Fréttablaðið - 01.02.2006, Side 56
1. febrúar 2006 MIÐVIKUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
TILBOÐ
Á LEGSTEINUM,
FYLGIHLUTUM
OG UPPSETNINGU
10-50% AFSLÁTTUR
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
Björg Kristmundsdóttir
saumakona, Lindasíðu 4,
lést í Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar föstudaginn
27. janúar. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 10. febrúar kl. 13.30.
Sonja Ísafold
Hans Óli Hansson
Anna Kristín Hansdóttir Jóhannes Arason
Ásrún Kristmundsdóttir
Þorgrímur Kristmundsson
ömmu og langömmubörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og
barnabarn,
Daði Snær Arnþórsson
Dalalandi 3, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
2. febrúar kl. 13.00.
Katrín Helga Óskarsdóttir Arnþór Hinrik Valgarðsson
Birgitta Dögg Arnþórsdóttir
Sigurbjörg Helgadóttir Óskar Þór Óskarsson
Áróra Hlína Helgadóttir Valgarð Guðmundsson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför bróður okkar,
Þórðar Sveinssonar
frá Barðsnesi.
Þorbergur Sveinsson
Ólafur Sveinsson
Guðrún Sveinsdóttir
Alda Ármanna Sveinsdóttir
Ingólfur Steinarr Sveinsson
Auður Sveinsdóttir
Ingunn Sveinsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þórdís Nanna Nikulásdóttir
andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
föstudaginn 27. janúar. Útförin verður gerð frá
Dómkirkjunni föstudaginn 3. febrúar kl. 15.00.
Lárus Halldórsson
Anna María Lárusdóttir
María Kristín Lárusdóttir Birgir Símonarson
Sigríður Lárusdóttir
Halldór Lárusson Árný Jóhannsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Gréta Svanlaug Jónsdóttir
Villingaholti, Flóa,
lést laugardaginn 28. janúar á Sjúkrahúsi Suðurlands.
Börn, tengdabörn, ömmubörn og langömmubörn.
WERNER HEISENBERG (1901-
1976) LÉST ÞENNAN DAG.
„Hvert orð eða hugtak,
hversu skýrt sem það er,
hefur aðeins takmarkað
svið nýtileika.“
Werner Heisenberg var þýskur
eðlisfræðingur sem hlaut nóbels-
verðlaun árið 1932 og var einn
upphafsmanna skammtafræði.
WERNER HEISENBERG
Á þessum degi árið 1908 voru
Carlos I, konungur Portúgals, og
elsti sonur hans og erfingi, Luýs
Filipe, myrtir af byltingarsinn-
um. Þeir feðgar voru á ferð um
höfuðborg Portúgal, Lissabon, í
opnum hestvagni þegar atvikið
átti sér stað.
Carlos komst til valda árið
1889 eftir dauða föður síns,
Louis I. Miklir erfiðleikar steðj-
uðu að Portúgal á þessum tíma
vegna pólitískrar stöðnunar og
ört minnkandi nýlendna Portú-
gals í Afríku sem áður höfðu
verið malað Portúgölum gull.
Vegna mikils samdráttar og
efnahagsþrenginga hófst bylt-
ing árið 1906. Carlos brást við
með því að leyfa Joyo Franco
að stofna einræðisstjórn. Flestir
litu á þessa ákvörðun konungs-
ins sem svik. Stjórn Francos varð
fyrir mikilli gagnrýni sem leiddi
til annarrar byltingar árið 1908
en í þeirri hrinu voru konung-
urinn og sonur hans skotnir til
bana.
Næstelsti sonur Carlosar,
Manoel, tók því við konungstign-
inni, en tveimur árum síðar var
hann neyddur til að segja af sér.
Hann flúði til Englands ásamt
öðrum í konungsfjölskyldunni.
Þetta sama ár var Tefilo Braga,
kunnur rithöfundur, kosinn fyrsti
forseti hins nýja lýðveldis Portú-
gals.
ÞETTA GERÐIST > 1. FEBRÚAR 1908
Konungur og arftaki Portúgals myrtir
CARLOS I
MERKISATBURÐIR
1904 Íslendingar fá heimastjórn
þegar ný stjórnskipan
kemur til framkvæmda. Það
felur í sér skipan íslensks
ráðherra sem ber ábyrgð
gagnvart alþingi. Fyrsti
ráðherrann er Hannes
Hafstein.
1935 Áfengisbannið er afnumið
sem hafði staðið frá janúar
1915.
1948 Ríkisútvarpið hefur
útsendingar á fréttayfirliti á
stuttbylgju fyrir Íslendinga
erlendis.
1979 Ayatollah Khomeini snýr
aftur til Íran eftir fimmtán ár
í útlegð.
1999 Loftskeytastöðin í Gufunesi
hættir morssendingum.
2003 Sjö geimfarar farast þegar
geimferjan Columbia
springur í loft upp á leið til
lendingar í Texas.
ANDLÁT
Njáll Sveinbjörnsson, Háaleit-
isbraut 22, lést á heimili sínu
laugardaginn 28. janúar.
Erna Friðbjörg Einarsdóttir,
Vallargötu 34, Sandgerði, lést á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
þriðjudaginn 24. janúar.
Jón Gíslason frá Skálafelli í
Suðursveit, lést á Landspítalanum
við Hringbraut laugardaginn 28.
janúar.
Gréta Svanlaug Jónsdóttir,
Villingaholti, Flóa, lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands laugardaginn 28.
janúar.
María Björnsdóttir Hansen,
Skagfirðingabraut 31, Sauðárkróki,
lést á dvalarheimili Sauðárkróks
fimmtudaginn 26. janúar.
Friðrik Laugdal Guðbjartsson,
áður til heimilis á Eiðsvallagötu
7B, Akureyri, lést á Kristnesspítala
föstudaginn 27. janúar.
Þórdís Nanna Nikulásdóttir, and-
aðist á dvalar- og hjúkrunarheimil-
inu Grund föstudaginn 27. janúar.
Björg Kristmundsdóttir
saumakona, Lindasíðu 4, lést á
Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar
föstudaginn 27. janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Eyjólfur Jónsson, áður
Miðbraut 28, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá
Seltjarnarneskirkju.
13.30 Falur Friðjónsson hús-
gagna- og húsasmiður frá
Sílalæk, Grenivöllum 24,
Akureyri, verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju.
15.00 Aðalbjörg Aðalsteins-
dóttir frá Þingeyri, verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í
Reykjavík.
15.00 Ingvi Guðjónsson, Álfa-
landi 7, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju.
15.00 Sigurveig Níelsdóttir,
Ástúni, Fáskrúðsfirði, verður
jarðsungin frá Fáskrúðs-
fjarðarkirkju.
AFMÆLI
Birgir Örn Thoroddsen,
Bibbi Curver, tónlistar-
maður er 30 ára.
Guðrún Ebba Ólafs-
dóttir borgarfulltrúi er
50 ára.
Drífa Hjartardóttir
alþingismaður er 56
ára.
Valborg Sigurðardóttir,
fyrrverandi skólastjóri,
er 84 ára.
Katrín Jakobsdóttir, varafor-
maður vinstri grænna held-
ur upp á þrítugsafmæli sitt
í dag. Katrín eignaðist dreng
í desember og fannst því of
stutt liðið til að taka ærlegt
djamm. Hún býst við að
fjölskyldan líti inn á sjálfan
afmælisdaginn en nánustu
vinir og ættingjar ætla að
kíkja á hana á laugardaginn.
„Það er alltaf gaman að
gera sér dagamun og ég
geri það alltaf þegar ég á
afmæli,“ segir Katrín sem
man vel eftir 25 ára afmæl-
inu þegar hún hélt risapartí
í Valsheimilinu ásamt vin-
konu sinni. „Svo man ég af
einhverjum orsökum alltaf
eftir sjö ára afmælinu mínu
þegar ég lá veik heima,“
segir Katrín kímin.
Katrín kann vel við móð-
urhlutverkið enda segist
hún eiga skemmtilegt barn.
Drengurinn hefur verið
nefndur Jakob eftir afa
sínum. „Það er oft sagt að
fjórðungi bregði til nafns,
og ég vona að það standist,“
segir Katrín glettin.
Katrín reynir sitt besta
þessa dagana að vera í
barneignarleyfi. „Síðan er
ég líka að reyna að sinna
stjórnmálaflokknum mínum
sérstaklega eftir að formað-
urinn keyrði útaf,“ segir
Katrín og hlær að því að
öll forysta flokksins, það er
bæði hún og Steingrímur,
skuli vera hálfgerð hró þessa
dagana. Hún telur það þó
ekki valda flokknum skaða.
„Það vill svo til að enginn er
ómissandi, þó það sé alltaf
leiðinlegt að komast að því,“
segir hún hlæjandi en sakn-
ar þó mest að sjá ekki Stein-
grím J. Sigfússon á þinginu
enda fari þar skemmtileg-
ur maður sem lífgi upp á
umræðurnar.
Margt annað er framund-
an hjá íslenskufræðingnum
Katrínu. Til dæmis er hún
að vinna að glæpasagnasýn-
ingu sem verður í Þjóðar-
bókhlöðunni á listahátíð. „Ég
verð líka eitthvað að kenna
fólki um glæpasögur hér og
þar um landið eftir því sem
líður á vorið,“ segir Katrín
og hugleiðir að líklega þurfi
hún að fara að snúa sér að
einhverju öðru svo hún fest-
ist ekki alveg í glæpum. Hún
hefur þó eins og aðrir fylgst
grannt með glæpaþátta-
seríunni, Allir litir hafsins
eru kaldir. Hún er ánægð
með útkomuna þrátt fyrir
að plottið hefði mátt vera
sterkara. „En þetta eru svo
miklar framfarir frá öðru
sem hefur verið gert. Við
munum ná góðum árangri
ef við höldum áfram á sömu
braut,“ segir Katrín sem
sjálf tekur einn dag í einu og
hefur enga ákvörðun tekið
um áframhaldandi frama í
stjórnmálum. „Ég er ekki í
neinum kosningum í vor en
það er aldrei að vita hvað
gerist eftir ár,“ segir hún að
lokum.
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR VARAFORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA: ER ÞRÍTUG
Sinnir móðurhluverkinu
KANN VEL VIÐ MÓÐURHLUTVERKIÐ Katrín eignaðist dreng í desember sem
hefur hlotið nafnið Jakob. Hún reynir eftir fremsta mætti að vera í barn-
eignarleyfi en freistast þó til að sinna stjórnmálunum með vinstri grænum,
sérstaklega eftir að formaðurinn keyrði útaf. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN