Tíminn - 30.06.1977, Side 20
28644 PTMJJ.l 28645
fasteignasala öldugötu 8
Fasteignasalan sem sparar hvorki
tima né fyrirhötn til að veita yður sem
Sölumaöur: Finnur*l£aFÍslo|ii^^}afgaróur Sigurdsson
heimasimi 4-34-70 lögf ræðingur
HREVFILL Nútima búskapur þarfnast BIWI Sil. 1 haugsugu^ÆT
Sfmi B 55 22 Heildverzlun Sfðumúla 22e**rjr"""'/ vBEf Símar 85694 & 85295
Þing norræna heimilisiðnaðarsambandsins í Reykjavík:
11 GREINAR HEIMILISIÐNAÐAR
KENNDAR í HAGASKÓLA
SJ-Reykjavik. 1 gærmorgun hófst
i Hagaskóla Norrænt heimilis-
iðnaðarþing, sem stendur i þrjá
daga. Einkunnarorð þingsins eru
að þessu sinni: Nútima heimilis-
iðnaður — Gamlar vinnuaðferðir
— Viö lærum hvert af öðru. Jafn-
framt er haidin yfirlitssýning á
islenzkum heimilisiðnaði og
minni sýningar frá öörum
Norðurlöndum. Sýnikennsla fer
fram i heimilisiðnaöargreinum,
en auk þess eru fyrirlestrar og al-
menn kynning á greinunum i
þingsal.
tslenzka sýningin er i þrem
kennslustofum Hagaskóla, en i
fjórðu kennslustofunni fer svo
fram Islenzka sýnikennslan i tó-
vinnu og bandavefnaöi (fótvetn-
aði og spjaldvefnaði), auk kynn-
ingar á jurtalitun.Hin löndin hafa
hvert sina stofu. Danmörk sýnir
ieirkeragerð og hnýtingar, Finn-
land karelska skilskeftuog keðju-
hekl, Noregur gerð stafailáta og
netdúta (telemarksbinding). Svi-
þjóð barkarvinnu og flókagerö.
Þetta þing, sem nú er haldið, er
hið 16. i röðinni og i þriðja skiptið
sem það er haldiö á Islandi. Hið
fyrsta hér á landi var haldið 1948.
Framhald á bls. 16.
Forseti Islands i norsku deildinni Isamræðum viðþrjá gestanna. _Tfmamyndir: GE.
Bið í nokkur ár
— og síðan jólatré úr Brynjudal á
Faxaflóasvæðið
JH-Reykjavik. — Trúlega lýkur i
dag gróöursetningu á nýjum og
áiitlegum stað i nágrenni höfuð-
borgarinnar, sagði Kristinn
Skæringsson skógarvörður, er
Timinn hafði tai af honum i gær.
Þetta er i iandi Hrisakots i
Brynjudal, og þar eiga nd aö vera
komnar fjörutiu þúsund barr-
viðarplöntur i jörðina.
Fyrir fáum misserum keypti
landgræðslusjóður helming jarö-
anna Ingunnarstaöa og Hrisa-
kots, og hefur hluti af landi Hrisa-
kots verið girtur. Girðing þessi er
fjórir kilómetrar á lengd, og eru
innan hennar skemmtilegar
brekkur i noröurhlið, þar með
hluti af gömlu túni.
Eitthvað fimm þúsund plöntur
voru gróðursettar i fyrra, og i vor
hefur heimafólk, sem situr fyrir
þessari vinnu, gróðursett fjörutiu
þúsund plöntur. Er það sitka-
greni, stafafura og rauðgreni,
sem sett er mjög þétt, i svo til
ógrisjuðu kjarri„ þvi aö það er
ætlaö i jólatré handa fólki hér
suðvestan lands, þegar það hefur
náð vexti til þeirra nota.
1 þann hluta túnsins, sem er
innan skégræktargirðingarinnar,
verður sett vöxtulegt birki, sem
ekki erhætta á, að grasiö kæfi. En
það biður betri tima, sagði Krist-
inn.
Brynjudalur er sem kunnugt er
mjög hlýlegur og innri hluti hans
að verulegu leyti vaxinn birki-
skógi, þó fremur lágvöxnum við-
ast hvar. Liklegt er, að þar sé
jarðvegur frjór, og dalurinn vel
fallinn til skógræktar að öðru
leyti. Má vænta þess, að með tiö
og tima vaxi þar upp álitlegasti
skógurinn, sem heita má i næsta
nágrenni við höfuðborgarsvæðið.
Eins og margir munu vita, er
einnig hafin skógrækt að Fossá i
Kjós, og munu þar lika álitleg
skilyrði til sliks.
AUKIN VOT-
HEYSVERKUN
JH-Reykjavik. —• Sunniending-
um, sem búa á mesta votviðra-
svæði landsins, hefur verið iegið
á háisi fyrir það, hversu tregir
þeir hafa veriö til þess að taka
upp votheysverkun, sem f senn
veitir margfalt öryggi i saman-
burði við heyþurrkun, hlifir tún-
unum við átroðningi, sparar
vinnu, véiakost og olfueyðslu,
krefst minna hlööurýmis og gef-
ur betra fóður en annars fæst að
jafnaöi.
Ahinn bóginn hefur þeim ann-
mörkum, sem gerði votheys-
verkun ófýsilega á meöan næga
kunnáttu og heppileg
iblöndunarefni vantaöi, verið
rutt úr vegi. Þannig þarf til
dæmis ekki lengur neinn óþefur
að fylgja meöhöndlun votheys.
Séu miklar jarðyrkjusveitir á
Suðurlandi eins og til dæmis
Flóinn, teknar til dæmis, þá
munu að visu einhverjar smá-
holur til votheysverkunar vera
til á flestum bæjum.þótt til séu
þar býli, þar sem ekki er upp á
neitt slikt aö hlaupa, en láta
mun nærri, að ekki sé nema
helmingur bæja, þar sem vot-
heysrými er eitthvað að marki.
NU er á hinn bóginn að
veröa á þessu breyting. Timan-
um er kunnugt um, að verið er
að koma upp flatgryfjum i
ölfusholti i Hraungeröishreppi
og Kolsholti i Villingaholts-
hreppi, og voru á siðarnefnda
bænum notuð svonefnd létt-
flekamót, þar sem engan nagla
þarf að nota, og uppsetningin
tekur aðeins fáa daga. Járn-
turna er verið að reisa i Syðri-
Gróf i Villingaholtshreppi og
Geröum I Gaulverjabæjar-
hreppi, plastturn i Vorsabæjar-
hjáleigu og ferhyrnda horn-
gryfju aö Hurðarbaki. Þetta eru
aðeins dæmi um það, hversu
hugur sunnlenzkra bænda
hneigist nú meira en áður að þvi
að leggja rækt við votheysgerð.
Að sjálfsögðu eru það tvö und-
anfarin óþurrkasumur, og sú
búmannsraun, er þau voru, er
ýta hér á eftir.
Þá má geta þess, að umsóknir
um ián til þess að byggja vot-
heysgeymslur eru nú orönar um
tuttugu á Suðurlandi, og er það
meira en verið hefur undanfarin
ár.
■■fiwwnpi
Sænskir munir, sem gerðir eru úr berki. Ef hvorki bregzt hug-
vit né handlagni, má margt fallegt gera úr efni, sem kann að
sýnast fátæklegt.
Sýnikennsla í fótvefnaði á islenzku yfirlitssýningunni.
PALLI OG PESI
— Auður Geirs —
\ þaö er vist meiri
J kerlingin.
I — Hvaö er um
i hana?
— Þjóöviijinn seg-
ir, aö hún sé mesta
feimnismál Is-
^ lendinga.