Tíminn - 29.08.1976, Síða 5
Sunnudagur 29. ágúst 1976
TÍMINN
5
★
★
kátar
Edith Eckbauer 26 ára gömul
og Thea Einöder 25 ára voru
einar af þeim sem unnu til verö-
launa á nýafstöðnum ólympiu-
leikum i Montreal. Þær stöllur
kepptu i róöri og hrepptu brons-
verðlaun. Það þarf mikla
æfingu þegar keppt er i róöri, en
það var einkum það, að þær
voru ekki nógu samtaka við
áralagið og olli þvi, aðþær náðu
ekki að komast i fyrsta eöa
annað sætið, og þvi fór
sem fór. Samt sem áður gleöjast
þær innilega eins og sjá má á
þessari mynd.
Hún klæðir frægt fólk
Ulla-Britt Söderlund er fædd I
Sviþjóö, en býr i Kaupmanna-
höfn. Fyrir stuttu fékk hún
Óskarsverðlaun fyrir búninga,
sem hún hafði hannað i mynd
Stanley Kubricks, Barry
Lyndon. Þetta voru fyrstu
Óskarsverðlaun sem Danir
hljóta. Eins og gefur að skilja
eftir slika verðlaunaveitingu, þá
streyma verkefnin aö þessum
unga búningahönnuði, og henn-
ar næsta verkefni er að klæða
teprulegustu konur i heimi og
má þar fyrst nefna Raquel
Welch. Hún á að hanna þrjá
búninga ef ýmsum gerðum og
eiga þessir búningar að vera frá
árinu 1500. Welch á siðan að
nota þessa búninga i næstu
mynd sinni — The Prins and the
Pauper, en i þeirri kvikmynd
leikur hún aðalhlutverkiö.
Verkefni Ullu-Britt er ekki ein-
göngu fólgiö i þvi, aö útbúa föt á
tildurrófur, heldur fær hún
einnig að spreyta sig á búning-
um fyrir skærustu stjörnur
kvikmyndaheimsins, eins og til
dæmis Oliver Reed, Rex Harri-
son, George Scott, Charlton
Heston og fleiri fá einnig að
njóta krafta hennar.
Myndirnar eru af Ullu-Britt og
Raquel Welch i einum af
búningum hennar.