Tíminn - 22.08.1976, Blaðsíða 27

Tíminn - 22.08.1976, Blaðsíða 27
Sunnudagur 22. ágúst 197« Pan Am opnar skrifstofu á íslandi á ný Voru fyrstir til að hefja reglubundið þotuflug milli íslands og Bandaríkjanna jg. rvk Um þessar mundir tekur til starfa hér á landi umboðs- skrifstofa fyrir hið kunna banda- riska flugfélag PAN AM. Pan American World Airways er eitt af elztu og stærstu flugfé- lögum heims og varð fyrst banda- riskra flugfélaga til þess að hefja millilandaflug árið 1927. Flug til austurlanda hófust árið 1935 og milli Evrópu og Ameriku árið 1939. Nú hefur það flugleiðir til allra landa, heimsálfa Suður- skautslandsins. PAN AM hóf reglubundar lend- ingar á íslandi skömmu eftir heimssstyrjöldina siðari og hélt þeim áfram lengi. Með þvi flugi félagsins hófst fyrsta beina áætlunarflugið með þotum milli Islands og Bandarikjanna. Fé- lagið lagði niður þáverandi um- boðsskrifstofu á Islandi árið 1972. Nú hefur PAN AM tekið aftur upp þráðinn og ráögerir að hafa viðkomu á Islandi sem fyrr. Umboðsmaður PAN AM á Is- landi er Páll G. Jónsson, stór- kaupmaður. 1 tilefni að þvi að PAN AM hefur opnað umboðsskrifstofu i Reykjavik, eru staddir hér á landi O Skákin á ferðinni mikið skákmannsefni. Hann er mjög ungur að árum, að- eins 16 ára og því langyngsti keppandi þessa móts, en hann hefur þegar komið sér i flokk sterkustu skákmanna íslands. Hann hefur teflt mikið á erlend- um vettvangi og yfirleitt staðið sig mjög vel, að visu aldrei oröið efstur en hvað eftir annað i öðru og þriðja sæti í sterkum unglinga- skákmótum. Hér heima hefúr hann háð baráttu viö Helga Ólafs- son um sigur i mótum. Hann hef- ur ekki náð að sigra i meiri háttar móti ennþá, en þess verður áreiðanlega ekki langt að biða að nafii hans skreyti einhvern þann bikar, sem um er keppt. Helgi ólafsson. Fæddur 15. ágúst 1956. Skákstig: 2370. Helgi ólafsson Helgi ólafssoner einnaf þeirri kynslóð, sem Islendingar vænta svo mikils af i framtiöinni. Hann er nýlega orðinn tvitugur, en hef- ur þegar áunniö sér hálfan al- þjóðlegan meistaratitil, en það gerði hann á sterku móti i' Banda- rikjunum nú fyrir skömmu. Það er þvi til mikils fyrir hann að keppa á þessu móti, þar sem er hinn helmingur alþjóðlegs titils. Þegar þvi marki er náð þá er það alls ekki órafjarlægur draumur að Helgi fari aö keppa aö stór- meistaratitli. Helgi ólafsson hefur verið mjög vaxandi skákmaður á siðari ár- um, m.a. komst hann f fyrra i úr- slit I Evrópumeistaramóti ung- linga og lenti þar i' 5.-6. sæti af 10 ýmsir frammámenn PAN AM flugfélagsins. Þeirra á meðal eru Ruffert.sem er umboðsmaður fé- lagsins á Norðurlöndum, en hann hefur aðsetur i Kaupmannahöfn, Tremain.sem er yfirmaður PAN AM i Evrópu með aðsetur i London og Jiin Edwards sem hingað kemur frá Bandarikj- unum, en hann er annars um- boðsmaður félagsins i Nepal. Hin nýja skrifstofa PAN AM er i Bankastræti 8. Ekki samkeppni við Flug- leiðir Rawlwigh L. Treman jr. aðal- umboðsmaður PAN AM i London hafði orð fyrir hinum erlendu full- trúum PAN AM á blaðamanna- fundi og hafði hann meðal annars þetta að segja. Við munum ekki taka upp sam- keppni við Flugleiðir að svo stöddu. Til þess er markaðurinn of lítill. Hins vegar munum við starfa með Flugleiðum. Pan Am getur-til að mynda útvegað fram- haldsflug til staða útum allan heim. Við teljum t.d. að maður frá Is- landi sem ætlar til Japan eigi að fljúga með Flugleiðum til New keppendum. Helgi er núverandi skákmeistari Taflfélags Reykja- vikur og einnig núverandi skák- meistari Reykjavikur. Tvö sið- ustu ár hefur hann einnig veriö mjög nálægt þvi aö vinna Islands- meistaratitil, en i bæði skiptin vantað aðeins herzlumuninn. Gunnar Gunnarsson. Fæddur 14. júni 1933. Skákstig: 2310. Gunnar Gunnarsson Gunnar Gunnarsson tefldi i fyrsta skipti i meistaraflokki i Taflfélagi Reykjavikur 1953, en ári siðar varð hann skákmeistari félagsins ogsiðan aftur 1959, 1962, og 1971 deildi hann titlinum með Magnúsi Sólmundarsyni. Arið 1966 varð Gunnar skákmeistari Islands. Gunnar hefur tvisvar tekið þátt i Olympiuskákmótum fyrir Is- lands hönd, hið fyrra skiptið var I Leipzig 1960 og siðan aftur 1966, en þá var hann i hinni sigursælu sveit, sem tefldi á Kúbu undir for- ystu Friðriks ólafssonar. Þettaerf jórða alþjóðlega skák- mótiö, sem Gunnar tekur þátt I hér á landi, hin fyrri eru Guöjóns- mótið svokallaða 1956, Stórmót T.R. 1957, og V. Reykjavikur- skákmótið 1972. Þá er þess aö geta, að Gunnar hefur teflt einu sinni á svæðismóti, i Vrnjaska Banja I Júgóslaviu 1967. Frá 1974 til vors 1976 gegndi Gunnar störfum sem forseti Skáksambands Islands og tók þvi af eðlilegum ástæðum ekki mik- inn þátt I skákmótum. En á sið- asta skákþingi Islands vann Gunnar sér sæti i landsliði og hef- ur þvi skipað sér i raðir fremstu skákmanna landsins á nýjan leik. TtMINN York en þaðan með breiðþotum PAN AM til Japan. Við höfum t.d. eina beina ferð á dag og erum fljótastir. Fljótari en hljóðfráar þotur, þvi við þurfum ekki að lenda eins oft og þær til þess að taka eldsneyti, án þess ég sé nokkuð að amast við þeim. Einnig getum við boðið framhaldsflug frá Frankfurtog Kaupmannahöfn til fjölda borga i Austur-Evrópu, Moskvu, Prag og viðar. Þá munum við einnig reyna að örva ferðamannastrauminn til íslands. PAN AM ræðuryfir gifurlegum flugflota, alþjóðlegu fjarskipta- kerfi. Félagið á 70 hótel i 47 löndum og allt þetta stendur tslendingum nú til boða. Við oliukreppuna fóru mörg flugfélög að gera eitt og annað i sparnaðarskyni, annað var ekki hægt. Þá var flugið til tslands lagt niður, en nú höfum við i hyggju að starfa að ferðamálum eftir þvi sem tilefni gefst til. Skrifstofan i Reykjavik verður þvi þjónustumiðstöð sem selur lika farmið út um allan heim og fyrir islenzka peninga, eftir þvi sem gjaldeyrisreglur segja til um á hverjum tima. Hrifinn af nýju skrifstof- unni Ég vil lýsa ánægju minni með starf Páls G. Jónssonar forstjóra. Ég stjórna um 30 skrifstofum i Evrópu fyrir PAN AM og þetta er liklega sú fallegasta, þótt hún sé Páll G. Jónsson, forstjóri ásamt erlendú PAN AM fulltrúunum. A myninni eru, talið frá vinstri: Páll G. Jónsson, Jim Edwards, S.H. Ruffert og R.L. Treman jr. ★ með þeim minnstu, en það var Agla Marta Marteinsdóttir sem teiknaði innréttingar. Að íokum gerði forstjórinn grein fyrir „Heimi Pan Ams”, sem er geysi viðtækt þjónustu- kerfi fyrir skemmtiferðamenn og aðra ferðalanga. Farið er i skoð- unarferðir og svo framvegis. Þetta er ætlunin að gera á Islandi, að Island verði aðili að þessari „veröld” Pan Am. NÚ GETA ALLIR eignazt glæsilega Stereo-samstæðu frá tfoófuba TOSHIBA Þessi glæsilega samstæða kostar aðeins 82.130 SM 2100 stereosamstæðan er búin eft- irfarandi: Stereo útvarpstæki með langbylgju, miðbylgju og FM bylgju. Stereo magnara sem er 2x14 wött sinus við 4 ohm. 35 wött mússik power. Á tækinu eru stillingar fyrir bassa, diskant og loudness. Tiðnisvið 8HZ—50 Khz. Plötuspilarinn er með vökvalyftum arm. sem fer sérstaklega vel með plötur og reimdrifnum disk. Hátalarnir eru stórir 38 sm x 21,5 x 16 sm. Þeir eru búnir stórum 16 sm bassahátalara og 5 sm milli og hátíðni hátalara. Við tækið má tengja heyrnartæki og segulbandstæki. Athugið að við fengum takmarkað magn af þessu ágæta tæki á þessu lága verði. Góðir greiðsluskilmálar. Árs ábyrgð. EINAR FARESTVEIT & CO. Bergstaöastræti 10 A Sími 1-69-95 — Reykjavík HF. Kaupfélag Eyfirðinga, Akureyri Kaupfélag Skagfirðinga, Sauöárkróki Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi Verzlun Sigurðar Pálmasonar, Hvammstanga Stapafell hf. Keflavik.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.