Tíminn - 29.08.1976, Page 30
30
TÍMINN
Sunnudagur 29. ágúst 1976
Lónlí Blú Bojs leggja upp
í langferð
og lofa
þrumu-
stuði
LÓNLt BL(J BOJS eru nú aö
leggja upp I sina fyrstu lang-
ferö og hafa nöfn þeirra fjór-
menninga, sem hljómsveitina
skipa, veriö gerö heyrin-
kunn. Hijómsveitin ætlar aö
þeysa um iandiö ásamt friöu
og fönguiegu föruneyti — og er
þaö i fyrsta sinn, sem þessi
vinsæla hljómsveit leikur
opinberiega.
Lonli Blú Bojs skemmta á
Akureyri, Húsavlk, Varma-
hlið, Búöardal, Reykjavik, og
Keflavik og i Aratungu. Á
skemmtununum verður
eingöngu boðið upp á á is-
lenzkt efni og er ekki aöefa að
marga fýsir að sjá hljómsveit-
ina og heyra i henni, einkum
mun vera mikill áhugi á
skemmtun þeirra i Búöardaf,
af skiljanlegum ástæðum.
Skipuleggjandi feröarinnar,
Baldvin Jónsson, afhenti
blaöamönnum eftirfarandi
plagg á blaðamannafundi i
vikunni, þar sem ferðalagið
var kynnt. Fer plaggið hér á
eftir:
„Þar kom aö þvi að eitt b'ezta
varöveitta leynivopn á is-
lenzka poppmarkaönum, Ðe
Lónli Blú Bois, hefur verið
afhjúpað. Þeir Njáll, Páll,
Valdemar og Sörli eru engir
aðrir en Gunni Þórðar, Rúni
Júl., Berti Jensen og Bjöggi
Halldórs. Litlar sem engar
breytingar hafa verið gerðar á
hljómsveitinni, nema hvaö
Þórir Baldursson, mágur
Rúna Júl. hefur gert sér sér-
staka ferð heim frá Þýzka-
landi til að leika með strákun-
um á dansleikjaferð ársins.
Þá hefur Terry Doe (bróöir
hans Lúlla,) einnig slegizt I
hópinn og lemur hann húöir
(enda er Jensen upptekinn
heima i Búðardal.)
Og nú heldur frægðarferill
þeirra sem sé áfram, eða hver
man ekki eftir laginu Mamma
grét? Ekki haföi það og ótal
fleiri lög meö hljómsveitinni
verið lengi á vinsældarlistum
á Hólsfjöllum og viðar þegar
þeim félögum bárust tílboð
um að fara i dansleikjaferða-
lag um rigninga- og þurrka-
svæði landsins og af þvi aö svo
heppilega vildi til, aö þeir
höfðu ekkert sérstakt fyrir
stafni næstu vikurnar slógu
þeir til. Til marks um vinsæld-
ir þeirra og til marks um, aö
ekkert verði til sparað til aö
gera þjóðinni ferö þeirra ó-
gleymanlega, má neöia að
framleiddir hafa verið minja-
gripir s.s. merkiþeirra félaga,
bolir og auglýsingaspjöld. Þá
fær hundraðasti hver gestur
frltteintakafLónlIBlú Bois 12
laga hljómplötu.
Karnabær hefur tekið aö sér
að hressa upp á útlit
drengjanna og háðfúglarnir
Halli, Laddi og Gisli Rúnar
munuhalda gestum við efnið 1
hléum og munu þeir m.a.
stjórna plötuspilurum, (á ó-
geöfeldri islenzku kallað
diskótek), þar sem leikin
verða eingöngu islenzk lög
m.a. af gullplötum Lónli Blú
Bois o.m.fl.
Eitt er vist, að þær eru ófáar
heimasæturnar, sem vart geta
vatni haldið, þegar þær heyra
lög eins og „Harðsnúna
Hanna”, eöa „Það blanda allir
landa upp til stranda”. Og er
ekki að efá, að þjóðin mun
taka hljómsveitinni opnum
örmum þá loksins hún kemur
fram á sjónarsviðið.
Gústi verður aðalrótari og
Tómas Tómasson, bassaleik-
ari Stuðmanna, mun annast
ýmis konar tækniþjónustu, s.s.
hljómblöndun ofl. Valið liö
vina og vandamanna veröur
og með i förinni og dugir
ekki minna en 36 manna lang-
ferðabifreið undir mannskap
og tækjakost.
Þeir félagar hafa undirbúið
ferð þessa sérstaklega vel og
mun hápunktur hennar verða
kynning á lögum af nýrri
hljómplötu, sem koma mun út
i byrjun október og mun bera
nafii ferðarinnar „Lónll Blú
Bois á ferð”.
Islendingar, við munum
ekki bregðast trausti þvi, sem
þið hafið sýnt okkur.....þvi
nú verður þrumustuð.”
Lónii Blú Bois hafa nýlokið upptöku á nýrri hljómplötu,
sem mun vera væntanleg á markað um mánaðarmótin
september og október. 1 þessari ferð mun hljómsveitin
leika nokkur lög af þessari væntanlegu piötu. A myndinni
eru Lónli Blú Bois t.f.v. Engilbert Jensen, Gunnar
Þórðarson og Rúnar Júliusson. Sá sem krýpur er svo
Björgvin Halldórsson.
Kandíflossið gekk ekki út
HANN var dálitið sérkennilegur
blaðamannafundurinn, sem Stuð-
menn efndu til á miðvikudags-
kvöidið, I tilefni af útkomu ann-
arrar breiðskifu hljómsveitarinn-
ar, sem hlotið hefur nafnið
„Tivoli”.
Blaðamenn voru rétt búnir að
tilla sér i stólana, berja hina ein-
kennilegu klæddu Stuðmenn aug-
um og undrast kertaljósin og
kandiflossiö, þegar einn Stuð-
mannanna, Valgeir Guðjónsson,
hófupp raustslna úr þar til gerðu
púlti.
Hann sagöi orörétt:
Stuömenn, blaðamenn og aðrir
menn!
Við erum allir Islendingar,
þrátt fyrir allt og þess vegna hef-
ur þessi fundur verið boöaöur.
Ekkert er okkur jafnfjarri og er-
lend áþján og þess vegna er það
alveg ákveðið að platan „Tivoli”
verður gefin út á Islandi, hvað
sem tautar og raular — er hér að-
allega átt við raulið.
Fyrirspurnir?
Fyrir allmörgum árum þ.e.a.s.
17 árum kostaði kandiflossslurk-
urinn eina krónu og þótti mikiö.
Ég ætla ekki aö nefna neinar töl-
ur, en biðja ykkur um að gæða
ykkur á froðunni.
Sem kunnugt er hefur veðrið
leikið okkur grátt I sumar, en svo
einkennilega vili til þá hét fyrri
plata Stuðmanna „Sumar á Sýr-
landi” og þvi þótti okkur rétt að
láta þessa plötu heita „Sumir i
Tivoli”.
Að lokinni ræðu hans var hin
nýja plata Stuðmanna leikin og
sátu menn þögulir og alvarlegir á
svip þann tima, ef frá er skilið
það timabil er plötunni var snúið
við, en þá upplýsti Egill ólafsson 1
að platan væri hálfnuð. Ennfrem-
ur óskaði hann eftir fyrirspurnum
ef einhverjar væru. Ein fyrir-
spurn barst og var hún á þá leið,
hver blési i saxafón á plötunni.
Spyrjandi fékk greinargóð svör
frá Agli, sem nafngreindi þar ein-
hvern Breta.
Siðan hlýddu menn á siöari
hluta plötunnar, jafnþögulir og
alvarlegir sem áöur — og enginn
snerti við kandiflossinu. Þess i
stað gleyptu menn einn og einn
súkkulaðismola, en gotteriskálar
voru á borðum hafðar.
Þar kom að þvi að plötunni lauk
um siðir og var kandiflossið þá
orðið heldur aumingjalegt á að
lita. Nú báðu Stuðmenn um
spurningar og var m.a. spurt um
hina fjóra trommuleikara, sem á
plötunni spreyta sig og fiöluléik-
Rokkhátíd ársins
í Laugardalshöll
% Verður gefin út plata frá
hljómleikunum og tekinn upp
sjónvarpsþáttur?
A MIÐVIKUDAGSK VÖLDIÐ
verður haldin i Laugardalshöli-
inni ein mesta rokkhátið , sem
haldin hefur veriö hérlendis, en
hér er um að ræða sviösetningu
Óttars Haukssonar á hijómsveit-
unum Paradis, Cabaret, Fresh,
Celsfus og Eik. Hljómieikarnir
liefjast kl. 20:30 og að sögn Óttars
er áætlaö aö þeim ijúki skömmu
fyrir miönætti.
Óttar hefur gefið þessari hátið
nafnið ,,Rock ’n’roll festival”.
Allar hljómsveitirnar, sem
koma fram á hátiöinni, flytja að
einhverju leyti frumsamið efni,
og sumar þeirra munu eingöngu
flytja frumsamið efni. Paradis
mun, ef að likum lætur flytja lög
af plötusinni, sem nýlega kom út
og Eik mun, að sögn Óttars, flytja
eingöngu frumsamið efni aö
stórri plötu, sem hljómsveitin er
byrjuð að taka upp. Óttar sagði
ennfremur i viðtali við Nú-tim-
ann, að svo kynni að fara, að
Celcius flytti einnig frumsamiö
efni eingöngu.
Fresh og Cabaret munu svo
flytja eitthvað af frumsömdum
lögum.
Tony Cook, hinn kunni brezki
hljóöstjórnunarmaður, sem
starfað hefur i stúdiói Hljóðrita,
hefur verið fenginn til þess aö sjá
um hljóöblöndun á staðnum (ekki
blöndun á staðnum) og sagði
Óttar, að hugsanlega yrði gefin út
„live” plata frá þessum hljóm-
leikum.
— Ef, ,sándiö” i Höllinni verður
gott, er ekkertþvitilfyrirstöðu að
taka upp góða plötu frá þessum
hljómleikum, sem myndi þá sýna
islenzkt rokk 1976 I hnotskurn,
sagði Óttar.
Þegar Óttar átti tal við
Nú-timann i vikúnni, voru hafnar
samningaviöræður milli hans og
Jóns Þórarinssonar hjá Lista- og
skemmtideild sjónvarpsins um
sjónvarpsrétt af hljómleikunum.
— Það sem sérstaklega vakir
fyrir mír I sambandi við sjón-
varpið, er aö koma þessum
hljómleikum til Norðurlandanna I
formi sjónvarpsþáttar. Þátturinn
yrði að visu sýndur I Islenzka
sjónvarpinu, en ég tel miklu
meira virði, ef hægt yrði að selja
slikan þátt til norrænna sjón-
varpsstöðva, sagði Óttar.
Þá eru einnig I bigerð samingar
við rikisútvarpið um rétt til að
taka upp útvarpsþátt.
Ingólfur trom m u leika ri
Cabarets slasaðist alvarlega i’ bil-
slysi I Kópavogi fyrir rúmri viku
og getur þvi eldd leikið með
hljómsveitinni á næstunni.
Cabaret hefur þvi fengið Ara
Jónsson, fyrrum trommuleikara i
RoofTops ognú iPónik til þess að
taka sæti hans á hljómleikunum.
Að sögn Óttars, er gert ráð fyrir
þvi, að hver hljómsveit leiki i 30
til 45 minútur og verða tvö svið i
Laugardalshöllinni, þannig að
litill timi ætti að fara I óþarfa bið.
Sviðsetning hljómleikanna er
unnin i samvinnu við Leikfélag
Reykjavikur.
Verð hvers aðgöngumiða er
2000 krónur eöa svipað og selt
hefur verið inn á sveitaböll að
undanförnu.
-Gsal-
Hljómsveitin Cabaret hefur oröið
fyrir miklu áfalli, þar sem
Ingólfur trommuleikari slasaðist
aivarlega fyrir skömmu i bilslysi.
Ari Jónsson mun taka sæti hans á
rokkhljómleikunum.
Stuðmenn, blaðamenn og aörir menn. Nú-timamynd: Gunnar
ara, sem er franskur og kom i
sinni fyrstu „session” með Stuð-
mönnum.
— En hvar eru hinir tveir Stuö-
manna? spurði einn blaðamanna,
þvi hvergi voru sjáanlegir þeir
Jakob Magnússon og Þórður
Arnason.
— Þeir eru fjarverandi!!!
sagöi Valgeir og bætti við nokkru
siðar, aö annar væri úti i bæ, en
hinn út i löndum.
Þóttu þetta hin skilmerkileg-
ustu svör.
Um þessa nýju plötu sögðu
Stuðmenn aö á henni væru þeir að
reyna að endurtaka sem minnst
frá fyrri plötunni, ..Sumar á Svr-
landi”. — Það verða engar fram-
farir, ef ekki er leitað að nýjum
formúlum sögðu þeir.
Þaðkomennfremurfram, aö fá
lög hefðu orðið til I Smyrli, hins
vegar hefði eitt lagið orðið til við
Lock Ness vatnið I Skotlandi.
Textarnir hefðu aftur á móti
flestir oröið til á veitingahúsum i
Englandi, sem þar lendir nefna
„pöbba” að þvi er Valgeir tjáði
mönnum.
Ekki vildu Stuðmenn láta
mynda sig eina og sér, sögðu að
myndiraf blaðamönnum væru fá-
séðar 1 blöðum og óskuöu eftir
þvi, að blaöamenn létu mynda sig
með plötunni — og gátu blaöa-
menn ekki skorazt undan sliku
boði og létu mynda sig.
Stuðmenn kröfðust þess einnig
að uppstillingin yröi svipuö og hjá
nýkrýndum Islandsmeisturum
Vals i knattspymu. —Gsal—