Tíminn - 10.03.1977, Qupperneq 1

Tíminn - 10.03.1977, Qupperneq 1
7ÆNGIRf Áætlunarstaðir: Bíldudalur-Blönduóc Búðardalur i Flateyri-Gjögur-Hólmavík Hvammstangi-Rif-Reykhólar Sigluf jörður-Stykkishólmur . Súgandaf jörður Sjúkra- og ieiguflug um allt land Símar: 2-60-60 00 2-60-66 Vinna hefst við Kröflu í dag Sjá Bak 57. tölublað—Fimmtudagur 10. marz 1977 —61. árgangur Slöngur — Barkar — Tengi —nrmiTalGMi SAAIÐJUVEGI 66 Kópavogi — Sími 76-600 fjgl Bæjarstjórinn, Helgi Bergs, og forseti bæjarstjörnar, Valur Arnþórsson. 2500. fundur bæjarstjórnar Akureyrar: 2,5 milljóna framlag til ritunar sögu bæjarins KS-Akureyri — Siöastliöinn þriöjudag hélt bæjarstjórn Akureyrar 2500. fund sinn. 1 tilefni þessa merkisatburöar var öllum fyrrverandi aöal- fulltrúum I bæjarstjórn Akureyrar boöiö á fundinn, sem fram fór meö mestu viö- höfn. Valur Arnþórsson, for- seti bæjarstjórnar, setti fundinn og bauð gesti og full- trúa velkomna, en þó sér- staklega þá fyrrverandi full- trúa sem sáu sér fært aö mæta, en þeir voru alls 10. Þá gat Valur þess, aö Hall- dóru Bjarnadóttur, fyrrver- andi bæjarfulltrúa, sem nú dvelst á heilsuhælinu á Blönduósi, heföi sérstaklega veriö boöið til fundarins, en þvi miöur sá hún sér ekki fært að þiggja boöiö. Hall- dóra er á 104. aldursári og er elzt þeirra, er setiö hafa i bæjarstjórn Akureyrar. Bæjarstjórn sendi henni síð- an á þriðjudag heillaóska- skeyti, þar sem þökkuö voru störf hennar í þágu Akur- eyrarbæjar; Valur Arnþórsson, bar fram i tilefni þessa merkis- fundar tillögu þess efnis, aö 2,5 milljónum króna skyldi variö úr bæjarsjóöi til ritun- ar sögu Akureyrar. Tillagan var samþykkt meö öllum at- kvæöum bæjarfulltrúa. Þá kvaddi Helgi M. Bergs, bæjarstjóri sér hljóös og flutti i stórum dráttum nokk- urs konar annál úr sögu bæjarstjórnar Akureyrar. Þar kom I ljós aö Akureyri fékk kaupstaöarréttindi 29. ágúst 1862 samkvæmt kon- unglegri reglugerö, og sam- kvæmt henni var fyrsta bæjarstjórn á Akureyri kjör- in hinn 31. marz 1863, og eru þvi rétt 114 ár frá kosningu fyrstu bæjarstjórnar á Akur- eyri. Fyrstu bæjarstjórn Akur- eyrar skipuðu: Edvald Möll- er, factor, Jón Finssen lækn- ir, Jón Chr. Stepánsson ti m b urm eis t a r i, Ari Sæmundsson umboðshaldari og Jóhannes Halldórsson candidat. Oddviti hennar var kjörinn Ari Sæmundsson. Af hinum fyrstu bæjarfulltrúum sat Jóhannes Halldórsson lengst, eöa alls 20 ár, og var lengst af oddviti bæjar- stjórnar. Arið 1920 var fyrst kosinn bæjarstjóri á Akureyri og var þaö Jón Sveinsson. Siöan hafa aöeins fjórir menn gegnt bæjarstjóraembætti á Akureyri, en þaö eru: Steinn Steinsen, Magnús E. Guö- jónsson, Bjarni Einarsson og núverandi bæjarstjóri, Helgi M. Bergs. Allshafa I6manns gegnt starfi forseta bæjar- stjórnar á Akureyri þau 58 ár siðan það embætti varö til. Fyrsti forseti bæjarstjórnar var Ottó Tulinius, en núver- andi forseti er eins oe áöur sagöi Valur Arnþórsson. Sú kona, sem lengst átti sæti I bæjarstjórn Akureyrar, var Elisabet Eiriksdóttir, en hún átti sæti i bæjarstiórn 120 ár, Framhald á bls. 23 bæjarstjúrn akureyrar * 2500. FUNDUR K Fyrrverandi bæjarfulltrúar Akureyringa, er viöstaddir voru. —Timamyndir: KS. Tvö hundruð tuttugu og átta milljón tonn af vatni runnu fram jjgiiL- i jpkif 1 . i IHBis * HV-Reykjavik. — Skaftár- hlaup þaö sem varö i febrúar 1 ár, reyndist i meöallagi. Vatnsrennsiiö varö mest um átta hundruö rúmmetrar á sekúndu, sem er nokkru minna en hlaupiö um áramót- in 1974-1975 varö mest, en hins vegar hélt þetta hlaup sér lengur 1 hámarki, og alls telst okkur til aö þarna hafi fariö burt tvö hundruö tuttugu og átta milljón tonn af vatni, sem er álitleg fylla, sagöi Sigurjón Rist, vatnamælinga- maöur, I viötali viö Timann I Vatnið i Skaftárhlaupi kem- ur úr ketilsigi, sem er skammt norö-vestur af Grimsvötnum. Ketillinn er um 1.800 metrar I þvermál, og aö sögn Bessa Aöalsteinssonar hjá Orku- stofnun er taliö, aö dýpt hans I miðju sé á milli eitt og tvö hundruö metrar, en þó mun þaö óvist. Myndina af katlin- um, sem hér fylgir meö, tók Bessi fyrir skömmu úr flug- vél.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.