Tíminn - 27.08.1976, Síða 20
lar
Föstudagur 27. ágúst 1976
]
kFk
FÓÐURVÖRUR
þekktar
UM LAND ALLT
fyrir gæði
Guöbjörn
Guðjönsson
Heildverzlun Slöumúla 22
Simar 85694 & 85295
Auglýsingasími
Tímans er
195*3
/-ALLAR TEGUNDIR-
^IBANDAREIMA
°' f*rsi
Einnig: Færibandareimar úr 0
ryðfríu og galvaniseruöu stáli
Kaunda:
„Nú berj-
umst við"
Reuter, Lusaka. — Kenneth
Kaunda, forseti Zambiu, var
klökkur og þurrkaöi tár af
hvörmum sér meö hvitum vasa-
klút i gær, þegar hann hafnaöi öll-
um möguleikum á friösamlegum
lausnum á vandamálum suöur-
hluta Afrlku og sagöi: — Nú berj-
umst viö.
Forsetinn, sem eitt sinn var lit-
iö á sem frjálslyndan meöal
blökkumanna i Afríku, skýröi mál
sitt ekki nánar. Taliö er þó, aö
þessi yfirlýsing hans um baráttu
auki á stuöning Zambiumanna
viö skæruliöa úr þjóöernissinna-
hreyfingum, sem nú berjast
frelsisbaráttu rétt utan viö landa-
mæri rikis hans.
t einni af höröustu og gagnyrt-
Harðir dómar fyrir mútu-
þægni í Sovétríkjunum
Reuter, Moskvu. — Sovézkur
embættismaöur, sem var hátt-
settur i rikisstofnun sem fer
meö utanrlkisviöskipti, hefúr
veriö dæmdur til langrar
fangelsisvistar fyrir aö afhenda
vestrænum kaupsýslumönnum
viöskiptaleg leyndarmál, fyrir
mútur, aö þvi er dagblaöiö
Izvestia sagöi I gær.
tfregn af réttarhöldunum yfir
embættismanninum, sem
nefndur er A.S. Baranov, segir
Izvestia, aö tveim
vestur-þýzkum kaupsýslu-
mönnum, sem blandaöir eru I
málið, hafi veriö visaö úr landi i
Sovétrikjunum og fengju þeir
aldrei aö koma þar meir.
Samkvæmt Izvestia hefur
Baranov tekiö viö tólf þúsund
rúblum og tvö þúsund banda-
riskum dollurum frá kaupsýslu-
mönnunum tveim, sem sjálfir
voru handteknir og sátu I varö-
haldi um tima.
Embættismaöurinn afhenti
kaupsýslumönnunum i staöinn
leyndar upplýsingar um
markaösmál, sem geröu þeim
kleift aö komast aö mjög hag-
stæðum samningum um véla-
sölur til Sovétmanna.
Þessifréttilzvestia ernýjasti
þáttur sovézkra uppljóstrana
um þaö hvernig vestrænir kaup-
sýslumenn spilla sovézkum em-
Framhald á 19. siðu.
ustu yfirlýsingu sinni um málefni
suöurhluta Afriku réöst forsetinn
einnig af mikilli hörku á ónefnd
vestræn riki, sem viöhéldu
tengslum sinum viö Suöur-Afriku
og rikisstjórn hvitra manna þar,
en styddu jafnframt aögeröir
Sameinuöu þjóöanna gegn rikis-
stjórn hvita minnihlutans I Pre-
toriu.
Dr. Kaunda sagöi, aö tilraunir
blökkumanna i Afriku til þess aö
finna friösamlega leiö út úr
spennunni I suöurhluta Afriku,
heföu mistekizt og lét hann aö þvi
liggja, að eina leiðin sem enn væri
opin fyrir blökkumenn I Afriku,
og sú leiö sem opin yröi I framtlö-
inni, væri styrjöld.
— Nú berjumst viö, sagði hann
,,á samkomu, þar sem diplomat-
ar og stjórnmálamenn voru sam-
an komnir viö opnun stofnunar
Sameinuöu þjóöanna fyrir Nami-
biu (Suö-vestur-Afriku), en þar á
aö reka skóla fyrir stjórnendur,
sem stýra eiga þessari fyrrver-
andi nýlendu Þjóöverja, eftir aö
hún fær sjálfstæöi frá Suöur-
Afriku.
Rhódesía:
Biskup sak-
aður um að
hylma yfir
skæruliðum
Reuter.Salisbury. —
Rómversk-kaþólski biskup-
inn i Umtali i Rhódesiu, Don-
ald Lamont, hefur veriö á-
kæröurfyrir aö tilkynna ekki
um nærveru skæruliöa, sem
hann vissi hvar dvöldust, svo
og aö hafa hvatt aöra til þess
aö fremja sama afbrot, að
þvi' er rikisstjórn hvitra
minnihlutans i Rhódesfu
skýröi frá i gær.
Charles Waddingon, sem
nú gegnir embætti saícsókn-
ara i Rhódesiu, sagöi I yfir-
lýsingu I gær, aö ákærurnar
væru á engan hátt tengdar
opnu bréfi, sem biskupinn
skrifaði, þar sem hann gagn-
rýndi Ian Smith, forsætis-
ráðherra landsins.
I bréfi slnu til rlkisstjórn-
arinnar, þann 15. ágúst,
sagöi biskupinn, aö aukin og
haröari skæruliöabarátta i
landinu væri engum aö
kenna nema kynþáttafor-
dóma-og kúgunarstefnu for-
sætisráöherrans.
— Rfldsstjórn lands okkar
er fordæmd af öllum hinum
siðmenntaöa heimi, sagði
biskupinn I bréfi slnu, en
hann er hvitur maður og hef-
ur opinberlega gagnrýnt
mjög hvernig hviti minni-
hlutinn 1 landinu stjórnar
þvi.
Búizt er viö, aö biskupinn
komi fyrir rétt i borginni
Framhald á 19. siöu.
Lockheed hneykslið í Hollandi:
Orkuskortur
í Póllandi
Reuter.Varsjá. — Ljósin
verða slökkt á götum og i
verzlanagluggum i Póllandi á
mestu álagstimum i haust, til
þess að spara orkuna og beina
hennitilheimilisnota, að þvier
dagblaö Kommúnistaflokks
landsins skýröi frá i gær.
Blaðið sagði ennfremur að
nú væri áriðandi að allir raf-
magnsnotendur spöruðu viö
sig þetta ár og hvatti það til
þess að rafmagnstæki á heim-
ilum yrðu sem minnstu notuð.
Rafmagnsneyzla almenn-
ings i Póllandi hefur vaxið
mikiö undanfarið og bygging
raforkuvera er á eftir áætlun
þar.
Edward Gierek, leiðtogi
kommúnista i landinu fór ný-
lega i ferö um kolanámahéruð
landsins og hvatti yfirvöld þar
til þess aö ná framleiösluáætl-
unum.
Gortaði af
bankardninu
Reuter.Edinburgh. — Drukk-
inn bankaræningi eyðilagði
fyrir sér annars fullkomið rán,
með þvi að veifa bunka af
fimmpunda seðlum framan i
tvo undrandi lögregluþjóna og
segja: — Langar ykkur til aö
vita hvar ég fékk þetta.
John Sinclair, sem er
tuttugu og fjögurra ára gam-
all verkamaður og á tuttugu
og niu dóma aö baki, var
dæmdur til fimm ára fangels-
isvistar i gær, eftir að hafa
viðurkennt að hafa rænt tvö
hundruð og fjörutiu sterlings-
pundum úr banka I Glasgow.
Verjandi Sinclair sagöi fyr-
ir rétti, aö skjólstæöingur hans
heföi drukkiö sleitulaust frá
þvi aö hann var látinn laus eft-
ir að hafa afplánaö sex mán-
aöa fangelsisdóm fyrir inn-
Arni ólafsson & co.
40088 a* 40098 —
HÚRNA
A IV1ILLI
brot. Eftir fjögurra daga
drykkju gekk hann fram hjá
banka og datt þá i huga að
ræna hann.
Hann varð svo hissa þegar
hann fékk peningana i hend-
urnar og komst undan, að
hann gat ekki stillt sig um aö
gorta af þvi.
Töpuðu hólfri
annarri milljón
sterlingspunda
Reuter.London. — Brezka
flugfélagiö British Airways
tilkynnti I gær, aö þaö heföi
tapaö 16,3 milljónum sterl-
ingspunda á siðasta efnahags-
ári, sem verið heföi mjög erf-
itt. Félagiö tapaði á
Concorde-rekstri sinum og
varö illa fyrir baröinu á falli
sterlingspundsins.
Frank McFadzean, forstjóri
félagsins, sagöi fréttamönn-
um, að félagiö, sem er i eigu
rikisins, hefði tapað meir en
tveim milljónum sterlings-
punda á rekstri Concorde-vél-
anna, fyrstu tiu vikurnar, sem
þær héldu uppi áætlunarflugi
til Washington og Bahrain. 1
tapinu er innifalinn stofn-
kostnaður, sem nemur einni
milljón sterlingspunda.
Þrátt fyrir þetta var for-
stjórinn bjartsýnn og sagöi, aö
flugfélagiö hefði skilað einn -
ar og hálfrar milljónar sterl-
ingspunda ágóöa mánuðina
mai', júni og júli á þessu ári, en
það er i fyrsta sinn, sem það
skilar hagnaði á ársfjórðungs-
grundvelli um tveggja ára
skeiö.
Bernhard drottningarmaður segir af
sér öllum opinberum embættum
— verður ekki sóttur til saka, vegna stöðu sinnar og annars
Reuter, Haag.— Bernhard prins,
eiginmaöur Júliönnu Hollands-
drottningar, hefur sagt af sér
embætti sem æösti yfirmaöur hol-
lenzka flughersins, og dregiö sig
til baka frá öörum helztu opin-
beru embættum sinum, aö þvi er
Joop den Uyl, forsætisráöherra
Hollands skýröi hollenzka þinginu
frá I gær'.
Forsætisráöherrann skýröi þá
þinginu frá niöurstööum rann-
sóknarnefndar þeirrar.sem haföi
til athugunar ásakanir um aö
prinsinn heföi tekiö viö rúmlega
einni milljón dollara i mútur frá
bandarisku flugvélaverksmiöjun-
um Lockheed.
Nokkrir stjórnmálafræðingar
höfðu áöur spáð þvi, aö prinsinn
myndi segja af sér opinberum
embættum, til þess aö koma i veg
fyrir stjórnarfarskreppu I land-
inu, sem meöal annars heföi leitt
til þess aö drottningin heföi afsal-
aö sér krúnunni.
Bernhard prins hefur neitaö aö
hafa tekiö viö mútunum frá Lock-
heed fyrir að greiöa fyrir sölu
þeirra á flugvélum til Hollands.
Den Uyl forsætisráöherra sagöi
I gær, aö i skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar kæmi fram aö
prinsinn heföi — skaöaö hags-
muni rikisins — meö geröum sin-
um.
Prinsinn heföi dregiö sinar eig-
in ályktanir af afhjúpunum
nefndarinnar, og heföi látiö af öll-
um embættum sinum, sem varöa
viöskipti og iönaö lika, aö þvi er
ráöherrann sagöi.
Sagði ráöherrann, aö rikis-
stjórnin heföi ákveöið aö gripa
ekki til lagalegra aögeröa gegn
prinsinum. Hann bætti þvi viö, aö
„löggjöfin um takmarkanir”
myndi koma i veg fyrir aö dómur
fengist felldur yfir prinsinum I
tengslum við ásakanir þessar.
■Forsætisráöherrann sagöi, aö
Bernhard prins heföi látiö freist-
ast til einkaframtaks, sem væri
meö öllu óþolandi, þótt svo hann
heföi ekki haft eiginleg áhrif á
flugvélakaup Hollendinga.
Sagöi den Uyl, aö rannsóknin
heföi leitt til þeirrar niöurstööu,
aö Bernhald prins — 1 þeirri trú
að vegna stööu sinnar væri hann
friöhelgur — og aö dómgreind
hans væri ekki undir áhrifum
Framhald á 19. siðu.
Suður-Afríku handtekinn
Einn af leiðtogum Verkamannaflokks
I bréfi I blaðinu Cape Times I
gær sagöi annar af leiðtogum
flokksins, David Curry, að aö-
geröinar nálægt Höföaborg I
þessari viku heföu endanlega
eytt þeirri goösögn, aö kyn-
blendingar I S-Afriku myndu
standa með hvita manninum
gegn hinum svarta.
— Meö aögeröum sinum geröi
unga kynslóðin hvita manninum
greiöa, með þvl aö svipta hul-
unni frá augum hans og sanna
aö nýju, aö timinn vinnur ekki
meö honum, sagöi Curry.
Framhald á 19. siðu.
Reuter.Port Elizabeth. — Séra
Allan Hendrickse, leiötogi „lit-
aða” Verkamn*a«flokksins
(The Coloured Labor Party) I
Suður-Afríku (En I þeim flokki
eru fólk af fleiri en einum kyn-
þætti), var I gær handtekinn af
öryggislögreglu rikisins, aö þvi
er eiginkona hans skýröi frá.
Frú Hendrickse sagöi, aö
engin ástæöa heföi verið gefin
upp fyrir handtökunni og lög-
reglan gæfi ekki til kynna sam-
kvæmt hvaöa lögum hann væri
fangelsaöur.
Hendrickse er formaöur
framkvæmdaráös Verka-
mannaflokksins, en flokkurinn á
ekki mann á þingi I Suöur-
Afriku. Hann er nú einn af tvö
hundruö mönnum, sem haldiö
er I fangelsi og hafa veriö hand-
teknir á grundvelli öryggislaga
S-Afriku frá þvi óeiröaaldan
meðal blökkumanna þar hófst I
júnimánuöi.