Tíminn - 29.08.1976, Page 27
Sunnudagur 29. ágúst 1976 TÍMINN 27
IVNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — , KVIKMYNDIR
kammast okkar
hugunar hverjir áhrifavaldarnir
eru i lifi barna hér, eftir hverju
þau mótast.
Hér fer á eftir stutt úttekt á þvi
sem kvikmyndahúsin hafa boðið
upp á siðustu fjóra sunnudaga.
Fyrst er þar að telja að sunnu-
daginn 1. ágúst auglýsti Gamla-
Bió barnasýningu á teiknimynda-
safni, sem að nafni til byggir á
myndum um Tom og Jerry. Sýn-
ing þessi virðist saklaus á að lita,
en þó má ekki að fullu treysta þvi,
þar sem teiknimyndir byggja oft
á hrakförum einstaklinga. Sak-
lausara en margt annað þó.
A sama tima hafði Tónabió að
bjóða Tarzan á flótta i frumskóg-
unum. Allir kannast við Tarzan
og vafalitið eru þeir foreldrarnir
margir sem, ef þeir ihuguðu mál-
ið, ekki myndu fella sig við þá
heimsmynd sem „karlmennsku-
ævintýri” hans gætu skapað. Þar
má lil dæmis nefna virðingarleysi
fyrir lifi og fleira.
Háskólabió hafði þennan dag
barnasýningu á kvikmyndinni
Hrói Höttur. Ævintýramynd með
hæfilegum skammti af likams-
meiðingum, þar sem barninu er
innrætt að æskilegt sé að ræna
fjármunum frá ákveðnum hópum
manna og stofnunum. Barniö öðl-
ast ekki skilning á þvi að mis-
skipting auðs sé óréttlát, heldur
hinu, að ef þú rænir frá réttum
aðilum og gefur hluta ránsfengs-
ins þeim sem eru vinir þinir, þá er
ránið orðið æskilegt.
Austurbæjarbió sýndi þennan
dag kvikmyndina Loginn og örin,
sem mér er ekki kunnugt um efni
eða uppbyggingu i. Af nafni henn-
ar má þó draga þá ályktun að hún
byggi á ofbeldi, manndrápum og
öðru þvi sem i dag er talið meðal
neikvæðari þátta mannlifsins.
Nýja Bió bauð upp á aðra Hróa
Hattar kvikmynd, sem ekki þarf
að fjalla nánar um.
Laugarásbió sýnir þennan
sunnudag teiknimynd, sem upp-
runnin er frá Hanna og Barbera,
höfundum Steinaldarmannanna
og fleiri teiknimynda og teikni-
myndaflokka. Sú mynd er. að
minu mati, nokkuð góð til sins
brúks, þýð og skaðlaus. Hún fjall-
ar um lif dýra á búgarði og hefur
þann kost til að bera að i henni er
lögð áherzla á gildi hins góða i
fari lifandi vera.
Stjörnubió lagði sitt i hattinn
með kvikmynd um Bakkabræður,
Bakkabræður i hnattferð. Sem og
aðrar kvikmyndir þremenning-
anna byggir þessi á þvi að höfða
til kimnigáfu áhorfandans með
hrakförum náungans. Varla upp-
byggjandi.
Loks er svo Hafnarbió með
kvikmynd svipað eðlis, það er
Flækingarnir, með þeim Abott og
Costello.
Næsta sunnudag, þann 8. ágúst
bjóða fjögur kvikmyndahúsanna
upp á óbreytta dagskrá. Það eru
Gamla Bió, Tónabió. Nýja Bió og
Hafnarbió.
Háskólabió hel'ur þá tekið til
barnasýningar brezka grinmynd,
Drottinn blcssi heimilið. sem
varla tekur þvi að fara mörgum
orðum um.
Austurbæjarbió fetar i fótspor
Gamla Biós og býður upp á
teiknimyndasaln.
Laugarásbió hefur upp á lletju
Vestursins að bjóða - grinmvnd
með ofbeldisivafi.
Stjörnubió hefur dregið fram
kvikmynd sem her heitið Dalur
Drekanna og sem mér, persónu-
lega, þykir engan veginn hæf
barnamynd. Hún byggir elni sitt
á náttúruhaml'örum sem færa tvo
menn milli pláneta og varpa þeim
i hringiðu lifs steinaldarmanns-
ins. með tilheyrandi forynjum og
fvrirgangi. Mórall mvndarinnar
er þó sá að æskilegra sé að jafna
ágreiningimeö friðsamlegu móti,
ef mögulegt er Jafnframt þvi
kemur þó nokkuð greinilega fram
það viðhorf að karlmenn þurfi
ekki að bitast og slást. ef þeir geta
aðeins komið sér saman um
skiptingu á kvenþjóðinni sin á
milli. Indælt viðhorf.
Næsla helgidag þar á eftir var
dagskrá kvikmyndahúsanna að
mestu óbrevtt. þvi þá skiptir
Austurbæjarbió eitt um og býður
upp á kvikmyndina h'imm og
njósnararnir. sem raunar er
framleidd sem barnakvikmynd.
h'jórða sunnudaginn tekur Há-
skólabió til syningar myndina
Skvtturnar. sem byggir á sögu
Alexander Dumas. Vist má telja
þá kvikmynd spennandi. en þó
getur hún varla talizt við barna
ha>fi. þar sem ofbeldi — æskilegt
ofbeldi — er efniviðurinn.
Stjörnubió tekur þá upp Dular-
lullu eyjuna, sem byggir á sögu
Jules Verne. Hverjum þeim sem
telur að i þeirri kvikmynd geti
ekki falizt neitt það sem neikvætt
er fyrir barnssálina, er ráðlegt að
neyta færis að sjá hana. næst þeg-
ar það gefst.
Hafnarbió hefur einnig skipt og
tekið upp grinmvnd sem nelnist
Mjólkurpósturinn. en til þeirra
myndar þekki ég ekki.
önnur kvikmyndahús hafa
óbreytta dagskrá.
Svo er
nú það
Ef tekinn er einföld flokkun á
kvikmyndum þessum, þá kemur i
ljós að af sextán kvikmyndum eru
tvær, sem framleiddar eru bein-
linis sem barnakvikmyndir (önn-
ur raunar undir flokkuninni fjöl-
skyldukvikmynd), tvær eru mið-
aðar að nokkru við börn (teikni-
myndasöfn), sex byggja á of-
beldi, ránum og meiðingum og
setja þá þætti mannlifsins fram
sem æskilega, ein til viðbótar
(Loginn og örin) fellur liklega i
sama flokk, fjórar byggja á þvi að
höfða til kimnigáfu áhcrfandans
með hrakförum náungans og ein
kvikmyndanna sextán (Dalur
drekanna) byggir að nokkru á of-
beldi, en þó einkum af öðrum or-
sökun: óhæf fyrir börn.
1 einni af þessum kvikmyndum
er góðmennskan sett fram fyrir
börnin sem æskileg, sem sigrandi
afl.
Þegar þessu sleppir má svo
huga ofurlitið að þeim þjóðfélags-
viðhorfum sem sett eru fram i
kvikmyndum þessum, en mörg
þeirra eru nánast fáranleg i dag.
Frekari umræða um slikt fer þó
ekki fram aö sinni, þvi þar myndi
einum þykja rétt og gott, það sem
öðrum þætti óhæft.
Fullnýting
Kitt er kvikmvndunum sextán
flestum sameiginlegt. Þær eru.
með nokkrum undantekningum.
gamlar myndir. sem eitt sinn
voru ætlaðar fullorðnum og voru
metnar sem slikar
Sumar þeirra eru jafnvel farn
ar að gulna af clli
Þar komum við einmitt að or-
siik þess. Irá hendi kvikmvnda-
hússeigenda. að úrval harna-
mynda er jafn fáfengilegt og raun
ber vitni. Þeir eru að lullnýta
kvikmyndir þær sem eitt sinn
drógu að sér lullorðna. Barna-
kvikmyndir eru til framleiddar
fyrir l>örn. leiknar af börnum og
jafnvel. i stöku tilvikum. gerðar
eftir hugmyndum barna og
kvikmyndahúsaeigendur vita al'
þeim Það er ekki vegna fálræði
og. þegar allt kemur til alls, ekki
heldur vegna þess að kvikmvnda-
húsaeigendur beri hag barna
minna lyrir brjósti en aðrir. að
þeir kaupa ekki til sýninga raun-
verulegar barnamyndir. Það er
einvörðungu vegna þess aö vonin
um aukinn fjárhagslegan ávinn-
ing er sterkari en umhvggjan fvr-
ir yngri borgurum þjóðfélagsins.
Bera ekki
ábyrgð
Kn. við getum ekki varpað
ábyrgðinni á herðar kvikmynda-
húsaeigendum Abyrgðin er okk-
ar sjálfra. Þeir. likt og aðrir
sem reka lyrirtæki. fara það sem
þeir komast og selja dýrt jafn _
ódýra vöru og þeim 1 fðst.
Þaðerum við, foreldrarnir sem
hleypum börnum okkar á barna-
sýníngar kvikmy ndahúsanna.
sem herum ábyrgð á því að þar
hljóta þau. i flestum tilvikum.
mótun sem er gagnstæð þvi sem
við teljum heilbrigt og æskilegt
Það erum við sem berum ábyrgð
á þvi að börnin missa virðingu
lyrir mannslifum. skilja þjófnaði
og rán sem æskileg i ákveðnum
tih ikum og rnota kimnigálu sina
af hrakförum náungans
\ ið sinnum þvi ekki að lylgjast
með þvi hvað horið er á borð fyrir
börn okkar. hugum ekki að þvi
hverjum áhrilum þau verða fyrir
og hvað er haft fyrir þeim. Við
viljum hara ta frið á sunnudögum
milli klukkan hálf þrjú og hall
sex.
Val kvikmvnda i kvikmynda-
húsum hér kemur ekki til með að
breytasl til batnaðar. fyrr en
foreldrar taka höndum saman og
þvinga kvikmyndahúseigendur til
að breyta vali sinu.
Það er kominn timi til að við
látum okkur ekki nægja að njota
unaðshrollsins sem samlara er
lestri frétta af þ\ i að bandariskir
unglingar hafi horft á fimmtán
þúsund morð i sjónvarpi þegar
þau útskrifast úr gagnlræða-
skóla. Morðum og öðru ofbeldi er
einnigda'lt ylir okkar börn og þótt
það sér ef til vill nokkuð orðum
aukið að fullvrða að þaö skaði þau
öll til muna. þá hefur ekkert
þeirra gott af.
Kyrir þá. sem ekki kæra sig um
það, hvað börn þrirra sja og
hevra. má benda a það, að lok-
um. að kvikmvndahusaeigendur
eru. i raun og veru að svikja fé ut
úr þeim með syningum á kvik-
mvndum þessum Þeir taka vöru.
sem ekki er lengur söluhæf selja
hana dýrum dómum og græða
jafnframt vel á sa-lgætissölu
Næst þegar þu reuir barninu
þinu fimm hundruð krónur a
sunnudegi. ihugaðu þá hvað fyrir
þá peninga:æsi
'NDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVI.KMYNDIR — KVIKMYNDIR