Tíminn - 29.08.1976, Síða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 29. ágúst 1976
í spegli tímans
Hundar á dansleik
A einni myndinni, sem hér fylg-
ir, sjáið þið heilan hóp af púdel-
hundum, sem allir eru klæddir i
búninga, og eru þeir tilbúnir til
þess að fara á áramótadansleik-
inn, sem eigandi þeirra heldur
þeim um hver áramót. Konan,
sem á þessa skemmtilegu hers-
ingu, heitir Erna Thygesen og á
heima i Funder rétt hjá Silki-
borg á Jótlandi. Hún ólst upp I
litilli ibúð á österbro I Kaup-
mannahöfn, og þar var algjör-
lega bannað að hafa hunda.
Erna þráði ekkert eins mikið og
að eignast hunda, en þá ósk
hennar var þó lengi vel ekki
hægt að uppfylla. Skammt frá
heimili hennar var starfrækt
hundasnyrtistofa, og þangað fór
litla telpan eins of t og hún gat
þvi við komið. Hún fékk þó ekki
að koma inn á snyrtistofuna,
senda þá foreldrunum, sem enn
eru i hundabúi Ernu, bréf og
myndir, og eigendur þeirra
segja sögur af þeim I bréfunum,
og skýra af mikilli nákvæmni
frá framförum þeirra og fram-
gangi i lifinu. Hundarnir á búi
Ernu lifa mjög rólegu lifi. Allt
er gert til þess að þeim liði sem
bezt. Þeir eru aldir upp m.a. i
þeim tilgangi að eiga siðar eftir
að taka þátt i hundasýningum
og vinna verðlaun, enda eru þeir
hreinræktaðir og sérstaklega
fallegir allir saman. Einstak-
lega vel er hugsað um þá.
Feldur þeirra er hirtur og snyrt-
ur eftir kúnstarinnar reglum, og
mun það geta tekið allt að sex
klukkustundum að snyrta hvern
hund. Það þarf að klippa neglur
þeirra, hreinsa tennurnar, og
svo verður á minnst þriggja
vikna fresti að klippa hvern
hund smávegis, þótt ekki sé það
gert nákvæmlega svo oft. Það er
hægt að kenna hundum að leika
alls konar listir. Hérna sjáið þið
t.d. einn vera að draga vörubil,
og annar situr aftan á, Svo geta
hundarnir stokkið hæð sina, og
gera það gjarnan, þegar þeir
eru að leika við eiganda sinn. A
einni myndinni heldur Erna
Thygesen á nýfæddum púdel-
hundi. Hann var svo smávax-
inn, þegar hann fæddist, að
hann fyllti varla út i lófa Ernu.
Á jólunum setja hundarnir
gjarnan upp jólasveinahúfur,
sér og öðrum til ánægju, og svo
er það dansleikurinn, sem við
minntumst á i upphafi. Fyrir
hann klæðast herrarnir kjól og
hvitt og dömurnar eru I siöum
samkvæmiskjólum.
heldur varð hún aö láta sér
nægja að kikja inn um gluggana,
og sjá, þegar veriö var að
snyrta hundana, sem þangað
var komið með. Þegar svo Erna
varð fullorðin rættust draumar
hennar um að eignast hunda. Nú
rekur hún hundabú á heimili
sinu á Jótlandi. Hún á þar
hvorki meira né minna en 19
púdel-hunda, sem reyndar eru
alltaf að auka kyn sitt, og af-
komendurnir eru nú viðs vegar
um alla Danmörku. Á hverjum
jólum stynja póstmennirnir I
Silkiborg undan öllum þeim
mikla fjölda bréfa og korta, sem
hundum Ernu berst. Börnin
með morgunkaffinu
Ég er meö ofnæmi fyrir ofbeldi,
ég fæ bæöi marbletti og skuröi af
sliku.
Veiztu hvaö vantar I eldhúsiö?
Hana mömmu.
DENNI
DÆMALAUSI
Ei' þetta væri á veitingahúsi
myndum við setja þetta allt I
poka fyrir hundinn, og ekkert
vera aö þrasa út af þvi.