Tíminn - 29.08.1976, Síða 1
Áætlunarstaðir:
Blönduós — Siglufjörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkishólm-
ur— Rif Súgandafj.
Sjúkra- og leiguflug um allt
land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
192. tölublað — Sunnudagur 29. ágúst—60. árgangur.
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
■BS33SIS333HI
Síðumúla 21
Sími 8-44-43
Morðinginn
ófundinn
NÆR 3 ÞÚSUND KENNARAR
OG 46 ÞUSUND NEMENDUR
Gsal-Reykjavik — Rannsókn á
moröinu, sem framið var í húsinu
númer 26 við Miklubraut á
fimmtudag, hefur enn ekki leitt til
þess að morðinginn hafi fundizt.
Ýmsir menn hafa verið teknir til
yfirheyrsiu vegna morðsins og
athugað um þeirra ferðir
umræddan dag, en þegar Timinn
hafði siðast tal af rannsóknarlög-
reglunni i gær, hafði enginn verið
úrskurðaður f gæziuvarðhald.
Rannsóknarlögreglunni sem
öðrum er enn hulin ráögáta hvers
vegna morðið var framið. Ollum
J>eim, sem eitthvað þekktu til
Lovisu Kristjánsdóttur ber
saman um það að óhugsandi sé að
hún hafi átt nokkra óvildarmenn.
Svo virðist sem ekki hafi verið
hróflaö við neinu i ibúðinni, þar
sem morðið var framið, þótt ekki
sé hægt aö segja til um það með
algjörri vissu, þar eð húsráðend-
ur voru ókomnir til landsins i gær,
en þeirra var von i gærkvöldi.
Eins og greint hefur veriö frá i
fféttum var Lovisa heitin beðin
um að vökva blóm i ibúöinni i
í dag
r
Islenzk
fyrirtæki
Grísaból sf.
Bókaútgófan
Örn og
Örlygur
m-------► 0
Styrkjum
vinóttuböndin
opnan
Erlendir
skókmenn
fjarveru mæögnanna, sem
brugðu sér i skemmtiferð til Bret-
lands. Þá er ennfremur útilokað
að um ránsmorð hafi verið að
ræða, þvi peningar fundust á lik-
inu.
Allt tiltækt starfslið rann-
sóknarlögreglunnar vinnur nú að
rannsókn málsins dag og nótt.
Við leit lögreglumanna á
Miklatúni á föstudagsmorgun
vegna morösins i húsinu við
Miklubraut, fundust m.a. frakki
og jakki, hengdir upp á trjágrein
unn i runna. Rannsóknarlögregl-
an óskar eftir þvi að allir þeir sem
einhverjar upplýsingar geta gefið
um þessar flikur hafi samband
við lögreglu. Frakkinn er hálfsið-
ur, brúndrapplitaður með brúnu
gervifóöri. Jakkinn er köflóttur,
blágrár með dökkbláum og rauð-
um teinum. Jakkinn er hreinleg-
ur, en frakkinn hins vegar skitug-'
ur.
Gunnar ljósmyndari Timans
tók myndina hér til hliðar af
fötunum
O.Ó. Rvik. Starfsár skólanna
hefst nú senn, og fylgir þvibreyt-
ing á daglegu vafstri tugþúsunda
manna. Annatimi tekur við af
sumarleikjum barnanna, ung-
menni hverfa úr atvinnulifinu og
setjast við lestur, og kennarar
standa upp af skólabekkjum
námskeiðanna, þar sem þeirhafa
væntanlega lært nýjar starfsað-
ferðir viö kennslu gamalla og ný-
uppfundinna námsgreina, ogtaka
sér stöðu við púltið og snúa nú
baki við töflunni.
Tkninn hefurreyntað afla sér
upplýsinga um hve margir
nemendur og kennarar muni
starfa i skólum landsins á kom-
andi vetri. Þær liggja ekki fýrir'.
En nokkurt mark má taka af
tölum siðasta árs varöandi
þá sem stunda munu nám og
kenna i grunnskólum i vetur.
Munu nú hefja störf 2350 fastir
kennarar við grunnskólastigið og
um 550 stundakennarar. Alls
munu um 46 þúsund nemendur
stunda nám igrunnskólunum, þar
af nær 16 þúsund i Reykjavik.
Enn þokast lítið í áttina
á Hafréttarráðstefnunni
Bandaríkin leggja fram varhugaverða tillögu umverksvið dómstólsins
O.Ó.-Rvk. — Nær ekkert hefur
þokazt til samkomulags um
helztu ágreiningsef nin, og
spurningin, sem nú er á vörum
flestra fulltrúanna er sú, hvort
sá árangur náist á þeim vik-
um sem eftir eru að hægt
verði að halda ráðstefnunni
áfram á næsta ári, eða hvort
henni veröur frestað i enn lengri
tima. Sennilega fæst ekki skoriö
úr þessu fyrr en siðustu daga
ráöstef nunnar. Helzta von
þeirra bjartsýnustu er sú, að
samkomulag náist um það, að
forseta hennar og nefndarfor-
mönnum verði faUð að semja
einn samræmdan texta I stað
þess að textinn er nú f fjórum
aðskildum textum, eða köflum,
þar sem viða er um óþarfa
endurtekningar að ræða. Þetta
sagði Þórarinn Þórarinsson,
alþingismaður, i viötali við
Timann, en hann situr nú haf-
réttarráðstefnu SÞ i New York.
Þessi fimmti fundur haf-
réttarráðstefnunnar.sem hófst I
New York 2. ágúst s.l. er nú
hálfnaöur. Fjórar vikur af
starfstima fundarins eru liðnar,
en fjórar eru eftir.
— Það yrði svo fyrsta verk-
efni næsta fundar ráðstefn-
unnar, sagði Þórarinn, að ræða
um hvort samræmdi textinn
yrði notaður áfram sem
samningsgrundvöllur, eða hvort
hann yrði viöurkenndur, sem
formlegt frumvarp, sem hægt
væri að byggja atkvæða-
greiðslur á. Yrði hiö fýrra cfan
á væri vonlaust að ráðstefnunni
lyki á næsta fundi.
Athygli islenzku fulltrúanna
siðustu dagana hefur beinzt
mest aö óformlegum eða
lokuöum fundum ráö-
stefnunnar, þar sem rætt hefur
verið um hinn svokallaða fjórða
texta, sem fjallar um lausn
deilumála og stoftiun sérstaks
hafréttardómstóls.
Siöustu dagana hafa
umræðurnar snúizt um 18. grein
þessa kafla, sem er veigamesta
grein hans. Hún fjallar um
hvaða deiluefnum eigi aö skjóta
til sáttagjörðar og úrskurðar
dómstóls og hverjum ekki. Eins
og ákvæöum 18. greinar er
háttað nú er ekki alveg nógu
ljóst, hvort auðlindalögsagan
fellur undir úrskurð dóm-
stólsins eða ekki. Af háifu
strandrikjahópsins var þvi lýst
yfir iumræöunum, aðhann væri
mótfallinn þvi, að auölindalög-
sagan, eða yfirráð auðlinda,
félli undir úrskurð dómstólsins,
þar sem hún tilheyröi strandrik-
inu einu. Af hálfu Efnahags-
bandalagsins flutti Hoiland til-
lögu, sem gekk i gagnstæða átt.
1 upphafi umræðnanna um 18.
greinina flutti Hans G. And-
ersen sendiherra ræöu, þar sem
hann gerði grein fyrir því, að
Island gæti ekki fallizt á 18.
greinina, nema að það væri
ótvirætt, að þau ákvæði hennar,
sem eru óákveðin um fiskveiði-
lögsöguna,féllu alveg niður, eöa
bætt yrði inn i greinina, aö hún
næöi ekki til þeirra ákvæöa
strandrikisins, sem væru sam-
kvæmt 55. og 51. grein texta
númer 2., en þær greinar fjalla
um rétt strandrikja til aö
ákveöa hámárksafla og veiði-
getu sina.
FluttiHans tillögu i samræmi
við þetta.
Af hálfu Bandarikjanna kom
þá fram óbein gagntillaga þess
efnis, aö það félli undir
úrskurðarvald dómstólsins, ef
strandriki væri talið brjóta gegn
ákvæðum sáttmálans vegna
ofnýtingar eða vannýtingar á
fiskstofnum. 1 framkvæmd.
muni þetta leggja fiskveiði-
lögsöguna undir úrskurðarvald
dómstólsins. Tillaga Banda-
rikjanna fékk eindreginn
stuðning Sovétrikjanna, og
nýtur þvi stuðnings
kommúnistarikjanna, Efna-
hagsbandalagsrikjanna og
margra annarra, sem hafa enga
eða litla fiskveiðilögsögu.
Liklega mun þó andstaða
strandrikjahópsins hindra
framgang hennar, en samt má
ekki vanmeta þá hættu, sem
stafar af tillögunni. Gert er ráð
fyrir, aö þegar umræðunum um
18. greinina lýkur veröi settur á
laggirnar fámennur rikjahópur
til að ræöa um efni hennar
nánara og athuga, hvort hægt sé
að ná samkomulagi um hana, en
um ýmis önnur atriöi hennar er
verulegur ágreiningur. Sérstak-
lega það, hve mörg mál eigi aö
undanþiggja úrskuröarvaldi
dómstólsins.
I einstökum nefndum
ráðstefnunnar hefur h'tið eða
ekkert þokazt áleiðis undan-
farna daga en það getur breytzt
á siðustu dögum ráðstefnunnar.
Færi svo, að samkomulag
næðist um tvö til þrjú atriði i
fyrstu nefnd, gæti það orðiö til
að greiða fyrir lausn annarra
deiluatriða. Málin viröast vera
komin á það stig að náist
samkomulag um lausn tveggja
eða þriggja stórra deiluefna, þá
gætu önnur leystst fljótlega á
eftir.
En eins og er, þá bendir
ekkert til að þetta gerist á
ráðstefnunni nú, þótt maöur
þori ekki að útiloka neitt, sagði
Þórarinn að lokum.