Tíminn - 03.04.1977, Síða 3
Sunnudagur 3. apríl 1977
3
Auglýsið í Tímanum
Nú er frost á Fróni
Fóðruð oq þæailea stíavél
Frá Hvammstanga
Menningarvaka
Vestur-Húnvetninga
verður haldin á
Hvammstanga um
bænadagana, 7.-10.
april, næstkomandi, en
það eru Lions-klúbb-
urinn Bjarmi og Ung-
mennafélagið Kormák-
ur, sem standa fyrir
þessu.
Vaka þessi, sem
haldin er i félags-
heimilinu á Hvamms-
tanga, er nýr liður i fé-
lagsstarfi i sýslunni.
Margt verður til
skemmtunar, þar á
meðal listsýning
upplestur, bundið mál
og óbundið og þjóðlaga-
trió kemur fram.
Fjölbreytt dagskrá
Vakan verður sett miðviku-
daginn 7. april kl. 20.30 að
viðstöddum félagsmönnum i
áöurnefndum félögum og gestum.
Fimmtudaginn 8. april kl. 14.00
verður vakan opnuð almenningi
kl. 14.00. Verða listsýningar opn-
ar almenningi þann dag til klukk-
an 18.30, en klukkan 20.00 um
kvöldið hefst kvöldvaka, sem
stendur til klukkan 22.00. Þar
veröa fluttr sögur og ljóð eftir
vestur-húnvetnska höfunda, auk
þss sem þjóðlagatrióið mun
skemmta.
A föstudaginn langa verða list-
sýningar opnar frá klukkan
14.00-16.00.
Laugardag
fyrir páska opna listsýningarnar
klukkan 14.00, en klukkan 16.00
hefst vaka að nýju og stendur hún
til klukkan 18.00, en þá lýkur list-
sýningunum og Menningar-
vökunni.
Verður vakan með sama sniði
og á skfrdag, nema annað efni
verður flutt.
Á myndlistarsýningunni veröa
sýndar vatnslitamyndir, olíumál-
verk og grafik eftir kunna mynd-
listarmenn, þá Jónas Guðmunds-
son, Rudolf Weissauer og Onnu
Sigrlði Björnsdóttur.
Þá verða á sýningunni fuglar
skornir úr birki af Þorsteini
Diometerssyni á Hvammstanga.
Hoseas Tukúla frá Kap Dan á
Grænlandi (Kúlúsúk) sýnir
myndir og muni úr hvalbeini og
sandsteini.
Meðal efnis, sem flutt veröur á
vökunni er óbundið mál eftir
Jónas Guðmundsson listmálara
og rithöfund en höfundur er
gestur vökunnar.
Ennfremur veröur flutt efni
eftir Sigurð Eiriksson frá
Hvammstanga og Hermann
Halldórsson I Framnesi.
Bundið mál verður flutt eftir
marga Vestur-Húnvetninga, t.d.
Vatnsenda-Rósu, séra Sigurð
Norland, Steinar J. Júliusson,
bræðurna Helga og ólaf Tryggva-
son og marga fleiri.
Verður þetta efni ýmist flutt af
höfundum, eða öðrum sýslubú-
um.
Ljóst leður, hrágúmmibotnar.
Verð 10.890.
Jónas Guðmundsson, listmálari
og rithöfundur
Rudolf Weissauer, sýnir grafik.
Það skal sérstaklega tekið
fram, að enginn aögangseyrir er
tekinn af gestum, hvorki að
sýningum, né öðrum samkomum.
Þá munu konur Lionsmanna
selja gestum kaffi frá klukkan 2-6
slðdegis á sklrdag. Myndirnar
eru flestar til sölu, en nokkrar eru
I einkaeign.
Menningarvökunefnd skipa:
Sigurður H. Þorsteinsson,
skólastjóri, Egill Gunnlaugsson,
dýralæknir, Ingi Bjarnason,
mjólkurfræðingur, HelgiS. Ólafs-
son, rafvirkjameistari og Karl
Sigurgeirsson kaupmaður.
Kauðbrúnt, brúnt og svart leður. Tvenns konar
sólar. Verð kr. 8.870.
Feikilegt úrval af leðurstígvélum og
götuskóm. Póstsendum samdægurs
mu
/
Laugavogi 69 * Sími 1-68*50
Miðbæjarmarkaði • Sími 1-94-94
Vorvaka V-Hún-
vetninga á
Hvammstanga
um páskana
Stefán Andréasson, Hanne Gustavii, GIsli Helgason.