Alþýðublaðið - 09.08.1922, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið
öefið át af Alþýðuflokknum
5922
Miðvikudaginn 9. ágúst.
1,80 tölnblað
Gerhveiti, bezta tegund, í pökkum, nýkomið. Kaupfélagið.
vpsstaðahzlið.
Eins og ég hefi getið uni áður
liggur aðaloísök þeirrar óreiðu,
sem er og hefir verið á Vifilataða
hælinu b]á yfirhjúkrunarkonu þess
ungfrú Davide Varancke. Eg hefi
athugað nákvæmlega framkomu
þeirrar persónu frá ýmaum hlið-
um og niðurstaðan er sú að slfk
atúlka sem hún ætti ekki að Ifð
ast á nokkrum spitala og allra
síst berklaveikrahæli.
Menn hafa ef til vill misskilið
það sem sagt var um hjúkrunar-
liðið i síðustu grcin; þar með var
ekki meint að alt hjúkrunarliðið
væri illa liðið af sjúkiingum eða
ófært til starfa sins; það er Iangt
frá að svo sé I síðustu grein vóru
tvær tilnefndar, yfithjúkrunarkon-
an, og önnur, sem nú mun vera
farin af hælinu.
Nú eru á hælinu tvær hjúkrun
arkonur, (fyrir utan ungfrú Varancke
rjog nemendur); sem sé þær Sig
ríður Magnúsdóttir og Una Sig
tryggidóttir; báðar hafa þær ver
iö lengi við hælið, rækt störf sín
vei og verið nærgætnar og um-
burðarlyndar við sjúkiinga. Um
þær hefi eg gott eitt að segja og
engann af sjúklingum Vífilstaða
hefi ég heyrt tala illa um þær;
j>að er þó ekki létt að vera góð
og samvizkusöm hjúkrnnarkona
undir stjórn ungfrú Varancke og
frá mörgu gætu undlrmcnn henn
ar sjálfsagt sagt, sem ótrúlegt
þætti, ef það kæmi fram f dags
ins Ijós. Þzð hcfir verið svö á hæl
inu, að ef þangað hafa komið nem
endur (( hjúkruo) sem sjúklingum
hefir lík&ð vel við, hefir þeim ver-
ið komíð burtu það fljótaata. Fuli-
nægjandi orsakir fynrfinnant ekki
nema ef vera skyldi ein — yfir-
hjúkrunarkonan.
Þetta er ekld fleipur útí loítið,
heldur staðreynd, sem kunnugir
munu sanna. Þegar ég kom að
Vifilsstöðum var þ»r hjúkrunar-
nemi, ung og góðstúlka, semöli-
um sjúklingum Hkaði vel wið og
sern alstaðar kom fram til góðs
— Hún vár rekin fyrir hlæilega
litlar sakir ef • sakir skyidu kali-
ast, þrátt fyrir mótmæii og gremju
sjúklinga og það var ungfrú Var-
ancke sem stjórnaði því
Slíkt atvik mun hafa kornið fyr-
ir nýlega á Vifilstöðum.
Ég hefi áður tekið fram að
reglurnar verður að halda, það er
sjúklingum fyrir beztu og hjá þvf
verður ekki komist. En það er
öðru nær en að eftirlitið eigi að
fara fram með vondsku og iíiind-
um eins og nú (af hálfu ungfrú
Varancke), heldur með lipurð og
kurteisi, það er bezta og eina
ieiðin, þvi eins og áður greinir,
fara menn ekki á heilsuhæii til
þess að meðtaka ruddaskap og
ókutteisi, heldur til að iáta sér
llða vel og vel getur mönnum
þvf aðeins liðið á siíkum stað að
þeir verði ekki fyrir ónotum og
ósanngirni af yfirbóðurum sfnum,
enda tefur ait slíkt stórkostiega
fyrir bata tæringarveikra manna,
því reiði og aköf geðshrædng get-
ur valdið blóðspýju og öðru verra
hjá hjartveikum og tangaveikluð-
um mönnum og þeir eru margir
á heilsuhælunum, þvf sjúkdómur-
inn veikir hjartað og taugarnar.
Hvað viðvíkur ungfrú Unu og
ungfrú Sigriði, býst ég við að
lífið sé þeim aonað en létt undir
stjórn yfirhjúkrunarkonunnar, þó
ég hafi auðvitað ekki leifi til að
fuliyrða neitt um það, cn ég veik
fyrir vfst að lipurð við sjúklinga
og manngæzka eru ekki í háu
verði hjá ungftú Varaccke.
Hversyegna er nú þessi yfir
hjúkrunarkona liðin á Vífilstöðum?
Þsnnig spyrja raargir sem eru
sannleikanum kunnugir að ein
hverjii leiti.
Ég held að aðaUstæðan sé sú
að Isekni hælitins sé ókunnugt
um hennar hversdags framferði á
spitalanum, því fiamkooia uugfrú
Varancke er öil 'ónnur við lækn-
irinn en sjúklingana.
Það sem að framan er greint
sýnist nú ef til vill ótrúiegt, en
svo verður um flest það er segja
má um ungfrú Davide Varancke
sem hjúkrunarkonu, þó aannleik
anum sé nákvæmiega filgt
Og þetsl sannieikur má ekki
kyr liggja. (Nl.)
Velhunnugur,
Frá ísafirðL
Starfsemi Samverjans.
Slðustiiðinn vetur hóf Samverj-
inn liknarstarfsemi sfna hér með
marzmánuði. En hún er fólgin í
því, eins og kunnugt er, að öreiga
fólki, sem hefir lítinn eða engan
sveitastyrk, er gefinn heitur matur
um erfiðastm tima vetrarics, út-
mánuðiua. •
Var úthlutað als 4046 máltíðum,
en það var nær 100 máltfðum á
dag að jafnaði, meðan matgjafirn-
ar stóðu yfir. 70 börn frá 2E
heimili og 15 gamaímenni og
fullorðnir frá 11 heimilum, urðu
hjálpar þessarar aðnjótandi. Fáein
heimili fengu auk þessa talsvert
af soðnum og ósoðnum mat send-
an heim.
Húsnæði og eidivið hafði starf-
semin ókeypis, og er það ekki
metið til verðs né tilfært í fjár
bagsyfirlitinu, Alt annað er fært