verður
að bæta og það hlýtur að veröa
gert.
Hér hefur einkum verið dvalið
við þau atriði, sem varða mis-
munandi þjónustu samfélagsins
við þegnana. Ef byggðajafn-
vægi á að haldast, þarf einnig að
auka fjölbreytni i atvinnu-
háttum dreifbýlisins. Hin al -
menna þjónustustarfsemi þarf
að dreifast og iðnaður, sem
vafalitið á eftir að verða lang-
stærsti atvinnuvegur þjóðarinn-
ar, þarf að byggjast upp viðs
vegarum landið en má ekki ein-
angrast við takmörkuð svæði.
Gisli heitinn Guðmundsson var
höfundur kenningarinnar um
jafnvægi i byggð landsins. Nýju
ibúðarhúsin i Grimsey eru ein-
mitt sönnun þess, að unga fólkið
i landinu tekur nú undir kenn-
ingar Gisla, vill byggja landið
allt. Með.skilningi og skynsam-
legum stuðningi stjórnvalda
mun það takast og þaö jafnvæg-
isleysi i byggðaþróun, sem ein-
kennt hefur siðustu áratugi,
hverfur til almennra hagsbóta
fyrir land og lýö.
Þokuljós og kastljós
samlokurnar
dofna ekki
með aldrinum
Halogen-ljós
fyrir J-perur -
ótrúlega mikið
Ijósmagn
PERUR í ÚRVALI
NOTIÐ
PAÐBESTA
HJiOSSI
fi
F
Skipholti 35 • Símar:
8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
• r
sionvarps-
TÆKI
Meö 20" og 24" skjá.
Aratugsreynsla á íslenzkum markaði.
Hagstætt verð. — Góð greiðslukjör.
Fást víöa um land.
FÁLKINN
®
Suðurlandsbraut 8
Reykjavík • Sími 8-46-70