Fréttablaðið - 17.02.2006, Síða 36
2
Birkir ekur um á Jeep Wrangler,
árgerð 1991. Bíllinn er á 38“ dekkj-
um en Birkir segir hann pínkulítinn
í samanburði við alla hina. Hann er
þó með 4ra lítra bensínvél enda er
bíllinn umfram allt leiktæki. „Ég er
búinn að eiga hann og annan svona
í 6 ár. Sá gamli valt og ég bjó til
þennan úr brakinu. Tryggingarnar
neituðu að borga fyrir breytinguna
svo það var vænlegasti kosturinn,“
segir Birkir.
Það besta við jeppamennskuna
finnst Birki vera að komast út fyrir
dreifikerfi GSM síma. „Þá er maður
laus við hversdagsleikann, skilur
hann eftir. Styttri ferðirnar að
minnska kosti eru líka svo afslapp-
aðar, ekkert stress. Maður endur-
nærist á þessu.“
Birkir fékk áhuga á jeppamennsku
í gegnum Lada Sport sem fjölskylda
hans átti. „Við fórum á henni út um
allt land og reyndum fyrir okkur í
snjónum. Þannig datt ég inn í þetta.
Ég ætlaði reyndar aldrei að fá mér
jeppa en bróðir minn benti mér á
gamla bílinn minn. Það var topp-
eintak svo ég keypti hann, byrjaði
í þessu á fullu og hef ekki hætt
síðan,“ segir Birkir.
Uppáhaldsferðamáti Birkis er
vetrarferðir í litlum hópi. „Það er
gott að ferðast í þéttum hópi. Þá
hjálpast allir að og það er ekk-
ert vesen. Allir þekkja alla og ef
eitthvað kemur upp á halda allir
ró sinni. Það er erfiðast að finna
ferðafélaga sem maður þekkir og
veit að eru góðir, líka þegar allt er
farið til fjandans,“ segir Birkir og
leggur áherslu á orð sín.
„Það gerist margt í svona ferð-
um, flest skemmtilegt. Stundum
kemur eitthvað upp á en það redd-
ast alltaf. Við höfum meira að segja
lent í bílveltu og slysum á fólki.
Góður hópur reddar málunum án
þess að það sé neitt vesen. Það er
ómetanlegt.“
Fram undan er grillferð í Land-
mannalaugar. „Það er gott að fara í
svona afslappaðar ferðir á milli erf-
iðari ferðanna. Annars er Dranga-
jökull eini jökullinn sem ég á eftir
að koma á, hann er líka á stefnu-
skránni en ég kemst sennilega ekki
á hann í vetur.“
Aðspurður um skemmtilega ferða-
sögu stendur ekki á Birki. „Við vorum
að koma úr Landmannalaugum og
erum að keyra við Kirkjufellsvatn.
Kærastan var með mér í bílnum og
skyndilega kallar hún upp að ég eigi
að passa mig. Ég rykkti samstundis
í stýrið en passaði mig í vitausa átt
og við lentum úti í á. Þð tók fimm
tíma að brölta fjörutíu metra í gegn-
um ísinn í ánni því ég komst ekki
upp á bakkann aftur,“ segir Birkir að
lokum.
Skilur hversdagsleikann eftir
Birkir Jónsson fer ekkert í grafgötur með það að jeppinn hans er leiktæki. Hann notar
hann til að komast út fyrir dreifikerfi GSM.
Tveir góðir á Snæfellsjökli. Eins og jeppamanna er siður segist Birkir alveg hafa getað farið hærra, hann hafi bara ekki nennt því þennan dag.
MYND/BJÖRN ÞÓR JÓNSSON
Birkir Jónsson hefur keyrt tvo Wrangler-bíla sína í sjö ár. Núverandi bíll er smíðaður upp úr
þeim eldri, sem skemmdist eftir veltu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
4x4
Ferðaklúbburinn 4x4 er mjög vin-
sæll og heldur uppi frábærri heima-
síðu. Mjög athyglisverðar ferðir eru
skipulagðar af félaginu, sem dæmi
er Heimskautaferð til Kanada.
Árgjaldið í félagið er 4.200 krónur.
Vefsíða: www.f4x4.is
Íslandsrover
Félagsskapur fyrir alla Land Rover-
eigendur. Skipuleggja ferðir með
eigendum Land Rover-bíla og halda
úti heimasíðu með gagnlegum upp-
lýsingum fyrir þá.
Vefsíða: http://www2.ecweb.
is/islandrover
Stormsveitin
Starfsmenn Flugmálastjórnar
halda úti Jeppaklúbbi sem kallast
Stormsveitin.
Vefsíða: http://that.is/jeppaklubbur
Heimsgir hf
Innan félagsins starfa ýmsar deildir
samkvæmt heimasíðu þeirra. Lands-
þing félagsins er haldið ár hvert
á Þingvöllum. Félagið hefur farið
skipulagðar ferðir til útbreiðslu
boðskaparins til ýmissa landa úti í
hinum stóra heimi.
Vefsíða: heimsgir.org
4x3 á flugi
Almennur jeppa- og vélsleðaklúbbur
í Vík í Mýrdal. Markmið klúbbsins
er að stunda heilbrigða og skemmti-
lega ferðamennsku uppi um fjöll og
firnindi, halda úti heimasíðu um
herlegheitin og umfram allt, hafa
gaman af lífinu. Félagsgjöld eru eru
500 kr. á ári en um fimmtíu manns
eru í félaginu.
Vefsíða: www.4x3aflugi.com
Gemlingarnir
Ungliðar 4x4 klúbbsins hafa heima-
síðu þar sem þeir fá að vera áfram
ungir og óábyrgir. Á síðunni má
finna myndir, spjall o. fl.
Vefsíða: www.gemlingarnir.com
Jeppaklúbbar
Á LANDINU MÁ FINNA MÖRG FÉLÖG SEM TENGJAST JEPPA-
MENNSKU. HÉR MÁ SJÁ DÆMI UM NOKKUR FÉLAGASAMTÖK OG
KLÚBBA SEM HALDA UPPI HEIMASÍÐUM.
Ferðafélög landsins eiga skála sem
eru flestir stórir og vel búnir. Yfir
sumartímann eru umsjónarmenn í
þeim að vetrinum geta ferðamenn
haft afnot af þeim gegn vægu gjaldi.
Í skálunum eru eldhúsáhöld og þá
er olíukynding í þeim flestum. Marg-
ir skálar eru í einkaeign og leyfa eig-
endur þeirra oft afnot af þeim. Það
er þó mjög mikilvægt að þeir sem fá
þá lánaða gangi vel um.
ALGENGAR REGLUR:
– Ganga frá skálanum eins og þið
mynduð vilja koma að honum sjálf.
– Reykingar eru bannaðar innan dyra.
– Ganga vel frá gluggum (ath. að allir
gluggar séu vel lokaðir.)
– Reisa allar dýnur upp svo vel lofti
undir þær og ganga frá dýnum á
svefnloftum.
– Skrúfa vel fyrir gas á eldavél í eldhúsi,
olíu á rafstöð og olíu á olíuofna.
– Hreinsa snjó úr útidyrafalsi og ganga
vel frá hlerum fyrir dyrum.
– Allt rusl og drykkjarumbúðir skal
taka til byggða.
– Þrífa og læsa salernishúsi.
– Slökkva á ljósavél og læsa gámi.
– Dýrahald er bannað nema með
samþykki annarra skálagesta.
– Svefnkyrrð skal vera í skálanum frá
kl, 24.00 til kl. 7.00.
Skálar á hálendinu
Skálaferðir geta verið notaleg ferðalög. Það þurfa samt allir að ganga vel um.
Góður félagsskapur er eitt það skemmtilegasta við jeppasportið.
ENGIN BYGGÐ ER Á HÁLEND-
INU OG ÞAÐ ER ÞVÍ KJÖRIÐ
TIL AÐ LENDA Í ALLS KONAR
ÆVINTÝRUM.
■■■■ { á fjöllum } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Veður og færð á hálendi Íslands
eru óútreiknanleg. Auk þess leyn-
ist margt undir snjóhulu og því er
vissara að vita hvert er verið að
fara. GPS-tæki eru tæki sem reikna
út staðsetningu sína út frá boðum
frá gervitunglum. Skekkjumörkin
eru yfirleitt sem nemur hálfri eða
heilli bíllengd. Með GPS-væðing-
unni opnaðist nýr möguleiki fyrir
ferðafólk. Hægt er að tengja tækin
við fartölvu með kortagrunni og
sum tækin eru meira að segja með
innbyggðu korti.
Þannig er hægt að sjá jafnóðum
hvar maður maður er staddur og
í hvaða átt maður er að ferðast.
Enn fremur er hægt að nota fyrir
fram skilgreinda punkta og ferla
til að þræða ákveðnar leiðir af
töluverðri nákvæmni.
GPS-tæki vara ekki við mis-
fellum, klettabrúnum eða öðru
slíku. Því getur verið hættulegt
að styðjast við það í blindni, til
dæmis ef skyggni er ekkert. Enn
fremur ættu gott kort og áttaviti
alltaf að vera með í för. Sá búnað-
ur verður aldrei rafmagnslaus og
bilar aldrei.
Til hvers er...
GPS-tæki?
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.
gömlu tryggingafélögin eru
með heilsárs binditíma.
elísabetu finnst það vera
rosalega 2005.