Tíminn - 27.04.1977, Síða 19
Mi&vikudagur 27. april 1977
19
lesendur segja
Nokkur orð
að vestan
Alkunn er sagan um karlinn
sem sag&i: „klárinn ber ekki
þa& sem ég ber”. Hestinum
fannst vlst anna& og heföi taliö
karlinn þroskaheftan ef þaö orö
hefði verið til.
Sjálfsagt hefur karlinn aldrei
i skóla verið og engum — allra
sizt honum sjálfum — heföi til
hugar komiö aö hann væri efni i
ráðgjafa. Sagan endurtekur sig,
var einhvern tima sagt.
Ég held aö ég hafi tekiö rétt
eftir þvi i vetur, aö formaöur
Stéttarsambands bænda segði
kjaramál bænda flóknari en svo
aö þau væru leysanleg meö þvi
aö hækka einfaldlega útsöluverö
kjöts og mjólkur.
Ritstjórn Freys ráöleggur
bændum aö lækka búrekstrar-
gjöldin án þess aö afuröir grip-
anna minnki. Þetta finnst mér
gott ráð. Þaö væri lika til bóta ef
þeir sem góð ráö gefa tækju
sæmilega jörö, rækju þar bú-
skap og sýndu okkur hinum
hvernig á að nota aöferöina. Ég
sé ekki hvernig á aö nota þessi
góðu ráö. Venjulegir bændur
verða liklega lengst af aö horf-
ast i augu viö veruleikann eins
og hann er á hverjum tima. Ég
held aö viö veröum eins og er aö
trúa orðum formanns Stéttar-
sambandsins. Þaö vantar
venjulega 20-30% á aö við fáum
okkar lögákveöna kaup og allar
nýjar álögur hækka þessa tölu.
Búnaðarþing gerði ályktun
um heykögglaverksmiöjur og
fulltrúar þar töldu heyköggla-
framleiöslu stærsta hags-
munamál bænda. Rá&lög&u þeir
aö hækka verö á fóöurblöndu til
að borga niöur heyköggla. Svo-
kölluö landnámsstjórn sem
stjórnar heykögglaverksmiöj-
um rikisins taldi i vetur brýna
nau&syn aö hækka strax verö á
fóðurblöndu. Þann skatt átti aö
nota til aö borga hallarekstur
verksmiöjanna næsta sumar.
Mér sýnist allir þessir foringjar
vera i hlutverki karisins, sem eg
gat um I upphafi —• þó þannig aö
þeir ætla fæstir aö bæta böggun-
um á sjálfa sig — a.m.k. ekki
þeir sem eru i Landnámsstjórn.
Allir vita þessir menn aö tillög-
ur þeirra, ef framkvæmdar
yröu, skeröa enn meira raun-
verulegt kaup bænda. Óneitan-
lega heföi veriö mannlegra aö
sýna fyrst hagkvæma fram-
leiðslu heyköggla og þá meö
ööru en þvi aö hækka verö á
ööru fóöri t.d. meö þvi aö fara
fram á aö vélar og annar búnaö-
ur verksmiöjanna veröi ekki
skattlagöur stórkostlega til
rikissjóös og verksmiöjurnar
fengju raforku á liku veröi og
hún er flutt út — seld útlend-
ingum — ef menn vilja heldur
orða þaö þannig.
Hvaö ætli rafmagn til ál- og
kisilgúrverksmiöja sé greitt
niður um mörg hundruð
(þúsund?) milljónir á þessu ári
og þvi miður er væntanlegt til
viðbótar rafmagn fyrir járn-
blendiverksmiðju. 1 þeim út-
reikningi mætti miöa viö verö til
fyrirtækja tslendinga t.d. frysti-
húsa. Allur sá munur er útflutn-
ingsuppbætur. Ég held aö
erfiðleikar séu á þvi aö bændur
geti sparað rekstrarútgjöld svo
neinu nemi, án þess aö það komi
fram á afurðum gripanna. En
þaö eru margir útgjaldaliðir
sem á bændur eru lagöir, sem
skeröa kaup þeirra, kostnaðar-
auki I hverri mynd semgerir
það. Viö vitum aö þaö erum við
sem bagginn leggst endanlega á
— þó ráðgjafarnir segi annaö.
Viö vitum aö Lifeyrissjóöur
bænda innheimtir stórar fjár-
hæöir árlega, sem skerða kaup
okkar um sömu fjárhæö. Lif-
eyrissjóðurinn gerir þó ekki
annaö en létta grei&slum af Al-
mannatryggingum. Nú þegar á
sjóöurinn yfir 1000 milljónir i
veröbólgueldinum.
Viö vitum aö heykögglaverk-
smiðjur hafa siöur en svo bætt
hag bænda og þeir sem þeim
ráöa þ.e. Landnámsstjórn, hafa
ekki uppi áform um þaö, sbr.
kröfuna um hækkun á öörum
fóöurvörum. Viö borgum til
Stofnlánadeildar af kaupinu
okkar og nú á aö bæta viö þá
upphæð. Stofnlánadeild og Lif-
eyrissjóður bænda leggja m.a.
fram fé til aö fjármagna verzlun
þá sem rekur sláturhús á
Norðurlöndum. Þau eru svo
stórkostleg að þau verða að
hirða fyrir sig töluverðan hluta
dilkanna sem I þau kemur.
Nýjasta plantan á þessum
akri er tillaga frá „okkar”
mönnum á Alþingi um nýtingu
sláturúrgangs. Skv. upplýs-
ingum sem þeirri tillögu
fylgja, telja flutningsmenn aö
þarna fari jafnvel I súginn „30-
40% af verömæti sláturdýr-
anna”.
Það munar um minna og þetta
er bara fyrir lappirnar og garn-
irnar ásamt hluta af blóðinu.
Þetta er vist nýtt nú þegar á
tveimur stöðum á landinu.
Fróðlegt væri að heyra hvaö
bændur á þessum stöðum fá
mörgum þúsundum meira en
við hinir fyrir dilkinn.
Sjálfsagt veröur aö flytja úr-
ganginn saman úr nokkrum
siáturhúsum m.a. hér vestra og
gera þaö daglega. Af slæmri
reynslu dettur mér i hug að
annaö læriö af hverjum dilk færi
i að flytja lappirnar og garn-
irnar I mjölvinnsluna — og ekki
óliklegt aö hitt læriö færi svo til
að borga þaö sem þetta slátur-
mjöl yröi dýrara en fóöur-
blandan.
Þau skipti yröu þá bara i sam-
ræmi viö aöra fullvinnslu á okk-
ar framleiöslu.
Halldór Þóröarson
Laugalandi, ls.
Dráttarvélar á Islandi
— umhirða og öryggi
Um þessar mundir gefur aö
lita I blöðum auglýsingar á
dráttarvélum, og eru þar stór
orö og fögur ekki spöruö, enda
er þaöekkiannaö en heilbrigöur
viöskiptamáti. Setningar og
málsgreinar eins og „öryggis-
hús bólstraö I hólf og gólf” eöa
„allar innréttingar eins og i bil”
eru þar eigi sjáldséöar.
Ekki nefna öll umboöin verö á
vélunum enda hlýtur bændum
aö ofbjóöa tölur eins og
3.000.000.- fyrir eina dráttarvél.
Þó gefur stundum aö lita verö,
sem eru venjulega frá 1-2
milljónir. En mér er spurn:
Hafa fslenzkir bændur yfirleitt
nokkuð aö gera viö vél sem
kostar uppundir þrjár milljón-
ir?
Flestar munu þessar vélar
vera notaöar 200-300 vinnu-
stundir ár hvert og minnst yfir
vetrartimann, auk þess sem þaö
hefur sýnt sig viöa, aö meöferö-
in á þessum tækjum er oft á tiö-
um hroöaleg. Allt of viöa ber
fyrir augu. ijóslausar vélar,
beyglaóar, drullugar og til
’nreins ósóma fyrir eigendur.
Gjarnan er stýrisbúnaöur æöi
vafasamur aö ekk' - ' á
hemlabúnaöinn, en allt þetta
hefur hjálpazt aö viö aö fjölga
dráttarvélaslysum, sem eru of
tiö. Ekkert eftirlit viröist vera
haft meö þessum málum.
Nýjar uppfylla vélarnar allar
þær kröfur sem geröar eru til
öryggisbúnaöar þeirra. En meö
misjafnri me&ferö i gegnum ár-
in veröur öryggisbúnaöi vél-
anna áfátt, nema eitthvað sé aö
gert.
Þó eru ekki allir bændur undir
sama hatti hvaö þetta snertir,
sem betur fer. Þeir bændur eru
til, sem leitast við aö halda vél-
um sinum I sem beztu lagi, bæöi
gangverkioghlifabúnaöi. Meira
aö segja eru til vélar, sem
standa stlfbónaöar inni I húsi,
þegar þær eru ekki notkun. Slik
umhiröa er sannarlega viöur-
kenningar verö. Ekki þætti mér
úr vegi ef Stéttarsamband
bænda, og á ég þar viö stjórn
þess, stæöi fyrir verölaunaveit-
ingum fyrir bezt hirtu dráttar-
vélarnar. Þaö myndi kannski
stuöla aö bættri umhiröu bænda
á vélunum
öryggiseftirlit rikisins þyrfti
einnig að taka nnr) árlegar skoö-
anir á d
margar hverjar hreinustu
dauðagildrur, öryggisgrindar-
lausar, bremsulausar, ljóslaus-
ar og meö stórvarasaman stýr-
isbúnaö
En þvi miöur fara allt of
margar rándýrar dráttarvélar
svona, á kannski 3-4 árum.
Einnig er þaö ekki óalgeng sjón
aö sjá uppfenntar dráttarvélar
á vetrum. Þegar vora tekur eru
rafgeymar oft orönir afar dauf-
ir, og oft er þá brekkan látin sjá
um gangsetningu.
Ég geri sem sé a& tillögu
minni aö öryggiseftirlitiö geri
feröir i sveitirnar árlega, og
taki úr umferö þær v.élar, sem
reynzt geta hættulegar af völd-
um slælegrar meöferöar.
Einnig, eins og á&ur sag&i, aö
forráöamenn bændastéttarinn-
ar beiti sér fyrir verölaunaveit-
ingum fyrir bezt hirtu vélarnar.
Og aö lokum skora ég á is-
lenzka bændur aö hugsa máliö
og llta i eigin barm. Dráttarvél-
ar eru dýr tæki sem ekki er hægt
að vera án, enda góð og geg...
En þær geta lika reynzt hættu-
legar, ef regiulegs viöhalds og
fyllsta öryggis i hvlvetna er ekki
P4nri*somtr
<& ’acrobat’
Lyftutengd 4ra hjóla
rakstrar og snúningsvél
Þúsundir íslenzkra
bænda þekkja
Vicon acrobat
vélina.
Hún er einföld i gerð og lip-
ur i notkun. Vinnslugæði
frábær og rakar þar að auki
frá girðingum og skurðkönt-
um. Vinnslubreidd 2 m.
Verð ca. kr. 112.000.
Nánari upplýsingar hjá
sölumanni.
1 Gi b b us?
LÁGMÚLI 5, SlMI 81555
BERU- OG DUDUCO PLATÍNUR
venjulegar og loftkældar — í:
þýzka-
brezka- r
franska-
ítalska-
ameríska- Póstsendum
rússneskc- m « um a//t
og fleiri DI L A land
3
rz
T5T
ARMULA 7 - SIMI 84450
Kópavogskaupstaiur K1
------------------CWj
Tæknifræðingur
óskast
Byggingatæknifræðingur óskast til starfa
hjá Kópavogskaupstað.
Starfssvið aðallega mælingar.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 7.
mai n.k., sem einnig veitir nánari upp-
lýsingar.
Fæjarverkfræðingar Kópavogs.