Fréttablaðið - 22.03.2006, Blaðsíða 6
6 22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR
FÉLAGSMÁL Framkvæmdir við
hjúkrunarheimli fyrir aldraða,
sem rekið verður með nýstárlegu
formi, hefjast á fyrrihluta þessa
árs. Það verður staðsett við Boða-
þing í Kópavogi og verður áhersla
lögð á sjálfstæði og fjárhagslegt
sjálfræði heimilisfólksins.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi sem Gunnar I. Birgisson,
bæjarstjóri í Kópavogi, og Guð-
mundur Hallvarðsson, formaður
Sjómannadagsráðs, efndu til í gær.
Hugmyndin að baki nýja rekstrar-
forminu byggir á því að heimilis-
fólk haldi sjálft tekjum sínum og
greiði hefðbundin útgjöld, svo
sem húsaleigu, fæði, hita og raf-
magn, í stað þess að þessar greiðsl-
ur fari í gegnum tryggingakerfið,
eins og nú gerist. Hið opinbera
greiði fyrir hjúkrun og aðhlynn-
ingu.
Með þessu fyrirkomulagi verða
greiðslur og útgjöld heimilis-
manna mun sýnilegri en áður og
fólk meðvitaðra um það hvernig
þeim er ráðstafað.
Nýja hjúkrunarheimilið mun
samanstanda af þremur húsum,
með hjúkrunarherbergjum, sem
eru 3750 fermetrar hvert. Þar
verður sameiginleg þvottaaðstaða,
eldhús og borðstofa. Húsin þrjú
tengjast þjónustumiðstöð með
sundlaug, sjúkraþjálfun, dagvist-
un, netkaffihúsi og félagsmiðstöð.
- jss
NÝSTÁRLEGT REKSTRARFORM Gunnar I. Birgisson kynnir nýjar hugmyndir að rekstrarformi
heimila fyrir aldraða. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Nýstárlegt hjúkrunarheimili fyrir aldraða kynnt:
Áhersla á sjálfstæðan fjárhag
KJÖRKASSINN
Á að reisa álver á Suðurnesjum?
Já 32%
Nei 68%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Viltu fá Jón Baldvin á Alþingi á ný?
Segðu þína skonun á visir.is
Vilt þú ná hámarks
árangri?
„Mjög gott námskeið sem
nýttist mér vel, var skemmtilegt
og opnaði augu mín fyrir
mörgum hlutum.”
Guðni Vilberg Baldursson, sölumaður,
Vatnsvirkinn hf
„Mjög gott upprifjunarnám-
skeið fyrir reyndari sölumenn,
vel skipulagt þar sem farið er vel
yfir aðalatriðin”
Þorsteinn Halldórsson, viðskiptastjóri,
Tæknival
Námskeið í sölutækni
Nánari upplýsingar og skráning: • Sími 561 6365: • tölvupóstur hhr@hhr.is: • www.hhr.is
HH Ráðgjöf býður nú uppá námskeið í sölutækni
sem hentar afar vel fyrir alla sölumenn, nýliða og þá
sem reyndari eru.
Um er að ræða heildstætt námskeið sem nýtist öllum
sem selja vöru eða þjónustu til verslana, fyrirtækja
eða stofnana.
Á námskeiðinu er farið yfir meginlögmál árangursríkrar
sölumennsku s.s.
• Markvissa útrás
• Hvernig halda á áhrifaríkar kynningar
• Viðbrögð við mótbárum
• Hvernig halda skal núverandi viðskiptavinum
• Öflun nýrra viðskiptavina
• Samningatækni
• Leiðir til að hámarka framlegð
Námskeiðið tekur 4 klst.
Í boði eru opin námskeið en einnig er hægt að sérpanta
námskeið fyrir hópa
ALÞINGI Forsætisráðherra, Halldór
Ásgrímsson, lagði á Alþingi í gær
áherslu á að ekki hafi verið samið
um neinar aðrar stóriðjufram-
kvæmdir en þær á Reyðarfirði og
Grundartanga. Aðrar framkvæmd-
ir yrði að tímasetja vandlega til
þess að þær féllu sem best að efna-
hagslífinu. Stöðugleikinn hefði
algjöran forgang. Allt of snemmt
væri að tala um aðrar stóriðju-
framkvæmdir sem staðreyndir.
Sagði Halldór þetta eftir að
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingar, spurði hvern-
ig ríkisstjórnin hygðist bregðast
við niðurstöðum matsfyrirtækj-
anna Fitch annars vegar og Stand-
ard & Poor‘s hins vegar á lánshæf-
ismati ríkisins. Fyrirtækin hafi
gefið íslenskum stjórnvöldum gula
spjaldið. Hagkerfið væri svo yfir-
spennt að það þyldi tæpast illt
umtal í erlendum fjölmiðlum. „Þau
benda á váboðana sem hér eru. Það
er skuldasöfnunin, það er við-
skiptahallinn, það er álagið á pen-
ingamálastjórnunina, það er of lítil
upplýsingagjöf og það eru of mikl-
ar væntingar, vegna þess að stjórn-
völd kynda undir þeim með stöð-
ugum umræðum um virkjanir og
stóriðju.“
Halldór sagði ríkisstjórnina
ekki bera ábyrgð á þeim miklu
væntingum sem ríkja um stóriðju.
Þær væru vegna gífurlegra
umræðna um að búið væri að
ganga frá samningum um frekari
framkvæmdir. Ríkisstjórnin rétti
ekki stóriðjuna fram á silfurfati
heldur þrýsti fólkið á um hana. „Af
því er varðar þær stóriðjufram-
kvæmdir sem verið er að tala um,
um þessar mundir, þá er það fólkið
á Norðurlandi sem er að sækja á
um það. Það er fólkið á Reykjanesi
sem er að sækja á um það. Það er
fyrirtæki sem er búið að starfa í
Hafnarfirði um áratuga skeið sem
vill stækka. Það er ekki vegna þess
að ríkisstjórnin sé að reyna að
færa einhverjum eitthvað,“ sagði
Halldór.
Ingibjörg benti á að hrein
skuldastaða ríkisins væri 1.550
milljarðar króna. Eins prósents
vaxtahækkun þýddi því fimmtán
milljarða útgjaldastreymi frá land-
inu.
Halldór ítrekaði á móti að hag-
vöxtur hafi verið yfir 60 prósent
frá 1995 og kaupmáttur einnig.
Atvinnuleysi væri hvergi minna
og skuldir ríkissjóðs óvíða minni.
Það hafi sérfræðingar OECD við-
urkennt.
„Það er vissulega rétt að skuld-
ir einstaklinga hafa aukist. Skuld-
ir fyrirtækja hafa aukist. Skuldir
ríkissjóðs hafa hins vegar minnk-
að.“ Hrein eign heimilanna hafi
aukst um 1.200 milljónir króna á
síðustu fimm árum eða um tólf
milljónir á hvert heimili. Skuldir
þeirra nemi 35 prósentum af eign-
um og hafi lækkað á síðustu
árum. gag@frettabladid.is
Kýs stöðugleikann
umfram stóriðju
Forsætisráðherra segir stöðugleikann hafa algjöran forgang umfram stóriðju.
Fólk á Norðurlandi og Reykjanesi hafi þrýst á um álframleiðslu. Ríkisstjórnin
beri ekki þá ábyrgð. Formaður Samfylkingar segir ríkið hafa fengið gula spjaldið.
STOKKHÓLMUR, AP Laila Freivalds,
utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði
af sér í gær í kjölfar ásakana um að
hún hefði gerst uppvís að því að
ljúga til um þátt sinn í að vefsíðu
var lokað sem boðað hafði endur-
birtingu skopteikninga af Múham-
eð spámanni.
Freivalds sagði að sér væri ekki
lengur unnt að gegna starfi sínu
sem skyldi í ljósi þeirrar hörðu
gagnrýni sem beindist gegn henni í
fjölmiðlum. Göran Persson forsæt-
isráðherra skipaði Bo Ringholm
utanríkisráðherra til bráðabirgða.
Freivalds sætti fyrst harðri
gagnrýni í desember, eftir að kom-
ist var að þeirri niðurstöðu í rann-
sóknarskýrslu að hún hefði borið
nokkurn hluta ábyrgðarinnar á
slælegum viðbrögðum sænskra
stjórnvalda við hamförunum við
Indlandshaf á annan í jólum árið
áður, en 500 Svíar létust í flóð-
bylgjunni.
Gagnrýni á Freivalds jókst
síðan til muna eftir að hún var
sögð hafa brotið gegn prentfrelsi
með því að láta loka vefsíðu
sænsks hægriöfgaflokks í byrjun
febrúar. Þá aðgerð réttlætti Frei-
valds með því að birting Múham-
eðsteikninga í sænskum miðli
gæti stefnt Svíum í hættu, með til-
liti til ofsafenginna viðbragða í
Danmörku. Hún segist ekki hafa
gefið fyrirmæli um að láta loka
síðunni, en gagnrýnendur hennar
rengja þá fullyrðingu hennar. - aa
FREIVALDS OG PERSSON Á blaðamanna-
fundi í Stokkhólmi í gærmorgun, þar sem
afsögnin var tilkynnt. NORDICPHOTOS/AFP
Utanríkisráðherra Svíþjóðar segir af sér:
Freivalds sökuð um ósannsögli
DÓMSTÓLAR Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær Hagkaup til að
greiða manni á aðra milljón króna,
auk 350 þúsund króna í málskostn-
að, vegna vinnuslyss sem hann
varð fyrir þar sem hann var við
vinnu sína í einni af verslunum
fyrirtækisins.
Tildrög málsins eru þau að
starfsmaðurinn var að taka til á
lager ásamt öðrum starfsmanni,
þegar álstigi féll skyndilega og
lenti maðurinn á gólfinu.
Við slysið varð maðurinn fyrir
meiðslum og hlaut brotáverka á
hægra sveifarbeini við olnboga,
sem leitt hefur til varanlegs
heilsutjóns. - jss
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Hagkaup dæmt
til bótagreiðslu
FORSÆTISRÁÐHERRA Halldór Ásgrímsson
segir fólk á Norðurlandi og Reykjanesi óska
eftir stóriðju. Stjórnvöld beri hins vegar
enga ábyrgð á þeim væntingum.
FORMAÐUR SAMFYLKINGAR Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir segir ríkisstjórnina andsetna
þegar komi að virkjunum og stóriðju. Hún
sjái ekki aðrar leiðir til að efla efnahagslífið.