Fréttablaðið - 21.11.2005, Qupperneq 12
12 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
NÁTTÚRAN Fílar hafa drepist unn-
vörpum úr þorsta í þjóðgörðum
Simbabve vegna þess að vatns-
veitum er ekki haldið við. Engir
fjármunir eru til viðgerða því
landið rambar á barmi gjald-
þrots.
Efnahagur Simbabve er herfi-
legur, verðbólga þar er rúmlega
400 prósent og gjaldeyrisforði
landsins er því sem næst uppur-
inn. Íbúar landsins búa við afar
kröpp kjör og dýrin í landinu
hafa ekki heldur farið varhluta
af ástandinu. Vatnsból í þjóð-
görðum landsins eru nánast að
þorna upp af því að vatnsleiðsl-
ur, borar og dælur hafa grotnað
niður vegna viðhaldsleysis eða
orðið fyrir barðinu á skemmdar-
vörgum og þjófum. Ekkert fé er
til að bæta tjónið.
Breska blaðið Independent
segir að á þessu ári hafi 400
fílar dáið úr þorsta í stærsta
þjóðgarði landsins en einnig
hafa antílópur, bufflar og fleiri
dýrategundir drepist í stórum
stíl. Það sem gerir ástandið svo
sárgrætilegt er að gnótt vatns er
í þjóðgörðunum en búnað skortir
til að dæla því og flytja það.
Þá eru einhver brögð að því
að fólk skjóti sér dýr til matar
og hafa þjóðgarðsverðir engin
tök á að bregðast við ástandinu
vegna þess að ekkert bensín er
til á bíla þeirra. - shg
Ófremdarástand ríkir á verndarsvæðum dýra í Simbabve:
Fílarnir að sálast úr þorsta
ÞORSTINN SLÖKKTUR
Fílarnir í Kenía hafa nóg vatn að
drekka en frændur þeirra í Simb-
abve búa við sáran þorsta.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGGÆSLA „Það var einhugur um
það á þessum fundi að menn vildu
ekki að tvær sýslur yrðu tekn-
ar af Vestfjörðunum og skipað
undir Borgarnes,“ segir Einar Örn
Thorlacius, sveitarstjóri í Reyk-
hólahreppi. Framkvæmdanefnd
um nýskipan lögreglumála boðaði
til fundarins sem haldinn var á
miðvikudag og kynntu nefndar-
menn þar tillögur sínar um til-
færslu lögreglustjórnar.
Samkvæmt þeim tillögum er
gert ráð fyrir að tvær af fimm
sýslum Vestfjarða, Austur-Barða-
strandarsýsla, þar sem Reyk-
hólahreppur er, og Strandasýsla
tilheyri lögreglustjóranum í Borg-
arnesi. Mætti sú tillaga mikilli
andstöðu.
Einar Örn lagði hins vegar fram
þá tillögu að Búðardalur, Reykhól-
ar og Patreksfjörður yrðu sett í
eitt umdæmi en það féll í grýttan
jarðveg að hans sögn.
Guðmundur Guðlaugsson segir
á fréttavef Bæjarins besta að Vest-
firðingar sem fundinn sátu hafi
verið sammála um að ef fara ætti í
sameiningu lögregluumdæma ætti
að sameina Vestfirði í eina heild.
„Framkvæmdanefnd er vandi
á höndum. Annars er mér sama
undir hvern við erum settir, ég vil
aðeins að löggæslan hér verði sem
best,“ segir Einar Örn. - jse
Fundur framkvæmdanefndar um nýskipan lögreglumála:
Vestfirðingar standa saman
REYKHÓLAR Sveitin milli umdæma. Nefnd-
armönnum er vandi á höndum með það
undir hvern þeir eiga að setja löggæsluna á
Reykhólum.
DÓMSMÁL Maður fær ekki frekari
bætur frá konu sem á hann ók í
Strandgötu á Akureyri árið 1998.
Hæstiréttur staðfesti fyrri dóm
Héraðsdóms Norðurlands eystra
þar sem kröfum mannsins var
hafnað, en í Hæstarétti krafðist
hann tæpra 7 milljóna króna, auk
málskostnaðar.
Fram kom í héraðsdómnum
að árið 1998 var maðurinn 36 ára
gamall háseti á frystitogara. Hann
var svo drukkinn á Strandgötunni
að hann átti erfitt með gang, en
þar stóð hann og lamdi í bíla sem
leið áttu hjá. Þegar konan ók hjá
vildi ekki betur til en svo að mað-
urinn missti jafnvægið og datt með
annan fótinn undir bílinn. Taldi
Hæstiréttur, eins og héraðsdóm-
ur, að maðurinn hefði sýnt af sér
stórkostlegt gáleysi og konan hefði
ekki getað afstýrt slysinu. - óká
Datt fyrir bíl á Akureyri:
Drukkinn átti
að passa sig
DÓMSMÁL 26 ára gamal Patreks-
firðingur var ekki viðstaddur
dómsuppkvaðningu í Héraðsdómi
Vestfjarða á miðvikudag þar sem
hann var dæmdur í mánaðarfang-
elsi fyrir fíkniefnabrot.
Þar sem um fyrsta brot manns-
ins var að ræða var dómurinn
skilorðsbundinn í tvö ár.
Maðurinn játaði sök fyrir Hér-
aðsdómi Vestfjarða. Hann sagðist
hafa keypt fíkniefnin síðastliðið
sumar og selt hluta þeirra en þó
ekki allt.
Lögreglan gerði um 2,5 grömm
af amfetamíni, 2 grömm af kóka-
íni og 10 e-töflur upptækar af
manninum. - óká
Patreksfirðingur dæmdur:
Mánuður fyrir
fyrsta brotið
HITLER KAPÚT Á skiltinu sem þessi maður
heldur á stendur á rússnesku „Hitler
kapút“, sem þýðir að Hitler sé fallinn.
Maðurinn bar þetta skilti á útifundi
í Moskvu í gær þar sem rússnesku
þingkonunnar Galinu Starovoitovu var
minnst, en hún var myrt árið 1998. MYND/AP