Fréttablaðið - 17.02.2006, Page 13
FÖSTUDAGUR 17. febrúar 2006 13
Rooibos frá Afríku - þrjár tegundir
Í rauninni er Rooibos alls ekki te. Það búið til úr rauðum runna sem vex í Cedarberg-fjöllunum í
Suður-Afríku. Rooibos er lagað eins og venjulegt te. Djúp-rauður liturinn og mildur ilmur með
krydduðum keimi gera tedrykkjuna að notalegri upplifun. Rooibos inniheldur ekki kaffín.
RINGGO URRAR Súmötru-tígurinn Ringgo,
sem er ættaður frá Súmötru, berar
tennurnar í dýragarði í Jakarta. Verð á
tígrisdýrabeinum, sem er mjög eftirsótt
sem lækningameðal í Austur-Asíu, hefur
margfaldast vegna fækkunar dýranna og
bættrar verndunar þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SUÐUR-KÓREA, AP Leiðtogi Norður-
Kóreu, Kim Jong Il, varð 64 ára í
gær og því mikið um hátíðahöld,
tónleika og sýningar í kommún-
istaríkinu, á sama tíma og spenn-
an vex vegna kjarnorkuáætlunar
landsins.
Þetta er einn mesti hátíðisdag-
ur landsins, en alþjóðadeilur um
kjarnorkuáætlun þess og refsiað-
gerðir Bandaríkjanna setja mark
sitt á hann.
Ríkisstjórnin og yfirmenn
hersins hafa hvatt almenning til
að sýna leiðtoganum stuðning í
baráttunni gegn Bandaríkjunum.
Í fyrra ákvað Bandaríkjastjórn
að beita landið viðskiptaþving-
unum og ásakaði norðurkóreskan
banka og fyrirtæki um peninga-
þvætti, peningafölsun og vopna-
framleiðslu. Norður-Kórea hefur
ítrekað neitað þessum ásökunum.
Jafnframt eru Bandaríkin eitt
ríkjanna fimm sem eiga í við-
ræðum við Norður-Kóreustjórn
um kjarnorkuáætlun landsins, en
ríkisrekin fréttastofa sagði þing-
mann nýverið hafa lýst því yfir
að ekkert yrði frekar úr þeim við-
ræðum breyti Bandaríkin ekki
stefnu sinni.
Kim tók við völdum sem leið-
togi landsins eftir föður sinn, Kim
Il Sung, en sjálfur hefur hann enn
ekki útnefnt arftaka sinn. - smk
Hátíðahöld í Norður-Kóreu, en fátækt og alþjóðadeilur skyggja á gleðina:
Afmælisveisla leiðtogans Kim Jong Il
FJÖLDAFAGNAÐUR Mynd frá hátíðahöldum í Pyongyang í tilefni af afmæli leiðtogans árið
2003. NORDICPHOTOS/AFP
VERSLUN Hlutfallslega mestur
vöxtur í sölu nýrra bifreiða varð á
Íslandi milli áranna 2004 og 2005
samkvæmt tölum frá erlendum
samtökum sem utan um slíkar
upplýsingar halda.
Sala nýrra bifreiða hérlendis
jókst það ár um rúm 40 prósent,
heilum 20 prósentum meira en í
Danmörku sem kom næst. Sé litið
til síðasta árs jókst sala á öllum
helstu markaðssvæðum Evrópu
þó að heildarsala hafi verið örlít-
ið minni en árið 2004. Bifreiðir af
Volkswagen-tegund seldust mest
en Renault kom þar skammt á
eftir. - aöe
Bílasala í Vestur-Evrópu:
Mestur vöxtur
á Íslandi
BÍLASALA Jókst um rúm 40 prósent milli
áranna 2004 og 2005..
SÖGURITUN Kristján Þór Júlíusson,
bæjarstjóri á Akureyri, og Jón
Hjaltason sagnfræðingur skrif-
uðu í vikunni undir samning um
ritun fimmta bindis af Sögu Akur-
eyrar en Jón er einnig höfundur
fyrri bóka í ritröðinni.
Efnistök fimmta bindisins mið-
ast við árabilið frá 1940 til 1962 og
er stefnt á að bókin komi út árið
2010.
Jón segir að við ritun fyrri
binda af Sögu Akureyrar hafi
hann einkum notast við skrifaðar
heimildir. Fimmta bindið verði
hins vegar að megni til um Akur-
eyringa sem enn eru á lífi og því
muni hann taka viðtöl við fjölda
fólks. - kk
Samningur undirritaður:
Sagan til ársins
1962 skráð
GENGIÐ FRÁ SAMNINGNUM Jón Hjalta-
son og Kristján Þór Júlíusson ganga frá
samningi um ritun fimmta bindis af Sögu
Akureyrar. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
Cheney ábyrgur Dick Cheney, vara-
forseti Bandaríkjanna, hefur viðurkennt
að hann beri fulla ábyrgð á óhappinu
sem varð í veiðiferð hans og félaga
hans, milljarðamæringsins Harrys Whitt-
ington, um síðustu helgi. Cheney skaut
á Whittington, svo höglin lentu í andliti
hans, hálsi og bringu.
BANDARÍKIN