Tíminn - 02.10.1976, Blaðsíða 1
Ali leggur hanzkana á hilluna
't
Sjá íþróttir
'ÆHGIRP
Áætlunarstaðir:
Bíldudalur- Blönduós- Búðardalur
Flateyri-Gjögur-Hólmavík
Hvammstangi-Rif-Reykhólar
Sigluf jörður-Stykkishólmur
Súgandaf jörður
Sjúkra- og leiguflug
um allt land
Símar: C* gm
2-60-60 og 2-60-66
$^\
221. tölublað — Laugardagur 2. október—60. árgangur
mflagnir
í virkjanir — hús
verksmiðjur — skip
SAMVIRKIS*
Skemmuveqi líkpílil'jý
Kópavogi *^°t*^
Fangj á Litla-Hrauni:
Afneitun þjóðfélagsins
rfiðasta vandamálið
Klefahurð á
Litla-Hrauni
(Tímamynd: G.E.)
Gsal-Reykjavik. — Okkúr er
næstutn þvi gert ókleift aö
veröa teknir sem gildir þjóöfé-
lagsþegnar, eftir aö við höfum
setiö af okkur dóm hérna á
Litla-Hrauni, sagði einn fang-
anna, sem Timinn talaði viö í
gær á vinnuhælinu.
Hann sagði að það sem
reyndist langerfiðast, eftir að
hafa dvalið á Litla-Hrauni
væri það, að fá húsnæði og
vinnu. — Ég hef verið hér oft,
sagði hann, og margsinnis hef
ég haft loforð um það frá
Vernd og fleiri aðilum að bæði
húsnæði og vinna biöi min,
þegar ég væri laus. Svo þegar
ég losna og athuga hvað er til i
þessu, kemst ég að raun um
það, að þetta eru bara oröin
tóm. Þá fer ég að leita mér
að atvinnu sjálfur og fer
kannski á átta vinnustaði og
fæ jáyrði á þremur eða fjór-
um. En þegar ég segi þeim að
ég hafi -afpiánað dóm á
Banaslys
á Akureyri
ASK-AKREYRI. —
Banaslys varð í umferð-
inni á Akureyri klukkan
rúmlega ellefu í gær-
morgun, þegar Daníel
Sveinbjörnsson, bóndi í
Saurbæ i Eyjafiröi, lézt
af völdum áverka er
hann hlaut í bifreiðaá-
rekstri.
Slysið varð með þeim
hætti, að Daníel heitinn,
sem var einn í fólksbif-
reið sinni, ók niður Þór-
unnarstræti og út á
Glerárgötuna, en lenti
þar í veg f yrir áætlunar-
bifreiðina frá Dalvík
sem var á leið inn í bæ-
inn. Skipti það engum
togum að bifreiðarnar
lentu harkalega saman.
Daníel Sveinbjörnsson
var þegar fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið,
en lézt þar skömmu síð
ar. — Enginn slasaðist í
áætlunarbifreiðinni.
„Hrauninu" kemur annað
hljóð i strokkinn, þá er ég beð-
inn um að koma aftur og þetta
verði athugað. Og endirinn
verður alltaf sá, að maður
gefst upp — og þá endurtekur
sig alltaf sama sagan, sagði
hann.
SJA NANAR UMHEIM-
SÓKN TIMAMANNA Á
LITLA-HRAUN A BAK-
SÍÐU.
Níu af hverjum tíu
hafa nú sagt upp!
— hjúkrunarfræðingar á Landakoti og Borgar-
spítalanum með hópaðgerðir vegna launamála
HV-Reykjavik. — Meira en níu
af hverjum tiu hjúkrunar-
fræðingum, sem fastráðnir
eru hjá Landakotsspitala, og
r ú m 1 e g a helmingur
hjúkrunarfræðinga Borgar-
spítalans hafa nú sagt upp
störfum sfnum, vegna
óánægju með kjaramál.
Uppsagnir þeirra miðast við
áramót, en búast má við að
heimild til að framlengja
uppsagnarfrest um þrjá mán-
uði verði notuð, þannig að
uppsagnirnar miðist við þann
1. april á næsta ári.
— Það er rétt, að hjúkrunar-
fræðingar hafa almennt sagt
Mikil óánægja rikir meðal
hjúkrunarfræðinga á Landa-
kotsspitala, svo og á
Borgarspitalanum.
upp störfum sinum hjá okkur
og nú hafa meira en niutiu
prósent þeirra sent inn
uppsagnarbréf, sagði Sólveig
Kaldalóns, forstöðukona á
Landakotsspitala, i viðtali við
Timann i gærkvöldi.
— Þetta mun vera vegna
kjaramála, sagði Sólveig enn-
fremur, en meira veit ég ekki,
þar sem engar viðræður hafa
enn farið fram. —
Timinn hafði i gærkvöldi
einnig samband við Hauk
Benediktsson, forstöðumann
Framhald á bls. 15
„Hef engan
bústað
selt Birgi"
— segir Sveinn R.
Eyjólfsson
- ÞETTA er úr lausu lofti
gripið, ég k.annast ekki við að
hafa sélt Birgi Isleifi
Gunnarssyni nokkurn sum-
arbústað, sagði Sveinn R.
Eyjólfsson, framkvaemda-
stjóri Dagblaðsins „ i viðtali
við íimann I gærkvöldi.
1 Alþýðublaðinu i gær var
frétt þess efnis, að Birgir ts-
leifur Gunnarsson, borgar-
stjóri, hafi i sumar fest kaup
á sumarbústað i Svinahlið i
Grafningi. Segir blaðið að
bústað þennan hafi hann
keypt af Sveini R. Eyjólfs-
syni, en sem kunnugt er kom
Sveinn mjög við sögu i Ár-
mannsfellsmálinu og hafði
milligöngu um milljónina,
sem Armannsfell lagði tií
Sjálfstæðishússins.
Blaði tókst ekki að ná sam-
bandi við Birgi Isleif i gær,
enda mun hann ekki vera á
landinu. H.V
Hafrann-
sókna-
stofn-
unin: ,
Brýnt að auka sókn í skarkola
— stofninn getur gefið 10 þús. tonn árlega, en aðeins rúm 4 þús. voru
veidd á s.l. ári
gébé Rvik. — Talið er
brýnt að auka sókn I
skarkolann, en stofninn
er talinn geta gefið af
sér 10 þúsund lestir ár-
lega, en á sl. ári voru
aðeins veiddar af hon-
um um 4.400 lestir. Þá
er einnig talið að veiða
megi töluvert af skar-
kola i Faxaflóa og
Hafnaleir, án þess að
um teljandi þorsk- og
ýsuafla sé að ræða. Að
þessum niðurstöðum
komst leiðangur, undir
stjórn Guðna Þorsteins-
sonar hjá Hafrann-
sóknastofnun er veiði-
tilraunir voru gerðar
með dragnót á fyrr-
nefndum svæðum um
s.l. mánaðamót.
— Tilgangur leið-
angursins var að kanna
veiðimöguleika I drag-
nót með 170 mm möskv-
um með sérstöku tilliti
til þess i hvaða magni
ýsa og þorskur veiöist
og þá af hvaða stærð. 1
ljós kom, að skarkola-
afli var yfirleitt góður
eða um 500 kg i kasti að
jafnaði, á beztu veiði-
svæðunum. Þorsks og
ýsu varð sjaldnast vart
og á þvi svæði, sem
mest veiddist, var með-
alafli i togi aðeins 5 kg.
af þorski og 2. kg. af
ýsu. Viða varð alls ekki
vart við þessar- tegund-
ir.
— Það hefúr litið verið
sótt eftir skarkola, en
hann fer inn á bönnuð
svæði, þar sem drag-
nóta- og botnvörpuveiði
er bönnuð, en þetta eru
einu veiðarfærin sem
skarkoii veiðist i, sagði
Guöni Þorsteinsson. —
Þá er spurning hvort
ekki megi opna þessi
bönnuðu svæði, með þvi
að nota mjög stóra
möskva eða 170 mm. i
pokunum, og þvi slepp-
ur allur smáfiskur
Skarkoli veiðist meira
og minna i kringum
land allt, þar sem drag-
nótaveiði er stunduð.
Fyrrnefndur leiðang-
-
ur var farinn dagana 29.
ágúst til 3. september á
vegum Hafrannsókna-
stofnunar á vélbátnum
Baldri frá Keflavik.
Auk þess afla, sem að
framan hefur verið lýst,
var smálúðuafli i togi
viðast um 30-60 kg. að
jafnaði. Meðalstærð
allra tegundanna að
hiöu undanskilinni, var
mjög há.
í kapphlaup við meltingarveginn — Sjá bls. 2