Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 4
4 22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
SAMEININGAR Sveitarfélögum mun
fækka um hartnær fjórðung á
yfirstandandi kjörtímabili sveit-
arstjórna; úr 105 fyrir fjórum
árum í 80 að loknum kosningum í
vor.
Þann 8. apríl kjósa íbúar Þórs-
hafnarhrepps og Skeggjastaða-
hrepps um sameiningu og verði
hún samþykkt verða sveitarfélög-
in 79 talsins. Samhliða sveitar-
stjórnarkosningunum 27. maí
næstkomandi munu íbúar sjö
sveitarfélaga kjósa um ný nöfn á
sameinuð sveitarfélög. - kk
Sameining sveitarfélaga:
Fækkar um
nærri fjórðung
EVRÓPUSAMBANDIÐ, AP Ríkisstjórn-
ir Evrópusambandsríkjanna hafa
að mestu leyti komið sér saman
um að senda 1.500 manna herlið
til Kongó til að styrkja raðir frið-
argæsluliðs Sameinu þjóðanna
þar í kringum kosningar sem
fram fara í þessu stríðshrjáða
landi í sumar.
Liðið er sent í nafni sameigin-
legrar utanríkis- og öryggismála-
stefnu ESB. Fyrir liggur að Þjóð-
verjar munu fara fyrir herliðinu
en hermenn frá Frakklandi, Spáni,
Póllandi og fleiri löndum munu
skipa raðir þess. Þjóðverjar leggja
áherslu á að leiðangurinn verði
takmarkaður við fjóra mánuði. ■
Friðargæsla í Kongó:
Þjóðverjar fara
fyrir ESB-liðiBandaríkjadalur 69,67 70,01
Sterlingspund 121,8 122,4
Evra 84,54 85,02
Dönsk króna 11,328 11,394
Norsk króna 10,632 10,694
Sænsk króna 9,022 9,074
Japanskt jen 0,5963 0,5997
SDR 100,63 101,23
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 21.3.2006
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
Gengisvísitala krónunnar
118,1098
ALÞINGI Sæunn Stefánsdóttir,
aðstoðarmaður heilbrigðisráð-
herra, hefur verið leyst undan
þingstörfum. Hún
var varamaður Guð-
jóns Ólafs Jónssonar,
Framsóknarflokki,
sem fékk fast þing-
sæti við brotthvarf
Árna Magnússonar
félagsmálaráðherra.
Sæti Sæunnar
tekur Fanný Gunn-
arsdóttir kennari. Sæunn bað um
lausn þar sem hún væri önnum
kafin í heilbrigðisráðuneytinu.
- gag
Sæunn Stefánsdóttir af þingi:
Kallað í þriðja
varamann
SÆUNN STEF-
ÁNSDÓTTIR
VIÐSKIPTI Danske Bank sendi í gær
frá sér skýrslu þar sem dregin er
upp svört mynd af íslensku efna-
hagslífi og spáð kreppu á þessu ári
eða næsta. „Við skoðum vísbend-
ingar sem snemma koma fram um
fjármálakreppu og komumst að
þeirri niðurstöðu að horfur á
Íslandi séu verri á nærri öllum
sviðum en voru í Taílandi fyrir
kreppuna þar árið 1997 og aðeins
örlítið betri en í Tyrkandi fyrir
kreppuna 2001,“ segir í skýrsl-
unni.
Sérfræðingar greiningardeilda
íslensku bankanna segja Danske
Bank virðast vera að falla í sömu
gryfju og erlendar greiningar-
deildir hafa áður gert með því að
setja skuldir þjóðarinnar í sam-
hengi við verga landsframleiðslu.
„Í skýrslunni kemur fram nokkur
vanþekking og þeir draga svaka-
legar ályktanir út frá haggögnum
sem þeir hafa náð í án þess að
huga nokkuð að því hvað þar ligg-
ur að baki,“ segir Snorri Jakobs-
son, sérfræðingur á greiningar-
deild Kaupþings banka, og bendir
á að strax í upphafi skýrslunnar sé
sleginn sá varnagli að bankinn
hafi ekki áður fjallað um íslenska
hagkerfið. Þá sendi sendiráð
Íslands í Danmörku frá sér frétta-
tilkynningu þar sem styrk staða
íslensku bankanna er áréttuð.
Ólafur Ísleifsson, hagfræðing-
ur og lektor við viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík, segist
veigra sér við að kalla skrif
Danske Bank skýrslu eða álit.
„Plaggið er óvenjulega stóryrt,“
segir hann og bendir á að höfund-
ar þess segist sjálfir ekki vera
sérfræðingar í aðstæðum á Íslandi.
„Og þeir virðast standa undir
þeirri fullyrðingu.“
Ólafur segir bankann taka aug-
ljósar staðreyndir, líkt og að hér
sé þanið hagkerfi og að ákveðinn
misbrestur hafi átt sér stað í efna-
hagsstjórn sem ekki hafi stutt
nægilega peningamálastefnu
Seðlabankans og leggja út á versta
veg með samanburði við lönd á
borð við Taíland og Tyrkland þar
sem grundvallaraðstæður á borð
við skipan gengismála og þróunar-
stig í efnahagsmálum hafi verið
allar aðrar. Ólafur bendir á að spá
Danske Bank um 5 til 10 prósenta
lækkun á hagvexti næstu tvö ár sé
ekki studd neinum gögnum og
gangi þvert á allar spár hér heima,
til dæmis fjármálaráðuneyti og
Seðlabanka. „Einnig vekur athygli
að Danske Bank virðist ekki hafa
tekið eftir að Standard og Poors‘s
hefur nýlega staðfest lánshæfis-
einkunn sína fyrir Ísland með
stöðugum horfum. Eins hafa
Moody‘s og Fitch nýlega staðfest
háar einkunnir sínar fyrir íslensku
bankana.“ olikr@frettabladid.is
FRÁ KAUPMANNAHÖFN Í skýrslu sem Danske Bank sendi frá sér í gær segir að íslenskir
bankar standi frammi fyrir fjárhagslegum mótbyr og brást sendiráð Íslands við með því að
senda út fréttatilkynningu þar sem áréttuð er styrk staða þeirra og lánshæfismat.
Danske Bank spáir
kreppu hér á árinu
Yfirvofandi er efnahagskreppa á Íslandi og samdráttur í hagvexti, ef marka má
nýja greiningu Danske Bank. Óvenjulegt plagg með nálægt því rætnum vanga-
veltum, segir Ólafur Ísleifsson hagfræðingur. Krónan og hlutabréf lækkuðu í gær.
VIÐSKIPTI Á aðalfundi FL Group
spurði Vilhjálmur Bjarnason hlut-
hafi hvort þriggja milljarða
greiðsla hefði verið millifærð af
reikningum fyrirtækisins í lok júní
í þágu annarra aðila en félagsins.
Greindi Jón S. Helgason, end-
urskoðandi frá KPMG Endurskoð-
un, að fyrirtækið hefði kannað
stórar útborganir af bankareikn-
ingum FL Group á umræddu tíma-
bili og ekki fundið neinar slíkar
greiðslur á þessum tíma. FL Group
stundar miklar fjárfestingar og
allar þær útborganir sem nýttar
voru til slíkra verkefna skiluðu
sér aftur með eðlilegri ávöxtun
innan skamms tíma.
Stjórnendur FL Group horfa til
þess að 50-80 prósent af fjárfest-
ingum félagsins verði með þeim
hætti að félagið taki þátt með virk-
um þætti í stjórnun þeirra fyrir-
tækja sem fjárfest er í. Í máli
Skarphéðins Bergs Steinarssonar,
stjórnarformanns FL Group, kom
fram að félagið horfi meðal ann-
ars til fjárfestinga í fjölmiðlum og
fjarskiptum.
Skarphéðinn sagði að mikil-
vægt væri að geta útskýrt starf-
semi fyrirtækisins. „Það blasir við
að FL Group, rétt eins og bankarn-
ir og íslensk fjármálafyrirtæki í
örum vexti á erlendum mörkuð-
um, þarf að auka gegnsæi í starf-
semi sinni og hvers kyns upplýs-
ingagjöf.“ - eþa
KPMG Endurskoðun hf. kannaði háar millifærslur af reikningum FL Group:
Engar óeðlilegar greiðslur
Þriggja mánaða fangelsi Síbrota-
maður var í gær dæmdur til þriggja
mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi
Reykjavíkur fyrir þjófnað á málverki
annars vegar og skjalatösku hins vegar.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust.
Lamdi í leigubíl Maður var dæmdur
til greiðslu 45 þúsund króna til ríkissjóðs
fyrir að berja þrisvar í rúðu leigubíls
í miðbæ Reykjavíkur svo tjón varð á
bílnum. Bótakröfu leigubílstjórans var
hafnað.
HÉRAÐSDÓMUR
Hættir á Morgunblaðinu Hallgrím-
ur Geirsson, framkvæmdastjóri Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins, greindi
frá því á aðalfundi félagsins að hann
hefði ákveðið að óska eftir starfslokum.
Stjórnin féllst á beiðni hans en hann
sinnir starfinu þangað til nýr fram-
kvæmdastjóri verður ráðinn.
MANNABREYTINGAR
Hækkar um rúman helming
Fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen,
hefur lagt fram frumvarp um að lágmark
virðisaukaskatts á atvinnustarfsemi
verði hækkað úr 220 þúsundum í 500
þúsund. Íslenska veltumarkið sé töluvert
lægra nú en á Norðurlöndunum utan
Svíþjóðar, þar sem það sé ekkert.
ALÞINGI
SKARPHÉÐINN BERG STEINARSSON Stjórn-
arformaður FL Group sagði félagið meðal
annars horfa til fjárfestinga í fjölmiðlum.
HVÍTA-RÚSSLAND, AP Alexander Mil-
inkevitsj, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar í Hvíta-Rússlandi,
hvatti stuðningsmenn sína til að
halda mótmælum gegn opinberum
úrslitum forsetakosninganna
áfram af fullum krafti.
„Við munum halda okkur hér
fram á 25. (mars), en þá munum
við fylkja liði til að berjast fyrir
framtíð okkar,“ sagði Milinkevitsj
er hann ávarpaði mótmælendur á
aðaltorgi Minsk í gær, á þriðja
degi mótmælanna. Þann 25. mars
minnast Hvít-Rússar fyrstu sjálf-
stæðisyfirlýsingar landsins frá
árinu 1918, en hefð er fyrir því að
andstæðingar Lúkasjenkos komi
saman á þessum degi. ■
Andstæðingar Lúkasjenkos:
Mótmælendur
hvattir til dáða
MEÐ BANNAÐAN FÁNA Einn af stuðn-
ingsmönnum Milinkevitsj sveipaði um
sig gamla hvít-rússneska fánanum, sem
Lúkasjenkó hefur bannað. FRÉTTABLAÐIÐ/AP