Tíminn - 29.08.1976, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 29. ágúst 1976
1 130. þætti þann 11. júli var
birt mynd af „leiksystrum”
sitjandi á steinriði landshöfð-
ingjahússins i Reykjavik, Skál-
holtsstig 7. Nú eru nöfnin komin
til skila, svo myndin er birt aft-
ur: Fremst til vinstri situr Þór-
unn Hafstein og þá systir henn-
ar Sigríður Hafstein — dætur
Hannesar Hafsteins ráðherra og
skálds. Lengst til hægri,
ljósklædd, situr Sigriður
Stephensen (Magnúsar lands-
höfðingja) og bak viö hana Anna
Klemensdóttir, sýslumanns og
siðar landritara. Efst til vinstri
stendur Asa Kristjánsdóttir
(háyfirdómara) og sitjandi til
hægri, ljósklædd, Elin Stephen-
sen, systir Sigriðar Stephensen.
Nú ganga Menningarsjóðsmenn
og Þjóðvinafélags um riðið.
Hugsum oss stadda austur á
Seyðisfirði og lita þar á sundfólk
árið 1910. Baðfötin voru öll önn-
ur þá en nú, sem sjá má. Stúlk-
urnar eru þessar: Efri röð — frá
vinstri talið: Anna Wathne,
Þórunn Þórarinsdóttir, Svan-
hvit Jóhannsdóttir, Jónina
Stefánsdóttir, Ragnheiður
Magnúsdóttir, Jóhanna Jóns-
dóttir og Margrét Lárusdóttir.
Neðri röð frá vinstri taliö:
Aldný Magnúsdóttir, Anna
Johannesdóttir, Lára Hafstein,
Laufey Jóhannsdóttir og Sigrlð-
ur Arnadóttir. Hverjar skipa nú
rúm þeirra i sundlauginni á
Seyðisfirði?
Margir leggja leið sina að
tjarnarhorninu við enda
Tjarnargötu i Reykjavik. A vor-
in skartar þar vænn heggur
hvitu blómskrúði, og lerkið við
hliðina á honum er lika vorfag-
urt, nýútsprungið. Og nú blasir
hvitur úðamökkur gosbrunnsins
við og ber yfir tjarnarbrúna, lifg
andi umhverfið,sibreytilegur
eftir veðri. Haustrok mikið fyrir
fáum árum hallaði heggnum
upp að skrifstofuhúsi borgar-
innar. Þyrfti að styrkja tréð.
Þarna rétt hjá eru börn oft að
gefa öndum og svönum, sem sjá
má á myndinni, en hún var tekin
fyrir 10 árum. Margir rosknir og
ráðsettir sitja á grjótgerðinu og
láta sig dreyma. Bak við eru
gróskulegir runnar, þ.e. gull-
blómguð „fölsk jasmin” (Phila-
delpius) og þyrnirós. Timbur-
húsin i bakgrunni eru liklega
„aldamótahús”, eða þvi sem
næst og búa yfir gömlum þokka.
Stærra og nýlegra er hið hvita
steinhús Oddfellowa (I.O.O.F.)
t.h.
Vestur á horni Bræðraborgar-
stigs og Vesturgötu og þar i
grennd, bera allmörg hús forn-
legan ^vip, háu, mjóu múr-
steinsreykháfarnir eru ekki
reistir lengur, og flestöll hús
gerö úr steini.
Vikjum inn á Grensásveg og
litum á „Þrætustöðvarnar
miklu” uppi á hæöinni, með
viðri útsýn til tveggja átta. Þar
er „Armannsfell” byrjað að
grafa fyrir grunni t.h. við litla
húsið og „dverghúsið” á mynd-
inni. Þau verða að engu þegar
„róstuhöllin” ris. En laglega
þrikvistaða steinhúsið t.v. (við
Bakkagerði) heldur sinu, og
ekki lokast sýn til háhýsanna
handan Sogamýrar.
Við Tjörnina, álftir með unga
25. júli 1966
Sundkonur á Seyöislirði 1910.
Ingólfur Davíðsson:
Byggt og búið
137
í gamla daga
Leiksystur á steinriði iands
höföingjahússins. Nú eru nöfn
þeirra fengin og birt hér i
greininni
A horni Bræðraborgarstigs og Vesturgötu 4/6 1975 Við Bakkagerði og Grensásveg 5/9 1975