Tíminn - 01.06.1977, Síða 2
2
Miðvikudagur 1. júni 1977.
Stapavík hrakin frá
— þegar var verið að landa í Skotlandi
gébé Reykjavlk — Stapavlk var
að landa ágætis fiski I Ayr I
Skotlandi aðfaranótt mánu-
dagsins, þegar einhverjir
verkamannaleiðtogar mót-
mæltu lönduninni, og leysti
skipstjórinn þegar landfestar og
hélt frá og er skipið nú á leið
með þau 20 tonn, sem enn voru
eftir f þvi, til Færeyja, sagði
ómar Hauksson, skrifstofu-
stjóri hjá útgerðarfyrirtæki
Stapavikur, Þormóði ramma á
Sigiufirði. Hann kvað allar
fréttir af þessum atburðum frá
Skotlandi fremur óljósar enn, en
þó væri ljóst, að ekki hefði kom-
ið til neinna átaka. Þaö tókst að
landa um 50 tonnum úr Stapa-
vlkinni I Ayr og var landað beint
I kælibifreiðar, sem slðan fluttu
fiskinn til Hull. Gott verð fékkst
fyrir fiskinn, eða um 165.- kr.
fyrir hvert kg.
— Viö höfðum haft samband
við aðila I Bretlandi, sem töldu
aö öllu væri óhætt og að viö gæt-
um landaö þessum afla úr
Stapavlkinni. Þegar þessi mót-
mæli komu fram, hætti skip-
stjórinn ekki á neitt og leysti
strax landfestar og hélt á brott,
sagöi Ómar. — Þetta er i fyrsta
skipti, sem islenzkt skip reynir
að landa afla sinum I Bretlandi
siöan þorskastriöinu lauk. — Við
reynum þetta áreiöanlega ekki
aftur á meðan ástandið er
svona, sagði Ómar.
Stapavlk hafði tekið þennan
rúmlega 70 tonna afla á Sauðár-
króki úr skipinu Drangey. Tveir
togarar lönduðu á Sauðárkróki I
siöustu viku, en vegna yfir-
vinnubannsins var útilokað að
vinna allan aflann þar. Þar sem
Stapavikin á Siglufirði hafði
ekkert verkefni þá, var ákveöiö
að skipiö tæki aflann og sigldi
með hann og reyndi að landa
honum, en ekki tókst betur til en
fyrr er frá sagt.
Nótaskipiö Stapavik hét áöur
Reykjaborg, en útgeröarfyrir-
tækið Þormóöur rammi á Siglu-
firði keypti skipiö I júli á s.l. ári.
Akveöið hefur veriö aö Stapa-
vikin fari á loðnu I sumar fyrir
Noröurlandi. Auk Stapavikur
gerir fyrirtækiö út tvö önnur
skip, skuttogarana Sigluvlk og
Stálvlk. I gær var Sigluvlkin að
landa 80 tonnum á Siglufiröi
eftir viku útivist. Stálvik
landaði I Færeyjum I slðustu
viku 150 tonnum og fékkst kr.
95.- meöalverð fyrir aflann þar.
— Astæðan til þess að landað
var i Færeyjum er yfirvinnu-
banniö, en það verö sem við
fengum, kemur út mjög svipaö
og þaö sem við hefðum fengiö
fyrir aflann hér, sagöi ómar
Hauksson.
Útisamkoma áÞjársárbökkum:
Engar óspektir
en ölvun mikil
Mikil þörf er á að viöbyggingu Hvassaleitisskólans ijúki sem fyrst, og
ibúar I nágrenni skólans eru siðuren svohrifniraf aðhafa hina geysi
miklu bárujárnsgirðingu fyrir augunum enn um sinn, en hún var reist
fyrirhartnæreinu ári. (Tfmamynd GE)
Langt í land
að Hvassaleitisskólinn verði
fullbyggður
Karl Krist-
jánsson prent-
ari látinn
Karl Kristjánsson, prentari frá
Alfsnesi á Kjaiarnesi, andaðist I
Landspitalanum 26. mai.
Hann var um langt skeið
prentari I Acta og Eddu og prent-
aði Tlmann um nætur um tugi
ára.
Karl var ókvæntur, en átti einn
son, Kristján Kristjánsson tón-
listarmann.
Opnuö hefur verið sýning List-
iönar á göngum Kjarvalsstaöa.
Þar eru sýnd verk þriggja Is-
lenzkra hönnuða, en allir eiga
þeir það sameiginlegt, að hafa
vakið athygli erlendis fyrir verk
sln eöa hugmyndir.
Þeir sem eiga verk á þessari
sýningu eru:
Steinn Sigurösson hönnuöur,
sem teiknaöi og smlöaði raf-
magnsbllinn Rafsa og hlaut fyrir
hann fyrstu verðlaun I samkeppni
bandariska timaritsins Popular
Macanis. Billinn verður á sýning-
unni.
KJ-ReykjavIk. Þá er afstaðin
fyrsta feröamannahelgi ársins
og gekk allt þokkalega vfðast
hvar. A Þjórsárbökkum var
haldin eina útisamkoma helgar-
innar þar sem saman komu um
4000 manns, flest unglingar og
ungt fólk á aldrinum 15-20 ára.
ölvun var áberandi, og þurfti
Reykjavfkurlögreglan að sel-
flytja I bæinn um 140 manns og
liðlega 40 voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur. Að sögn
Bjarka Elfassonar yfirlögreglu-
þjóns I Reykjavlk var sumt
þetta fólk mjög illa á sig komiö
af vosbúð og öivun. Sumum var
þó leyft aöfara, látiö sækja aðra
en nokkra uröum við að geyma,
sagði Bjarki ennfremur. Fóik
þetta var bæði frá Reykjavlk,
nágrannabyggðunum og annað
lengra að.
Þær raddir hafa heyrzt aö
ástandiö á Þjórsárbökkum hafi
vægast sagt veriö slæmt um
helgina, einkum er þaö álit full-
orðins fólks sem leið átti þar
um. Bæði var erfitt fyrir akandi
að athafna sig á svæöinu, og
finna bilastæöi svo og voru um-
feröarhnútar við brúna, en verst
lætur fólk þó af ástandi ungling-
anna, sem margir hverjir munu
Einar Þ. Asgeirsson arkitekt,
sem sýnir ýmsar nýjar tegundir
léttbygginga og llkön af bygging-
um. Auk þess sýnir hann nýja
gerð barnaleikfanga (klippileik-
föng) og leikgrind. A sýningunni
verður aðstaöa fyrir börn til að
leika sér.
Helga Björnssontlzkuteiknari I
Frakklandi. Helga hefur getiö sér
frægöarorö fyrir tlzkuteikningar
sinar. Sérstaka athygli vöktu
verk hennar, þegar hausttlzkan
var kynnt I marz sl. á tizkusýn-
ingu Louis Feraud en fyrirtæki
hans er I fremstu röð meðal tlzku-
hafa verið átakaniega illa á sig
komnir. 1 þvl sambandi furöa
margir sig á þvl, að áfengisbann
var ei augl. af mótshaldara og
engin leit fór fram I bílum eða á
fólki sem fór inn á svæöið. Aö
sögn Bjarka Ellassonar hefði
einnig verið æskilegra, að ráð-
stafanir heföu veriö geröar fyrir
fram I sambandi við flutninga á
ofurölva fólki, auk þess sem
hann taldi meöferö áfengis
óheppilega á bökkum Þjórsár.
Sigurður Jónsson lögreglu-
varðstj. á Selfossi, sagði I sam-
tali við Tlmann I gær, að þrátt
fyrir allt heföi löggæzla verið
sterk, meö aðstoö Reykjavlkur-
lögreglunnar og vegalögreglu,
og mót þetta raunverulega lltið
veriö frábrugðiö öörum sllkum
mótum. Þess bæri einnig að
gæta að þetta hefði veriö eina
mótið á landinu um helgina og
tjaldstæöi auk þess bönnuð vlð-
ast hvar umhverfis, svo sem á
Þingvöllum og vlðar. Siguröur
sagði aö leit að áfengi hefði ekki
fariöfram og væri hart að þurfa
að beita slikum aðgeröum enda
heföi alls ekki veriö búizt viö
sllkum fjölda mótsgesta. I þvl
sambandi benti hann á, að slika
Framhald á bls. 23
húsa Parlsar. Helga er einn aðal-
teiknari hússins. Hún sýnir hér
tizkuteikningar og smásýnishorn
af vinnu sinni.
Listiön leggur áherzlu á létt
yfirbragð þessarar sýningar. A
sýningunni verða ekki eingöngu
fullgerðir hlutir, heldur einnig
verk I mótun, og rakinn þróunar-
ferill sumra þeirra verka, sem
þar eru sýnd. Sýningin á göngum
Kjarvalsstaða er fyrsti liðurinn I
fyrirhugaöri kynningarstarfsemi
Listiönar. Aðgangur er ókeypis,
og sýningin stendur I hálfan mán-
uö.
FB-Reykjavík. Rúmlega mann-
hæðarhátt bárujárnsþil hefur frá
þvl I fyrrahaust umlukið meiri
hluta skólalóðarinnar við
Hvassaieitisskólann. Innan við
þetta þil er áætlað að einhvern
tlma I framtlðinni rlsi þriðji hlutl
Hvassaleitisskólans. t þeim hluta
er gert ráð fyrir stjórnunarað-
stöðu, bókasafni, lesstofu, sam-
komusai, sem verður þannig úr
garöi ger, aö hægt verður að hafa
I honum leikfimikennslu, heilsu-
gæzlu og tónmenntarkennslu.
Hvassaleitsskólinn tók til starfa
I bráöabirgöahúsnæöi árið 1965.
Fyrsti áfangi skólans var tekinn I
notkun árið 1966 en annar hluti
árið 1969, þótt ekki væri fulllokiö
við hann fyrr en árið eftir. Slðast-
liðið sumar var svo hafizt handa
um að grafa grunn undir þriöja og
slöasta hlutann, og var því verki
lokiö rétt um það leyti, sem skól-
inn tók til starfa. Mikið óhagræði
er að þvl fyrir skólastarfsemina
að hafa stóran húsgrunn á skóla-
lóöinni, og m.a. þess vegna var
girt utan um hann meö báru-
járni. Nágrannar skólans llta
þessa girðingu óhýru auga, þvl að
heldur er hún til leiöinda en hitt,
þótt hún gegni slnu ákveðna hlut-
verki.
Kristján Sigtryggsson skóla-
stjóri sagöi I viötali við Tlmann,
aö vonir hefðu staöiö til, aö hægt
yrði að hefja vinnu við byggingu
hússins nú strax og skóla lýkur.
Teikningar áttu aö liggja fyrir um
páskana, og þá átti að taka þær til
meöferðar hjá fræösluráöi og
borgarráði, og slöan hefði útboð
fariö fram á verkinu. Þvi miður
hefur þessi áætlun ekki staðizt og
teikningar og útboðsgögn liggja
enn ekki fyrir. Er þvl sýnt, að
framkvæmdir hefjast ekki jafn-
fljótt og vonazt hafði veriö til I
fyrra haust. Samkvæmt fyrri
áætlunum var búizt við að húsið
yrði steypt upp á þessu ári, og
gengiö frá innréttingum næsta ár.
Þegar lokið er smlði þessa
þriðja áfanga Hvassaleitisskól-
ans uppfyllir hann kröfur um
barnaskóla, þar sem eru tvær
bekkjardeildir I hverjum ár-
gangi. Fram til þessa hafa verið
tvær gagnfræöadeildir I skólan-
um, en þær verða þar ekki I fram-
tlðinni, heldur einungis barna-
skóladeildir. Veröa börn úr
Hvassaleiti þvl að sækja skóla I
Réttarholtsskóla I sjöunda og átt-
unda bekk.
Allt frá þvl kennsla hófst I
Hvassaleiti hefur þurft að fá inni
fyrir Iþróttakennslu I Breiöa-
gerðisskóla og viröist enn langt I
land með aö þaö fyrirkomulag
hverfi úr sögunni ef framkvæmd-
ir vib skólann tefjast enn einu
sinni.
Listiðn sýnir að Kjarvalsstöðum
Leikföng, léttbyggingar,
tízkuteikningar og rafmagnsbíl
NÝ SÝKUVERKSMIÐJA ÚTRÝMIR
GULA REYKNUM í GUFUNESI
FB-Reykjavlk. Þjóðhagsstofn-
un hefur enn til meöferöar
áfangagreinargerð, sem
Aburöarverksmiöjunefnd skil-
aði slðastliðið sumar um bygg-
ingu nýrrar sýruverksmiðju I
Gufunesi. Má vænta umsagnar
Þjóöhagsstofnunar siðar I
sumar, samkvæmt upplýsing-
um Halldórs E. Sigurðssonar
landbúnaöarráðherra.
Aburðarverksmiðjunefnd
skilaði landbúnaðarráðherra
áfangagreinargerö varðandi
aukningu áburöarframleiöslu I
Gufunesi, og möguleika á aö
framleiöa þar áburð til útflutn-
ings, og I þessari greinargerö er
einnig fjallað um áðurnefnda
sýruverksmiðju, sem væri liöur
i þessari framkvæmd.
Runólfur Þórðarson verk-
smiöjustj. og form. Aburðar-
verksmiöjunefndar sagöi I við-
tali viö Tlmann, að lagt hefði
verið til að byggð yrði sýruverk-
smiöja I stað þeirrar, sem nú er
fyrir I Gufunesi. Með byggingu
verksmiðju þessarar væri hægt
að auka áburðarframleiðsluna
frá því sem nú er, svo lands-
menn yröu sjálfum sér nógir á
þvl sviði, en nú eru framleiddir
tveir þriöju hlutar þess áburöar,
sem notaöur er I landinu. Einnig
yrði bá hægt aö lækka fram-
leiðslukostnað áburðarins um
7% aö sögn Runólfs.
Samkvæmt kostnaöaráætlun,
sem gerð var um þessa verk-
smiðju, hefði hún kostaö 1000
milljónir króna, og sagöi
Runólfur, aö bygging hennar
ætti ekki að þurfa að taka mikiö
fram yfir eitt ár. Stærð verk-
smiöjunnar er miðuð við, aö hún
geti framleitt þann áburð, sem
við þurfum á að halda næstu 10
til 15 árin.
I Gufunesi eru I rauninni
fimm verksmiðjur, og er ein
þeirra sýruverksmiðja, en frá
henni kemur sá guli reykur,
sem stundum leggst yfir sundin
og vogana hér I kring. Með til-
komu nýrrar verksmiöju myndi
þessi reykur hverfa, þar sem
hún er búin fullkomnum tækj-
um, sem koma I veg fyrir, að
hann hverfi úr I andrúmsloftið.
Halldór E. Sigurösson ráö-
herra sagði, að Þjóöhagsstofnun
hefði enn til meðferðar greinar-
gerð nefndarinnar, og byggist
hann viö, að stofnunin skilaði
áliti um hana slöar i sumar.