Fréttablaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 72
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
Öll von virðist úti fyrir aðdáendur
Spice Girls um að sjá þær aftur á
sviði en breska götublaðið The
Sun greinir frá því að tónleikum
sem fyrirhugaðir voru hafi nú
verið slegið á frest. Mel C og Vict-
oria Beckham er sagðar áhuga-
lausar um verkefnið og vilja sem
minnst af því vita.
Á þessu ári eru liðin tíu ár frá
því að smáskífan Wannabe sló öll
met á vinsældalistum um allan
heim og áttu tónleikarnir að vera í
tilefni afmælisins. Var ráðgert að
stúlkurnar myndu ferðast um Evr-
ópu í nóvember og desember en
lítið hefur gengið hjá „kryddun-
um“ eftir að sveitin lagði upp laup-
ana.
Heimildarmaður The Sun sagði
að Melanie hefði aldrei verið neitt
sérstaklega hrifin af hugmyndinni
um að endurreisa sveitina. „Hún
er stolt af því sem var gert fyrir
tíu árum en vill horfa fram á veg-
inn,“ hefur blaðið eftir honum.
„Hún vill einbeita sér að sínum
eigin ferli og Victoria er sama
sinnis. Hún hefur verið að gera
góða hluti í tískunni og gerir sér
fyllilega grein fyrir því að tón-
leikaferðin gæti orðið hneyksli,“
bætir heimildarmaðurinn við.
Ofan á þetta bætist að Geri Halli-
well á von á sér í sumar og hefði
því ekki getað tekið þátt í neinum
æfingum.
Ekkert krydd framarFRÉTTIR AF FÓLKIBreska Idol-stjarnan Will Young segist fara í ballett þrisvar í viku og notar
það sem líkamsrækt en þetta kemur
fram í breska blaðinu The
Sun. „Líkamsræktarsalurinn
er svo leiðinlegur en ball-
ett heldur mér við efnið
og ég nýt hans út í ystu
æsar,“ sagði söngvarinn
í samtali við blaðið.
„Ég er eini strákurinn
og þegar ég er í hvítu
legghlífunum og ball-
ettskónum líður mér
eins og Billy Elliot.“
Susan Sarandon vill ekki sjá Hillary Clinton í Hvíta húsinu af því hún
kaus ekki á móti stríðinu í Írak. Sarand-
on finnst Hillary hafa misst sjarma sinn
og getur ekki hugsað sér að hún verði
fyrsti kvenforsetinn í Bandaríkjunum.
„Hillary hefur valdið mér mikl-
um vonbrigðum og hún
segir alltof sjaldan sína
eigin skoðun,“ sagði Sar-
andon við PageSix.com.
„Hún er ekkert verri en
hver annar stjórnmála-
maðurinn en hún er
heldur ekkert betri,“
lýsti Sarandon yfir.
„Bandaríkin þurfa
fólk sem trúir á
eitthvað en ekki
stjórnmálamenn sem
bara vilja láta kjósa sig.“
Daniel Craig heldur áfram að hrella aðdáendur James Bond en hann
ætlar ekki að vera í svörtum smóking
sem lengi hefur verið einkennisbún-
ingur leyniþjónustumannsins. Craig
segir að hann muni ekki klæðast fínu
fötunum heldur verði alltaf í venjulegum
fötum. „Einu skiptin sem þið sjáið mig
klæddan á þann hátt verður
við einhverjar kynningar,“
sagði Craig. Forsvarsmaður
Bond-aðdáendaklúbbs-
ins var ekki lengi að
senda Craig tóninn
og sagði að Bond
án smókings væri
eins og Leður-
blökumaðurinn án
skikkjunnar sinnar.
SPICE GIRLS Vinsælasta stúlknasveit
allra tíma. Vonir stóðu til að þær
myndu hittast aftur í haust en það
hefur verið blásið af.
FRÉTTABLAÐIÐ/REUTERS