Tíminn - 22.08.1976, Blaðsíða 25
Sunnudagur 22 ágúst 1976
TÍMINN
25
HAGSÝN HJÓN LATA KENWOOD VINNA ERFIÐUSTU HEIMILISSTORFIN
KYNNIÐ YKKUR HINA OTRULEGU MOGULEIKA, SEM
KENWOOD—HRÆRIVÉLARNAR HAFA YFIR AÐ RÁÐA.
HEKLA HF.
KONAN VILL KENWOOD
Laugaveg. 170-17? — Sin, 21240
Staöarfell.
tunga efsti bær á hægri hönd.
Sé á hinn bóginn valiö aö aka
hringinn um Klofning, beygjum
viö til vinstri á vegamótunum og
ökum suöur Hvammssveitina
meö Laugafjall á hægri hönd.
Brátt er klettaborgin, Krosshóla-
borg, á vinstri hönd.
Skeggjadalur opnast nú til
hægri, einstaklega veöur- og
skjólsæll. í Skeggjadal er kirkju-
staöurinn Hvammur, eitt mesta
höföingjasetur sýslunnar til
forna. Þarnam land Auöur Djúp-
úöga og áttu niöjar hennar setu
þar um langan aldur.
Okkar leiö liggur vestur meö
ströndinni og brátt sjáum viö hiö
kunnahöfuöból Staöarfell á hægri
hönd undir snarbröttu samnefndu
klettafelli. Þar er kirkja, kunnur
húsmæöraskóli og félagsheimili.
Jörðinni tilheyra mikil sjávar-
hlunnindi á Breiðafiröi, og hefur
hún löngum verið i eigu ýmissa
stórmenna landsins. Einn af
fyrstu þekktum ábúendum jarð-
arinnar var Þóröur, faðir
Hvamm-Sturlu.
Noröan Klofnings hefst Skarös-
strönd, en svo nefnist strand-
lengjan inn aö Saurbæ. Undir-
lendi er þar viðast litiö, en dal-
verpi ganga inn i fjallgaröinn og
fjöldi eyja er á firöinum. Brátt
sjáum viö hiö fornfræga höfuöból,
Skarð á Skarösströnd, i brekku-
fæti vestan undir lágu felli. Ekk-
ert annað býli á landinu hefur
veriö jafnlengi i eigu sömu ættar-
innar, eöa hartnær 9 aldir. í
Skarðskirkju voru venjulega
margir merkir kirkjugripir, t.d.
útskorin og máluö altaristafla frá
15. öld, sem send var á heimssýn-
inguna ÍParls aldamótaáriö 1900.
Viö Skarö er kennd Skarösbók,
sem er eitt hiö merkasta af is-
lenzkum skinnhandritum og var
ritaö seint á 14. öld.
Litill dalur, Búöardalur, er inn-
an við Skarö og i mynni hans
samnefndur bær, þar sem áöur
var kirkjustaöur og mikiö höfö-
ingjasetur. Austan dalsins er
Tindafjall og bærinn Tindar undir
vesturhlið þess. Þar finnst surt-
arbrandur i jöröuog var hann siö-
ast numinn um 1960. Fagridalur
klýfur brátt fjallgaröinn til suð-
urs og fyrir botni hans er Hafra-
tindur (923 m.), hæsti tindur
Klofningsfjalla. Nokkru noiðar
opnast okkur sýn yfir Saurbæjar-
sveitina, sem nýtur sin mjög vel,
þegar komiö er aö henni úr þess-
ari átt. Niöri við sjó, hjá bænum
Tjaldanesi, er gamall verzlunar-
staður, Salthólmavik. En nú ligg-
ur leiðin þvert austur yfir gróöur-
lendi sveitarinnar, framhjá Staö-
arhólskirkju, og viö Skriöuland
lýkur hringferöinni fyrir Klofn-
ing.
Frá Skriöulandi liggur vegur-
inn i norðurhliöum Hvolsfjalls og
von bráöar opnast þröngur dalur,
Ólafsdalur, suöur i fjöllin. Þar
stendur samnefndur bær og þar
stofnaöi Torfi Bjarnason, upp á
eigin spýtur fyrsta búnaöarskóla
landsins áriö 1880 og starfrækti
hann til 1907, þegar rikiö setti á
stofn eigin bændaskóla. A túninu i
Ólafsdal hefur hjónunum, Torfa
og Ólöfu Zakariasdóttur veriö
reist minnismerki.
Innan viö ólafsdal ganga fjöll
§ffinwaod-Min\
Kenwood -chef
THOBN
WOOd- HRÆRIVÉLAR
§fenwood
-CHEFETTE
Skarö á Skarösströnd.
alveg fram i fjöru en i Gilsfjarö-
arbotni tekur viö nokkurt undir-
lendi á ný. Þar stendur nyrzti bær
Dalasýslu, Kleifar, undir suöur-
hliöum.ogofan viö bæinn er Gull-
foss, hár, en vatnslitill. Viö
Brekkuá eru svo sýslumót Dala-
og Barðastrandarsýslna.
Katlar i