Fréttablaðið - 22.03.2006, Síða 45
MIÐVIKUDAGUR 22. mars 2006 21
Leiðbeiningar um gerð og upp-
byggingu reiðvega nefnist rit
sem nýlega er komið út. Það var
fyrst kynnt fyrir þremur árum en
hefur nú litið dagsins ljós. Er það
samvinnuverkefni Vegagerðar-
innar og Landssambands hesta-
manna.
Leiðbeiningunum er ætlað að
auðvelda skipulags- og fram-
kvæmdaraðilum gerð reiðvega á
öllu landinu. Þær eru til almennra
viðmiðana og leiðbeinandi fyrir
sveitarfélög, landeigendur, skipu-
lagsfræðinga, Vegagerðina og for-
svarsmanna hestamanna við
skipulagsvinnu go gerð reiðvega.
Leiðbeiningar:
Gerð reiðvega
Hestamannafélagið Fákur stend-
ur fyrir fræðslufundi í félags-
heimilinu í Víðidal annað kvöld
klukkan 20. Herdís Reynisdóttir,
búfræðikandidat, kynbótadómari
og reiðkennari frá Hólaskóla,
heldur fyrirlestur um tengsl
byggingar og reiðhestshæfileika
með sérstaka áherslu á yfirlínu
hrossa.
Herdís mun ræða um hvernig
bygging og yfirlína hrossa hafa
áhrif á reiðhestshæfileika, af
hverju rétt yfirlína er mikilvæg
og hvernig knapinn getur haft
áhrif á hana til hins betra. Einnig
mun hún koma inn á áherslur í
kynbótadómum á þessa þætti og
ólíkar skoðanir þjálfara. Fyrirlest-
urinn er öllum opinn og aðgangur
ókeypis.
Hestamannafélagið Fákur:
Yfirlína á
fræðslufundi
Tímaritið Hestar mun í byrjun
apríl gefa út þemablað um stóð-
hestinn Hrafn frá Holtsmúla.
Þetta er gert í tengslum við sér-
staka Hrafnsmessu, minningar-
hátíð um þennan mikla stóðhest
sem haldin verður í Ölfushöllinni
19. apríl.
Í blaðinu verður rakin saga
hestsins, rætt við þá sem helst
höfðu áhrif á ævi hans og gengi.
Getið verður merkustu afkvæma
hans, stóðhesta, hryssna og keppn-
ishrossa, og rætt við knapa og
ræktendur sem hafa heillast af
afkvæmum og afkomendum
Hrafns.
Tímaritið Hestar:
Sérrit um gæð-
inginn Hrafn
HRAFN FRÁ HOLTSMÚLA Gæðingur sem
fallinn er nú frá. FRÉTTABLAÐIÐ/JENS EINARSSON
SÉRFRÆÐINGURINN: SIGURÐUR TORFI SIGURÐSSON FORMAÐUR NÝSTOFNAÐS JÁRNINGAMANNAFÉLAGS
Markmiðið að efla fagþekkingu á járningum
„Markmið félagsins er að efla fag-
þekkingu á járningum,“ segir Sigurður
Torfi Sigurðsson járningameistari,
nýkjörinn formaður hins nýstofnaða
Járningamannafélags Íslands sem
var formlega stofnað á laugardaginn
í félagsheimili Gusts í Kópavogi.
Sigurður Torfi segir að rúmlega
20 manns hafi sótt fundinn og 10
til viðbótar séu búnir að skrá sig.
Menn geti gerst stofnfélagar til 18.
apríl með því að senda inn skriflega
umsókn.
„Félagið er opið öllum þeim sem fást
við járningar. Við viljum fá inn menn
sem eru að vinna mikið við þetta fag,
bæði þá sem járna mikið fyrir sjálfa
sig og hina sem einnig járna í og
með fyrir aðra,“ segir Sigurður Torfi.
Járningamannafélagið heldur sitt
fyrsta námskeið 26. og 27. maí. Þá
kemur hingað til lands maður að
nafni Hans Castelijns, sem er hol-
lenskur að uppruna en býr á Ítalíu.
Hann er bæði menntaður dýralæknir
og járningamaður.
„Ég hef farið á fjögur námskeið
hjá honum og hann hefur alltaf verið
með mismunandi efni á dagskrá. Það
virðist vera alveg sama hvar gripið
er niður hjá honum í þessu fræðum.
Hann helgar líf sitt þessu fagi.“
Fyrirkomulag námskeiðsins er
ekki alveg fullunnið enn, en forráða-
menn félagsins eru jafnvel
að hugsa um að hafa það að
hluta til opið, þannig
að almenningi gefist
kostur á að koma inn.
Fleiri námskeið og
fyrirlestrar á vegum
hins nýstofnaða
félags eru í vinnslu,
að sögn Sigurðar
Torfa.
H
9. hvervinnur
Harry Potter
Þú sendir SMS skeytið BTC VHP
á númerið 19oo
Þú svarar spurningu
Þú gætir unnið
Harry Potter & Eldbikarinn
Fyrri Harry Potter myndir
Harry Potter tölvuleikir
Pepsi kippur
Varningur tengdur PS2 og
tölvuleikjum
Fullt af öðrum DVD
myndum og tölvuleikjum
Og margt fleira
Harry Potter myndirnar á
DVD og Samsung X-640
Aukavinningar
eru:
Aðalvinningur er:
LENDIR Í VERSLANIR BT 23. MARS
Agrakadabra!
SMS LEIKUR
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
OG ELDBIKARINN