Tíminn - 22.08.1976, Qupperneq 17
Sunnudagur 22. ágúst 1976
TÍMINN
17
1966. Hann var þá varamaöur 1
sovézku skáksveitinni, og vann
allar sinar skákir, 9 aö tölu. Ariö
eftir var hann kominn upp á 1.
borö, og fékk þar beztu út-
komuna, 81/2 vinning af 11 mögu-
legum. Eftir þetta tefldi
Tukmakov á 1. boröi allt til 1972
en þá kom Karpov til sögunnar,
og tók viö forystunni.
Arangur Tukmakovs á skák-
mótum hefur veriö óvenju sveiflu
kenndur. A skákþingi Sovétrikj-
anna 1972varö Tukmakov I 2. sæti
á eftir Tal, og tryggöi sér meö þvi
þátttökurétt á millisvæöamótiö i
Leningrad næsta ár. Úrslitin þar
hljóta aö hafa veriö Tukmakov
mikil vonbrigði, þvi hann varö i
16. sæti af 18 keppendum meö 6
vinninga.
1 Buenos Aires 1970 náöi
Tukmakov mjög góöum árangri,
er hann varð i 2. sæti á eftir
Fischer. Tukmakov tapaöi aöeins
einni skák á mótinu, og varö fyrir
ofan Panno, Najdorf, Smyslov og
Mecking, svo nokkrirséunefiidir.
Tukmakov varmeöal keppenda
á Reykjavikurmótinu 1972, og
hafnaöi I 6. sæti meö 10 vinninga
af 15 mögulegum, og sá árangur
veitti honum stórmeistaratitil.
Milan Vukcevich
Eins og nafnið bendir til, er
Vukcevich fæddur i Júgóslavlu.
Þar var hann vel þekktur skák-
meistari, og tefldi eitt sinn i
Olymplusveit Júgóslava. Vukce-
vich er hámenntaður maöur, og
hefur unnið aö visindastörfum
siöan hann flutti vestur til Banda
rlkjanna. Þau störf hafa komiö I
veg fyriraöhann gæti einbeitt sér
aö skáklistinni, en hann hefur
jafnan fylgzt mjög vel meö öllu
sem gerist i skákheiminum, og
hefur teflt meö góöum árangri I
borgarkeppni Bandarikjanna.
Skákþing Bandarlkjanna 1975
var jafnframt svæöamót, og 2
efstu sætin veittu rétt til þátttöku
I millisvæðamótin. 1 efsta flokki
tefldu 12 skákmeistarar, þeirra á
meöal 7 stórmeistarar. Auk
Vukcevich voru aöeins 3 kepp-
enda titillausir, enda voru allir
fremstu skákmenn Bandarlkj-
anna, aö Fischer undanskildum
mættir til leiks.
Ohætt er aö segja, aö Vukce-
vich hafi komiö m jög á óvart meö
frammistööu sinni. Eftir haröa
keppni hafnaöi hann I 3. sæti meö
71/2 vinning, 1 vinningi á eftir sig
urvegaranum Browne, en Rogoff
varð I 2. sæti meö 8 vinninga.
Reshevsky, sem varð I 4. sæti tap-
aöi skák sinni gegn Vukcevich, og
þaö var eina skákin sem „gamli
maöurinn”tapaöiámótinu. Hann
hefur 2490 skákstig.
Heikki Westerinen
Westerinen hefur um árabil
veriö skæöasti skákmaöur Finn-
lands. Hann þykir sérlega harö-
skeyttur sóknarskákmaöur og
teflir af mikilli leikgleöi. Hann
gerir venjulega fá jafntefli, og er
þvl vinsæll meöal áhorfenda.
Westerinen hefur teflt ötullega
undanfarið, og helztu árangrar
hans eru þessir:
Santa Felicia, Spáni 1973.
1. Westerinen 7 v. af 9möguleg-
um.
2. Tatai 6 1/2 vinning.
Torrelimos, Spáni 1974.
1.-2. Torre og Gheorgieu 9 1/2 v.
af 13 mögulegum. 3.-4. Westerin-
en og Lombard 8 1/2 v.
A þessu móti vann Westerinen
flestar skákir allra keppenda og
geröi aöeins eitt jafntefli.
Bucharest 1974.
1. Tschekovsky 11 v. af 14
mögul.
2. Kurajica 10 1/2 v.
3. Westerinen 9 v.
Dortmund 1975.
1. Westerinen 9 1/2 v. af 11
mögul.
2. ögaard 8 v.
3. Savon 7 1/2 v.
4. Parma 7 v.
Westerinen varö alþjóölegur
meistari áriö 1967, og á slöast-
liönu ári var hann útnefndur stór-
meistari I skák. Hann hefur 2485
skákstig.
Raymond Keen, Bretlandi.
Fæddur 29. janúar 1948. Skákstig:
2460.
Raymond Keene
Undanfarin 10 ár hefur Keene
verið einnamestáberandienskra
skákmanna. Bæöihefur hann teflt
ósleitilega, og eins skrifaö mikið
um skák og skákfræöi. Hann
hefur tekiö þátt I svæðamótum og
flokkakeppnum fyrir Englands
hönd og þykir traustur og öruggur
skákmaöur. Keene hefur veriö
nærri þvi aö hljóta stórmeistara-
titil I skák, og til skamms tbna
háöu hann og Miles haröa keppni
um hvor fyrr yröi til aö ná tak-
markinu. Enski f jármálamaöur-
inn Slater, haföi heitiö 5.000
sterlingspund þeim Englendingi
til handa sem fyrstur næöi stór-
meistaratitli og lengi vel mátti
vart á milli sjá, hvor krækti I
verðlaunin, eöa þar til Miles náöi
stórmeistaratitilinum sl. vetur.
A Olympluskákmótinu 1970,
náöi Keene mjög góöum árangri,
11 vinningum af 16 mögulegum,
og tapaöi engri skák. Keene var
mjög nærri þvi aö hljóta stór-
meistaratitil á 3. þýzka meistara-
mótinu 1975. Þar sigraöi Brown
meö 11 v. af 15 mögulegum,
Pachman varö i 2. sæti meö 10
l/2v.og i 3.-4. sæti uröuKeene og
Kestler meö 9 1/2 v., en 10 1/2 v.
þurfti I stórmeistaratitilinn.
Keene vann góöan sigur á
Camaguey-skákmótinu á Kúbu
1974, er hann varö efstur i
B-flokki meö 12 vinninga af 15
mögulegum. Keene var meöal
þátttakenda á svæöamótinu i
Barcelona 1975, en mót þetta
sniðgengu A-Evrópuþjóöirnar af
pólitiskum ástæöum. Keene hafn-
aði I 4. sæti meö 4 vinninga af 7
mögulegum, en Sosonko sigraöi
með 5 1/2 v.
Arið 1972 hlaut Keene titilinn
alþjóölegur meistari, og sama ár
tefldi hann hér á Reykjavflcur-
skákmótinu.
Vladimir Antoshin, Sovétrikj-
unum. Fæddur 14. mai 1929.
Skákstig 2460.
Vladimir Antoshin
Antoshin var 17 ára gamall,
þegar hann fór aö leggja skákina
fyrir sig af alvöru. Hann tók
skjótum framförum, og á meist-
aramóti Moskvu 1952, varö hann i
2.-4. sæti ásamt Kotov og
Simagin. Tveim árum siðar vann
hann sér rétt til aö tefla á skák-
þingi Sovétrlkjanna, er hann varö
efstur I undanrásunum, og skaut
þar aftur fyrir sig stórstjörnum
svo sem Kotov, Flohr og
Kortsnoj. Arisiöarlék hannsama
leikinn, og varö nú fyrir ofan
Taimanov, Tolush og fleiri vel
þekkta meistara. Antoshin hefur
teflt á heimsmeistaramótum
stúdenta, og i Frakkiandi 1955
fékk hann beztu útkomu allra 3.
borös manna I keppninni, 5 vinn-
inga af 6 mögulegum. A næsta
heimsmeistaramóti stúdenta
tefldi Antoshin á 4. boröi, og fékk
þar hæsta vinningshlutfalliö, 4
vinninga af 5 mögulegum.
Ariö 1963 hlaut Antoshin stór-
meistaratitil i skák.
Salvatore Matera
Ariö 1967 var heimsmeistara-
mótungiinga iskák haldiö I Jeru-
salem. Meöal keppenda þar voru
Guömundur Sigurjónsson, Timm-
an, Keene og Matera, og svo
skemmtilega vill til, aö þeir tefla
allir hér á Reykjavikurskákmót-
inu nú.
Kaplan sigraði I A-riöli á
heimsmeistaramótinu meö 6 1/2
vinning af 9 mögulegum, næstur
kom Keene meö 5 1/2 vinninga.
Guömundur og Matera tefldu i
B-flokki og uröu 11.-3. sæti meö 7
vinninga af 9mögulegum. Matera
var yngsti keppandi mótsins, aö-
eins 16 ára gamall.
A I.B.M. mótinui Hollandi, sem
lauk fyrir skömmu, var Matera
meöal keppenda I B-flokki. Þar
uröu jafnir og efstir, Tatai, ítaliu
og Pribyl, Tékkoslóvakiu meö 8
1/2 vinning af 11 mögulegum', en
Matera hafnaöi i 5. sæti meö 6
vinninga. Af þekktum meisturum
sem uröu lægri, voru heimsmeist-
ari kvenna, Gaprindashvili, og
rúmenski meistarinn, Ciocaltea.
Matera var meöal keppenda á al-
þjóðlegu skákmóti I Birmingham
1975. Þar varö Matulovic efstur
meö 11 vinninga af 15 möguleg-
um, en i 2.-4. sæti uröu Matera,
Mestal og Miles meö 10 vinninga.
Lægri uröu svo stórmeistararnir
Bisguier og Janosevic.
Matera hefur 2420 skákstig.
Björn Þorsteinsson. Fæddur 7.
janúar 1940. Skákstig: 2415.
Björn Þorsteinsson
Fyrsta meiriháttar sigur sinn
vann Bjöm áhaustmóti T.R. 1960,
er hann varö skákmeistari fé-
lagsins. Ariö eftir varöi hann titil
sinn glæsilega, hlaut 8 1/2 vinning
af 9 mögulegum. Björn varö
skákmeistari Reykjavikur 1964
og vann allar skákir sihar, 9 að
tölu. 1967 varð Björn svo Skák-
meistari tslands, er hann hlaut 7
1/2 vinning af 11 mögulegum, og
slöan aftur 1975.
Hann hefur einnig oft teflt fyrir
íslands hönd i Olympiumótum og
öðrum alþjóölegum keppnum, og
keppti fyrir tslands hönd á
svæöamótinu, sem haldiö var hér
I Reykjavík s.l. vetur.
Björn getur verið haröur
keppnismaöur, en þaö er eins og
hann beri oft of mikla viröingu
fyrir mótherjanum, ef hann er af
erlendu bergi brotinn. Ef hann
lagfærir þetta atriöi gæti hann
hafnaö ofarlega i mótinu.
Haukur Angantýsson. Fæddur 2.
desember 1948. Skákstig: 2400.
Haukur Angantýsson
Hæfileikar Hauks Angantýs-
sonar á skáksviöinu komu fljót-
lega I ljós og var greinilegt, aö
þar færi mikið skákmannsefiii.
Ariö 1966 varö hann m.a. bikar-
meistari Taflfélags Reykjavikur,
en síöan hélt hann til Þýzkalands
til náms og dvaldi þar i nokkur ár.
A þessum árum lét hann námiö
ganga fyrir skákinni, en eftir aö
hann kom heim aftur frá námi,
hefur hann tekiö til viö skákina
aftur ogsýndi þaö á Skákþingi Is-
lands s.l. páska, aö hann hefur
alls engu gleymt, en Haukur varö
Islandsmeistari, fékk 9 vinninga
af llmögulegum.SkákstM Hauks
er mjög skemmtilegur yfirleitt
tefltstift til vinnings. Þaöætti þvi
enginn aö vera svikinn af því aö
fylgjast náiö meö skákum Hauks
á þessu móti.
Ingi R. Jóhannsson. Fæddur 5.
desember 1936. Skákstig: 2395.
Ingi R. Jóhannsson
Ingi R. Jóhannsson varö
Reykjavikurmeistari 1954, þá aö-
eins 18 ára og áriö eftir tefldi
hann i heimsmeistaramóti ung-
linga I Antwerpen og hafiiaöi I
ööru sætií B-flokki. Sama ár náöi
hann 3.-4. sæti á Skákþingi
Norðurlanda i Osló. 1956 varö
hann Islandsmeistari í fyrsta
skipti, og slöan aftur 1958, 1959 og
1963.
1961 varö Ingi svo skákmeistari
Noröurlanda, og á alþjóðlega
Reykjavlkurmótinu 1964 hafiiaöi
Ingi I 7. sæti meö 6 vinninga.
Sama ár var hann útnefiidur al-
þjóölegur meistari I skák. Hann
tefldi svo á Olympiumótinu á
Kúbu 1966 og hlaut þar 8 vinninga
af 16 á öðru boröi, sem er mjög
góður árangur, þar sem Island
tefldi I A-riöli I úrslitakeppninni.
Ingi hefur ekki teflt mikið aö
undanförnu, og má þar kenna
erilsömu starfi hans sem endur-
skoöanda um. En eitt er víst aö
margir hafa gaman af þvi að sjá
Inga aftur viö taflboröiö, og víst
er, aö hann á eftir aö gera mörg-
um keppendunum gramt I geöi, því
þrátt fyrir langa fjarveru frá
skákmótum, hefur hann ekki
gleymt neinu af sinni gömlu
kunnáttu i skáklistinni.
Þessistaöa kom upp iskák Inga
viö Magnús Sólmundarson I
Haustmóti TR, sem Ingi vann.
Þannig var staöan eftir 23. leik
hvíts og nú átti Ingi, sem haföi
svart, leik:
23. — Hxd2!!
Hér lagöi hvitur niöur vopiin,
þvl eftir 24. Bxg6, veröur hann
mát. T.d. 24. — Bf3 25. Kgl Rh3 26.
Kfl Hf2 mát.
Margeir Pétursson. Fæddur 15.
febrúar 1960. Skákstig: 2390.
Margeir Pétursson
Margeir Pétursson hefur sýnt
þaö og sannaö á undanförnum
tveim til þremur árum, aö þar er
Framhald á bls. 27
o
1$ _ Ö |
&>
,,Mér er mikið ánægjuefni að staðfesta að
Trabant Station 1976 er ég keypti hefur kom-
ið mér þægilega á óvart með hagkvæmni i
rekstri. Billinn fer vel á vegi og er sérlega
snarpur i akstri.
Trabantinn fer meö benzln fyrir kr. 1.470 tii 1.540 á 418 km
vegalengd, sem ég ekoft, en þurfti áöur — meöan ég átti nýj-
an lúxusbð — aö greiða kr. 10.500 á sömu vegalengd. Aö lok-
um : Stillingar og önnur þjónusta fyrirtækisins Ingvar Helga-
sonh.f. hefur reynztmér bæöilipur og örugg. "
Leifur Núpdal Karlsson
Starhólma 2, Kópavogi (Y-1419).
Vorum að fá sendingu
af Trabant-bifreiðum
TRABANT UMBOÐIÐ
INCVAR HELCASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 8451 1