Tíminn - 08.01.1977, Blaðsíða 8

Tíminn - 08.01.1977, Blaðsíða 8
8 Laugardagur 8. janúar 1977 Urð og grjót og litlir grasgeirar inn á milli. Sigvaldi Jóhannesson: Hvernig finnst gróðurrýrnun vegna ofbeitar kindurnar 429 þús. og ennþá tæplega ein til samanburðar við tvær núna. Arið 1890 voru þær 446 þús. og þá komst talan loks- ins yfir helming núverandi fjár- tölu. Uppblásturinn hefur þvi naumast stafað af fjölda sauð- kindanna á átjándu og nitjándu öld. Arið 1920 var féð hins vegar orðið 579 þús. Þá fór að draga úr jarðfokinu. Siðan hefur fénu fjölgað um 285 þús. og sú fjölgun nemurhærri tölu en fjártölunni allri árið 1703, en samtimis hef- ur landið gróið mikið, að minu áliti. Ég sé þó að næst bæjum, þar sem féð bitur mest, er minna hris á jörðinni, heldur en lengra frá. Af þessu dreg ég þá ályktun að féð eyði hrisinu, en jafnframt eyði það þykkum mosa, sem viða hindrar svo grassprettu, að undir honum er flag. Hann liggur á þúfunum eins og hrúður á sárum, þar sem jörð er litið bitin. Aftur á móti 1 landgræðsluáætlun landnýt- ingar og landgræðslunefndar, bls. 61-63, er tafla yfir gróður- eyðingu, nýtingu og möguleika til hagsbóta i öllum sýslum á Is- landi, gerð eftir upplýsingum heimamanna á hverjum stað. Þar hefur hvaðeina, sem til greina kemur, sinn dálk og öllu gefnar einkunnir, i hverri sýslu fyrir sig. Þar á meðal er upp- blástur og gróðurrýrnun vegna ofbeitar, sem ég vil gera að um- talsefni i eftirfarandi linum, vegna þess að búféð eða sauðféð er talið hafa umtalsverð áhrif á gróðurástand landsins. Ekki vil ég efa að gróðurryrn- un eigi sér stað hér og þar en hittskil ég ekki, hvernig menn geta vitað, að orsök hennar sé ofbeit.Mig undrarþað mikið, ef menn geta aðgreint ofbeitará- stæðu frá öðrum orsökum gróð- urrýrnunar, til dæmis afleið- ingu skarahriða, vor- og sumar- kulda og áhrifum frá jarðklaka. Að öllu sliku ónefndu virðist of- beitareinkunn benda til þess, að slæmt veðurfar sé talið gróðrin- um óviðkomandi. Varla munu menn þó lita þannig á, en þá finn ég heldur ekki samræmi i töflunni. Hvernig sem ég velti þessu fyrir mér, þá finnst mér alltaf að gróðurrýrnun vegna ofbeitar sé rangnefni, en upp- blástur enginn til vegna ofbeit- ar. Skýringu vil ég gefa i fáein- um orðum. Um nokkurra ára skeið hefur eftirtekt min dálitið beinzt að gróðurfarslegu útliti jarðarinn- ar, þar sem ég hefi átt leið um. Auðvitað hefi ég tekið mest eftir þvi meðfram þjóðvegunum, en hér er þó ekki um að villast. Grassvörðurinn hefur eyðzt af jörðinni mjög viða, holtin og melarnir sýna það. Og þessi uppblástur er um breiðar byggðir landsins, hvað þá held- ur Ul fjalla og heiða. Ég hafði heyrt, að sauðfénu mættikenna um þetta, og mig furðaði á þvi, hvað sauðskepnan hefði verið mikilvirk i eyðingarstarfinu, eins og hún væri þó og hefði alla tið verið nauðsynleg til að fæða þjóðina og klæða. Mér fannst óeðlilegt að hún ynni þannig á mótisjálfri sér og sinum tilgangi, svo að ég fór að lita betur eftir þessu. Þá sá ég, að landið hefur blásið upp, en nokkur breyting hefur á þvi orðið.Gróðurstarf náttúrunnar i seinni tið sýnist mér svo miklu meira en eyðingarstarfið, að það sé ekki sambærilegt. Gras- tægjur i holtum og melum eru orðnarsvoþéttar, að viða mætti fullgræða jörðina með tilbúnum áburði einum saman. En þegar eftirtekt min var á annað borð vöknuð fyrir þessu þá sá ég lika meira og minna gróin jarðýtu- flögin, sem ekki hefur veriðsáð i meðfram vegunum og voru gróðurlaus fyrir fáum árum. Gróðurinn sækir fram i sæmi- legu árferði, og núna er honum að fara fram viðast hvar. 1 Viði- kerum á Kaldadals- og Uxa- hryggjavegi vinnur hann gott starf i fokgeilunum, og á holtinu norðan við Biskupsbrekku, þar sem uppblásturinn er að eyða gróðurtorfu, reynir nýgræðing- urinn að stöðva fokið, en mann- legar hjálpar þyrfti hann þar að njóta, eins og viða annars stað- ar, þvi að þessu likt hagar til á óteljandi stöðum. Þá hugsa ég lika út i það að flögin eftir heytorf og allt ann- að torféfni, sem gömlu bæirnir þörfnuðust eru horfin, vegna gróðurs, en ekki vegna upp- blásturs. Staðreyndirnar sýna glöggt, að landið hefur bætt gróðurfar sitt á siðustu áratug- um, þótt það anni ekki upp- græðsluþörfinni. Með þessu er þó ekki sagt, að fyrri tima upp- blástur geti ekki verið sauðfénu að kenna,ég reyni þviaðleita til sögunnar um það, sem ég sé ekki með eigin augum, þar á meðal kindatölu um nokkurt timabil. Nýjasta sauðfjártalan, sem ég hefi fyrir allt landið, er ekki sögð nánar en i þúsundum. Hún er f rá árinu 1974 og er það ár 864 þúsund. Árið 1703 var hún 279 þúsund og féð þvi meira en þrisvar sinnum færra en nú. 1760 var féð 357 þús. og vantar mikið á,að ein kind hafiþáver- ið til á móti tveimur núna. Árið 1800 var talan 304 þús., þá hefur vantað 560 þúsund fjár til að jafnastá við það, sem nú er. Ar- ið 1820 var féð 374 þús. og vant- aði á 58 þús. upp á helming nú- verandi tölu. Arið 1874 voru mun féð auka grasvöxtinn, þvi grasið er þéttara og minna af þessum óþurftarmosa i hris- lausa landinu, sem meira verð- ur fyrir áganginum. Féð vekur lika nýjan gróður á örfoka blett- um, ef það safnast þar saman öðru hverju einhverra hluta vegna. Þannig beinir sauðféð Flokkur manna við sáningu á gróðurlitlum sandi. Jarðvegurinn er fokinn út i veður og vind, og eftir hjarir dálftil torfa, sem veltur um koll innan tfðar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.