Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 2
2 22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
BRUNI Eldur varð laus á stiga-
gangi í fjölbýlishúsi að Hverfis-
götu 51 í fyrrinótt en íbúar í hús-
inu náðu að slökkva eldinn áður
en mikill skaði hlaust af.
Lögregla og slökkvilið voru
kölluð til og vann slökkvilið að
því að tryggja öryggi á staðnum
eftir að eldurinn hafði verið
slökktur.
Eldur logaði í svefnpoka, sæng
og flík á ganginum og virtist sem
þetta hafi allt verið skilið eftir
logandi á gólfi gangsins.
Lögreglan í Reykjavík vinnur
nú að rannsókn málsins en talið
er fullvíst að um íkveikju hafi
verið að ræða. - mh
Grunur um íkveikju:
Íbúar komu í
veg fyrir tjón
Innbrot í verslun Brotist var inn í
verslun Samkaupa í Suðurveri og þaðan
stolið smáræði af peningum. Lögreglan
vinnur að rannsókn málsins en innbrots-
þjófarnir komust inn í verslunina með
því að spenna upp hurð bakdyramegin.
LÖGREGLUFRÉTT
Lóðaumsóknir Alls bárust 412
umsóknir, frá 43 umsækjendum, um 24
nýjar byggingarlóðir á Reyðarfirði. Bæjar-
ráð Fjarðabyggðar úthlutaði lóðunum
á mánudag og var dregið á milli um-
sækjenda. Verktakar og lögaðilar fengu
úthlutað þremur lóðanna en aðrar lóðir
féllu einstaklingum í skaut.
FJARÐABYGGÐ
SKIPULAGSMÁL Framkvæmdir á
vegum Hótel Plaza við Vesturgötu
3, eða Hlaðvarpann eins og húsið
er jafnan kallað, hafa verið stöðv-
aðar samkvæmt tilmælum frá
Magnúsi Sævari Svavarssyni,
byggingarfulltrúa Reykjavíkur-
borgar. Þetta var staðfest á fundi
Skipulagsráðs Reykjavíkurborgar
15. mars síðastliðinn.
Fréttablaðið vakti athygli á
málinu fyrr í þessum mánuði
en íbúar í Grjótaþorpi eru mjög
óánægðir með framkvæmdirnar í
heild sinni. Samkvæmt mælingu
húsasmíðameistara sem vann á
vegum íbúanna var hækkun á þak-
brún Hlaðvarpans mun meiri en
byggingarleyfið hljóðar upp á.
„Bull,“ sagði Pétur Þór Sigurðs-
son, hæstaréttarlögmaður og einn
eigenda Hótel Plaza í Reykjavík,
þann 6. mars síðastliðinn þegar
Fréttablaðið spurði hann um
málið.
Í bréfi byggingarfulltrúa, sem
lagt var fram 10. mars síðastlið-
inn, kemur fram að vegna athuga-
semda
nágranna við
efstu hæðar-
punkta rishæð-
ar á eldri hluta
hússins hafi
hann persónu-
lega gert bráða-
birgðamæling-
ar þann 6. mars
síðastliðinn:
„...kom í ljós að
vegghæð á
portvegg er
önnur en til-
greint er í
deiliskipulagi
eða u.þ.b. 98 cm í stað 75 cm.
Miðað við að þakhalli sé óbreyttur
er mænishæð þá einnig meiri eða
sem nemur 23 cm. Einnig mældist
salarhæð á 2. hæð 270 cm í stað
265 cm.“ Vegna þessarar niður-
stöðu er þess krafist af bygging-
arfulltrúa að allar hæðir í húsinu
verði mældar sérstaklega. Eftir
að mælingum er lokið skal gefa
skriflegar skýringar á öllum frá-
vikum sem fram kunna að koma
og allar frekari framkvæmdir, við
og í rishæðinni, skulu stöðvaðar
uns niðurstaða er fengin í málinu.
Helga B. Laxdal, lögfræðingur
hjá skipulags- og byggingarsviði
Reykjavíkurborgar, segir að ef
satt reynist telji hún að um mikla
hækkun sé að ræða en það geti
verið háð ýmsu. Hún segir að það
fari eftir eðli málsins hvað gerist
í framhaldinu. Ef um er að ræða
minni háttar tækniatriði þá sé
byggingarleyfishafa gefinn kost-
ur á að lagfæra og skila inn rétt-
um uppdráttum. „En ef hann hefur
farið út fyrir heimildir á deili-
skipulagi þá verður hann annað-
hvort að bera það undir skipulags-
fulltrúa að breyta því eða
einfaldlega að koma byggingunni
í það horf að það falli að deili-
skipulaginu.“ svavar@frettabladid.is
Hlaðvarpinn reynist
hærri en leyfilegt er
Byggingarfulltrúi Reykjavíkur hefur stöðvað framkvæmdir við Hlaðvarpann.
Mælingar hans staðfestu að húsið er hærra en leyfi eru til eins og íbúar í
Grjótaþorpi hafa fullyrt. Mögulega þarf að rífa þak hússins til að lækka það.
ÞRÁINN BERTELSSON
RITHÖFUNDUR
Einn þeirra sem
vöktu athygli á því
að breytingar á Hlað-
varpanum væru ekki
samkvæmt leyfum.
HLAÐVARPINN Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur stöðvað breytingar á Hlaðvarpanum
eftir að í ljós kom að hann var hækkaður meira en leyfi voru fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
SPURNING DAGSINS
Gunnar, ertu alveg í messi?
Nei, þvert á móti er ég fullur auðmýktar
og þakklætis fyrir að fá að vera lifandi á
þessum dýrðardegi.
Gunnar Þórðarson tónskáld var að leggja
lokahönd á nýjasta tónverk sitt sem heitir
Brynjólfsmessa.
SAKAMÁL Rannsóknin á morðinu á
Jóni Þór Ólafssyni og Brendu Sal-
inas Jovel sem myrt voru í El Sal-
vador í síðasta
mánuði stend-
ur enn yfir. Að
sögn Tobar
Brieto, aðstoð-
aryfirmanns
rannsóknar-
lögreglunnar í
San Salvador,
er það rangt
sem heyrst
hefur í fjöl-
miðlum hér á landi að Jón Þór hafi
verið pyntaður áður en hann var
tekinn af lífi.
Hann segir rannsóknina vel á
veg komna en mikill ótti ríkir hjá
fólki við að bera vitni í málum
sem þessum. Hann gefur lítið
fyrir þá rannsókn sem fyrirtæki í
eigu móður Brendu gerir á þessu
sakamáli. - jse
Lögreglan í El Salvador:
Jón Þór var
ekki pyntaður
VARNARMÁL Geir H. Haarde utan-
ríkisráðherra segir að Philippe
Douste-Blazy, utanríkisráðherra
Frakklands, hafi á fundi í París í
gær á marga lund tekið undir sjón-
armið Íslendinga varðandi þá
stöðu sem upp er komin í vörnum
Íslands eftir að Bandaríkjamenn
tilkynntu brottför varnarliðsins í
haust. „Frakkar eiga hagsmuna að
gæta í Norður-Atlantshafi eins og
aðrar þjóðir Atlantshafsbanda-
lagsins og hafa áhuga á að málið
leysist farsællega. Ég tel að við
eigum hauka í horni í þessu máli
þar sem Frakkar eru,“ segir Geir.
Á fundinum með utanríkisráð-
herra Frakka ræddi Geir einnig
um umsókn Íslendinga að Örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna, frið-
argæslu, málefni Írans og Íraks
og afstöðu Íslands til Evrópusam-
bandsins svo nokkuð sé nefnt.
Geir ræddi einnig símleiðis við
Per Stig Möller, utanríkisráðherra
Danmerkur, í gær. Urðu þeir ásátt-
ir um að hraða samningum um
samvinnu þjóðanna á sviði björg-
unarstarfa á Norður-Atlantshafi.
„Það er mál sem er á hendi dóms-
málaráðuneytisins og danska
varnarmálaráðuneytisins. Við
vorum sammála um að ljúka þessu
sem fyrst, en þetta lýtur að sam-
starfi danska flotans og Landhelgis-
gæslunnar,“ segir Geir. - jh
Dönsk og íslensk stjórnvöld ætla að hraða gerð samnings um björgunarstörf:
Frakkar líka haukar í horni
GEIR H. HAARDE OG PHILIPPE DOUSTE-
BLAZY Í PARÍS Í GÆR Frakkar sýna
sjónarmiðum Íslendinga mikinn skilning,
segir Geir. Hann ræddi einnig við danskan
starfsbróður sinn í gær.
��������������������������������������������������������������������
�������������
������������
��������������� ��
��������������������������������������������������������������
��������� ������������
ÍSRAEL, AP Ísraelskar sérsveitir
handtóku í gær tíu Palestínumenn,
sem talið er að hafi ætlað að
fremja sjálfsmorðsárás. Lögregl-
an elti lítinn sendiferðabíl í um
það bil fimmtán mínútur áður en
hann náðist, með blikkandi ljósum
og vælandi sírenum og þyrlur
sveimandi yfir.
Í bifreiðinni fundust sjö kíló af
sprengiefnum og talið er fullvíst
að þarna hafi tekist að koma í veg
fyrir hryðjuverk.
Meðan eltingaleikurinn stóð
yfir var öll umferð stöðvuð á mik-
ilvægasta þjóðvegi Ísraels í eina
klukkustund. Bifreiðin sást fyrst
skammt frá Jerúsalem og barst
leikurinn í áttina að Tel Aviv, en
Þegar mennirnir náðust loks miðja
vegu milli Jerúsalem og Tel Aviv
handjárnaði lögreglan þá og skip-
aði þeim að afklæðast.
Skammt er til kosninga í Ísrael,
aðeins tæp vika, og árásir Palest-
ínumanna hafa áður haft veruleg
áhrif á úrslit kosninganna í Ísrael.
Lögreglan segir að einn Palest-
ínumannanna hafi ætlað að
sprengja sjálfan sig í loft upp í
miðri Jerúsalemborg, en nánari
staðsetning var ekki gefin upp.
Ilan Franco, lögregluforingi í
Jerúsalem, segir að mennirnir séu
tengdir hreyfingunni Heilagt stríð
íslams. Engin yfirlýsing þar um
hefur þó borist frá hreyfingunni.
Ísraelsmenn hafa í kjölfarið
bannað Palestínumönnum að fara
frá Vesturbakkanum eða Gaza-
svæðinu til Ísraels fyrr en eftir
kosningarnar, sem haldnar verða
28. mars.
- gb
HANDTEKNIR Palestínumönnunum var
skipað að afklæðast áður en þeir voru
handjárnaðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ísraelskar sérsveitir komu í veg fyrir sjálfsmorðsárás:
Eltu sprengjumennina uppi
Lithái áfram í haldi Hæstiréttur
Íslands staðfesti gæsluvarðhaldsúrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Litháa sem
grunaður er um aðild að innflutningi á
umtalsverðu magni fíkniefna. Situr hann
því inni til 28. apríl næstkomandi.
HÆSTIRÉTTUR
PARÍS, AP Fleiri fréttamenn hafa
farist í Íraksstríðinu en í nokkru
öðru stríði síðan í seinni heims-
styrjöldinni, samkvæmt upplýs-
ingum frá samtökunum Blaða-
menn án landamæra sem birtar
voru á mánudag.
Þeirra tölur herma að alls hafi
84 fréttamenn og annað starfsfólk
fjölmiðla týnt lífi í átökunum í
Írak síðan þau hófust árið 2003. Á
þeim 22 árum sem átökin í Víet-
nam áttu sér stað, féllu 63 frétta-
menn. - smk
Írak hættulegt fréttamönnum:
Fleiri látnir en
í seinna stríði
ATWAR BAHJAT AL-SAMERAI Sjónvarps-
fréttakona sem myrt var í Írak í febrúar.
JÓN ÞÓR ÓLAFSSON
MENGUN Loka þurfti þjóðveginum
skammt frá brúnni yfir Norðurá í
Skagafirði tímabundið á sjötta
tímanum í gærkvöld þegar sjö
tonn af rafgeymum féllu af palli
vöruflutningabíls og enduðu á
veginum og úti í móa.
Brotnuðu margir geymarnir
við fallið og þurfti lögregla á Sauð-
árkróki að kalla til aðstoð lögreglu
frá Akureyri auk manna frá hjálp-
arsveitum til hreinsunar en
geymasýra lak úr mörgum þeirra
þegar að var komið. Sýran er eitr-
uð og skaðleg náttúrunni og því
var reynt að hraða hreinsun eins
og mögulegt var. Hreinsun var
ekki lokið þegar Fréttablaðið fór í
prentun. - aöe
Mengunarslys í Skagafirði:
Eitruð sýra lak
úr rafgeymum