Tíminn - 21.04.1977, Page 14
14
Fimmtudagur 21. auril 1977
Fimmtudagur 21. april 1977
15
Vesturhliftift (The Westgate)
c
Haraldur
]
Laugardagsmorgun einn
snemma eru þrjár manneskjur d
ferö i áætlunarbll, sem stefnir I
suöur frá Lundúnaborg. Feröinni
er heitiö til Kantaraborgar. Þetta
er aö vetrarlagi, en veöur er milt,
snjólaust og viöa grænn gróöurlit-
ur á landinu.
Billinn brunar á fleygiferö eftir
veginum, yfirleitt aka þessir bfl-
stjórar hratt úti á þjóövegum. A
þessum tlma er ekki mikil um-
ferö.
Vegurinn liggur yfir hæöótt
landiö, framhjá bændabýlum og
þorpum. Oöru hverju er fariö
framhjá svæöum, þétt vöxnum
trjám, en mest af landinu eru
trjálaus opin svæöi. Fólkiö I biln-
um er I hrókasamræöum eöa
horfir út um gluggann og viröir
fyrir sér landiö.
Þó aö ílestir landsmenn vinni
viö iönaö og verzlun og búi I
borgum, er landbúnaöur samt
mjög mikilvægur og landiö er vel
ræktaö.
Eftir tveggja stunda akstur
rúmlega er keyrt inn I Kantara-
borg. — Þaö er skýjaö en bjart
veöur.
Kantaraborg er einn mesti
feröamannastaöur I Englandi.
Flestir koma til þess aö sjá
dómkirkjuna, samt er margt ann-
aö sem er ekki síöur forvitnilegt
fyrir feröamanninn. Kirkjan sjálf
er hiö glæsilegasta guöshús, bæöi
aö utan og innan meö sínu fagra
litgleri I gluggum. Hún er meö
stærstu kirkjubyggingum I Eng-
landi og aö margra áliti sú merki-
legasta. Elzti hluti hennar er tal-
inn byggöur 1070-1089, en smíöi
meginkirkjunnar stóö frá 1174 til
1495. Dómkirkjan geymir einnig
elzta bókasafn kirkjubóka I hin-
um enskumælandi heimi*
A þessu svæöi var byggö, er
Rómverjar komu á staöinn, en
þeir endurskipulögöu bæinn og
geröu hann aö miöstöö fyrir íbú-
ana I Kent. 1 seinni heimstyrjöld-
inni eyöilagöist hluti af miöborg-
inni I árásum Þjóöverja, en þaö
varö til þess aö fornleifafræöing-
um tókst aö komast aö þvl
hvernig gamla borgin haföi veriö
skipulögö. Flest bar einkenni frá
tlmum Saxa (hér er átt viö
germönsku kynflokkanna Engla,
Saxa og Juta). Borgarmúrarnir,
Geoffrey Chaucer (1340-1400)
verk Rómverja eru frá 3. öld.
Kristni haföi komiö til landsins á
timum Rómverja.
Snemma á öldum varö mikil
helgi á þessum staö.
A 12. öld, eöa þegar Hinrik 2.
kom til valda (1154), var Bretland
eitt stærsta og voldugasta rlki
Evrópu. Konungur þess réöi einn-
ig yfir miklum hluta Frakklands.
Samt var mikil upplausn I rlkinu,
höföingjar voru voldugir og höföu
margir sln eigin lög. A þessum
tlma reyndi hinn dugmikli kon-
ungur aö koma ensku kirkjunni
undir yfirráö krúnunnar. Kirkjan
var rik og voldug, átti vlöa jaröir
og miklar eignir og haföi slna eig-
in dómstóla. Konungi haföi geng-
iö vel I viöureign sinni viö
höföingja 1 þvi aö gera lög krún-
unnar ráöandi I landinu og átti
hann þaö einnig aö þakka Tómasi
Becket, sem var mikill vinur
hans. Þegar konungur ákvaö aö
gera þennan vin sinn og ráögjafa
aö erkibiskupi gegn vilja hans
sjálfs, segir sagan, aö Becket hafi
varaö hann viö. Eftir aö konungur
haföi gert Becket aö erkibiskupi
breyttist fljótt vinskapur þeirra.
Þeir stóöu I langvarandi deilum
vegna hagsmuna rlkis og kirkju.
Ariö 1170 var erkibiskupinn myrt-
ur I sjálfri dómkirkjunni og var
taliö aö konungur heföi staöiö á
bak viö þaö. Atburöur þessi geröi
konungi mikinn óleik og hann
neitaöi aö hafa átt þar nokkurn
þátt og fór til Kantaraborgar til
þess aö friöþægja fyrir verknaö-
inn, sem var fordæmdur af páfan-
um I Róm og hinum kristna
heimi.
Fljótlega fóru aö ganga sögur
um kraftaverk, sem tengd voru
Tómasi Becket.
Feröir til borgarinnar uröu
mjög almennar og velmegun
borgarinnar jókst. Hópar pila-
grlma flykktust til staöarins
næstu aldir allt fram til sextándu
aldar, — og ekki aöeins frá Eng-
landi, heldur hvaöanæva aö, jafn-
vel frá Islandi og Antiochiu eins
og stendur I ritum.
Þá var ekki hættulaust aö fara
silka för, mikiö var um stiga-
menn. Menn fóru þvl saman I
hópum. Feröir þessar voru farnar
til þess aö uppfylla heit, fá bót
meina sinna, öölast fyrirgefningu
synda sinna og af einskærri
feröalöngun.
Nú er öldin önnur, feröamenn
koma ekki eingöngu til þess aö
svala forvitni sinni, heldur einnig
til þess aö verzla. Mikill hluti
þessa fólks, sem sést á götunum
og I verzlunum, er frá meginland-
inu. Margar vörur hér eru ódýr-
ari en á meginlandinu, og þaö er
ekki svo ýkja mikiö fyrirtæki aö
bregöa sér yfir Ermarsund um
helgar.
Sá hópur manna sem frægastur
hefur oröiö af ferö til borgarinnar
er án efa pllagrlmarnir I Kant-
araborgarsögum Chaucers. t
hópnum voru um 30 manns karl
menn og kvenmenn, úr flestum
stéttum þjóöfélagsins. Lagt var
af staö frá Tabard kránni I South-
wark sunnan viö Tempsá, ekki
langt frá Lundúnabrú. Kráareig-
andinn, sem slóst I förina, átti
hugmyndina aö þvl aö hver segöi
tvær sögur á leiöinni til Kantara-
borgar til þess aö gera feröalagiö
ánægjulegra og svo aörar tvær
tilbaka til Lundúna.
Sögur þessar, Kantaraborgar-
sögurnar, eitt frægasta bók-
menntaverk enskrar tungu,
draga upp ásamt formála mjög
skemmtilega og raunsæja mynd
af fólkinu á þessum tlma.
Höfundurinn Geoffrey Chaucer
(1340-1400), oft nefndur faöir
enskra bókmennta, er talinn hafa
oröiö fyrir áhrifum af Decameron
eftir Boccaccio. A tlmum Chau-
cers voru talaöar margar mál-
lýzkur I landinu, en I Lundúnum
og East Midland svæöinu var
meginmáliö I hraöri þróun.
Þó aö borgin hafi aö sjálfsögöu
mikiö brey tzt frá miööldum, þá er
samt margt sem hefur varöveitzt
furöu vel. Mikiö hefur veriö gert
til þess aö varöveita gömlu húsin.
Þaö er eftirtektarvert hve lítil
bilaumferö er I gamla borgar-
hlutanum. Hiö opinbera hefur
leitazt viö aö beina bllaumferö-
inni frá gömlu hverfunum.
Eftir aö hafa skoöaö hina
merku dómkirkju liggur leiöin I
gamlar og þröngar götur stutt
frá. 1 Burgategötu var mikill
markaöur, gatan var yfirbyggö.
Þar var allt mögulegt til sölu.
Markaössalan sem var áberandi
verzlunarmáti á miööldum, llkt-
ist I mörgu kjörbúö eins og hún er
I dag. — Burgate er miöaldaborg-
in I hnotskurn. Götunöfnin But-
chery Lane og Mercery Lane
benda einnig til þess aö þar hafi
veriö verzlaö. Þessar þröngu göt-
ur meö sln steinhús og timburhús,
sem oft sýnast I hrópandi mót-
sögn hvert viö annaö, viröast eiga
svo ósvikinn tilverurétt. Jafnvel
bjálkar, rammskakkir, geta gefiö
umhverfinu hlýlegan og viö-
kunnanlegan svip.
Fyrir austan dómkirkjuna eru
borgarmúrarnir. Um þaö bil
helmingur múranna er uppi-
standandi og þeir umlykja gamla
bæinn aö austanveröu. Góöan
spöl austur frá múrunum eru
rústir sankti Agústlnusar
klaustursins og steinsnar þaöan
Leiö pllagrima frá London til Kantaraborgar
sankti Martins kirkjan, elzta
kirkjan I Englandi, sem enn er I
notkun (frá 5. öld).
I suöurhlutanum, skammt frá
Dane John gpröunum, eru leifar
Normannakastala. Taliö er aö
hann hafi veriö reistur seint á 11.
öld. Reyndar er mest af varnar-
virkjunum horfiö, en eftir stendur
aöalvirkiö, sem upphaflega á aö
hafa veriö helmingi hærra. í lit-
rlkri sögu kastalans geröust
hryllilegustu atburöirnir, þegar
margir mótmælendur á tlmum
Marlu 1. voru lokaöir þar inni áö-
ur en þeir voru brenndir á báli
fyrir trúarskoöanir sínar.
A leiöinni til High Street, aöal-
götu gamla bæjarins, er fariö
fram hjá Marlowe leikhúsinu,
kennt viö skáldiö, sem var ættaö
héöan. Aska Somersets Maug-
ham er varöveitt hér I borg, og
einnig er hér gröf hins pólskfædda
Josep Conrad.
Himinninn er oröinn þungbú-
Kantaraborgarferð
inn, og þaö er útlit fyrir rigningu,
en samkvæmt veöurspánni á
hann aö hanga þurr I dag. .. Og
þaö er kominn timi til þess aö fá
sér einhverja hressingu.
Aöalgatan, High Street, skiptir
gömlu borginni I tvo hluta, mis-
stóra. Reyndar heitir austurhluti
götunnar sankti Georgs stræti,
miöhlutinn er High Street og
vesturhlutinn heitir sankti Péturs
stræti.
Ain Stour skiptir sér I tvær
aöalkvlslar fyrir vestan gömlu
borgina og rennur önnur, sú
eystri, I gegnum hana. Rétt viö
Austurbrú I aöalgötunni er sankti
Tómasar spltali — spitali sem
reistur var fyrir pilagrima. Taliö
er aö hann hafi veriö byggöur
seint á 12. öld, sumir vilja meina
aö spitalinn sé talsvert eldri, hafi
jafnvel veriö kominn fyrir daga
Beckets.
Viö brúna aö austanveröu er
hús vefaranna. Þessari miöalda-
byggingu er vel viöhaldiö og snúa
gaflarnir aö ánni. Nokkrir ljós-
myndarar voru I gríö og erg aö
taka ljósmyndir af húsunum þrátt
fyrir skýjaöan himin. Verzlun
meö alls konar minjagripi er þar
til húsa. A sextándu öld komu
margir flóttamenn frá Flandern
og Frakklandi. Flestir voru mót-
mælendur sem uröu aö flýja
vegna trúarskoöana sinna. Þetta
fólk flutti meö sér dýrmæta þekk-
ingu I veflistinni og vlöa voru
settir upp vefstólar i borginni.
Hús vefaranna er einmitt ein-
kennandi fyrir þá.
Grámunkar og svartmunkar
reistu hús hér I borg yfir starf-
semi slna. Svonefndir hvítmunk-
ar störfuöu hér líka, en þaö sem
vitnar um þá er nafniö og minn-
ingin. Hinar mörgu kirkjur og
klaustur og fjölmennar munka-
reglur bera vitni um hina miklu
trúarþörf fólks á miööldum.
Söfnin hafa alltaf mikiö aö-
dráttarafl fyrir feröamenn sem
hafa takmarkaöan tima. Og sé
meiningin aö fá haldgóöar upp-
lýsingar um einhvern staö er
safniö rétti staöurinn.
Aö margra dómi er sankti
Péturs stræti miöaldalegust allra
gatna i borginni. Gamlar og nýjar
byggingar eru hér hliö viö hliö.
Og á þessum laugardegi er margt
um manninn I nýju verzluninni
sem selur poppklæönaö, hljóm-
flutningstæki og ljósmyndavélar.
Skammt frá, I forngripaverzlun-
inni, og þær eru margar hér I
borg, er llka annrlki.
Viö enda götunnar er Vestur-
hliöiö (The Westgate). Aöalbygg-
ingarnar eru turnar tveir, og milli
þeirra er hliðiö. Margir feröa-
menn enda göngu sina um borg-
ina einmitt viö þennan staö,
áhrifamestu bygginguna ef dóm-
kirkjan er undanskilin. Turnarnir
voru reistir 1380. Hér var lengi
fangelsi en er nú safn. Ofan af
þaki hliösins er ágætis útsýni yfir
húsin og garðana I borginni.
Dagur er aö kveldi kominn,
skemmtilegur dagur og viöburöa-
rlkur ...og þaö er rigning. 1 krá
einni skammt frá dómkirkjunni
er etið og skálaö og rabbaö um
daginn og veginn meöan beöiö er
eftir áætlunarbllnum til Lundúna.
Viö næsta borö eru líka feröa-
menn, nútlma pilagrímar, sem
komiö hafa I svipuöum erinda-
gjöröum til borgarinnar...og úti
er hellirigning.
Kapella sankti Gabriels i dómkirkjunni I Kantaraborg