Fréttablaðið - 22.03.2006, Qupperneq 16
22. mars 2006 MIÐVIKUDAGUR16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Héðinn Ólafsson kafari er einstak-
lega hrifinn af vatni. „Mér líður best
í vatni og vil helst hvergi annars
staðar vera. Þetta er svo rólegt og
stresslaust umhverfi.“
Héðinn er vitaskuld, og sem betur
fer, alveg laus við vatnshræðslu en
að sama skapi þekktur fyrir að vera
svolítið blautur.
„Ég byrjaði að kafa 1999 og það varð
ekki aftur snúið. Ég setti stefnuna
á þetta þegar ég var strákur, þá sá
ég kafara og ákvað að þetta væri
eitthvað fyrir mig.“
Og Héðinn kafar ekki bara í vatni,
hann drekkur það líka. „Ég drekk
mjög mikið vatn, ég er alveg laus við
kaffið en drekk þeim mun meira af
vatni.“
Líður best í vatni
HÉÐINN ÓLAFSSON KAFARI
Rúrí myndlistarmaður hefur unnið
markvisst með vatn undanfarin tíu ár.
„Ég hef kannski meðvitaðri áhuga á
vatni en margir en öll höfum við mik-
inn áhuga á vatni þegar við upplifum
vatnsskort.“
Rúrí finnst við fara illa með vatn. „Mér
finnst við sólunda því. Við þurfum að
gæta að hvernig við nýtum vatnið.
Við þurfum að hugsa okkar gang.“
Og hún líkir vatninu við gersemar.
„Það mætti tala um vatn sem bláa
gullið. Olía verður ekki gull framtíðar-
innar heldur vatn.“
En það er ekki allt slæmt. „Vatnið er
svo yndislegt. Hver upplifir ekki unað
við að fara í sturtu að morgni eða
stinga sér í laug? Svo maður tali nú
ekki um náttúrulega laug.“
Vatn er yndislegt
RÚRÍ MYNDLISTARKONA
Júlíus Sigurjónsson sjómaður byrjaði
að róa á unglingsárunum. „Ég hef
verið á sjó síðan ég var fjórtán eða
fimmtán ára. Fyrst réri ég bara á
sumrin en nú allt árið.“
Honum líður vel á sjó. „Ég kann vel
við vaggið. Annars finn ég svo sem
ekki mikið fyrir því.“
En hann er alltaf votur. „Ég er alltaf
rennandi blautur upp fyrir haus og
þess vegna alltaf kvefaður. En ég er
hættur að finna fyrir því.“
Og þegar Júlíus er í landi sækir hann
áfram í vatnið. „Ég fer daglega í
sund. Og svo drekk ég mikið vatn.
Það er það eina sem ég drekk þegar
ég er á sjó.
Syndir í landi
JÚLÍUS SIGURJÓNSSON SJÓMAÐUR
Dagur vatnsins er í dag.
Með því að tileinka vatni
einn dag á ári vilja Samein-
uðu þjóðirnar vekja fólk til
umhugsunar um mikilvægi
vatns og nauðsyn þess fyrir
menningu okkar og líf.
„Vatn og menning“ er þema dags
vatnsins að þessu sinni og fram-
kvæmd hans því á forræði Menn-
ingar- og vísindastofnunar Samein-
uðu þjóðanna (UNESCO).
Stofnunin minnir heimsbyggð-
ina á mikilvægi vatns og þær stað-
reyndir að fjórir fimmtu hlutar
mannslíkamans eru vatn og að
tveir þriðju hlutar af yfirborði
jarðar eru þaktir vatni. Dagurinn
er notaður til að beina athygli fólks
að því að hægt er að skoða, virða og
nota vatnið með eins fjölbreyttum
hætti og fjölbreyttar menningar-
legar hefðir um víða veröld segja
til um.
Í stuttri hugvekju UNESCO er
mikilvægi vatnsins lýst svo: „Borg-
ir okkar eru settar nálægt vatni;
við böðum okkur í vatni; við leikum
okkur í vatni; við vinnum með vatn.
Hagkerfi okkar eru byggð á opnum
siglingaleiðum um vatn – og vör-
urnar sem við kaupum og seljum
eru allar vatn að hluta til, bæði
beint og óbeint. Daglegt líf mótast
af aðgangi okkar að vatni. Án
vatnsins er umlykur okkur – sem
raki í lofti, sem straumur í ánni,
sem bunan úr vatnskrananum –
væri líf okkar ómögulegt. Á síðast-
liðnum árum höfum við misst sjón-
ar á mikilvægi vatnsins. Það er
ekki lengur heilagt og verndað,
heldur neysluvara eins og hvað
annað. Vatn er undirstaða menn-
ingar okkar og lífs.“ ■
Vatn er undirstaða lífs
ÁFRAM STREYMIR Íslendingum er eðlislægt að líta á vatn til allra nota sem sjálfsögð þægindi enda streymir það áfram í ám og fljótum,
sprettur upp úr lindum og liggur í vötnum. Víða á jörðinni eru vatnsbirgðir takmarkaðar og meðal helstu verka hjálparstofnana er að grafa
brunna. UNESCO hvetur fólk til að virða vatn á degi vatnsins.
TÍMINN OG VATNIÐ
eftir Stein Steinarr
Tíminn er eins og vatnið,
og vatnið er kalt og djúpt
eins og vitund míns sjálfs.
Og tíminn er eins og mynd,
sem er máluð af vatninu
og mér til hálfs.
Og tíminn og vatnið
renna veglaust til þurrðar
inn í vitund míns sjálfs.
Þið hafið nú átt það
hingað til
„Við eigum ekkert öruggt
sæti í samfélaginu.“
ANNA KRISTINSDÓTTIR BORGAR-
FULLTRÚI UM STÖÐU FRAMSÓKN-
ARFLOKKSINS. FRÉTTABLAÐIÐ.
Þarf ekki einu sinni
loftnet?
„Sambandið er þráðlaust,
uppsprettan eilíf, þú ert
sítengdur.
SIGURBJÖRN ÞORKELSSON RIT-
HÖFUNDUR UM LÍFIÐ OG TRÚNA.
MORGUNBLAÐIÐ.
Besta mál
„Ég held að það gæti verið hið besta
mál,“ segir Sigrún Ármanns Reynis-
dóttir, formaður Samtaka gegn fátækt,
um hugmyndir manna um flutning
Landhelgisgæslunnar á Suðurnesin í
kjölfar brottflutnings hersins.
„Mér sýnist fljótt á litið að það gæti
orðið gott fyrir atvinnulífið suður frá og
skapað þar störf,“ segir hún.
Sigrún Ármanns telur ekki nauðsynlegt
að stofnun á borð við Landhelgisgæsl-
una hafi aðsetur í Reykjavík. „Það held
ég ekki. Gæslan getur vel verið annars
staðar.“
SJÓNARHÓLL
FLUTNINGUR GÆSLUNNAR TIL
SUÐURNESJA
SIGRÚN ÁRMANNS REYNISDÓTTIR
Flestir tengja Ara Trausta Guðmundsson jarðeðlis-
fræðing við jarðfræði og eru blaðamanni í fersku
minni stórskemmtileg og spaugileg kennslu-
myndbönd úr jarðfræðitímum í framhaldsskóla.
En Ari Trausti er að vasast í ýmsu ótengdu
jarðfræði þessa dagana. Þegar blaðamaður sló á
þráðinn var hann á leið austur á Flúðir til að taka
upp sjónvarpsefni. „Ég er að vinna að þáttum
um íslenska tónlist þar sem portrett er málað
af því helsta sem er að gerast hjá Íslendingum
bæði heima og erlendis.“ Í þáttunum verða allar
tegundir tónlistar teknar fyrir, allt frá rappi til
kóratónlistar og var Ari Trausti einmitt að fara að
hitta Karlakór Hreppamanna á Flúðum.
Ari Trausti er handritshöfundur og kynnir í
þáttunum og vinnur þá með vini sínum Valdimar
Leifssyni. Þetta verða níu þættir með tveimur
ólíkum innslögum þar sem viðtal verður tekið við
sitthvorn tónlistarmanninn. Ekki verður einungis
talað við þekktustu tónlistarmenn Íslands heldur
er stefnan að blanda saman þekktum einstakl-
ingum og fólki sem fáir þekkja. Serían verður ekki
á dagskrá fyrr en í fyrsta lagi um áramót að sögn
Ara Trausta.
Tónlistarþættirnir eru ekki það eina sem er
í vinnslu hjá Ara Trausta sem var á leiðinni til
útgefanda síns vegna hugsanlegarar útkomu á
nýrri ljóðabók. Hann hefur áður gefið út ljóðabók-
ina Í leiðinni sem kom út árið 2004. „Þetta eru
bara hugleiðingar um lífið og tilveruna og ekkert
framúrstefnurit,“ segir Ari Trausti þegar blaðamað-
ur reynir að fiska eftir því hvaða ljóðastefnu hann
fylgi. „Ljóðin eru að miklu leyti um útlönd, það
er eitt og annað sem hægt er að koma til skila í
gegnum ljóð, ekki þarf alltaf að hafa ferðasögur.“
Jarðfræðin er þó aldrei langt undan hjá Ara
Trausta sem er að ganga frá upplýsingariti um
jarðfræði fyrir útlendinga sem mun koma út á
ensku og þýsku. „Þetta
er hálfvísindabók,“ segir
Ari Trausti og er hún
hugsuð til að fólk geti
kynnt sér á einum stað
það helsta í jarðfræði
Íslands. Ritið er unnið
með ferðamenn sem
hafa jarðfræði sem
sérstakt áhugamál í
huga og einnig erlenda
nemendur sem koma
hingað til lands.
„Eftir þá miklu törn
sem er fram undan er
næst á dagskrá að fara í þriggja vikna frí með
konunni eitthvert út í heim,“ segir Ari Trausti áður
en hann kveður og leggur af stað austur fyrir fjall
að hlýða á fagran kórsöng.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON JARÐEÐLISFRÆÐINGUR
Þættir um íslenska tónlist í vinnslu
Ari Trausti
Guðmundsson
JÁTAÐI OG VAR DÆMDUR Í
SKILORÐSBUNDIÐ FANGELSI
Herra Ísland gripinn
með kókaín heima
ARNÓR DIEGO Í FÍKNIEFNAMISFERLI
2x15 21.3.2006 20:20 Page 1