Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 41
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2006
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
NÝTT – OPIN FERÐ
Nú er hægt að bóka
NETSMELL til eins
áfangastaðar og heim frá
öðrum. Þetta gildir um alla
áfangastaði Icelandair í
Evrópu og Bandaríkjunum.
OPNA FERÐ verður að bóka
á milli áfangastaða í sömu
heimsálfu.
ALLT AÐ 140 FLUG
Á VIKU TIL 22
ÁFANGASTAÐA.
M
Ü
N
LA
N
Ó
T
IL
M
Ü
N
C
H
EN
–
H
EI
M
F
R
Á
M
ÍL
A
N
Ó
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
Ý
S
IN
G
A
S
T
O
F
A
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
3
1
9
0
0
0
3
/2
0
0
6
Olíufélagið Esso hefur samið við
fyrirtækin KLS og EJS um inn-
leiðingu á Saga Pos-afgreiðslu-
kerfinu, en samningur fyrirtækj-
anna felur í sér að Saga Pos-
lausnir verða settar upp á öllum
afgreiðslustöðvum Esso.
Í tilkynningu fyrirtækjanna
kemur fram að Saga Pos sé ný
kynslóð afgreiðslulausna frá KLS
ehf. „Lausnin samanstendur af
afgreiðsluhugbúnaði og miðlægri
bakvinnslu, sem tengist öllum
helstu bókhaldskerfum lands-
ins. Meðal aukakerfa KLS sem
tengjast Saga Pos eru handtölvu-
lausnir fyrir birgðir, pantanir,
vörutalningar og verðkannanir
auk tenginga við eftirlitsmynda-
vélar,“ segir þar, en einnig verða
í kerfinu nýjungar í kynning-
um og auglýsingum í gegnum
afgreiðsluskjái sem snúa að við-
skiptavinum í verslun.
EJS hóf að selja Saga Pos-kerf-
ið í byrjun ársins, en þegar munu
verslanir á borð við 10-11, Bónus,
Hans Petersen og Bónusvideo
hafa fest kaup á því.
ESSO VIÐ GEIRSGÖTU Í REYKJAVÍK Nýtt afgreiðslukerfi Esso er þannig sniðið að
afgreiðsluskjáir sem snúa að viðskiptavinum geta sýnt kynningar og auglýsingar.
Nýtt afgreiðslukerfi tekið upp
Olíufélagið semur við KLS og EJS. Nýtt kassakerfi víða komið upp.
Á bænum Holtseli í Eyjafirði
hefur verið tekin í nokun ísvél
og stefnt að sölu til veitingahúsa
og á að selja gestum og gang-
andi ís heima á bæ í sumar.
Á vef Landssambands kúa-
bænda segir frá þessu fram-
taki bændanna Guðrúnar
Egilsdóttur og Guðmundar J.
Guðmundssonar. Arna Mjöll,
fimmtán ára dóttir þeirra, tekur
einnig þátt í verkefninu og er
haft eftir móður hennar að
hún verði „aðalísgerðarkonan í
sumar“.
Ísinn er sagður gerilsneydd-
ur og án aukaefna á að hafa
eins árs geymsluþol í frysti.
Ísvélin er tölvustýrð og hægt
er að velja á milli 400 mismun-
andi uppskrifta og allra hugs-
anlegra bragðtegunda. Auk
hefðbundinna tegunda eins og
jarðarberja-, vanillu-, hnetu- og
súkkulaðiíss er hægt að bjóða
nýjungar á borð við bjórís, álaís,
hvítlauksís og sveppaís.
Um 2.000 vélar þeirrar gerð-
ar sem sett hefur verið upp í
Holtseli munu vera í notkun á
evrópskum bændabýlum.
Haft er eftir Guðrúnu að
Guðmundur hafi rekið augun í
auglýsingu í breska bændablað-
inu Farmers Weekly þar sem
ísvélin var kynnt og fljótlega
hafi verið ákveðið að kaupa
hana. Eftir miklar breytingar
í fjósi varð til rými í hlöðunni
sem hjónin hafa innréttað fyrir
ísgerðina. - óká
ÍSINN KÆLIR Í SUMARHITANUM
Stjórnvöld hrundu í fyrravor af stað verkefn-
inu „Beint frá býli“ en í þeim anda á að búa
til ís í Eyjafirði í sumar.
Ís beint frá býlinu
Á bænum Holtseli í Eyjafirði hefur verið tekin í
notkun ný ísvél. Bændurnir nýta pláss í hlöðunni.
Kauphöll Íslands hlaut nýverið
árleg verðlaun Business Britain
Magazine fyrir að stuðla að hag-
vexti í íslensku efnahagslífi. Á
frummálinu nefnast verðlaunin
Award for Services to Indigenous
Economic Growth 2005/2006.
Business Britain Magazine
hefur veitt verðlaun eftir mis-
munandi þemum síðan 2002,
en þetta er í fyrsta skipti sem
kauphöll hlotnast slík verðlaun.
Business Britain Magazine sér-
hæfir sig í umfjöllun um fyr-
irtæki og fjármálamarkaði þar
sem tímaritið er í dreifingu; í
Evrópu, Afríku og Mið-Asíu.
Í tilefni af verðlaununum
verður þriggja síðna umfjöllun
um Kauphöllina í mars/apríl tölu-
blaði tímaritsins, auk þess sem
tveggja og hálfrar mínútu dag-
skrá verður um Kauphöllina í
kvöldfréttum Sky News hinn 8.
apríl næstkomandi. Fréttastofa
Sky-sjónvarpsstöðvarinnar er
sögð ná til um áttatíu milljóna
manna. - óká
Kauphöll Íslands fær verðlaun
Business Britain Magazine verðlaunar Kauphöllina. Verðlaununum fylgir
umfjöllun í kvöldfréttatíma Sky sjónvarpsstöðvarinnar bresku.
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Samtök verslunar og þjónustu
kynntu á aðalfundi sínum í gær
nýja skýrslu um mikilvægi
þjónustugeirans fyrir íslenskan
þjóðarbúskap. Þar kemur fram
að hlutdeild þjónustu af lands-
framleiðslu nemi 55 prósentum
(67 prósentum sé verslun talin
með) og hafi aukist um 14 pró-
sentustig frá árinu 1973 og fari
enn vaxandi. „Með slíka hlut-
deild er þjónustan grundvöllur
að velferð framtíðarinnar,“ segir
í skýrslunni sem Viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík vann fyrir
samtökin.
Eftir setningu aðalfundarins
tók Valgerður Sverrisdóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, á móti
plaggi með ábendingum og tillög-
um samtakanna um hvernig efla
megi enn ört vaxandi þjónustu-
greinarnar. Lagt er til aukið sam-
starf opinbera- og einkageirans,
auknar rannsóknir og nýsköp-
un, breytingar á skattkerfinu og
margt fleira í alls 29 liðum.
Í skýrslunni um mikilvægi
þjónustugeirans er farið yfir
margvíslega tölfræði, svo sem
að konur séu í meirihluta þeirra
sem vinna við þjónustu, en sjö af
hverjum 10 útivinnandi konum
starfa við þjónustustörf. Þá kemur
fram að atvinnutekjur á mann
hafi hækkað meira í þjónustu-
geiranum en annars staðar frá
árinu 1988. Kaupmáttaraukning í
þjónustu nemur 23,5 prósentum á
móti 18 prósentum almennt.
Þá var einnig í tengslum við
skýrslugerðina gerð könnun
á viðhorfum almennings, sem
Gallup framkvæmdi. Þar kemur
meðal annars fram að um 70 pró-
sent svarenda telja að starfsfólk
einkafyrirtækja veiti betri þjón-
ustu, meðan 11 prósent telja að
starfsfólk opinberra fyrirtækja
veiti betri þjónustu. Afgangurinn,
eða 19 prósent, telja þjónustuna
svipaða. - óká
Benda á mikilvægi þjónustugeirans
Samtök verslunar og þjónustu héldu aðalfund gær. Þar voru iðnaðarráðherra
afhentar tillögur til úrbóta í tengslum við þekkingar- og þjónustuiðnað.
TILLÖGUR AFHENTAR Hrund Rudólfsdóttir,
formaður SVÞ, afhendir Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðar- og viðskiptaráðherra tillögur til stuðn-
ings þekkingar- og þjónustugreinum.