Fréttablaðið - 22.11.2005, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR
Í Sólarlagsborg er meðalaldurinn sjötíu og sjö. Þar svamla íbúar
í sundlaugum, bruna um græna
velli í golfkerrum, sötra sjerrí á
ströndinni, borða plómur af trján-
um, fylla pilluskápa af gleðigjöf-
um, spila rommí undir pálmun-
um og hverfa svo inn í sólarlagið
á hvítum kadilakk þegar kallið
kemur. Fæstir eldri borgarar fá
þó þetta forskot á himnaríki. Víða
í henni veröld er svo komið að
aldraðir rölta um stræti stórborga
með aleiguna í innkaupakörfu og
leggjast til svefns undir pappa-
spjöldum utan af neysluvarningi
nútímans. Aðrir leita í skýli heim-
ilislausra og fylla þar svefnsali.
Í New York borg búa átján prósent
aldraðra við eða undir fátæktar-
mörkum. Þrjátíu og fimm þús-
und einstaklingar á öllum aldri
eru þar heimilislausir. Svona er
ástandið þó ekki á landinu bláa,
segjum við og dæsum. Löngum
hefur þó landinn freistast til að
líta fremur vestur en austur í leit
að fyrirmyndum, en sérfróðir
segja Íslendinga vera nokkrum
áratugum á eftir öðrum Norður-
löndum hvað varðar vistunarmál
aldraðra. Leitin að hinum milda
meðalvegi er endalaus.
KAUPKRAFTUR landans hefur
aukist stórlega, segja ráðamenn
á Fróni stoltir og leggja fram
skýrslur og línurit. Tölur má lesa
eins og ljóð – sitt sýnist hverjum
og lesandinn fær það út úr lestr-
inum sem hann sjálfur vill. Kjör
aldraðra Íslendinga batna minnst,
segja talsmenn þessa minnihluta-
hóps sem við munum þó vonandi
öll fylla í mis náinni framtíð.
Kaupmáttur aldraðra hefur í
raun rýrnað frá því fyrir sextán
árum, segja þessir talsmenn eldri
borgara.
ÖLDRUÐ kona þjáist af næring-
arskorti á elliheimili í Reykjavík.
Þar hefur hún brotnað nokkrum
sinnum áður en hún mætir dauða
sínum eftir hátt fall í hjólastól
niður stiga. Á hjúkrunarheimili
kúldrast margir í sama herbergi
líkt og í sumarbúðum barna.
Einkalíf er ekki til staðar og heila-
bilaðir eru með heilbrigðum í
herbergi. Bil á milli rúma er í 200
millimetrum þar sem hagræð-
ingin er mest. Gripið hefur verið
til þess að gefa öldruðum svefn-
lyf vegna þrengsla. Við reisum
háskóla í hverjum hreppi. Það er
þjónusta við fólk sem hefur bol-
magn til að gera kröfur. Þeir sem
byggðu grunninn að hamingjuhöll
nútímans ættu kannski að fá að
gista hana líka. ■
Sólarlagsfólkið
Fagleg ráðgjöf og ítarleg úttekt á stöðu þinni komi til áfalls
SPRON Tekjuvernd Núverandi sparnaður, áunnin lífeyrisréttindi og tryggingar vegna alvarlegra sjúkdóma, slysa eða andláts
tryggja þér tiltekið hlutfall
af núverandi tekjum.
SPRON
Tekjuvernd
Veistu hvernig þú stendur? Pantaðu ráðgjöf í síma 550 1400 eða á www.spron.is
SPRON Tekjuvernd er í samvinnu við KB líf – fyrir allt sem þú ert
Tryggir
þér þær tekjur
sem þú kýst
komi til áfalls
+ = Him
in
n
o
g
h
a
f
/
SÍ
A