Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 40
MARKAÐURINN
F Ó L K Á F E R L I
22. MARS 2006 MIÐVIKUDAGUR20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
AR
G
U
S
06
-0
05
2
Við leggjum áherslu á
langtímasamband og
sérhæfðar lausnir sem taka
mið af sérstökum
aðstæðum og starfsumhverfi
viðskiptavina okkar.
SPH – fyrir þig og fyrirtækið!
Vildarþjónusta fyrirtækja
Greiðsluþjónusta – frí fyrsta árið
Hærri innlánsvextir
SPH innkaupakort þér að kostnaðarlausu
NÝR VÖRULISTI FRÁ BROS
Síðumúla 33 • 108 Reykjavík • Sími 581 4141 • sala@bros • www.bros.is
ÞÓRA HALLGRÍMSDÓTTIR hefur verið
ráðin framkvæmdastjóri tjónasviðs
hjá Sjóvá, sem er
eitt af viðamestu
sviðum félagsins.
Framkvæmdastjóri
tjónasviðs ber
ábyrgð á rekstri
þess, hefur
yfirumsjón með
ákvörðunum um
bótaskyldu og
stýrir þjónustu við viðskiptavini vegna
afgreiðslu tjóna. Tjónasvið Sjóvá hefur
einnig umsjón með forvarnarstarfi
félagsins. Þóra er fædd 12. apríl 1974.
Hún lauk kandídatsprófi í lögfræði við
Háskóla Íslands árið 2000 og öðlaðist
réttindi til að vera héraðsdómslögmaður
árið 2002. Þóra starfaði sem lögfræð-
ingur hjá Tryggingamiðstöðinni hf. á
árunum 2000-2005. Hún hefur starfað
hjá Sjóvá frá því í febrúar 2005 og sinnti
þar lögfræðiþjónustu áður en hún tók
við starfi framkvæmdastjóra tjónasviðs.
SPRON hefur tekið upp
nýja gerð af VISA kredit-
kortum sem fengið hefur
nafnið e2 Vildarkort og
er ætlað að auka ávinn-
ing korthafa. Nýjungin í
kortinu er að ávinningur
korthafa er tvíþættur því
vildarpunktar og endur-
greiðslur eru nú sameinuð
á eitt kreditkort.
Korthafar fá
endurgreitt í desember
ár hvert með peninga-
ávísun sem hægt er að nýta að vild. Vildarpunktar nýtast við
kaup á flugmiðum og annarri þjónustu hjá Icelandair og tengdum
fyrirtækjum.
Ný tegund vildarkorts
E2 VILDARKORT Vildarpunktar og endurgreiðslur
sameinuð á eitt kort.
Sjóvá og Sjóklæðagerðin hf. hafa
gert með sér samning um víð-
tæka vátryggingavernd vegna
hagsmuna Sjóklæðagerðarinnar
hf. bæði innanlands og erlend-
is. Samningur þessi byggir
á samstarfi Sjóvá við Royal &
SunAlliance sem veitir Sjóvá
aðgang að þjónustuneti Royal
& SunAlliance í 133 löndum.
Sjóklæðagerðin hf. var stofnuð
1926 og sá í upphafi eingöngu
um framleiðslu á sérstökum
hlífðarfatnaði fyrir sjómenn og
fiskverkunarfólk á norðurslóð-
um. Á síðari árum hefur bæst
við fjölbreytt framleiðsla á
útivistarfatnaði með áherslu á
hönnun og gæði. Sjóklæðagerðin
hf. er með tvær verksmiðjur í
Lettlandi. Útflutningur á fatn-
aðinum fer vaxandi. Í dag eru
66° Norður vörur seldar í N-
Ameríku, Skandinavíu og Mið-
Evrópu. Þessi samningur er því
mikill kostur og hagræðing fyrir
Sjóklæðagerðina hf.
Samið um víðtæka
vátryggingavernd
VIÐ UNDIRRITUN SAMNINGS UM VÍÐ-
TÆKA VÁTRYGGINGAVERND
Marinó Guðmundsson, forstjóri
Sjóklæðagerðarinnar hf., og Sveinn Segatta,
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Sjóvá.
Tölvulistinn hlaut nýverið gull-
vottun Microsoft og hefur þar
með náð enn einum áfanga í
sögu fyrirtækisins, en það hefur
vakið athygli fyrir hraðan vöxt
síðustu misseri.
Gullvottun Microsoft
er viðurkenning fyrir sér-
fræðiþekkingu Tölvulistans
á „Information Worker“ og
„Networking Infrastructure“
lausnum Microsoft. Auk þess
að geta nú titlað sig Microsoft
Gold Certified Partner hefur
Tölvulistinn hlotið svokallaða
Small Business Specialist-vottun,
en það þýðir að starfsmenn fyr-
irtækjalausna séu sérfræðingar
í Microsoft-lausnum á smáfyr-
irtækjamarkaði. „Smáfyrirtæki
eru samkvæmt skilgreiningu
Microsoft þau sem eru með
færri en fimmtíu starfsmenn,
en Tölvulistinn hefur í gegnum
tíðina mestmegnis þjónustað
fyrirtæki í þeim stærðarflokki
hér á landi,“ segir í tilkynningu
fyrirtækisins. - óká
VOTTUNIN AFHENT Halldór Hrafn
Jónsson þjónustustjóri og Gunnar Freyr
Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs
Tölvulistans, taka á móti skjali frá Elvari
Steini Þorkelssyni, framkvæmdastjóra
Microsoft á Íslandi.
Tölvulistinn fær vottun Microsoft
Auka þjónustuna við smærri fyrirtæki.
Skúlagata 17 101 Reykjvavík sími : 566 88 00 e-mail : vidskiptahusid@vidskiptahusid.is www.vidskiptahusid.is
Viðskiptahúsið - Fyrirtækjaráðgjöf
Fyrirtækjaráðgjöf Viðskiptahússins aðstoðar við kaup, sölu og sameiningu
fyrirtækja. Einnig aðstoðum við fyrirtæki við sölu á rekstrareiningum og
fjármögnun á keyptum rekstrareiningum og fyrirtækjum. Viðskiptahúsið
leggur áherslu á fagleg vinnubrögð.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofu:
* Innflutnings- og þjónustufyrirtæki velta 700 m.
* Framleiðslu- og þjónustufyrirtæki velta 300 m.
* Framleiðslufyrirtæki í sjávarútvegi velta 250 m.
* Innflutnings- og dreifinarfyritæki í efnageiranum velta 150 m.
* Fiskeldisstöð tilbún til rekstar.
Erum með kaupendur af:
* Félagi með veltu uppá 200-400 m.
* Félagi með innflutning eða framleiðslu á umbúðum.
* Félagi með innflutning og dreifingu á efnum og olíum.
* Félagi með innflutning og dreifingu á tölvum og tölvubúnaði.
* Félagi með innflutning og dreifingu fyrir heilsugeiran.
Jóhann Ólafsson
Löggiltur FFS.
Viðskiptahúsið
Skúlagata 17
s: 566 88 00
vidskiptahusid@vidskiptahusid.is
www.vidskiptahusid.is
Fasteignir - Atvinnuhúsnæði - Fyrirtæki - Skip - Aflaheimildir